Morgunblaðið - 16.08.1983, Qupperneq 40
BÍLLINN
BlLASALA SlMI 79944 SMIOJUVEGI 4 KÖAAVCTI
______Trékappar í mlklu úrvali
„ömmustangir" og spennustanqir.
_________ útsQlustaðir-____
__ Álnabær - Síöumúla
S Gardínubrautir
Kópavogi - sími 77900
ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1983
I
MorgunbUAiA KÖE.
Stýrið læstist og bfllinn hafnaði f garðinum
ÍBÚAR einbýlishúss við Laugarásveg fengu heldur óskemmtilegan
„gest“ í garðinn á laugardagskvöldið — nýlega japanska fólksbifreið.
Þrír unglingar, tveir piltar og stúlka, óku eftir Laugarásvegi. Ekki höfðu
þau hugann við aksturinn sem skyldi, heldur brugðu á leik í bílnum og
tók farþegi kveikjulykilinn úr bílnum. Drapst þá á bifreiðinni og læstist
stýrið. Við þetta fataðist ökumanninum og hafnaði bifreiðin í garðinum;
ruddist yfir limgerði og valt fram af mannhæðarháum kanti. Sáralitlar
skemmdir urðu á bifreiðinni, þó ótrúlegt megi virðast. Kranabifreið var
fengin til þess að lyfta bifreiðinni upp úr garðinum og óku unglingarnir
leiðar sinnar.
Framfærsluvísitalan
hækkar um 21,45%
— Verðbólguhraðinn nú 117% miðað við heilt ár
KAUPLAGSNEFND hefur reiknað
vísitölu framfærslukostnaðar miðað
við verðlag í byrjun ágúst 1983 og
reyndist hækkunin frá maíbyrjun
vera 21,45%. Framfærsluvísitalan er
362,52 stig miðað við grunntölu 100 í
ársbyrjun 1981, en hún var 298,5 stig
í maíbyrjun í ár. Samkvæmt þessu
mælist verðbólguhraðinn miðað við
heilt ár liðlega 117%. Laun hækka
um 4% 1. október næstkomandi.
Ásmundur Stefánsson, forseti
ASÍ, sagði í gær að þessi niður-
staða væri í samræmi við það sem
forystumenn ASÍ hefðu gert ráð
fyrir. Þó færi hækkun fram-
færsluvísitölunnar fram úr áætl-
unum ASf og réði hækkun á
opinberri þjónustu 1. ágúst mestu
um.
Hann sagði að þessi hækkun
hefði líklega haft í för með sér
liðlega 20% kauphækkun ef farið
hefði verið að samningum. Ekki
væri þó unnt að segja nákvæmlega
hver kauphækkunin hefði orðið
vegna þess að viðskiptakjaravísi-
talan lægi ekki fyrir. „Að öllu
samanlögðu vantar trúlega
35—36% upp á að kaupið verði
eins og um var samið um næstu
mánaðamót ef lögin standa
óbreytt. Ég held það sé skýrara en
nokkuð annað um það hversu al-
varlegt ástandið er orðið í þjóðfé-
laginu. Kaupið hefur ekki fengið
að hækka en verðlagið æðir
áfram," sagði Ásmundur Stef-
ánsson.
Björn Arnórsson, hagfræðingur
BSRB, sagði spár um að verðbólg-
an verði komin niður í 30% um
áramótin því miður of bjartsýnar.
Aðgerðir ríkisstjórnarinnar
beindust einvörðungu að launun-
um og myndu ekki leysa neinn
vanda til langframa. Ekki væru
sjáanlegar neinar aðgerðir gegn
öðrum þáttum sem snertu verð-
bólguna eins og t.d. vaxtabyrði
fyrirtækjanna og almennt skipu-
lagsleysi í fjárfestingu hér á landi.
Þá vísaði Björn til samþykktar
ASÍ og BSRB þar sem bent var á
að til þess að stuðla að framtíðar-
lausn þessara mála þyrfti að taka
á efnahagsvandanum í heild sinni.
Steingrímur Hermannsson, for-
sætisráðherra, sagði að hækkun
framfærsluvísitölunnar nú væri í
samræmi við það sem gert hefði
verið ráð fyrir þegar til aðgerða
var gripið síðastliðið vor. Hann
sagðist telja, að líkur á lækkun
verðbólgu hefðu aukist.
hætta auglýsingasamstarfi við
Velti hf., sem verið hafði frjáls-
íþróttahreyfingunni mjög hag-
stætt og kvaðalaust, auk þess sem
það gaf meira í aðra hönd.
Ég vil taka fram að ég tel ekkert
óðlilegt að gera auglýsingasamn-
ing við SÍS, en alls ekki með þeim
skilyrðum, sem þarna áttu sér
stað. Það læðist að manni sá grun-
ur að hér hafi samvinnuhreyfing-
in verið að notfæra sér neyð íþrótta-
hreyfingarinnar í annarlegum
tilgangi," sagði Ágúst.
Á miðopnu eru birtar athugasemdir
SÍS, Samvinnuferða og ritstj. Mbl.
„Samningurinn aldrei
kynntur í stjórn FRÍ
— segir einn stjórnarmanna
66
„SAMNINGURINN um íþróttastyrk
SÍS var ekki kynntur í stjórn FRÍ
áður en skrifað var undir og reyndar
ekki heldur eftir á, og við stóðum í
þeirri trú að um kvaðalausa styrkveit-
ingu til menningarmála væri að
ræða, enda var jafnan gefið i skyn
að svo væri. Ég hefði lagst harkalega
gegn því að gengið yrði til samninga
með þessum kvöðum," sagði Ágúst
Ásgeirsson, stjórnarmaður í Frjáls-
íþróttasamhandi íslands (FRÍ) í til-
efni frétta Morgunblaðsins um
samninga SÍS og FRÍ um íþrótta-
styrk SIS, en ()rn Eiðsson, formaður
FRÍ, sagði í Mbl. sl. laugardag að
stjórn FRÍ hefði samþykkt samn-
ingsuppkast áður en gengið var til
samninga við SÍS.
„Hið eina rétta er að samþykkt
var að sækja um styrkinn í fyrra-
sumar, enda var þá með öllu óljóst
hvaða skilyrði voru fyrir styrk-
veitingunni. En þegar samningur-
inn við SÍS er skoðaður, kemur í
ljós að hér er ekkert um annað að
ræða en úttektarheimild og það
sem verst í þessu er að til að fá
þetta viðskiptalán, urðum við að
Erlendir
flugdrekamenn
í hrakningum
TVEIR félagar úr hópnum „Iceland
break-through“, sem er á leið yfir há-
lendið á bátum og flugdrekum, nauð-
lentu flugdreka sínum á Fljótsdals-
heiði á laugardagskvöldið. Þá sakaði
ekki, en (lugdrekinn skemmdist tals-
vert, að sögn lögreglunnar á Seyðis-
firði.
Þeim félögum tókst að gera við
flugdrekann, en vegna veðurs tókst
þeim ekki að koma honum á loft aft-
ur. Þeir gripu því til þess ráðs að
ganga niður að bæjum í Fljótsdal og
náðu þeir þangað í gærdag. Þar var
lögreglunni gert viðvart og sótti hún
mennina. Sagði Óskar Sigurpálsson,
lögreglumaður á Seyðisfirði, menn-
ina hafa verið ómeidda en talsvert
hrakta eftir útivistina og gönguna.
Gallað frí-
merki í seríu
Leifs heppna
í VOR fannst í pakka, sem ekki
hafði verið opnaður frá því á ár-
inu 1938, gallað frímerki í serí-
unni af Leifi heppna. Serían var
gefin út 9. október 1938. Frí-
merkið er rautt að lit og hefur
liturinn færst til vinstri og þann-
ig yfir takka frímerkisins.
„Frímerkið komst í mínar
hendur á frímerkjasýningu í
Málmey í febrúar síðastliðn-
um,“ sagði Magni Magnússon,
frímerkjasali, í samtali við
Mbl. „Sænskur kaupmaður
fann frímerkið í pakka, sem
ekki hafði verið opnaður síðan
1938. Ég keypti merkið af hon-
um, þar sem ég taldi það tví-
mælalaust best varðveitt hér
á landi. Það mun verða á sýn-
ingu, sem fyrirhuguð er hér á
landi á næsta ári. Fyrirspurn-
ir hafa borist frá Bandaríkj-
unum, en ég vil helst selja það
innlendum aðila," sagði
Magni, sem verðmetur merkið
á um 15 þúsund krónur.
Þá sagði Magni að í fyrra
hefði hann fundið gölluð
merki frá árinu 1973. í tilefni
100 ára afmælis frímerkisins
hér á landi var gefið út 20
króna merki og prýddi togari
merkið. Á einni örkinni er
togarinn „bókstaflega strand-
aður“. I stað þess að sigla lygn-
an sjó, hefur togarinn færst
til á einni örk og „siglt í
strand — hafnað á Islandi".
LEIFI
ISLAND
K