Morgunblaðið - 16.08.1983, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1983
35
Janúar-júní:
1.718 litsjón-
varpstæki flutt
inn til landsins
A sama tíma í fyrra
voru flutt inn 3.156 tæki
VERULEGA hefur dregið úr inn-
flutningi á ýmiskonar svokölluðum
„lúxusvarningi" á þessu ári. í því
sambandi má nefna, að fyrstu sex
mánuði ársins voru flutt inn 1.718
litsjónvarpstæki, borið saman við
3.156 á sama tíma í fyrra.
Verðmætaaukning þessa inn-
flutnings milli ára er aðeins tæp-
lega 2,7%, eða tæplega ll,7 millj-
ónir króna á móti tæplega 11,4
milljónum króna.
Þá má nefna, að innflutningur á
hljóðvarpstækjum dróst saman á
umræddu tímabili um liðlega
52%, þegar inn voru flutt 7.150
tæki, en til samanburðar 14.900
tæki á sama tíma í fyrra.
Verðmæti innflutnings á hljóð-
varpstækjum fyrstu sex mánuði
ársins var um 8,77 milljónir, en til
samanburðar tæplega 10,5 millj-
ónir króna á sama tíma í fyrra.
Verðmætasamdrátturinn er því
liðlega 16,5% á milli ára.
Tóbaksinnflutn-
ingur jókst um
15,8% á tímabil-
inu janúar-júní
Tóbaksinnflutningur jókst um
15,8% í magni talið fyrstu sex mán-
uði ársins, samkvæmt upplýsingum í
Hagtíðindum. Þar kemur fram, að
fyrstu sex mánuðina voru flutt inn
samtals um 330,7 tonn af tóbaki,
borið saman við 285,5 tonn á sama
tíma í fyrra.
Verðmætaaukningin milli ára
er liðlega 177,6%, eða 112 milljón-
ir króna fyrstu sex mánuðina í ár,
borið saman við liðlega 40,3 millj-
ónir króna á sama tima í fyrra.
Ef litið er á innflutning á vindl-
ingum kemur í ljós, að innflutn-
ingur á þeim jókst um 18,5%
fyrstu sex mánuðina, þegar inn
voru flutt liðlega 278,5 tonn, borið
saman við 235,1 tonn á sama tíma
í fyrra.
Innflutningur á svokölluðu öðru
tóbaki jókst á umræddu tímabili
um tæplega 3,6%, þegar inn voru
flutt samtals 52,2 tonn, borið sam-
an við liðlega 50,4 tonn á sama
tíma í fyrra.
Sviss:
Bflasala dróst
saman tímabilið
janúar-júlí
BÍLASALA dróst saman í Sviss um
3,2% fyrstu sex raánuði ársins borið
saman við sama tímabil í fyrra, sam-
kvæmt upplýsingum samtaka bíla-
innflytjenda þar í landi, en markað-
urinn í Sviss er talinn einhver sá
harðasti í veröldinni.
Mestur samdráttur var í sölu á
ítölskum og frönskum bílum. Alls
var samdrátturinn í sölu á frönsk-
um bílum um 13,6% og um 11%
samdráttur varð í sölu á ítölskum
bílkum.
Sala japanskra bíla jókst lítils
háttar, en hins vegar varð nokkur
aukning í sölu á vestur-þýzkum
bílum, sérstaklega var um að ræða
mikla aukningu hjá Audi og Ford.
Það kom fram hjá talsmanni
samtaka bílainnflytjenda, að
markaðshlutdeild vestur-þýzkra
bíla hefði vaxið úr 40,2% í 42,1%
og hlutdeild þeirra japönsku hefði
vaxið úr 27,3% í 28,4% fyrstu sjö
mánuði ársins.
Kreditkort -
greiðslukort
Blaðinu hefur borist eftirfarandi
frá Kreditkorti sf.:
Fyrir nokkrum vikum gerði
Árni Böðvarsson, umsjónarmaður
þáttarins Daglegt mál orðið kre-
ditkort að umtalsefni og sagði
m.a.:
„Ég er illa sáttur við þetta orð
— kreditkort — vegna þess að
fyrri hlutinn er framandlegur í
málinu — kre og dit, nú eða kred
og it. Er eiginlega hér um að ræða
greiðslufrestskort, kort sem veita
kaupandanum tiltekinn frest að
greiða upphæðina, sem hann var
að kaupa fyrir. Mörg fyrirtæki
veita viðskiptavinum sínum slíka
þjónustu, en ég held að þau ættu
að sjá sóma sinn í því að nota
betra og íslenskulegra orð en kre-
ditkort, og þá veit ég ekkert annað
betra en greiðslukort, enda mun
það hafa verið tíðkað þó að t.d.
lánakort hefði eins komið til
greina.
Hins vegar kann það að hafa
haft sitt að segja að fyrir nokkru
var stofnað hér fyrirtæki með
nafninu „Kreditkort", einmitt í
þeim tilgangi að auðvelda fólki
þessa þjónustu.
Mér þykir verr farið, að erlenda
orðið skuli hafa orðið ofan á í
nafngiftinni."
Það mun hverjum manni eigin-
legt að bera hönd fyrir höfuð sér
þegar að honum er veist, og enda
þótt ádrepan sé borin fram af
hógværð og að mörgu leyti rétt-
mæt skal þess nú freistað að færa
nokkur rök fyrir að nafnið kre-
ditkort hafi verið skásti kosturinn
þegar fyrirtæki okkar var gefið
nafn. Eins og Árni bendir rétti-
lega á er orðið kredit ekki af ís-
lenskum stofni. Á hitt má þó
kannski benda að það er tekið upp
í Orðabók Menningarsjóðs — sem
Árni Böðvarsson ritstýrði — án
þess að þar sé á neinn hátt gefið
til kynna að það sé varasamt eða
háskalegt orð. Einnig má um það
deila hversu góð íslenska er að
nota síðari liðinn — kort; sbr. ým-
islegt annað af svipuðu tagi, svo
sem nafnskírteini, ökuskírteini,
bókasafnsskírteini, nafnspjald o.fl.
Þetta var okkur fullljóst. En
hins vegar vafðist fyrir okkur að
finna tæknilegt íslenskt orð. Árni
Böðvarsson leggur til að nota orð-
ið greiðslukort „enda mun það
hafa verið tíðkað". Okkur fannst
sá kostur ekki viðunandi; því að
orðió greiöslukort er alls ekki sömu
merkingar og kreditkort. Það er
ekki greitt með kortinu, heldur er
það skilríki um að eiganda þess
megi veita greiðslufrest. Hins veg-
ar er naumast hægt að kalla þetta
greiðslufrestskort, einfaldlega
vegna þess að orðið er allt of langt
og óþjált; og borin von að það
mundi nokkurn tíma ná neinni út-
breiðslu. Eftir heilmikla leit að ís-
lensku nýyrði gáfumst við upp og
ákváðum að nota tökuorðið kre-
ditkort í nafni fyrirtækisins; álit-
um það betra en að nota annað
hvort kauðalegt eða þá villandi
heiti. Þá bendum við á, að latn-
esku orðin debit og credit hafa
lengi verið notuð í bókhaldi hér á
landi, eins og raunar um allan
heim. Má segja að þau hafi unnið
sér þegnrétt í flestum tungumál-
um.
Kreditkort sf. hefur umboð á ís-
landi fyrir erlenda fyrirtækið
Eurocard, sem er í samvinnu við
MasterCard í Bandaríkjunum og
Access í Bretlandi.
í áðurnefndum þætti um dag-
legt mál leggur Árni Böðvarsson
til að nota orðið Evrókort í stað
Eurocard. Þarna gætir nokkurs
misskilnings hjá íslenskufræð-
ingnum. Eurocard er nafn á fyrir-
tæki, er vörumerki eins og Hus-
quarna eða Chevrolet, og því út í
hött að fara að íslenska það. Það
er von okkar að þessar línur skýri
málstað okkar og sýni að nafn
fyrirtækisins ber alls ekki að
skoða sem tilræði við íslenska
tungu. Við völdum einfaldlega
þann kostinn sem okkur fannst
bestur. Því að eitthvað varð barn-
ið að heita.
Stjórn Kreditkorts sf.
Verð frá kr. 4.950.-
3ja gíra — 5 gíra — 10 gíra
— 12 gfra
ÞEKKING - REYNSLA - ÞJÓNUSTA
FALKINN 105 REYKJAVÍK
SUÐURLANDSBRAUT 8 - SÍMI 91-84670
GARÐASTÁL
Þrautreynt efni í hæsta gæðaflokki á þök og veggi
utan sem innan. Allir fylgihlutir fyrirliggjandi
einnig slétt efni. Sérsmíði eftir óskum.
Hringið, komið eða skrifið og fáið ókeypis ráðgjöf
ntr kostnaðaráætlun.
SÖLUSÍMI 5 29 22
hringir hringir
Sumarhús
og Tívolí
á sama stao
. . F ^
23. og 30. ágúst
(Mögulegt aö framlengja)
Bráðskemmtileg nýjung fyrir fjölskylduna sem vill stanslaust Tivolí-
fjör í sumarleyfinu án aukakostnaðar. Gist verður i sumarhúsum við
Pony Park, einn stærsta Tivoligarð Hollands. Innifalinn í verði
ferðarinnar erfrjálsaðganguraðöllum tækjum, leikjum og sýningum
í Pony Park og bílaleigubíll að auki!
Verðdæmi: 4 saman i husi kr.10.600.- Barnaafsláttur kr. 4.000,-
Heildarverð fyrir 4ra manna fjölskyldu aðeins kr. 34.000.-
Innifalið: Flug til og frá Amsterdam, gisting í sumarhúsi og ókeypis
aðgangur að Pony Park, bílaleigubíll af A-flokki í viku, ótakmarkaður
kilómetrafjöldi, allar nauðsynlegar tryggingar og söluskattur.
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899