Morgunblaðið - 03.09.1983, Page 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK
200. tbl. 70. árg.
LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1983
Prentsmiðja Morgunbladsins
Árásin á kóreönsku farþegaþotuna:
Reagan sakar Rússa um
hryðjuverk og ósannindi
Reiðum andófsmanni
haldið í skefjum við sov-
ézka sendiráðið í Tókýó
þar sem efnt var til mót-
mæla gegn eldflaugaárás
Rússa á kóreönsku far-
þegaþotuna.
Rússar viðurkenna að hafa
skotið „viðvörunarskotum“
Washington, Seoul og Moskvu, 2. september. AP.
RONALD REAGAN Bandarfkjaforseti sakaði í dag Sovétríkin um ,,hrjðjuverk“
með því að skjóta niður farþegaþotu frá Suður-Kóreu á miðvikudag. Sagði
Reagan, að þessi atburður hlyti að vekja efasemdir um einlægni sovézkra
stjórnvalda í öllum yfirlýsingum þeirra varðandi frið og vígbúnaðareftirlit.
Forsetinn sakaði Sovétríkin ennfremur um að hafa í frammi lygar varðandi öll
atvik, er þotan var skotin niður. „Hvaða trúnað er hægt að leggja á orð
Sovétmanna, þegar þeir Ijúga svo gróflega um jafn svívirðilegan verknað. Þessi
villimannlegi verknaður hlýtur að vekja viðbjóð allra siðmenntaðra manna,"
sagði forsetinn.
Chun Doo-Hwan, forseti Suður-
Kóreu, sakaði Sovétríkin um að
hafa framið „villimannlegan verk-
nað“. Víðs vegar í heiminum voru
viðbrögð fólks á sama veg og So-
vétríkin alls staðar fordæmd harð-
lega fyrir tilefnislausa árás á
óvopnaða farþegaflugvél með jafn
skelfilegum afleiðingum og raun
ber vitni. Jafnframt eru þær raddir
háværar, sem heimta skýringu frá
Rússum á því, hvernig jafn voveifi-
legur atburður gat gerzt. Enn aðrir
óttast það mjög, að þessi atburður
verði til þess að auka enn viðsjár
með stórveldunum og leiði til vax-
andi spennu milli þeirra.
Stjórnvöld í Moskvu hafa enga
skýringu gefið á því, sem gerðist, en
sögðu í dag að sovézk flugvél hefði
skotið „viðvörunarskotum” að flugvél
á þeim slóðum, þar sem þotan fórst.
Þau viðurkenndu hins vegar ekki að
sovézk herþota hefði skotið far-
þegaþotuna niður. í langri fréttatil-
kynningu frá TASS, fréttastofu
Sovétríkjanna, var sagt, að far-
þegavélin hefði verið útsend af CIA,
leyniþjónustu Bandaríkjanna, „í
sérstökum njósnatilgangi". Sovézk-
ar herþotur hafi fylgzt með vélinni
og að lokum skotið að henni „við-
vörunarskotum", er hún var yfir
Sakhalin-eyju. „Stuttu síðar hvarf
flugvélin út fyrir mörk sovézkrar
lofthelgi og hélt áfram för sinni í
átt til Japans. í um 10 mínútur þar
á eftir sást hún á tækjum loftferða-
eftirlitsins á þessu svæði en hvarf
síðan.“
Almenningur í Sovétríkjunum
hefur ekkert fengið að vita um hin
raunverulegu afdrif suður-kóre-
önsku farþegaþotunnar og því eru
viðbrögð fólks þar við þessum at-
burði sára lítil. „Smámunir, sem
ekki er vert að minnast á,“ var al-
gengt svar manna á götum Moskvu,
sem vestrænir fréttamenn reyndu
að taka tali til þess að fá álit þeirra
á því sem gerzt hefði. Sumir sögðu,
að hið eina athyglisverða væri, að
Pravda, málgagn sovézka kommún-
istaflokksins, skyldi yfir höfuð
minnast á atburðinn. „Eg varð hálf
ringluð, þegar ég las fréttina í
Pravda," var þó haft eftir einni
konu, sem spurð var. „Mér fannst
orðin, sem notuð voru í fréttinni,
afar skrítin."
Japanir hafa verið hvað hvass-
yrðastir í gagnrýni á Sovétríkin
vegna þessa máls og kröfðust þess í
dag, að þegar yrðu hafnar um-
fangsmiklar leitar- og björgunarað-
gerðir vegna þeirra, sem með flug-
vélinni voru. Japanskir sérfræð-
ingar rannsaka nú sýnishorn úr 100
metra langri olíubrák, sem fannst
norðvestur af Japan í dag, en talið
er, að hún kunni að vera eftir suð-
ur-kóreönsku farþegaþotuna. Eiga
niðurstöður þessara rannsókna að
liggja fyrir á morgun, laugardag.
Sjá fleiri fréttir á bls. 22 og 23.
Suður-Kórea krefet
afeökunar oií bóta
Sameinudu bjóðunum, 2. september. AP.
uðu bj
-KÓ
SUÐIIR-KÖREA kærði í dag flugvél-
arárásina til Öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna og krafðist „afdráttarlausr-
ar afsökunarbeiðni og fullkominna
bóta“ af hálfu Sovétríkjanna fyrir að
hafa skotið farþegaþotuna niður á
miðvikudag að tilefnislausu með 269
manns innanborðs. Þá var þess jafn-
framt krafizt, að þeir sem ábyrgð
bæru á þessum „villimannlega verkn-
aði“ sættu fyllstu refsingu.
Kyung-Non Kim, sendiherra
Suður-Kóreu, bar einnig fram til-
mæli um, að fulltrúum Alþjóða
flugmálastofnunarinnar svo og
starfsmönnum flugmálastofnunar
Suður-Kóreu yrði veittur „óhindr-
aður“ aðgangur að því svæði, þar
sem flugvélin var skotin niður. Hélt
hann því fram, að Sovétríkin yrðu
að afhenda lík allra þeirra, sem fór-
ust svo og alla þá hluti, sem næðust
úr flaki flugvélarinnar. Jafnframt
yrðu Sovétmann að láta í té „áreið-
anlegar tryggingar fyrir því, að
slíkar árásaraðgerðir gagnvart far-
þegaflugvélum endurtækju sig
ekki“.
Charles M. Lichtenstein, sendi-
herra Bandaríkjanna, tók undir
kröfur suður-kóreanska sendiherr-
ans, en Riehard S. Ovinnikov, sendi-
herra Sovétríkjanna, neitaði að við-
urkenna, að þau bæru nokkra
ábyrgð á atburðinum. Sagði hann,
að þessum fundi öryggisráðsins
væri ætlað að vera „áróðurssýning
til þess að breiða út óhróður um
Sovétríkin."
Bensínsprengjum
varpað í Póllandi
VarsjA, 2. seplember. AP.
POI.SKIR fjölmiðlar skýrðu frá því í
dag, að bensínsprengjum hefði verið
kastað á lögreglumenn og að börn
hefðu verið notuð „til þess að vekja
spennu“, er til átaka kom á miðviku-
dag í borginni Lubin á þriggja ára
afma'li Samstöðu, samtaka hinna
óháðu verkalýðsfélaga í Póllandi. Til
óeirða kom þá í að minnsta kosti níu
pólskum borgum og beitti lögreglan
þar valdi til þess að dreifa stuðnings-
mönnum Samstöðu.
Hörðust urðu átökin í Nowa Huta
í Suður-Póllandi, þar sem 10.000
stáliðnaðarmenn áttu í höggi við
lögregluna lengi siðdegis. Frétta-
tilkynning frá PAP, hinni opinberu
fréttastofu Póllands, ber það með
sér, að einnig hafi komið til harðra
mótmælaaðgerða í borginni Lupin í
suðausturhluta landsins. „Þrátt
fyrir endurtekin tilmæli til manna
um að dreifa sér, urðu sumir þeirra
til þess að kasta steinum í lögreglu-
menn og nokkrir hikuðu ekki við að
kasta bensínsprengjum,” sagði i
fréttatilkynningu PAP.
„Það reyndist nauðsynlegt,” sagði
PAP ennfremur, „að beita valdi.
Síðdegis tókst að koma aftur á röð
og reglu í borginni. Það vekur at-
hygli, að jafnvel börn voru notuð til
þess að vekja spennu.“