Morgunblaðið - 22.09.1983, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1983
Bush þungorður í
garð Rússa í Vín
— segir þá hafa gerst seka um morð þegar þeir skutu niður kóresku þotuna
Vín, 21. september. AP.
GEORGE Bush, varaforseti Banda-
ríkjanna, réðst í dag harölega á
ráðamenn í Sovétríkjunum og sak-
aði þá um að hafa „mvrt“ farþega
suður-kóresku þotunnar, sem skotin
var niður. Hann sagði einnig um
ráðamenn í öðrum Varsjárbanda-
lagslöndum, að þeir virtu mannrétt-
indi einskis þótt þeir hefðu ritað
nöfn sín undir alþjóðlegar sam-
þykktir þar að lútandi.
I yfirlýsingu sinni sagði Bush,
að það væru ekki heilindin, sem
vektu fyrir Sovétmönnum í við-
Októberfest hafið:
Ætla sér að slá
bjórdrykkjumet
Miinchen, 21. september. AP.
Skothríð, háreysti og flugeldar
voru yfirþyrmandi er 149. októ-
berfest Bæjarabúa hófst með til-
heyrandi í Mtinchen um síðustu
helgi. Erich Kiesl, borgarstjórinn í
Miinchen, opnaði fyrstu bjórtunn-
una og drakk fyrstu ölkönnuna í
botn, síðan tóku aðrir við og verð-
ur haldið áfram sleitulaust í 16
daga.
Bjórinn sem innbyrtur er er •
ekki venjulegt milliöl, heldur
mun sterkari blanda og fylgir
mikill drykkjuskapur hátíðar-
höldum þessum. Að þessu sinni
ætla Miinchen-búar að slá bjór-
neyslumet síðustu hátíðarhalda,
en þá hurfu 4,3 lítrar af bjór
ofan í Þjóðverjana og gesti
þeirra. Milli 5 og 6 milljónir, út-
lendingar og Þjóðverjar, eru
mættar til hátíðarinnar að þessu
sinni og þeir sem ekki hafa
tryggt sér dvalarstað munu ekki
fá inni á gistihúsum, þau eru öll
fyrir löngu yfirfull.
Hátíðarhöldin standa yfir um
allan bæ, en miðpunkturinn er
nokkur risatjöld þar sem drukk-
ið er ósleitilega. Þar er einnig
snætt af sömu áfergju og drukk-
ið er, síðasta ár voru til dæmis
500.000 kjúklingar snæddir í
tjöldunum einum, hvað þá þegar
matsölustaðir koma inn í dæmið.
Það gengur á ýmsu, hljómsveitir
leika linnulaust og þátttakendur
dansa og syngja og barmamiklar
þjónustustúlkur í hefðbundnum
fatnaði þeytast um með fangið
full af ölkönnum. Margt annað
er til skemmtunar, flóasirkus,
snákasýning, draugahús og
margt fleira.
ræðunum um meðaldrægu eld-
flaugarnar, en þrátt fyrir það ætti
að vera unnt að ná samkomulagi
fyrir árslok. Hann gagnrýndi
einnig þá ráðamenn í Austur-
Evrópu, sem fylgdu Sovétrikjun-
um í einu og öilu eins og barðir
rakkar, en tók þó fram, að Banda-
ríkjamenn gerðu greinarmun á
leppríkjunum eftir því hve mikla
tilburði þau hefðu til sjálfstæðis.
Bush sakaði Rússa um „ósvífnar
lygar“ þegar þeir væru að reyna
að skjóta sér undan ábyrgðinni á
dauða farþeganna um borð í kór-
esku flugvélinni. Sagði hann þá
hafa gerst seka um ekkert nema
morð. Bush kom til Vínar frá
Ungverjalandi og Rúmeníu og
sagði hann, að Bandaríkin myndu
efla pólitísk, efnahagsleg og
menningarleg tengsl sín við þess-
ar þjóðir, sem „sýna meiri vilja til
að standa á eigin fótum". Ráða-
menn í þessum löndum hafa lítið
sem ekkert sagt um örlög kóresku
þotunnar og er talið, að með því
vilji þeir sýna Sovétmönnum
óánægju sína með verknaðinn.
George Bush
Fórst á björgunaræfingu
Óslo, 21. september. Frá fréttmriura Morgunblaésin,s, Jan Erik Lauré
BJÖRGUNARÆFINGU í Norðursjó lauk öðru vísi en ætlað var, því að einn
þeirra, sem þátt tóku í henni, er nú týndur. Það er 53 ára gamall maður, sem
björgunarbátur átti að finna í sjónum og taka upp, en ekki tókst betur til en
svo, að maðurinn er ófundinn enn þremur sólarhringum síðar.
Það var einkafyrirtæki eitt, sem
stóð að þessari björgunaræfingu.
Var hún þáttur í kennslu á með-
ferð öryggisbúnaðar fyrir fólk,
sem hyggst vinna á olíuborpöllum
í Norðursjónum. Á meðan æfingin
fór fram, voru allir þátttakend-
urnir klæddir i sams konar björg-
unarbúninga og olíuverkamenn í
Norðursjó nota. Búningar þessir
veita vernd gegn sjó og kulda og
eiga að halda viðkomandi á floti.
Þeir, sem þátt tóku í æfingunum,
voru settir í land seint að kvöldi.
Áttu þeir síðan að stökkva út í
sjóinn, skjóta upp neyðareldflaug
og bíða þess, að björgunarbátur
kæmi og sækti þá.
Maðurinn, sem saknað er og fé-
lagi hans fóru i öllu þannig að.
eins og þeim hafði verið sagt að
gera. Mikill straumur var hins
vegar þar, sem þeir stukku í sjó-
inn, svo að þá rak til hafs. Öðrum
þeirra tókst að synda í átt til
lands og var síðan bjargað af
björgunarbát, fjórum klukku-
stundum eftir að hann hafði
stokkið í sjóinn. Hinn maðurinn
hefur aftur á móti ekki fundizt
þrátt fyrir umfangsmikla leit úr
þyrlum og bátum. Þá hafa leitar-
menn gengið á nálægar eyjar en
án árangurs.
Andrei Sakharov með konu sinni, Yelenu Bonner.
Yelena Bonner, eiginkona Andrei Sakharovs:
„Lífið í Gorky
er hryllilegt“
Sakharov úthúðað í „viðurstyggilegum“ bréfum
Moskvu, 21. september. AP.
EÐLISFRÆÐINGNUM og andófsmanninum Andrei Sakharov hafa
borist meira en 2.300 „viðurstyggileg“ bréf víðs vegar að úr Sovétríkj-
unum þar sem honum eru valin öil svívirðilegustu skammaryrði rússn-
eskrar tungu. Það var kona Sakharovs, sem skýrði frá þessu, og sagði
hún ástæðuna fyrir bréfaflóðinu vera ummæli Sakharovs um kjarnorku-
vígbúnaðinn, sem birt hafa verið vestanhafs.
Yelena Bonner, eiginkona
Sakharovs, sagði vestrænum
fréttamönnum í Moskvu, að þau
hjónin yrðu fyrir stöðugum
ofsóknum í Gorky en þangað var
Sakharov sendur i útlegð 22.
janúar árið 1980.
„Lífið þar er hryllilegt," sagði
Yelena. „Fólk gerir hróp að
okkur úti á götu og límir miða á
bílinn okkar með alls kyns klúr-
yrðum." Yelena lét í ljós áhyggj-
ur yfir heilsufari mannsins síns
og sagði, að vísindaakademían í
Moskvu, sem Sakharov á enn að-
ild að, neitaði honum stöðugt um
að fá að leggjast inn á spítala
þar eins og hann hefði beðið um.
Sakharov, sem er 61 árs að aldri,
hefur tvívegis fengið hjartaáfall.
Sakharov, sem kallaður hefur
verið faðir rússnesku vetnis-
sprengjunnar, skrifaði fyrr á ár-
inu litla grein þar sem hann
kvaðst styðja áætlanir
Bandaríkjamanna um smíði
MX-eldflauganna og áætlanir
NATO-ríkjanna um að koma upp
meðaldrægum eldflaugum í
Vestur-Evrópu. Greinin var birt
í Bandaríkjunum og stóð þá ekki
á viðbrögðunum í heimalandi
hans. Sovéskir vísindamenn sök-
uðu hann um að vera svikara og
sögðu augljóst, að allt of mjúk-
um höndum hefði verið tekið á
honum hingað til.
Síðan hafa Sakharov verið að(
berast bréfin og eru honum ekki
vandaðar kveðjurnar. Sagði Yel-
ena, að bréfin kæmu viðs vegar
að úr Sovétríkjunum og augljós-
lega ekta. Hitt væri svo annað
mál hvort bréfritararnir hefðu
sjálfir haft frumkvæði að skrif-
unum.
Þetta er Khefren-pýramídinn, sem er næststærstur á eftir Keops-pýra
mídanum.
Voru pýramfdariiir
steyptir í mótum?
Miami, 21. september. AP.
FORNEGYPTAR byggðu ekki pýramídana með því að flytja stórbjörg
um langan veg og höggva síðan til steinana. Þeir steyptu þá. Helltu
nokkurs konar steypu í krossviðarmót og fengu á þann hátt efniviðinn
í þessi fyrstu einingahús sögunnar. Það er bandarískur efnafræðing-
ur, Joseph Davidovits, sem komið hefur fram með þessa byltingar-
kenndu kenningu.
„Félagar mínir og starfsbræð-
ur eru allt að því mállausir af
undrun og hneykslan yfir þessu,"
segir Joseph, sem er félagi í al-
þjóðlegum samtökum Egypta-
landsfræðinga. „Þeir vilja nefni-
lega ekki skilja, að steypan í
pýramídana er gerð úr svo
hreinum skeljasandi, að erfitt er
að greina hana frá steini."
í fyrsta fyrirlestri sínum um
þetta mál, sem Joseph flutti sl.
mánudag, kvaðst hann hafa
fundið loftbólur og mannshár
inni í einum steinanna í Keops-
pýramídanum, sem er stærstur
þeirra allra. „Loftbólurnar eru
sams konar og þær, sem finna
má í keramiki og venjulegri
steypu, og hárin reyndust vera
af manni," sagði Joseph og
skýrði frá því, að hann hefði
sjálfur gert stein úr þeim efnum,
sem hann telur Egypta hafa not-
að, og reyndist hann vera algjör
hliðstæða steinanna í Keops-
pýramídanum.
Ekki eru allir á sama máli og
Joseph, ekki t.d. Ogden Goelet,
Egyptalandsfræðingur við New
York-háskóla. „í mínum augum
er þetta tóm vitleysa," segir
hann. „Kenningin styðst við þá
fordóma nú á dögum, að Forn-
egyptar hafi ekki ráðið við það
verkfræðilega afrek, sem bygg-
ing pýramídanna er, og ég tel
ekki ólíklegt, að hár af alls kyns
dýrum megi finna í berglögun-
um.“
Joseph Davidovits lætur þessa
gagnrýni ekkert á sig fá. Segir
hann það sannað vísindalega, að
hárin séu af manni, auk þess
sem þau hafi verið algjörlega
umlukt samhverfum steininum.
Segir hann, að viðurinn í steypu-
mótin hafi komið frá Líbanon og
það er raunar alkunna meðal
fornleifafræðinga, að krossviður
fannst í gröf móður Keops far-
aós, sem pýramídinn mikli er
kenndur við.
„Það er ekki meiri kúnst að
búa til steypu en að gera brauð
eða að uppgötva hvernig brugga
skal bjór,“ sagði Joseph Davido-
vits.