Morgunblaðið - 22.09.1983, Qupperneq 17
Richard Thompson
HAND OF KINDNESS
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1983
17
Frá Richard Thompson
til Lindu og okkar
Hljóm
nnTTTn
Finnbogi Marinósson
Richard Thompson,
Hand of kindness,
Hannibal Rec. HNBL 1313.
Dálítið hafði kunningi minn
reynt að koma mér inn á Lindu
og Richard Thompson en orðið
afar lítið ágengt. Það var hins-
vegar ekki fyrr en ég heyrði ný-
útkomna Richard Thompson-
plötu sem áhuginn kviknaði.
Linda og Richard höfðu sungið
saman í nokkur ár og verið hjón
einhvern tíma líka. Sem dúett
þóttu þau meiriháttar en eitt-
hvað virðist sambúðin hafa verið
þeim erfið og fyrir nokkru skildu
hjónakornin. Hvað Linda er að
gera veit ég ekki, en hennar
fyrrverandi er á fullu í tónlist-
inni. Nýútkomin plata hans heit-
ir „Hand of kindness" og segja
má að hún sé að mestu óður til
Lindu. Til liðs við sig hefur
Tommi fengið fyrrum fræga
kappa og má þar nefna Simon
Nicol, Dave Pegg, Dave Matt-
acks, Pete Thomas, Pete Zorn,
John Kirkpatrick og Clive
Gregson. Og ef einhver af gömlu
kynslóðinni kannast ekki við
nöfnin þá er ég illa svikinn.
Á hvorri hlið eru fjögur lög.
Það fyrsta á hlið eitt heitir „Te-
ar Stained letter" og er greini-
lega sending til Lindu. Lagið er
þrumugott og má líkja því einna
helst við „Twisting by the pool“
með Dire Straits. „How I wanted
to“ er einnig strik til Lindu en
nú er farið rólegar í sakirnar og
útkoman ekkert síðri en í laginu
á undan. „Both ends burning" er
eitt besta lag plötunnar og það
sem er einna mest alættaða
þjóðlagið á plötunni. Ekkert skot
til Lindu en hún fær að heyra
það í síðasta lagi hliðarinnar, „A
poisoned heart and a twisted
memory" kallar hann lagið og
fer á kostum.
Seinni hliðin er, eins og stend-
ur, ekki eins góð og sú fyrri.
Vera kann að um sé að kenna því
að hlið eitt sótti mun fastar á
spilarann til að byrja með. En
engu að síður eru á henni klassa
punktar og eflaust er ekkert að
henni. Lög eins og „Devonside"
sem er rólegt og „Two left feet“
sem er hratt eru þrusu góð.
Allt sem fyrir kemur á plöt-
unni er frá minni hlið óaðfinn-
anlegt. Hljóðfæraleikurinn er i
frábærum höndum, allar útsend-
ingar eru vel úr hendi gerðar.
Sándið er gott og heildarsvipur
plötunnar skemmtilega blandað-
ur. Tónlistin er þjóðlaga-rokk
sem kryddað er með léttri
poppsveiflu.
Því hefur verið haldið stíft
fram af þeim sem þykjast fylgj-
ast með að þær plötur sem komi
út séu upp til hópa hryllilegt
rusl. Satt kann það að vera, en
benda má á að fullt er af góðum
plötum líka, en það þarf bara að
bera sig eftir þeim. Að minnsta
kosti á meðan innflytjendur
standa sig ekki í stykkinu.
Tónlistin ★ ★ ★ ★ ★
Hljómgæðin ★ ★ ★ ★ %
FM/AM
Ta sjansen paa livet
Erlendar
bækur
Jóhanna Kristjónsdóttir
Ta sjansen paa livet: Aashild Ulstrup
og Tove Reite.
Útg. Cappelen 1983.
Bréfadálkar í ýmsum ritum, þar
sem fólk skrifar um vandamál sín
og biður þann alvísa „póst“ að
leysa úr erfiðleikum sínum, tíðk-
ast sennilega í flestum löndum
nema íslandi. (Ég leyfi mér að
taka póstinn í Vikunni sem öðru-
vísi dálk, þrátt fyrir angistarhróp
í honum annað veifið.) Þessi bréf
eru auðvitað jafn misjöfn og
mennirnir/konurnar sem skrifa
þau og svörin eftir því. Árum sam-
an keypti ég Familie Journal, nán-
ast eingöngu út á dálk Tove Ditl-
evsen, þeirrar ágætu dönsku
skáldkonu; mér fannst ég alltaf
verða margs vísari af þeirri lesn-
ingu, hvort sem vandamálin voru
svo sem endilega inni á gafli í eig-
inlegri merkingu. Tove Ditlevsen
gaf síðar þessi bréf og svör sín út í
bók sem hét „Venlig hilsen" og var
lærdómsrík lesning, þótt auðvitað
væru vandamálin á stundum
keimlík og stundum ekki heldur
stórvægilee á mælikvarða eilífðar-
innar. Aashild Ulstrup hefur séð
um slíkan dálk í norska Dagbladet
og stalla hennar Tove Reite hefur
ritstýrt bréfunum með henni.
I þessum bréfum er svo auðvitað
vikið að öllum mögulegum vanda-
málum: að vera svo ljótur að eng
inn „vill“ mann, kúgun af hendi
foreldra, ótryggð, kynlífið — leið-
inlegur vani eða ljúf gerð, ald-
ursmunur karl/kona — kona/karl
og svo framvegis og svo framvegis.
Aashild Ulstrup er ljómandi
skýrleg og raunsæ í svörum sín-
um. Mörgum bréfanna hefði auð-
vitað mátt ritstýra betur og
stytta, en að mörgu leyti er bókin
læsilega gerð og það er ekki vafi á
því að fáir verða þeir sem ekki
kannast við eitthvað dulítið hjá
sjálfum sér.
Otrúlegt úrval
af sófasettum með leður- og
tauáklæði í 3+1+1 sætafjölda á
sérstaklega lágu verði.
Leður kr. 82.900.-
Áklæöi kr. 43.600.-
Leður kr. 70.500,-
Áklæði kr. 39.900.-
Leður kr. 58.800.-
Áklæöi kr. 32.700.-
Leður kr. 66.700,-
Áklæöi kr. 36.400.-
Leour kr. 65.700,-
Áklæði kr. 35.500,-
Leður kr. 61.900.-
Áklæði kr. 31.300,- Uppselt
HÚSGÖGN
Langholtsvegi 111.
Sími 37010 — 37144.