Morgunblaðið - 22.09.1983, Síða 1
56 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI
216. tbl. 70. árg.
FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1983
Prentsmiöja Morgunblaðsins
Svarti kassinn
sagður fundinn
Wakkanai, 21. september. AP.
HATTSETTUR japanskur cmbættismadur sagdi ad bandarískt leitarskip hefði
jafnvel fundiö „afgerandi hluta“ kóresku farþegaþotunnar, sem Rússar skutu
niöur við Sakhalineyju, og er talið aö hann eigi við stél þotunnar, þar sem er að
finna svarta kassann, flugritann, sem hefur að geyma upplvsingar um flug
þotunnar.
Talsmaður sjóhersins í Wash-
ington sagðist hins vegar ekki hafa
neinar upplýsingar af þessu tagi
undir höndum. Starfsmenn Penta-
gon hafa aðeins viljað segja að
bandarísk leitarskip hafi tvisvar
heyrt til merkjasendinga frá flug-
ritanum, en misst af þeim aftur, og
er það talið staðfesta að Banda-
ríkjamönnum hafi tekist að stað-
setja aftasta búkhluta vélarinnar,
þar sem flugritinn er geymdur.
Beitiskipið Callaghan, sem er
8.300 lestir, var eina bandaríska
leitarskipið á leitarsvæðinu í dag,
en sjö önnur skip voru í næsta
nágrenni fyrr í vikunni. Hins vegar
leituðu tugir sovézkra skipa, þ.á m.
olíuleitarskip og kafbátar, að braki
úr kóresku þotunni á þessum slóð-
um.
Þar sem heyrðist til flugritans er
alþjóða hafsvæði og rúmlega 750
metra dýpi, að sögn talsmanna sjó-
hers Bandaríkjanna.
Kommúnistaflokkur Japans gaf
út yfirlýsingu í dag, þar sem árás
Rússa á farþegaþotuna var harð-
lega fordæmd. Þá ákváðu starfs-
menn flugfélags Malaysiu að hætta
allri þjónustu við flugvélar Aero-
flots í tvo mánuði frá nk. laugar-
degi í mótmælaskyni við árás Rússa
á kóresku þotuna.
llarrogate, 21. september. AP.
Þing Frjálslynda flokksins snupraði
leiðtoga flokksins í dag er það sam-
þykkti tillögu ungliðahreyfingarinnar
þar sem lýst var yfir stuðningi við
hugmyndir um sameiningu írlands.
Þar með eru frjálslyndir komnir í
andstöðu við Jafnaðarflokkinn,
samstarfsflokk sinn í kosninga-
bandalagi miðjuflokkanna. Tillagan
var samþykkt með 395 atkvæðum
gegn 324.
I tillögunni var jafnframt hvatt
til þess að breska herliðið yrði flutt
á brott frá Norður-írlandi og
evrópsku friðargæsluliði falin
gæslustörf þar, auk þess sem sett
yrði á laggirnar sérstakt írlandsráð
fulltrúa lýðveldisins og N-írlands,
þar sem sameining yrði grundvöll-
uð.
Jafnaðarflokkurinn breski að-
hyllist áframhaldandi bresk yfirráð
á Norður-írlandi en að heimamönn-
um séu fengin aukin áhrif á málefni
héraðsins. Þing N-írlands var rofið
1972 og málefnum héraðsins hefur
síðan verið stjórnað frá London.
Leiðtogi ungliðahreyfingar
Frjálslynda flokksins sagði „frjálst
og sameinað írland einu vonina um
frið þar í landi", en Stephen Ross,
Sjö týna lífi í mótmæla-
átökum á Filippseyjum
Manila, 21. september. AP.
HÁLF milljón manna krafðist af-
sagnar Ferdinands Marcosar Filips-
eyjaforseta við friðsamlegar mót-
mælaaðgeröir í höfuðborginni, en í
framhaldi af þeim brutust út ofbeld-
isaðgerðir, þar sem a.m.k. sjö manns
týndu lífi og rúmlega 150 slösuðust.
Átök brutust út er stuðnings-
menn stjórnarandstöðuleiðtogans
Benigno Aquino, sem myrtur var
fyrir mánuði, kveiktu í strætis-
vögnum skammt frá forsetahöll-
inni. Átök brutust út eftir það á
ýmsum stöðum, bæði í hverfum
efnaðra og fátækra, en mest
ofbeldið var skammt frá forseta-
höllinni. Kveikt var í húsum og
bifreiðum og talsvert tjón unnið.
Lögreglan hörfaði í fyrstu und-
an harðri árás stuðningsmanna
Aquino, sem köstuðu grjóti og
heimagerðum sprengjum, en lét
síðan til skarar skríða. Meðal
hinna látnu voru tveir slökkviliðs-
menn og korporáll í landgönguliði
flotans. Einnig slösuðust 50 menn
í' sérstökum sveitum, sem þjálfað-
ar hafa verið til bæla niður uppþot
og fimm blaðamenn, sem voru að
fylgjast með átökunum.
Mótmælaaðgerðirnar ber upp á
sama dag og Marcos lýsti yfir her-
lögum á Filippseyjum fyrir 11 ár-
um. Hann nam lögin úr gildi fyrir
þremur árum.
talsmaður flokksins í málefnum
N-írlands, sagði sameiningu „skapa
sams konar ástand og í Líbanon".
Upphafleg tillaga ungliðahreyf-
ingar tók breytingum í meðferð árs-
þingsins, m.a. var felld úr henni
setning um viðræður við Sinn Fein,
pólitísku deild hins ólöglega írska
lýðveldishers. IRA.
Tveir filippínskir námsmenn njóU aðstoðar félaga sinna eftir að þeir slösuðust í átökum skammt frá forsetahöllinni
í Manila. Hálf milljón manna krafðist afsagnar Marcosar forseta í mótmælaaðgerðum á Filippseyjum. AP/Símamynd.
Frjálslyndir vilja
sameinað írland
Aukin aðild PLO að
átökunum veldur ugg
Beirút, Washington, 21. september. AP.
PALESTÍNUSKÆRULIÐUM, sem þátt taka í átökunum um
Souk El-Gharb í Chouf-fjöllunum, fjölgar ört, að sögn banda-
rískra embættismanna, sem óttast að aðild þeirra að átökun-
um geti valdið straumhvörfum og jafnvel leitt til falls stjórnar
Amins Gemayels.
Bandar Bin Sultan prins í
Saudi-Arabíu, sem veitir for-
stöðu tilraunum Saudi-Araba til
að stilla til friðar í Líbanon átti
fund með Fahd konungi í dag, og
var því heitið að tilraununum
yrði haldið áfram meðan einhver
vonarglæta sæist, en aðrar heim-
ildir hermdu að margt benti til
að tilraunirnar væru að renna út
í sandinn, „vegna þrákelkni Sýr-
lendinga”. Robert C.McFarlane
sendimaður Reagans Banda-
ríkjaforseta var einnig í Jidda til
viðræðna við ieiðtoga þar um
friðarmöguleika.
Drúsar gerðu einhverja mestu
skothríð til þessa á Souk El-
Gharb í morgun í þeirri von að
brjóta stjórnarherinn á bak aft-
ur. Stjórnarherinn hratt árás-
inni með aðstoð orrustuflugvéla
og einnig skutu bandarísk her-
skip á stöðvar drúsa vegna árás-
ar þeirra á bústað bandaríska
sendiherrans í Beirút.
Reagan forseti sagði í kvöld að
samkomulag, sem hann hefði náð
við þingleiðtoga, er tryggði veru
bandarískra hersveita í Líbanon
í hálft annað ár, væri ánægju-
legur áfangi i viðleitni Banda-
ríkjamanna til að stilla til friðar
í Líbanon.
AP/Símamynd.
Fallbyssuforingi um borö í banda-
ríska herskipinu Virginia handleikur
nákvæma eftirlíkingu af sprengjum,
sem bandarísku skipin viö Líbanon
hafa skotið á stöövar drúsa vegna
áraáar drúsa á stöövar bandaríska
gæsluliösins í Líbanon og bústaö
bandaríska sendiherrans i Beirút.
Reagan
yill nýjar
leiðir
Washington, 21. september. AP.
REAGAN Bandaríkjaforseti sagö-
ist í kvöld hafa gefið samninga-
mönnum Bandaríkjamanna i Genf
ný fyrirmæli, sem væru í rauninni
mikilvægar betrumbætur á tillög-
um, sem ætlaö væri að draga úr
hættu á kjarnorkuátökum í Evr-
ópu.
Af hálfu Hvíta hússins var
ekkert gefið upp í hverju fyrir-
mælin væru fólgin, en embætt-
ismenn sögðu um nýtt frum-
kvæði væri að ræða af hálfu
Bandaríkjastjórnar, auk þess
sem samningamönnum hefði
verið gefið aukið olnbogarými
til að vega og meta hugsanlegar
tillögur Sovétmanna.