Morgunblaðið - 22.09.1983, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1983
23
Vestur-Þýskaland:
Lofthelgisbrot
nærri daglega
Munchen, 21. september. AP.
FLUGVÉLAR frá Varsjárbandalagslöndunum hafa rofið
lofthelgi Vestur-Þýskalands tólf sinnum á þessu ári yfir Bæj-
aralandi að því er skýrt var frá i dag.
Tékkneskar þotur hafa flogið
inn í vestur-þýska lofthelgi tíu
sinnum og þyrlur og litlar flug-
vélar hafa margsinnis flogið inn
yfir landamærin litla stund. Ein
austur-þýsk orrustuþota og fjór-
ar þyrlur rufu lofthelgina á sama
tíma. Miklar umræður hafa verið
um þessi lofthelgisbrot í Vestur-
Þýskalandi eftir að Sovétmenn
skutu niður kóresku flugvélina
með 269 manns.
Tékkneskar flugvélar hafa
margsinnis flogið yfir ratsjár-
stöðvar í Vestur-Þýskalandi, sem
eru í nokkurra kílómetra fjar-
lægð frá landamærunum, en
aldrei hefur verið gripið til þess
að senda orrustuþotur á móti
þeim. Það er hins vegar undan-
tekningarlaus regla fyrir austan
járntjaldið þegar vestur-þýskar
smáflugvélar eiga í hlut og eru
þær þá alltaf neyddar til að
lenda.
Nýjar viðræður um
framtíð Hong Kong
Peking, 21. æptember. AP.
WU XUEQIAN, utanrfkisráðherra
Kína, sagdist í dag vonast til þess, að
Breter létu af því sem hann nefndi
„ósveigjanlega afstöðu“ þeirra f
samningaviðræðunum um framtíð
Hong Kong, en þær eiga að hefjast á
ný í Peking á morgun eftir 7 vikna
hlé. Wu viðhafði þessi ummæli í við-
tali við fréttamann í þann mund sem
hann var að leggja af stað til Alls-
herjarþings Sameinuðu þjóðanna f
New York.
Margar greinar birtust í kín-
verskum blöðum í síðustu viku,
þar sem allar hugmyndir, sem
fram hafa komið um áframhald-
andi veru Breta í Hong Kong, voru
gagnrýndar. í kjölfar þessa féll
gengi Hong Kong-dollarans svo
mjög á mánudag, að það hefur
aldrei komist neðar.
Bretar og Kínverjar hófu um-
ræður um framtíð Hong Kong eft-
ir að frú Margaret Thatcher for-
sætisráðherra heimsótti Peking í
september í fyrra.
Frumstœður hákarl
Fyrir um sjö árum fannst þessi hákarl í sjónum við strendur Hawaii-evja í Kyrrahafi og hefur hvorki fyrr né síðar
fundist annar honum líkur. Það fylgir ekki fréttinni hve langur hann er en milli kjaftvikanna eru fjögur fet og svo
hefur hann nokkurs konar varir, mjög gúmmíkenndar. Vísindamenn, sem hafa rannsakað hákarlinn í fjögur ár,
telja hann geta gefið þeim mikilvæg svör við spurningum þeirra um þróun lífsins. AP
Shamir vill þjóðstjórn
Jerúsalem, 21. september. AP.
CHAIM Herzog, forseti ísraels, fól
í dag Yitzhak Shamir formlega að
taka að sér myndun nýrrar ríkis-
stjórnar. Hefur Shamir þrjár vikur
til þess að Ijúka ætlunarverki sínu
og er talin eiga vísan stuðning 64
þingmanna af 120 á þjóðþingi
landsins. Eru það þingmenn Likud-
bandalagsins fyrir utan þingmenn
fjögurra smáflokka auk tveggja
óháðra þingmanna.
Þær raddir hafa þó komið upp í
hópi þeirra 64 þingmanna, sem
styðja Shamir, að gert verði
bandalag við Verkamannaflokk-
inn, sem er í stjórnarandstöðu, í
því skyni að mynda „ríkisstjórn
þjóðlegrar samstöðu", svo að
unnt verði þeim mun betur að
leysa efnahagsvanda landsins og
þau miklu vandamál, sem óleyst
eru vegna styrjaldarinnar í Líb-
anon. Haft var eftir Shamir, að
hann myndi strax hafa samband
við forystu Verkamannaflokksins
í þessu skyni og sagði hann, að
það væri „innileg sannfæring"
sín, að nauðsyn væri á ríkisstjórn
í landinu, sem byggð væri á
breiðum grundvelli.
Verkamannaflokkurinn hefur
enn ekki látið í ljós neinn áhuga á
að taka upp stjórnarsamvinnu
við Shamir. Er talið, að ýmsum
forystumönnum flokksins þyki
sem Likud-bandalagið sé of þjóð-
ernis- og hægrisinnað til þess að
taka upp stjórnarsamvinnu við
það.
Belgía:
Fullsödd á lýðræðinu
Briissel, 21. september. AP.
RÚMUM HELMINGI Belgíumanna á aldrinum 16—21
árs, sem tala flæmsku eða hollensku, fínnst sem of langt
hafí verið gengið í lýðræðisátt og helmingur þeirra trúir á
guð. Kemur þetta fram í skoðanakönnun, sem gerð var í
landinu.
1 skoðanakönnuninni voru 537
flæmsk ungmenni spurð álits og
reyndust 60% þeirra vera sam-
mála þessari setningu: „Það, sem
þessi þjóð þarf á að halda, er
færri pólitískir flokkar og fáir,
sterkir menn, sem geta ráðið án
mikils samráðs við aðra.“ Það
kom einnig fram, að helmingur
unga fólksins trúði á guð, fæstir
í yngsta aldursflokknum en
flestir í þeim elsta.
VERÐHRUN
Sængur + Koddar
Verö áöur TtTQ,-
Verö nú
870.- 249.-
Kerrupokar
Verö áöur oSCL.-
Verö nú
680.-