Morgunblaðið - 03.09.1983, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1983
33
f afinKlishófínu, vinir og venzlamenn Storksins. Frá vinstri: Örlygur Jak-
obsson Smári, titlaður skrifstofustjóri af afa sínum, Malín Örlygsdóttir,
fatahönnuður, stjórnarformaðurinn í fullu veldi, Bergþór Jakobsson Smári,
aðstoðarmaður stjórnarformanns, Unnur Eiríksdóttir, forstjóri Storksins, og
Pálína Stefánsdóttir, afgreiðslustúlka.
un á barnafatnaði á Grettisgötu
3, 1953, og flutti í Kjörgarð við
Laugaveg 1959, þar sem hún
venti síðar kvæði sínu í kross og
tók einvörðungu að verzla með
prjónagarn. Garn og ull hefir
lengi þófnað í föðurætt hennar,
allt frá því að Prjóna-Eiríkur
langafi hennar flutti inn fyrstu
prjónavélina i Svarfaðardal á
síðustu öld, af Singer-gerð frá
Chicago. Faðir hennar og föður-
systir, Malín, hálfgildings
tengdamóðir mín, nú á Hrafn-
istu, stofnuðu Prjónastofuna
Malín, sem Unnur kona min
veitti forstöðu áður en við geng-
um í hjónaband. Bróðir konu
minnar og mágur, Hjörtur Ei-
ríksson, einn af Sambandsfor-
stjórunum, er ullariðnfræðingur
að mennt. Jafnvel prjónaskapur
getur gengið i ættir, og Tómas
borgarskáld orti: „Og rímsins
vegna í peysum frá prjónastof-
unni Malin."
Sem eigandi eigandans að
Storkinum þótti mér snemma
tímabært að stofna hagsmunafé-
lag eiginmanna útivinnandi
bisness-kvenna, skammstafað:
H.A.G.E.I.G.N., sem lesist: Hag-
eign. Undirtektir voru dræmar
og menn fóru undan í flæmingi.
Ég man, að ég var búinn að
mynda fyrstu stjórnina í hugan-
um með minn gamla og góða
læriföður og áfengisvarnaráðu-
naut, Brynleif adjunt Tobíasson,
í forsæti til að hjúpa félagsskap-
inn virðulegum blæ, líkt og fínar
og forvitnilegar leynireglur. Þá
átti síðari kona Brynleifs verzl-
unina Þjórsá við Laugaveg. Auk
mín ætlaði ég að prýða stjórnina
með því að fá annan vin minn að
norðan til að gefa kost á sér, en
hann var Jörundur Pálsson arki-
tekt og Esjumálarinn mikli og
dóttursonur Hákarla-Jörundar.
Á þessum árum rak sú indæla
kona hans, Gó-Gó, Guðrúnarbúð.
Hún er líka björt og fjarskyld
þessu dugmikla prjónafólki konu
minnar. Ekki hefði sú stjórn
HAGEIGNAR getað verið glæsi-
legri. Allténd hefði engin ríkis-
stjórn frá stofnun fullveldisins
verið virðulegri. Væntanlegir
meðlimir hagsmunafélagsins
földu sig jafnan á bak við síma-
staura eða skutust inn í húsa-
sund ef þeir sáu mig nálgast á
götu, svo ekkert varð úr neinu.
Þegar ég hitti fína bisness-
menn, sem einhver mör er í,
kynni ég mig aldrei sem konst-
maler eða forfatter, heldur sem
stjórnarformann Storksins. Þá
fæ ég strax virðulegra viðmót og
notalegri tóntegund í samræðum
og einstaka sinnum vindil og
viskí en sjaldan var rennt oftar í
glasið en tvisvar þrisvar sinnum
þegar ég kom upp um mig með
því að tala of mikið. Góðir for-
stjórar kunna listina að þegja.
Þá ranka ég við mér og verð að
sætta mig við að vera aðeins
sendill f Storkinum án minnstu
vonar um stöðuupphefð og kaup-
hækkun.
Þegar eiginkonan verzlaði ein-
göngu með barnafatnað í gamla
daga, átti brúnin til með að lyft-
ast og geðið að glaðna þegar ég
mætti ófrískum konum á götu
með miklar bumbur. Þá heyrði
ég greinilega langar leiðir hring-
ingu og bjölluhljóm gullsins í
peningakassa Storksins. Nú
storkar blessuð konan verð-
bólgubálinu fyrir mig með því að
stórauka söluna á vinsæla og
eftirsótta garninu í Storkinum.
Þannig gekk Bergþóra líka i log-
ana með Njáli.
Það er gott og hollt fyrir fólk á
öllum aldri að prjóna. Það dreg-
ur úr spennu sálarinnar. Þess
vegna eru svo margar prjóna-
konur friðsamar og rólegar og
haggast ekki hið minnsta í jarð-
skjálftum og öðrum náttúru-
hamförum.
Til að draga úr spennu í heim-
inum, væri kjörið, að Andrópoff
og Reagan prjónuðu sem oftast
saman, þar sem Grómíkó og
Bush héldu í hespur alþjóðalop-
ans. Með því væri friðurinn
tryggður.
Ef ég væri geð- og taugalækn-
ir myndi ég ekki skrifa recept
fyrir sjúklinga upp á annað en
prjóna og garn í Storkinum. í
tilefni þessa merkisafmælis mun
afmælisbarnið Storkurinn gefa
öllum típrósent afslátt af öllu í
dag. Af því að ég hefi verið
óvenjuprúður og góður strákur
undanfarið, ætlar „Mamma“ að
lofa mér að koma í veitingarnar
á blaðamannafundinum í dag og
meira að segja að syngja líka:
Hann á afmæli í dag, hann á
afmæli í dag. Hann á afmæli
hann STORKUR, hann á afmæli
í dag.
Til hamingju með daginn og
ósk um að aldrei fatist Storkin-
um flugið frekar en hingað til,
þrátt fyrir síhækkandi aldur.
Örlygur Sigurðsson."
Þessar vinkonur efndu til hlutaveltu til ágóða fyrir Styrktarfélag lamaðra og
fatlaðra. Þær heita Hafdís Karlsdóttir, Guðrún Lára Skarphéðinsdóttir, Reg-
ína Guðlaugsdóttir og Rúna Dögg Cotes. Á hlutaveltunni söfnuðu þær alls
rúmlega 200 krónum.
Þær eiga heima í Breiðholtshverfí þessar stöllur. Þær efndu til hlutaveltu til
ágóða fyrir Dýraspítalann og söfnuðu 550 krónum. Þær heita Fanney Sigurð-
ardóttir og Fanney Steinþórsdóttir.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
' iíöum Moggans!
1 ' w~w r w ,rv ,rrr *"cS w<s
semframleidd eru hjd Húsgagnaiðju Kaupfélags
Rangœinga Hvolsvelli
frá ÉKÖRNES ÆXm
Húsgagnaiðja
Kl.
LAVRÉLSSynahausttístrfrá
Tísk
Uversl
[ jly\ Kaupfélags Rangœinga
urim
Hvolsvelli
Sími 99-8121 99-8285
i,lafrá
Húsgagnasýning
verðurá Hótel Loftleiðum sunnudaginn 4/9 kl. 10-19.
hUseby