Morgunblaðið - 03.09.1983, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1983
47
• Ásgeir Sigurvinsson leikur meö ísienska landsliöinu í knattspyrnu
gegn Hollendingum á miðvikudag í næstu viku. Ásgeir er á góðri leiö
meö aö ná sér að fullu eftir mjög þrálát meiösli, sem hann hefur átt viö
að stríöa. „Þaö er mjög slæmt sð viö skulum ekki geta teflt fram okkar
sterkasta liöi gegn Hollendingum en viö því er líklega ekkert aö gera,“
sagði Ásgeir í spjalli viö Mbl. MorgunMaMS/ Skapti Hallgrímsson
Þróttursigraði3-2
ÞRÓTTARAR unnu mikilvægan
sigur í fyrstu deildinni í gær-
kvöldi þegar þeir lögöu Breiða-
blik aö velli á Kópavogsvelli meö
þremur mörkum gegn tveimur.
Staöan í hálfleik var 2—2. Leikur-
inn var mjög fjörugur og oft á tíö-
um vel leikinn af beggja hálfu.
Þegar 16 mínútur voru liönar af
leiktímanum haföi Þrótturum tek-
ist aö skora tvö mörk, meö einnar
mínútu mlllibili. Það fyrra geröi
Pétur Arnþórsson eftir aö hafa
fengiö sendingu frá hægri kanti
frá Sverri Péturssyni. Boltinn fór
inn í teigínn í varnarmann og til
Péturs sem skaut hörkuskoti í
markið. Einni mínútu síöar skor-
aöi Páll Ólafsson úr vítaspyrnu.
Boltinn fór í hendi eins varnar-
manns Blikanna og Guömundur
Haraldsson dómari dæmdi víti.
Páll Ólafsson skoraöi úr vítinu af
öryggi.
Blikarnir voru þó ekki á því að
gefa sig og á 21. mín. skoruöu þeir
sitt fyrra mark. Sigurður Grótars-
son fékk boltann rétt utan víta-
teigshorns Þróttar, sneri sér við og
skaut hörkuskoti sem hafnaöi í
markhorninu fjær — stórglæsilegt
mark. Sjö mínútum síöar var Sig-
uröur Grétarsson enn á ferölnni og
skoraöi jöfnunarmarkið. Jóhann
bróöir hans komst í gegnum vörn
Þróttar en Guömundur Erlingsson
braut á honum og var dæmd víta-
Leikir
helgarinnar
Þessir leikir fara fram í Islandsmót-
inu í knatfspyrnu f dag. Ekkert veröur
leikiö é morgun sunnudag. Nasatu
leikir í 1. deild fara ekki fram fyrr en
laugardaginn 10. aept. vegna lands-
leiks islendinga viö Hollendinga (
næstu viku.
Leikir helgarinnar:
Laugardagur 3. september
1. deild Akureyrarvöllur—ÍA:lBV
kl. 14.30
1. deild ísafjarðarvöllur—ÍBÍ:Valur
kl.14.00
1. deild Laugardalsvöllur—Vfkingur:-
Þór kl. 14.00
2. deild Garösvöllur—Vföir:Fylkir
kl.14.00
2. deild Húsavíkurvöllur—Völsung-
ur:KS kl.14.00
2. deild Kaplakrikavöllur—FH:Reynir
kl.14.00
3. deild Úrslit
4. deild Úrslit
spyrna. Úr henni skoraöi Siguröur
siöan eins og fyrr segir. Liöin héldu
bæöi áfram aö sækja án þess þó
aö koma boltanum í netiö, en þaö
veröur aö segjast eins og er aö
Blikarnir voru nærri því.
Seinni hálfleikurinn var frekar
daufur framan af, en fljótlega hófst
sama baráttan sem einkennt haföi
þann fyrri. Þróttararnir voru mun
ákveönari, en Blikarnir áttu engu
aö síöur hættuleg færi. Þaö eru
hins vegar mörkin sem gilda og
eina mark seinni hálfleiks skoraöi
Þróttur, á 32. mín. Páll Ólafsson
var meö boltann viö vítateiginn
vinstra megin, gerði sér lítiö fyrir
og skaut aö marki hörkuskoti sem
rataöi rétta leiö, framhjá Guö-
mundi í markinu. Þarna var vörnin
illa á verði en enginn átti von á
skoti frá Páli, sem var besti maöur
Þróttar í þessum leik ásamt Pétri
og Guömundi markveröi. Aðrir í
liöi Þróttar komust vel frá leiknum,
liöiö lék i heild vel og á hrós skiliö
fyrir leikinn. Siguröur Grétarsson
átti mjög góöan leik aö þessu sinni
meö Blikunum, aörir áttu þokka-
lega spretti en hurfu þess á milli.
f stuttu máli: islandsmótiö
tyrsta deild, Þróttur — UBK 3:2 (2:2).
Gul spjöld: Engin.
Dómari: Guómundur Haraldsson og dssmdi
hann mjög val.
Áhortendur: 628.
Einkunnagjöfin:
Þróttur: Guómundur Erlingsson 7, Pétur Arn-
þórsson 7, Júlfus Júliusson 6, Ásgeir Ellas-
son 6, Kristjén Jónsson 6, Péll Ólafsson 7,
Sverrir Pétursson 7, Daól Haróarson 6, Ár-
sæll Kristjénsson 6, Þorvaldur Þorvaldsson
6, Valur Helgason varam. lék ol stutt.
UBK: Guómundur Ásgeirsson 6, Sigurjón
Kristjénsson 6, Ómar Rafnsson 6, Jóhann
Grétarsson 6, Hékon Gunnarsson 6, Trausti
Ómarsson 6, Jón G. Bergs 6, Bjðrn Þ. Egils-
son 6, Benedikt Guómundsson 5, Vignir
Baldursson 5, Siguröur Grétarsson 8.
________ — BJ.
KA sigraði
Einherja 3—2
KA sigraði Einherja í 2. deild í
gærkvöldi, 3—2. Staðan í hálfleik
var 2—0 fyrir KA. Það voru þeir
Gunnar Gíslason, Ormar Örlygs-
son og Jóhann Jakobsson sem
skoruöu fyrir KA en þeir Gísli
Daviösson og Jón Gíslason sem
skoruöu fyrir Einherja. Nánar
veröur greint frá leiknum í þriöju-
dagsblaöi Mbl.
ÞR
Ásgeir Sigurvinsson:
„Það verður gaman að
koma inn í lands-
liðshópinn aftur"
„Þaö veröur gaman aö koma inn í landsliöshópinn aftur, ég er nú
loksins að ná mér eftir slæm meiösli og er ég vonandi alveg laus
viö þau. Uppskuróurinn tókst í aila staði vel. Yfirleitt tekur þaó átta
vikur aö ná sér en ég var farinn aö æfa eftir sex vikur. Ég hef æft vel
í þrjár vikur og á síóustu viku alveg á fullu. Mig vantar aö vísu meiri
snerpu og þarf því aö æfa meiri stutta spretti en þetta er alveg aö
koma, sagöi Ásgeir Sigurvinsson er Mbl. spjallaöi viö hann í gær-
dag. Ásgeir mun leika meö íslenska landsliöinu gegn Hollending-
um á mióvikudag í næstu viku. Ásgeir hefur ekki leikíö landsleik
síöan gegn Wales er ísland geröi jafntefli 2—2, og skoraöi Ásgeir
þá bæöi mörkin t leiknum.
Ásgeir sagöi að leikurinn gegn
Hollendingum yrði mjög erfiöur.
Nú væri síöasta tækifæri Hol-
lendinga til aö gera góöa rispu í
riölinum og ná hagstæöri útkomu
og þeir væru auk þess á heima-
velli.
Aöspurður um keppnistímabil-
iö sem væri aö hefjast í V-Þýska
landi sagöi Ásgeir:
„Ég er nokkuö bjartsýnn á aö
okkur komi til meö aö ganga vel,
en þaö er máske ekki gott aö
vera of bjartsýnn. Þaö skilur
nefnilega svo oft lítiö á milli þess
aö vel og illa gangi. Viö erum
meö nokkuö sterkt liö og viö höf-
um fengiö óskabyrjun ef frá er
skiliö eitt stig sem viö töpuöum á
frekar klaufalegan hátt. Hvaö
sjálfan mig varðar þá er ég
ánægöur meö frammistööuna í
fyrsta leiknum sem ég spilaöi í
„Bundesligunni" og raunar er
þaö undravert hversu fljótt ég
hef náö mér eftir slæm meiðsli.
Nú um helgina leikum viö gegn
Boccum og vonandi náum viö
þar í tvö stig. En þeim hefur
gengiö vel og því getum viö búist
viö hörkuleik."
Ásgeir sagöist fljúga til móts
viö landsliöiö á mánudag og hitta
féiaga sína í Amsterdam. En þaö-
an mun iandsliöshópurinn fljúga
til Gronningen og æfa þar á
þriöjudag og leika síöan á miö-
vikudagskvöld.
þessi liö leika saman í „Bund-
esligunni” í dag:
Hamburger SV—Arminia Biele-
feld
Eintr.Frankfurt—Fort.Dússeldorf
I.FCNúrnberg—Kickers Offen-
back
Bayern Múnchen—Werder
Bremen
1 .FCKöln—Eintracht
Braunschweig
Bor.M'gladbach—W.Mannhelm
Bor.Dortmund—Bay.Uerdingen
VfB Stuttgart—VfLBochum
World Soccer telur möguleika ÍA ekki mikla:
„Tómt rugl hjá blaðinu
áá
— segir Gunnar Sigurðsson, Skagamaður
Hiö þekkta knattspyrnublaö
World Soccer, ágústheftió, fjallar
m.a. um möguleika brezku liö-
anna í Evrópumótunum í knatt-
spyrnu.
Blaðamaðurinn Leslie Vernon
gefur þar álit og segir aö Evrópu-
meistararnir Aberdeen muni eiga
rólega byrjun gegn Akranesi á ís-
landi. Skozka liöiö muni vinna auö-
veldlega bæöi heima og á Islandi.
„Þetta er auövitaö tómt rugl hjá
blaöinu," sagöi Gunnar Sigurös-
son knattspyrnuráösmaöur á
Akranesi þegar þessi ummæli voru
borin undir hann. „Þaö hefur sýnt
sig í Evrópuleikjum Akurnesinga í
gegnum árin hér heima, aö liöiö er
allt annaö en auöunniö. Ég minni á
aö Köln var tvöfaldur þýzkur
meistari þegar liöiö kom hingað
1978 og geröi jafntefli 1:1 og Evr-
ópumeistararnir Barcelona unnu
hálfgeröan heppnissigur gegn lA á
Laugardalsveilinum áriö eftir, 1:0.
Viö Skagamenn teflum fram einu
bezta liöi sem viö höfum átt og viö
ætlum aö selja okkur dýrt eins og
alltaf."
Cup-holders, Aberdeen, have al
gentle start against Akranes, off
Tceland The Scottish Gordonl
Strachan-inspired team_shoolcDviiJ
easy home and away
Klausan í World Soccer
Fremsta hlaupakona heims
• Hún er engu Ifk, alík eru afrek hennar é hlaupabrautinni. Vilja-
styrkurinn og sjélfstraustiö er óbilandi og fleytir henni langt. Hún er
í fremstu röö íþróttakvenna í heiminum í dag og stefnir aö fjórum
gullverölaunum é OL-leikunum í Los Angeles.
Marita Koch er fædd ( Rost-
ock fyrir 26 árum og leggur hún
nú stund á lyfjafræði auk þess
sem hún æfir hlaup af miklum
krafti. Hún fékk flest verölaun
allra einstaklinga á heimsleik-
unum í Helsinki í frjálsíþróttum
í sumar, þrenn gullverölaun og
ein silfurverölaun. Hún hefur
verið talin ein fremsta hlaupa-
kona í heiminum undanfarin ár
og sigrar hennar á hlaupabraut-
inni bera þess gieggst merki aö
þaö er ekki fjarri lagi aö hún
beri þaö sæmdarheiti.
Margra ára þrotlaus þjálfun
hjá þessari drottningu hlaupa-
brautanna er nú aö koma i Ijós,
hún átti heimsmetiö í 200 og 400
metra hlaupi fyrir heimsleikana
og margir spáöu því aö hún yröi
fyrsta konan í heiminum til aö
eiga heimsmet í öllum stuttu
hlaupunum, þaö er aö segja 100,
200 og 400 metra hlaupi. En
margt fer ööruvísi en ætlaö er.
Þegar heimsleikunum lauk átti
Koch aöeins eitt heímsmet því
tékkneska stúlkan Jarmila Krat-
ochvilova bætti heimsmet Koch í
400 metra hlaupinu þegar hún
hljóp á 47,99 sek.
Eins og títt er um íþróttafólk
frá A-Evrópu var Koch tekin
strax á unga aldri þegar upp-
götvaö var aö hún gat hlaupiö
hraöar en jafnaldrar hennar. Hún
einbeitir sór aö því aö sigra fyrir
A-Þýskaland en landiö er númer
eitt hjá þeim sem keppa fyrir
A-Þýskaland og önnur lönd þar
eystra. Marita Koch er aöeins eitt
dæmi um hvernig börn eru tekin
á unga aldri þegar í Ijós kemur
aö þau hafa eitthvaö til aö bera
þannig aö þau geti oröiö fram-
úrskarandi íþróttafólk. Kerfiö
grípur þau þá og miklar æfingar
eru lagöar á krakkana þar til þau
eru oröin framúrskarandi íþrótta-
fólk.
Hvort Marita Koch mun reyna
aö ná heimsmetinu af Jarmilu
veit enginn, en eitt er öruggt;
keppni á milli Koch og Krato-
chvilovu yröi eitt meiriháttar ein-
vígi á hlaupabrautinni.