Morgunblaðið - 03.09.1983, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1983
SttnEgíhö ináD
Umsjónarmaður Gísli Jónsson 207. þáttur
í síðasta þátt laumaðist inn
villa sem er þess eðlis, að mig
langar til að leiðrétta hana
með ofurlitlum málalenging-
um. Fyrir kom orðmyndin all-
staðar. Þessi gerð telst ekki
rétt. Um tvennt er að ræða:
alls staðar (tvö orð, tvö I, tvö s)
eða alstaðar (eitt orð, eitt I, eitt
s). Ég hef tamið mér á síðari
árum að nota orðmyndina al-
staðar, atviksorðið. Mér þykir
sú orðmynd mýkri og við-
felldnari en hin, sem að vísu er
upprunalegri.
AJls staðar er eitt margra
dæma um svonefnda aukafalls-
liði, orð sem standa í einhverju
aukafalli og stýrast ekki af
neinu. Ég hef áður reynt að
gera þeim nokkur skil.
Aukafallsliðir í eignarfalli
eru fremur sjaldgæfir. Alls
staðar er dæmi um staðareign-
arfall = á öllum stöðum. Annað
algengt dæmi um staðareign-
arfall er orðasambandið þessa
heims og annars = í þessum
heimi og öðrum.
Ákaflega oft eru atviksorð ‘
„stirðnuð" föll, gamlir auka-
fallsliðir, og álitamál reyndar
hvernig greina skuli. Ég ætla
þó að það sé viðtekin venja, að
greina stundum sem atviksorð,
í sambandi eins og: Hann er
stundum góður, þótt allt eins
mætti segja að þetta væri
tímaþágufall af orðinu stund í
fleirtölu og þá aukafallsliður.
Stundum hafa menn líka for-
setningu með og segja þá og
skrifa á stundum.
Undarleg villa hefur komið
yfir sögnina að versla nú hin
síðustu ár. Athöfn sú eða
verknaður, sem hún felur í sér,
er bæði kaup og sala, en nú eru
ýmsir með afkáralegum hætti
teknir að láta hana merkja
sama og kaupa, og þá er líka
farið að láta hana stýra þol-
falli á því sem kaupa skal.
Verslið sælgætið í sjoppunni!
Hvatningu þessa efnis sá ég
uppi hafða í kjörbúð. Ég hefði
beðið fólk um að kaupa sæl-
gætið. Fyrir mér er sögnin að
versla áhrifslaus, það er hún
stýrir ekki falli, tekur ekki
með sér andlag, þolanda. Ef
við ætlum okkur að segja nán-
ar frá verslun þessa eða hins,
segjum við að hann versli með
eitthvað. „Ví verslar ekki með
matvara hér,“ sagði góður
danskur kaupmaður á Ákur-
eyri, þegar spurt var um
grænsápu. Þó málhaltur væri
á íslensku, kunni hann að fara
rétt með sögnina að versla.
Verðum við ekki að gera þá
lágmarkskröfu til þeirra sem
verslun stunda? Ég held það,
og ég held líka, eins og Páll
Helgason á Akureyri, að við
hljótum að gera athugasemd
við málfar eins og þetta: „Loks
lögðum við sömu spurningu
fyrir Sóleyju Brynjólfsdóttur
sem var að versla mjólk."
Þarna kann blaðamaðurinn
að fara rétt með ofurlítið
vandasamt nafn, en notar
sögnina að versla, þar sem mér
finnst skilyrðislaust að nota
ætti sögnina að kaupa.
Orðið reyður = hvalur er
kvenkyns, hún reyöurin. Orð
þetta er algengt í samsetning-
um, svo sem steypireyður,
sandreyður og langreyður, og er
í sama beygingaflokki og elfur
og æður. f þessum flokki er
margt kvennanafna, þeirra
sem enda á -gunnur, -hildur,
-heiður, -gerður og -dís: Arn-
gunnur, Ragnhildur, Álfheið-
ur, Valgerður og Þórdís. Nokk-
ur orð í þessum flokki hafa
með áhrifsbreytingu frá þol-
falli og þágufalli fengið i-end-
ingu í nefnifalli, svo sem helgi,
heiði, byrði, mýri, veiði, festi og
fylli.
Nokkra sérstöðu innan þessa
flokks hafa orðin brúður, unnur
og vættur. Vera má að -ur-end-
ing slíkra orða valdi því, að
fólki þyki þau karlkynsleg, því
að sum þeirra hneigjast til að
hverfast yfir í karlkyn, t.d.
vættur. Rétt finnst mér þó að
tala um þær landvættirnar, en
ekki þá landvættina. Kemur þá
aftur að reyðinni = hvalnum.
Páll Helgason hefur þetta
dæmi úr blaði: „Hvalur 9 er
búinn að fá tvo langreyði." Hér
skipar máltilfinning mín mér
að segja tvær langreyðar.
Hyggjum að fleiri dæmum
úr Pálsbréfi. Hann hefur þetta
m.a.: „í tilk. í nýlegu Lögbirt-
ingablaði segir að rekstur
Kauphallarinnar hér í Reykja-
vík, en það fyrirtæki stofnaði á
sínum tíma Aron heitinn Guð-
brandsson, hafi hætt starfsemi
sinni." Sem sagt, reksturinn
hætti starfseminni.
Ástæðan til þessara mál-
glapa er líklega sú, að máls-
greinin verður óhæfilega löng
vegna innskotssetningarinnar.
Maðurinn, sem skrifar, gleym-
ir því, að hann hafði notað orð-
ið rekstur. Hann ætlar að
sjálfsögðu að segja að Kaup-
höllin hafi hætt starfsemi
sinni.
Enn þykir ástæða til að
mæla með viðtengingarhætti
þátíðar af sögnum í stað
ofnotkun skildagatíðar. Páll
Helgason tilfærir enn eitt
dæmi til þess að minna okkur
á þetta: „Væri þér ekki sama,
ef þú mundir slökkva á stóru
viftunni fyrir ofan okkur?"
Hér færi miklu betur á við-
tengingarhætti þátíðar: Væri
þér ekki sama, þótt þú slökktir
á stóru viftunni o.s.frv.
Fræg er þegar orðin auglýs-
ingin á dögunum, þar sem veit-
ingastaður óskaði eftir konum
„í buff“ meðal annars. Hlym-
rekur handan kvað:
Þótt konur ég kunni að meta
og kynni mér flest sem þær geta,
má ég kannast við það,
að ég kem ekki á stað,
þar sem kvennabuff fæst til að eta.
XJöfðar til
11 fólks í öllum
starfsgreinum!
Höfum kaupanda að
3ja—4ra herb. íbúð
Höfum veriö beönir aö útvega 3ja—4ra herb. íbúö
með bílskúr í Reykjavík. Fjársterkur kaupandi.
Fasteignasalan Gerpla,
Suðurgötu 53, sími 52261.
Daihatsu
Ijósastilling um
helgina
Nú fer í hönd mikilvægasti tími réttar Ijósastillingar. Þessvegna
bjóðum við Daihatsu eigendum upp á Ijósastillingu á verkstæö-
inu, Ármúla 23, til kl. 6 í dag, laugardag, og milli 14 og 17 á
morgun, sunnudag.
Daihatsu-umboðið
Ármúla 23.
9
43466
Opið í dag 1—4
Erum fluttir millf húsa,
aö Hamraborg 5.
Kópavogsbúar, leitið
ekki langt yfir skammt,
látiö skrá eignir ykkar
hjá okkur.
Hamraborg 2ja herb.
60 fm á 2. hæð. Suöursvallr.
Furugrund 2ja herb.
65 trn á 1. hæö. Vandaöar innr.
Baö flísalagt. Vestursvalir.
Hlíöarvegur
80 fm í þríbýli. Mikiö endurnýj-
uð.
Kópavogsbraut
3ja herb.
80 fm t kjallara í tvíbýli. Mikiö
endurnýjuð. Sérinngangur. Laus
fljótlega. Verö 1 millj.
Efstihjalli 3ja herb.
90 fm á 2. hæö. Parket á gólf-
um. Endaíbúö.
Borgarholtsbraut
3ja herb.
95 fm á 1. hæö í nýlegu húsi. 25
fm bílskúr. Vandaðar innr.
Engihjalli 3ja herb.
90 fm á 2. hæö. Glæsilegar inn-
réttingar. Suöursvalir. Ekki i
lyftuhúsi. Laus samkomulag.
Nýbýlavegur 3ja herb.
90 fm á 2. hæö. 25 fm. Bilskúr.
Seljavegur
3ja—4ra herb.
90 fm á 1. hæö. Endurnýjaö
eldhús. Laus fljótlega.
Hamraborg 3ja herb.
105 fm á 2. hæö í lyftuhúsi.
Vestursvalir. Mikiö útsýni. Laus
eftir samkomulagi.
Kjarrhólmi 5 herb.
120 fm á 2. hæö. Endaíbúð.
Laus samkomulag.
Holtageröi — Sórhseö
140 fm efri hseð ( tvíbýii. Bíl-
skúrssökklar komnir. Laus
fljótlega.
Arnartangi — Raöhús
100 fm á einni hæö, timburhús.
3 svefnherb. Bílskúrsréttur.
Skipti möguleg á minni eign.
Skólatröð — Raöhús
180 fm endaraöhús á þrem
hæöum ásamt 50 fm bíiskúr.
Einbýli — Kóp.
278 fm viö Brekkutún. Fokhelt.
Bílskúrsplata komin. Til afh.
strax.
Noröurbraut — Höfn
130 fm einbýti á Höfn í Horna-
firöi. Laus strax.
Vantar
4ra herb. i Engihjalla.
Vantar
4ra—5 herb. t.d. i Lundar-
brekku.
Vantar
einbýii meö tveimur íbúöum.
Fasteignasalaq
EIGNABORG sf.
Hamraborg 5 • 200 Kópavogur
Símar 43466 & 43805
Söium.: Jóhann Hálfdánarson,
Vilhjálmur Einarsson,
Þórólfur Kristján Beck hrl.
28444
GRUNDARSTÍGUR. Einstakl-
ingsíbúö á 2. hæð í timburhúsí.
Laus strax. Verö 550 þús.
LANGAHLÍD. 3ja herb. um 80
fm ibúö á 1. hæö auk herb. (
risi. Falleg ibúö. Nýtt gler.
BREIÐVANGUR. 3ja herb. ca.
100 fm íbúö á efstu hæö. Bíl-
skúr. Sérþvottahús.
MIÐBÆRINN. 4ra herb. 115 fm
ibúö á 3. hæö í steinhúsl. Nýtt
eldhús, baö o.fl. Laus.
NEÐRA BREIDHOLT. 4ra herb.
ca. 100 fm íbúö á 2. hæö. Falieg
ibúö. Sérþvottahús. Laus 1.
okt. nk.
HVASSALEITI. Raöhús á 2
hæöum, samt. um 220 fm aö
stærö. Sk. m.a. í 4—5 sv.herb.,
borðstofu, setustofu o.fl. Gott
hús ( fallegu umhverfi. Gæti
losnaö fljótt.
RAUÐÁS. Raöhús á 2 hæöum,
um 195 fm. Selst fokhelt aö inn-
an, en frágengiö aö utan. Til
afh. í haust. Verö 1,6 millj.
BORGARHOLTSBRAUT. Ein-
býlishús, hæö og ris, samt. um
200 fm, auk 70 fm iönaðarhús-
næöis. Eldra hús á mjög góöum
staö. Falleg lóö. Eign meö mikla
möguleika. Verö 2,7 millj.
HEIÐARÁS. Einbýlishús á 2
hæðum, samt. um 330 fm aö
stærö. Selst tilb. aö utan meö
gleri, útihuröum o.fl. Fokhelt aö
innan. Vólslípuö gólfplata. Til
afh. strax.
VANTAR:
Vantar 2ja herb. íbúö í Hafnar-
firöi, Breiðholti og Vesturbæ.
Vantar 4ra herb. íbúö i Brelö-
holti og Kópavogi.
Vantar 3ja herb. ibúö í Austur-
bæ. Góöar greiöslur í boöi.
Vantar 4ra herb. íbúö í Vestur-
bæ eöa á Seltjarnarnesi.
Vantar raöhús i Seljahverfi.
Æskil. verö 2,4 millj. Mætti vera
dýrara.
Vantar 4ra—5 herb. ibúö f
Seljahverfi. Góöar greióslur i
boði. __
HðSEIGNIR
VELTUSUNOM O. f
SiMi 28444 vllUr
Daníel Árnason,
lögg. lasteignasalí.
esió
reglulega af
ölmm
fjöldanum!
29555 — 29558
Sörlaskjól
Vorum aö fá til sölumeðferöar 190 fm íbúö, sem er
hæö og ris viö Sörlaskjól, ásamt 35 fm bílskúr.
Á neöri hæö eru 2 saml. stofur, 1 svefnherb.,
eldhús og w.c. Á efri hæð er núna 3ja herb. íbúö,
en hægt aö útbúa se'm 4 svefnherb. Æskileg
makaskipti eru á 100 fm íbúö á jaröhæö eða í
lyftublokk. Helst í vesturbæ, þar sem hægt er aö
aka um í hjólastól.
Uppl. aöeins veittar á skrifstofunni.
Eignanaust Sk,Phoit, 5.
Þorvaldur Lúðvíksson s'm* 29555 og 29558.