Morgunblaðið - 22.09.1983, Page 14

Morgunblaðið - 22.09.1983, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1983 E.H. Demone, útgerðarstjóri National Sea Products á Nova Scotia, um borð í Cape Lance, einum af nýjustu skuttogurum fyrirtækisins. Gluggarnir aftan á brúnni, sera sjást fyrir ofan Demone, eru hannaðir sérstak- lega með það fyrir augum að unnt sé að stjórna öllum gangi veiðanna úr brúnni. Það er sérstaklega styrkt til siglinga í ís. Brúin er rúmgóð og stórir glugg- ar aftan á henni svo að auðvelt er að stjórna skutveiðunum þaðan. Tvö troll eru um borð og þannig frá þeim gengið að komi til dæmis gat á ann- að er unnt að setja hitt í sjó strax. Gert er að veiðarfærum og netin sett upp um borð í togurunum en á Cape Lance er 16 manna áhöfn. Tvær flokkunarvélar eru um borð. Eftir 10 til 15 daga veiðiferð fær áhöfnin 48 tíma frí meðan landað er. Togara- sjómennirnir vinna að meðaltali 250 daga á ári og eru meðalárslaun há- seta hjá National Sea 30 til 31 þús- und dollarar, eða 650 til 700 þús. krónur. Hjá Fishery Products eru meðallaun háseta eftir 200 til 220 daga árlega útivist 23 þúsutid dollar- ar eða um 500 þúsund krónur. Um borð eru hlutaskipti en yfirmenn fá bónus. Strandveiðimenn eru með lægri laun, meðalárslaun þeirra eru talin 6500 dollarar, 143 þúsund krón- ur, eða fyrir neðan „fátækramörk". E.H. Demone hjá National Sea sagði að það kostaði fjögur'til fimm þúsund dollara á dag, 90 til 100 þús- und krónur að reka togara eins og Cape Lance. í Lunenburg á Nova Scotia kostar olíulítrinn 26 sent eða 5,70 krónur en 29 til 31 sent á Ný- fundnalandi 6,40 til 6,80. Samkvæmt þeim upplýsingum um verð á togara- fiski sem ég gat aflað mér, en verðið er misjafnt eftir gæðum fisksins, sýnist mér að hæsta verð fyrir kíló af flökuðum þorski með haus sé á Nýfundnalandi 10,60 krónur, eða 22 kanadisk sent pundið. Kvótakerfið Togararnir eru bestu veiðitæki Kanadamanna í samkeppninni við Islendinga. Þeim er haldið úti allan ársins hring. Vegna kvótakerfisins sem tekið var upp í ársbyrjun 1982 eru stóru fyrirtækin ekki lengur í keppni um aflann á miðunum. Hvert fyrirtæki fær í ársbyrjun kvóta. „Nú ræðst aflamagn okkar við samninga- borðið," sagði W.O. Morrow, for- stjóri National Sea, og brosti. Tvær flokkunarvélar taka við aflanum þegar hann berst um borð í Cape Lance. Fiskveiðar Kanadamanna: Þorskurinn Við Atlantshafsströnd Kanada eru fimm fylki: Nýfundnaland sem nær yfir samnefnda eyju og Labrad- or-skagann. Nova Scotia sem er skagi er teygir sig út í Atlantshaf, New Brunswick, Prince Edward Is- land og Quebec. I öllum fylkjunum fimm eru stundaðar fiskveiðar en Nýfundnaland og Nova Scotia hafa afdráttarlausa forystu. Um 80% af aflamagninu er landað í þessum fylkjum, þótt meiri afla sé landað á Nýfundnalandi er aflaverðmætið meira á Nova Scotia vegna þess hve mikið berst þangað af hörpuskel og humri. Sé litið á landað aflamagn af botnfiski (þorski, flatfiski, karfa, ýsu og lúðu) sem skiptir mestu í samkeppni Kanadamanna og íslend- inga, sést að 85% af aflanum sem veiddur er við Atlantshafsströnd Kanada fer til Nýfundnalands og Nova Scotia. Mikilvægasta tegundin af botnfiski sem Kanadamenn veiða er þorskur. Göngur hans eru þannig að frá maí til september er hann mest veiddur nálægt ströndinni en á haustin færir þorskurinn sig á haf út og þá elta úthafstogararnir hann. Mikilvægt er að hafa þetta ferða- lag þorsksins í huga, þegar rætt er um fiskveiðar Kanadamanna. Strandveiðarnar eru almennt stund- aðar á smábátum sem eru í einka- eign fiskimannanna en úthafsveið- arnar af togurum sem eru reknir af stórum útgerðar- og fiskvinnslufyr- irtækjum. í stórum dráttum má segja að strandveiðarnar séu ekki arðbærar heldur atvinnuskapandi, en atvinnuleysi er mikið á þessum slóðum, um 18% á Nýfundnalandi. Strandveiðum er því haldið úti i fé- lagslegum tilgangi, ef svo má að orði Cape Lance við hlið frystihúss- ins í Lunenburg. Við síðuna á honum er annar togari frá Nat- ional Sea og er verið að dæla olíu úr honum í Cape Lance, en minni togarinn er einn 23 tog- aranna í 33 skipaflota National Sea sem hefur verið lagt. Til hægri á myndinni má sjá end- ann á verkstæðishúsi National Sea en fyrirtækið annast sjálft allt viðhald á skipum sínum nema þegar þau þurfa að fara í slipp. Togaraflotinn f úthafsflotanum eru togarar yfir hundrað fet, 33 metrar, að lengd. Til að gera út slíkan togara þarf leyfi frá sambandsstjórninni í Ottawa. Ijeyfið verður að endurnýja árlega fyrir 2.500 kanadíska dollara, 55.000 krónur. Flestir togaranna eru í eigu hinna „fimm stóru" útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækja, en þau eru National Sea Products, Fishery Pro- ducts, H.B. Nickerson & Sons, The Lake Group og Connors Bros. Öll þessi fyrirtæki stunda í senn fisk- veiðar, vinnslu og sölu. f togaraflot- anum eru tæplega 150 skip, þar af á stærsta fyrirtækið National Sea á Nova Scotia 33 og hið næststærsta Fishery Products á Nýfundnalandi 44. Togarafjöldinn hefur verið svipað- ur síðan 1973. Skipunum hefur ekki fjölgað en 15 verið endurnýjuð. Nat- ional Sea hefur nýlega látið smíða fyrir sig sex 960 lesta skuttogara. W.O. Morrow, forstjóri National Aflamagn fyrir- tækjanna ákveðið samningaborðið eftir Björn Bjarnason Vegna fiskveiða settust menn að á Nýfundnalandi og Hskveiðar eru burðarás í atvinnulífi margra byggð- arlaga við Atlantshafsströnd Kan- ada. Þessi byggðarlög eru ekki auð- ug en þar hafa menn þolað súrt og sætt á 45 þúsund km langri strönd- inni. Kanadamenn ráða yfír 200 mílna fískveiðilögsögu síðan 1. janúar 1977 og skammt frá kanad- ísku verstöðvunum eru Bandaríkin þar sem er að fínna einn besta físk- markað veraldar. Kanadamenn eru mestu fiskút- flytjendur heims. 1981 nam útflutn- ingsverðmæti sjávarafurða frá Kanada 1,6 milljarði kanadískra dollara eða rúmlega 35 milljörðum íslenskra króna á núverandi gengi, en á árinu 1982 var verg þjóðar- framleiðsla íslendinga 31 milljarður króna. Sé tekið mið af heimsmarkaði á fiski 1979 nam hlutdeild Kanada á honum þó aðeins 8%. Um 160 þjóðir stunda fisksölu á alþjóðamarkaði en þar af er hlutur um 30 þeirra um 85% af öllum fiskútflutningi. fsland er i hópi þessara 30 ríkja og í Banda- ríkjunum eru fslendingar og Kan- adamenn keppinautar. Um 80% af kanadískum fiski er flutt út og skiptist útflutningsmagn- ið þannig milli markaðssvæða 1981: Bandaríkin (52%), Evrópubandalag- ið (20%), Japan (10%), önnur Evr- ópuríki (10%) og önnur rlki (8%). Af þessu má sjá að kanadískir fiskselj- endur sækja á hina sömu markaði og íslenskum starfsbræðrum þeirra eru kærastir. Kanadamenn selja þó eng- an fisk til Sovétríkjanna og skreið- arvinnslu fyrir Nígeríumarkað stunda þeir ekki. komast. Arðsemi ræður hins vegar stefnunni hjá stórfyrirtækjunum sem eiga úthafstogarana og stærstu fiskvinnslustöðvarnar. Það eru þessi fyrirtæki sem eru helztu keppinaut- ar íslendinga. Þau veiða besta þorsk- inn í köldum sjó, stinnan og hvítan. Ræðst úthaldstími togara þeirra nú af því hve margir dagar eru liðnir frá því að fyrsti þorskurinn kom í lestina, hann er verðmætasti hluti aflans og má ekki lækka í verði. Sumarþorskurinn er glær og linur og það er hann sem er seldur á lægstu verði á Bandaríkjamarkaði. Hann er þyrnir í augum stjórnenda stórfyr- irtækjanna sem vilja að allur kanad- ískur þorskur sé í svipuðum gæða- flokki og hinn íslenski, því að fyrir hann fæst hæst verð. Sea, sagði að það kostaði nú 8,5 milljónir Kanadadollara, 190 millj. kr., að smlða slík skip í Kanada, en 5 millj. dollara, 110 millj. kr. í Japan. „Við getum fengið ríkisstyrk til að smíða svona skip hér í Kanada en hann nemur ekki muninum á smíða- verði miðað við tilboð frá Japan. Þetta er í raun styrkur til skipa- smíðastöðvanna," bætti hann við. E.H. Demone, fyrrum togaraskip- stjóri, sem nú stjórnar útgerð togara National Sea var mjög stoltur þegar hann sýndi mér einn hinna nýju tog- ara, Cape Lance, sem verið var að landa úr í stærstu fiskvinnslustöð National Sea í Lunenburg skammt fyrir sunnan Halifax. Skipið var teiknað af Þjóðverja eftir fyrirsögn Demone og samstarfsmanna hans.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.