Morgunblaðið - 03.09.1983, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1983
5
Fjórðungsþing
Norðlendinga:
Dræm
fundarsókn
Reykjum, 2. september — frá Hirti
Gíslasyni, blaðamanni Mbl.
FREMUR treg fundarsókn og fjar-
vi.stir alþingismanna hafa sett mark
sitt á fjórðungsþing Norðlendinga
sem nú er haldið á Raufarhöfn.
Þingið var sett á fimmtudagskvöld
og voru þá aðeins 52 fulltrúar af 95
sem rétt hafa til setu á þinginu
mættir. Alþingismönnum fjórðungs-
ins er að jafnaði boðið að sitja þingið
en við setninguna voru aðeins þrír
þingmenn beggja kjördæmanna
mættir, en þeir eru ellefu.
Af þessum sökum hefur ávörp-
um alþingismanna verið frestað
tvívegis en nú er ætlunin að þeir
tali á þinginu á laugardag. Þá varð
ekkert af fyrirhuguðu framsðgu-
erindi félagsmálaráðherra, Alex-
anders Stefánssonar, um breytta
stöðu landsbyggðar og búsetu-
röskun, þar sem Alexander sá sér
ekki fært að koma til Raufarhafn-
ar vegna anna við gerð fjárlaga. í
stað hans flutti Bjarni Einarsson,
framkvæmdastjóri byggðadeildar
Framkvæmdastofnunar, erindi
um sama efni. Að sögn Þórðar
Skúlasonar, formanns fjórðungs-
sambandsins, munu annir við hey-
skap aðallega hafa hamlað þingför
bænda. Taldi hann hina dræmu
mætingu ekki stafa af áhugaleysi.
Þórður sagði að helstu mál þessa
þings væru búsetuþróun og breytt
staða landsbyggðar og orku- og
iðnþróunarmál. Þinginu lýkur á
laugardag.
Vetrarferðir
til Mallorca
Flugferðir-Sólarflug skipuleggja I
vetur langdvalarferðir til Mallorka,
með nýju sniði. Hægt er að dvelja
allan veturinn, fimm mánuði, einnig
þrjá, tvo eða einn mánuð. Verða
iangdvalarferðirnar fáanlegar á
hagstæðum greiðslukjörum, sem
gerir flestum ellilífeyrisþegum og
raunar fólki á öllum aldri mögulegt
að dvelja vetrarlangt í Mallorka-sól
á viðráðanlegum kjörum.
Hefir ferðaskrifstofunni tekist að
komast að hagkvæmum samningum
um flugferðir og dvalarkostnað, sem
er í beinu framhaldi af fimm mán-
aða vetrardvöl nærri 20 Islendinga á
Mallorka á síðastliðnum vetri. Varð
sú vetrardvöl svo vinsæl að sumir
þeir sem þar dvöldu í fyrra vetur,
ætla að eyða næsta vetri einnig í
Mallorka-sól.
Til þess að gefa sem flestum kost á
að njóta þess unaðar, sem vetrardvöl
í sólinni veitir verður nú tekið upp
nýtt fyrirkomulag varðandi greiðslu
kostnaðar þannig að ellilífeyris-
greiðslurnar koma mánaðarlega,
sem greiðsla ferðar, auk fimm þús-
und króna á mánuði, og eru þá fimm
mánaða sólardvölin og flugferðir að
fullu greidd.
(tlr fréiutilkrnninmi.)
Ferming í Kot-
strandarkirkju
FERMING fer fram í Kotstrand-
arkirkju í dag klukkan 17.00.
Presturinn séra Tómas Guð-
mundsson mun ferma stúlkurnar
Viktoríu Sif Kristinsdóttur og
Guðlínu Kristinsdóttur.
fyrirháa semlága!
dag
árle
hefst
hin
RYMINGARSALA
okkar sem allir hafa beðið eftir
20%
50%
afsláttur
Sláiö til og geriö kjarakaup
á glæsilegum teppum, bút-
um og mottum.
Ath.
munið aö taka meö ykkur
málin af
gólffletinum.
I verzlun- k
inni viö Grens-k
ásveg býður ^
Vífilfell upp á
hressingu, ískalt
svalandi
Bornin fa lika
merki og íspinnana
vinsælu frá Emmess ef
þau eru þæg og góð með
an foreldrarnir skoða gólf
teppaúrvalið.
Við
erum bara
að rýma fyrir
nýjum
birgðum
Grensásvegi 13, Reykjavík, símar 91-83577 og 91-83430.
Tryggvabraut 22, Akureyri, sími 96-25055.