Morgunblaðið - 03.09.1983, Side 12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1983
12
Fyrirsætukeppni Elite hér á landi:
Úrslit ráðast um helgina
— eigandi Elite kynnir sjálfur hina útvöldu
INNAN skamms mun ein íslensk stúlka
leggja land undir fót og halda í langferð til
annarrar heimsálfu, eða nánar tiltekið til
Acapulco í Mexíkó. Stúlkan verður fulltrúi
Islands í alþjóðiegri fvrirsætukeppni á veg-
um fyrirtækisins Elite. Umboðsaðili Elite á
íslandi, Tískublaðið Líf, hefur séð um
framkvæmd undankeppninnar hér á landi,
og eru 14 stúlkur komnar í úrslit. Næst-
komandi sunnudag er svo aðaleigandi Ei-
ite, John Casablancas, væntanlegur til
landsins og mun hann, ásamt fulltrúm
Lífs, velja þá stúlku sem heldur utan til
aðalkepnninnar í Acapulco.
Tískublaðið Líf hefur í síðustu tveim-
ur tölublöðum auglýst eftir stúlkum,
sem áhuga hafa á fyrirsætustörfum og
boðað þær til keppni. Myndir af stúlk-
unum og upplýsingar voru síðan sendar
út til Elite, og á sunnudaginn mun Casa-
blancas hitta þær og ásamt fulltrúum
Lífs velja eina stúlku úr hópnum til að-
alkeppninnar í Acapulco. Úrslit verða
svo tilkynnt í hófi í Þingholti á mánu-
dag. Þrátt fyrir að frestur til þátttöku í
keppninni hérlendis sé runninn út, gefst
áhugasömum stúlkum enn tækifæri á að
skrá sig til keppninnar á skrifstofu Lífs.
John Casablancas hóf feril sinn fyrir
um áratug, og er fyrirtæki hans, Elite,
nú eitt öflugasta fyrirsætufyrirtæki í
heiminum. Elite hefur skrifstofur á ein-
um 11 stöðum í heiminum, en höfuð-
stöðvar fyrirtækisins eru í New York og
París. Elite gengst nú fyrir fyrirsætu-
keppni, sem þeirri hérlendis, í 26 lönd-
um á sama tíma, og fer úrslitakeppnin
fram í Acapulco í Mexíkó í nóvember á
þessu ári. Keppnin nefnist „The Look of
the Year“ sem útleggst á íslensku „Útlit
ársins", og eru þrenn stórverðlaun í
boði. Sú stúlka sem hreppir 1. verðlaun
hlýtur að launum 200.000 bandaríkja-
dali, 2. verðlaun eru 150.000 dalir og 3.
John Casablancas
Jóhanna Sveinjónsdóttir
Kristín Guðnadóttir
Halla Bryndís Jónsdóttir
Kristína Haraldsdóttir
verðlaun 100.000 dalir. Allar stúlkurnar
sem hljóta verðlaun, fá auk þess sam-
ning við Elite-fyrirtækið.
Það er því eftir nokkru að sækjast að
komast áfram í keppni sem þessari,
enda ekki á hverjum degi sem stúlkum
gefst tækifæri á að vinna sér inn upp-
hæð sem nægði til kaupa á tveimur ein-
býlishúsum!