Morgunblaðið - 03.09.1983, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1983
Guðrún Andrésdóttir
Beigalda - Minning
Fædd 12. júní 1930
Dáin 29. júní 1983
í dag kveðjum við Guðrúnu á
Beigalda hinstu kveðju. Það er
erfitt að trúa því að hún sé horfin
frá okkur, kallið kom svo óvænt.
Gúðrún fæddist á Saurum í
Hraunhreppi 12. júní 1930, og þar
ólst hún upp hjá foreldrum sínum,
Lilju Finnsdóttur og Andrési Guð-
mundssyni, bónda, ásamt þremur
systrum og fimm bræðrum. Nóg
hefur verið að starfa á svo stóru
heimili og börnin efalaust vanist
því snemma að taka til hendi.
Guðrún var afburða dugleg kona
til allra verka. í mínum augum
voru afköst hennar með ólíkindum
mikil og vinna hennar frábærlega
falleg. Sjálf var hún falleg og
myndarleg kona, með sterkan og
heillandi persónuleika.
I Orðskviðunum stendur:
„Væna konu hver hlýtur hana
hún er miklu meira virði en perlur.
Hjarta manns hennar treystir henni
og ekki vantar að honum fénist.
Hún gjörir honum gott og ekkert illt
alla ævidaga sína.“
Rúnu sína, þessa vænu konu,
hlaut Árni Guðmundsson frá Álft-
ártungu. í nær þrjátíu ár hafa þau
búið á Beigalda í Borgarhreppi.
Börnin þeirra fimm hafa vaxið þar
upp og dafnað og hlotið frábært
uppeldi auk eðliskostanna, sem
foreldrarnir gáfu þeim í vöggu-
gjöf. Og tengdabörn og barnabörn
bætast við hvert af öðru.
Ég veit að líf Guðrúnar var
þannig að um ókomin ár verður
hún fólki sínu fyrirmynd og veitir
því með því styrk í þeirra lífsbar-
áttu. Svo mikið er víst, að ein-
drægnin, ástúðin og umhyggjan,
sem þau bera hvert fyrir öðru,
hefur létt hina kvíðvænlegu bið
undanfarnar vikur, og mun gera
það áfram.
Megi góður Guð hugga, vernda
og styrkja aldraða foreldra henn-
ar, eiginmann, börn og annað
venslafólk.
Far þú í friði
friður guðs þig blessi
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem)
Áslaug Eiríksdóttir
Það er auðveldast að láta hug-
ann reika aftur um tuttugu ár
þegar sorgarfregn um lát Rúnu
frænku minnar berst mér til
eyrna. Ég man ekki hvað ég var
gömul þegar ég kom fyrst að Beig-
alda, en frá sex ára aldri var ég
þar kaupakona í fimm sumur.
Árni og Rúna voru mér foreldrar
og vinir þessa sumarmánuði og ég
man ekki betur en að sólin hafi
skinið oftar en undanfarin ár þeg-
ar ég dvaldi þar við leiki og störf.
Rúna frænka hafði lag á því að
kenna okkur til verka og mitt
fyrsta starf hjá henni og Árna var
að halda í halann við mjaltir og
smátt og smátt urðu störfin fleiri
og fjölbreyttari. Hugsanlega hef
ég orðið matvinnungur þegar fram
liðu stundir, en ætíð fengum við
krakkarnir að finna það að við
værum drjúgir hlekkir í búrekstr-
inum, enda fengum við að taka
þátt í öllu því sem fram fór á Beig-
alda utanhúss sem innan.
Rúna frænka var hinn mesti
dugnaðarforkur og gekk til allra
verka með krafti sem stundum
virtist yfirnáttúrulegur. Hún lét
ekkert stöðva sig í því að fram-
kvæma góða hugmynd og mörgu
fékk hún áorkað, sem flestir hefðu
talið óframkvæmanlegt. Hún tók
virkan þátt í að byggja upp býlið á
Beigalda og þegar erfiðisvinnu úti
við var lokið að kvöldi fann hún
sér tóm til að setjast við handa-
vinnu og á heimilum vina hennar
og vandamanna sjást dæmin um
leikni hennar við að handleika
prjóna og önnur handavinnutól.
Beigaldaheimilið hefur alltaf
verið síkvikt og gestakomur tíðar.
Gestir komu Rúnu aldrei í opna
skjöldu, hún tók á móti öllum, há-
um sem lágum, með rausn og
myndarskap. Einn var sá þáttur í
lundarfari Rúnu, sem var öðrum
yfirsterkari, en það var glettni.
Hún hafði geysiríkt hugmynda-
flug og orðaforði hennar bar þess
merki. Hún var sjaldan í vandræð-
um með að finna hnyttna samlík-
ingu og frásagnir hennar af litlum
atvikum gátu orðið stórkostlega
kryddaðar skemmtisögur. Ég
min'nist margra slíkra frásagna og
tárvotra augna hlæjandi áheyr-
enda. En gáski Rúnu var ekki ein-
göngu í orði. Hún var fæddur
prakkari og það eltist ekki af
henni.
Rúna frænka var einnig virk í
félagsmálum sveitarinnar; engum
leið hún að sýna lítilmagnanum
óréttlæti og sýndi óbilgirni og
hörku ef einhvern þurfti að verja
gagnvart óréttvísi. Ég veit að
margir minnast hennar með
þakklæti fyrir stóra sem smáa
greiða.
Rúna var greind kona og fylgd-
ist með málefnum líðandi stundar.
Hún var áhugasöm um nýjungar í
menntamálum, helst þó þeim sem
fjölluðu um að bæta lífskjör lít-
ilsmegnugra. Þetta sýndi hún
ásamt Árna í því að styrkja öll
börn sín til mennta með ráðum og
dáð.
Við krakkarnir sem voru í sveit-
inni hjá Árna og Rúnu skiptum nú
tugum og ég veit ég mæli fyrir
munn okkar allra þegar ég lýsi yf-
ir innilegu þakklæti í þeirra garð.
Beigaldaheimilið var óformlegur,
en góður skóli. Þaðan útskrifuð-
umst við öll sem betri menn.
Elsku Lilja, Mundi, Sessý, Alda,
Steina Dísa og Árni, ég votta ykk-
ur af heilum hug samúð mína og
bið góðan guð að styrkja okkur öll
á þessari kveðjustund.
Gulla.
Okkur barst fregnin að morgni
30. ágúst. Hún Rúna er dáin. Auð-
vitað þurfti þessi frétt ekki að
koma okkur á óvart, við höfðum
fylgst með baráttu hennar undan-
farnar vikur. Enn einu sinni erum
við minnt á hversu skammt er
milli lífs og dauða. Við eigum
margar minningar tengdar henni
úr félagsstarfinu. Það er mikið lán
fyrir fámenn kvenfélög til sveita
að eiga góðan félagsanda, svo hef-
ur ætíð verið um okkar félag. Ekki
er ofmælt að hún hafi verið ein af
styrkustu stoðum félagsins um
árabil, alltaf boðin og búin til
verka fyrir það. Hún var ein af
þessum traustu og áreiðanlegu
manneskjum sem prýða hvern fé-
lagsskap. Hún verkaði alltaf
hvetjandi á okkur hinar og gat
verið nokkuð gustmikil á stundum
ef henni þótti, en allar vissum við
að hún átti hlýtt og gott hjarta.
Hún var mjög félagslynd að eðlis-
fari, hafði gaman af söng og að
dansa. Sjálfboðastörf innan félags
eins og kvenfélagsins geta verið
tímafrek og krefjandi, og reynir
þá oft á þolinmæði fjölskyldna
viðkomandi kvenna. Þar átti Rúna
miklum skilningi að mæta þar
37
sem eiginmaður hennar og börn
voru, sem studdu hana með ráðum
og dáð að hverju verki. En fyrst og
fremst var hún eiginkona og móð-
ir. Hún var fyrirmyndar húsmóðir
og rausnarleg heim að sækja. Þá
ber heimili hennar þess fagurt
vitni hver völundur hún var til
handa.
Guðrún var fædd 12. júní 1930
og því aðeins 53 ára er hún lést.
Hún var dóttir hjónanna Lilju
Finnsdóttur og Andrésar Guð-
mundssonar er bjuggu á Saurum í
Hraunhreppi. Þau lifa dóttur sína.
Árið 1954 giftist hún Árna Guð-
mundssyni og þau hefja búskap að
Beigalda í Borgarhreppi sama ár.
Þeim varð fimm barna auðið, sem
öll eru á lífi, hin mannvænlegustu
börn.
Nú er komið að leiðarlokum,
vegi skilur um sinn. Við biðjum
þann sem öllu ræður að blessa
minningu okkar kæru félagskonu
og veita huggun öldruðum foreldr-
um hennar, eiginmanni, börnum
og barnabörnum, svo og systkin-
um og vinum.
Hafi hún þökk fyrir samfylgd-
ina.
Kvenfélag Borgarhrepps
Tveir góðir í lokahófinu á EM I bridge. Þórarinn Sigþórsson ræðir við
Steen Möller. Umræðuefnið þarf ekki að fjölyrða um. Morgunbia&ið/ Amór
Brídge
Arnór Ragnarsson
Sumarbrigde
Eftirfarandi pistill hefur bor-
ist frá Ólafi Lárussyni um
sumarbridge sl. fimmtudag:
Ágæt aðsókn var sl. fimmtu-
dag í Sumarbridge, eða rúmlega
50 pör. Spilað var í 4 riðlum og
urðu úrslit þessi:
a) Baidur Árnason
— Sveinn Sigurgeirsson 255,
Guðríður Guðmundsdóttir
— Kristín Þórðardóttir 247,
Nanna Ágústdóttir
— Sigurður Ámundason 237,
Inga Bernburg
— Vigdís Guðjónsdóttir 232.
Margrét Margeirsdóttir
— Júlíana Isebarn 232,
b) Esther Jakobsdóttir
— Guðmundur Pétursson 194,
Arnar Ingólfsson
— Magnús Eymundsson 179,
Guðjón Jónsson — Gunnar
Guðmundsson 176,
Heimir Guðjónsson
— Jón Steinar Ingólfsson 169.
c) Sigfús Ö. Árnason
— Svavar Björnsson 204,
Jón Hilmarsson
— Oddur Hjaltason 194,
Bragi Hauksson
— Sigtryggur Sigurðsson 179,
Aðalsteinn Jörgensen
— Georg Sverrisson 168.
d) Viktor Björnsson
— Sigurþór Hjartarson 135,
Baldur Bjartmarsson
— Valdimar Elíasson 119,
Hjálmar Pálsson
— Tómas Sigurjónsson 118.
Meðalskor í a var 210, í b og c
156 og 108 í d.
Og úrslit í Sumarbridge 1983
urðu því þessi:
1. Hrólfur Hjaltason, 20,5 stig.
2. Esther Jakobsdóttir, 20 stig.
3. Guðm. Pétursson, 19 stig.
4. Jónas P. Erlingsson, 18,5 stig.
5. Gylfi Baldursson, 17 stig.
6. Sigurður B. Þorst., 16 stig.
7. Sigfús Þórðarson, 14 stig.
8. Vigdís Guðjónsd., 13,5 stig.
9. Sigtr. Sigurðsson, 12,5 stig.
Alls hafa tæplega 190 spilarar
hlotið vinningsstig í Sumar-
bridge að þessu sinni, sem er
mjög góð dreifing á 14 spila-
kvöldum. Að meðaltali hafa um
og yfir 60 pör spilað á kvöldi,
sem er mesta þátttaka í Sumar-
bridge frá upphafi. Spilar þar ef-
laust inní, að í sumar var spila-
mennskan færð úr Heklu í Dom-
us, en tvö undanfarin sumur var
spilað þar. (Þar áður í Hreyfli og
Domus).
Sumarspilamennsku lýkur
formlega næsta fimmtudag, með
verðlaunaafhendingu. Keppnis-
stjórar sumarsins, Ólafur Lár-
usson og Hermann Lárusson,
þakka samfylgdina, um leið og
spilarar eru hvattir til að fjöl-
menna á síðasta spilakvöldið.
Keppni hefst að venju í síðasta
lagi kl. 19.30. Allir velkomnir.
Bridgedeild Breiðfirðinga
Aðalfundur deildarinnar verð-
ur haldinn laugardaginn 10. sept
nk. kl. 14.00 í Hreyfilshúsinu, og
er fólk eindregið hvatt til að
mæta.
Síðan hefst vetrarstarfsemin
fimmtudaginn 15. sept. á sama
tíma og áður eða stundvíslega kl.
19.30 og auðvitað í Hreyfilshús-
inu.
Byrjað verður með tvímenn-
ingskeppni og geta þátttakendur
látið skrá sig í síma 72840 eða
42571.
Stjórnin
Húsgagnasýning
Opið í dag frá 10—4
Kíktu við,
þú færð örugglega eitthvað við þitt hæfi
KM-
„ .. Langholtsvegi 111, Rcykjavík,
HUSGOGN símar 37010 — 37144.