Morgunblaðið - 22.09.1983, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 22.09.1983, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1983 37 mönnum en þó öllu frekar vegna skilningsríkrar og dugmikillar eiginkonu, sem axlaði með honum þau störf sem á manninn hlóðust. Þessu var Laufey ekki óvön enda gætt bús og barna sjómannsár Guðmundar þ.á m. öll stríðsárin, þegar allar fréttir af skipum, litl- ar sem engar, og enginn sem heima beið, vissi hvort skip væru ofansjávar eða ekki. Þá þurftu sjó- mannskonur sem endranær að gegna hlutverki bæði húsmóður og heimilisföður. Ég hefi hér að framan getið um störf Laufeyjar með manni sínum að félagsmálum Öldunnar og ljúft er mér að geta hér um og þakka áhuga hennar og hjálpsemi við þau störf sem mað- ur hennar og starfsmenn í Sjó- mannadagssamtökunum unnu að á hverjum tíma. Hún bjó manni sínum og börnum þeirra fallegt heimili að Laugarásvegi 5 og var til hinstu stundar stoð og stytta Guðmundar. Þau hjón eignuðust fjögur börn. Elst þeirra er Helga, gift Finnb- irni Hjartarsyni prentsmiðju- stjóra og eiga þau fimm börn. Þá kom Oddur, sem lést aðeins 13 ára að aldri af slysförum í Vest- mannaeyjum. Halldór arkitekt, kvæntur Ingibjörgu Jóhannsdótt- ur og eiga þau þrjú börn. Yngstur er Gunnar lögmaður, kvæntur Sigrúnu Einarsdóttur og eiga þau tvö börn. Börn þeirra systkina eru tíu að tölu og barnabarnabörnin orðin tvo. Eru það börn Odds son- ar Helgu og Finnbjörns, sem nem- ur arkitektúr í Danmörku, en eldra barn hans og konu hans Bjargar Dan Róbertsdóttur er al- nafni langafa síns, sem hér er kvaddur. Við lát Guðmundar H. Oddsson- ar er lokið langri og merkri veg- ferð góðs manns. Ég hefi oftar en einu sinni haft á orði að Guð- mundur væri góður maður, sem lét hjálpsemi sína við þá sem minna máttu sín, koma fram á margan hátt. Um slíkt voru ekki höfð mörg orð, enda ekki dregið fram þegar litlir karlar gerðu veð- ur að Guðmundi. Slík él stóð hann af sér sem önnur og sóð beinni eftir. Með Guðmundi H. Oddssyni er fallinn frá einn besti maður sem íslensk sjómannastétt hefur átt. Góður stjórnandi, fastur fyrir en sanngjarn. Hann var höfðingi, en mannlegur. Stundum hrjúfur f framkomu, en þeir sem til þekktu, vissu að undir sló hlýtt hjarta. Missir margra er mikill við frá- fall hans. Gamla fólkið á Hrafn- istuheimilunum átti í honum góð- an vin. Gamlir vinir af Vestfjörð- um og skipsfélagar áttu hauk í horni þar sem hann var. Sjómannadagssamtökin, sem Guðmundur helgaði starfskrafta sína alfarið síðustu árin, hafa misst mikið við fráfall hans. En minningin um gott samstarf í anda vináttu og sameiginlegs áhuga á framgangi þeirra mála sem unnið var að, verður hvati og leiðarljós þeirra sem við störfum hans taka. En mestur er missir Laufeyjar eiginkonu hans og barna. Þeim flyt ég innilegar samúðarkveðjur og bið guð um að gefa þeim styrk í sorg þeirra. f tímans rás slævist hún, en eftir stendur minningin um góðan dreng. Blessuð veri minning Guðmund- ar H. Oddssonar. Kaupmannahöfn, 18. sept. 1983 Pétur Sigurðsson Vinur minn og samstarfsmaður, Guðmundur Helgi Oddsson, hefur skyndilega horfið úr okkar hópi, og fer útför hans fram í dag. Fregnin um lát hans kom eins og reiðarslag, því ekki hafði ég orðið þess var að hann kenndi sér nokk- urs meins, og fannst mér hann alltaf hraustlegur þrátt fyrir til- tölulega háan aldur. Þegar við kveðjum Guðmund Oddsson í dag og ég lít til baka, er mér efst í huga góð samvinna og vinátta, og er ég forsjóninni þakklátur fyrir að leiðir okkar skyldu liggja saman. Betri og inni- legri samstarfsmann get ég ekki hugsað mér. Hann var sannur vin- ur og traustur félagi í starfi og leik. Allir þeir sem höfðu kynni af honum sáu að þar fór harðdugleg- ur maður og hjartahlýr, sem allir báru mikla virðingu fyrir. Það traust sem menn báru til Guðmundar Oddssonar í starfi hans fyrir Sjómannadagsráð var mikið, og tel ég fullvíst að aldrei hafi hann skort úrræði í þeirri miklu uppbyggingu sem hann vann svo ötullega að síðustu þrjá áratugina, en það er uppbygging Sjómannadagsins, Hrafnistu- heimilanna í Reykjavík og Hafn- arfirði, og að öðrum fyrirtækjum sjómannasamtakanna. Trúmennska og árvekni í starfi fyrir sjómannasamtökin voru ein- stök, störf hans við Sjómannadag- inn, og síðar við uppbyggingu Hrafnistuheimilanna, Dvalar- heimila aldraðra sjómanna, munu verða verðugir minnisvarðar þessa vestfirska skipstjóra sem eftir langa sjómennsku, og meðal annars siglingar á stríðsárunum, axlaði poka sinn og gerðist frum- kvöðull þeirra sem vildu minnast forfeðra sinna, og gera ævikvöld hinna öldruðu, og þá einkum sjó- manna, betra en það var. Þeir voru á undan sínum tíma, þeir er skipuðu Sjómannadagsráð og sú mannúðarstefna, er nú er að verða að veruleika gagnvart hinum öldr- uðu, sækir hugmyndir sínar m.a. til Hrafnistu. Það er vissulega brostinn hlekk- ur í keðju góðra samstarfsmanna, sem í dag vinna að stórum velferð- armálum Sjómannasamtaka ís- lands. Það tekur langan tíma að græða í hugum okkar það sár, sem okkar samtök verða nú fyrir. En Guðmundur Oddsson var ekki einasta félagsmálamaður, stéttvís og áhugasamur. Hann var einnig mikill heimilisfaðir. Við hjónin sendum eftirlifandi konu hans, Laufeyju Halldórsdóttur, börnum og öðrum vandamönnum, samúðarkveðjur. Rafn Sigurðsson Látinn er góður liðsmaður Skip- stjóra- og stýrimannafélagsins Öldunnar. Hann var formaður fé- lagsins í 12 ár. Guðmundur tók við forystu félagsins þegar það var 1 öldudal og hóf það upp úr dalnum í það að vera sterkt og traust félag skipstjórnarmanna eins og það er í dag. Hann var hvatamaður að því að félagið eignaðist eigið húsnæði en að því og öðru uppbyggingarstarfi Guðmundar mun félagið lengi búa. Fulltrúi félagsins var Guð- mundur í stjórn Sjómannadags- ráðs í aratugi og vann því vel eins og öðrum nefndum og ráðum og má þar til nefna Farmanna- og fiskimannasamband íslands, en forseti þess var hann um skeið. Guðmundur sat einnig í Verð- lagsráði sjávarútvegsins og svona mætti áfram telja. Laufey Hall- dórsdóttir, kona Guðmundar, var fyrsti formaður Kvenfélagsins Oldunnar auk þess sem hún studdi ætíð mann sinn í störfum hans fyrir félagið, og fyrir það ber að þakka. Stjórn Öldunnar þakkar nú að ieiðarlokum langt og gifturíkt starf Guðmundar H. Oddssonar og sendir Laufeyju og börnum þeirra einlægar samúðarkveðjur. Stjórn Skipstjóra- og stýri- mannafélagsins Öldunnar. Lokað vegna jarðarfarar GUÐMUNDAR H. ODDSSONAR, skipstjóra, eftir hádegi í dag, fimmtudaginn 22. september. Teiknistofan hf., Ármúla 6. Lokað vegna jarðarfarar GUÐMUNDAR H. ODDSSONAR, frá kl. 13.00 í dag. Hagprent hf., Brautarholti 26 Lokað Vegna jarðarfarar GUÐMUNDAR H. ODDSSONAR, skipstjóra, veröa skrifstofur Sjómannadagsráös, Hrafnista Reykjavík, Hrafnista Hafnarfirði og aöalumboð happ- drættis Das, lokaö eftir hádegi fimmtudaginn 22. september. Skrifstofur félagsins eru lokaðar í dag, fimmtudag, vegna jarðarfarar ÓLAFS GUÐMUNDSSONAR. Félag Heyrnarlausra, Klapparstíg 28. Lokað frá hádegi í dag vegna jarðarfarar. Davíö S. Jónsson & Co. hf., heildverslun. MILLIVEGGJA PLOTUR Stærðir: 50x50x 5 50x50x 7 VANDAÐAR PLOTUR VIÐRÁÐ ANLE GT VERÐ B.M. VAUÁf PANTANIR: Bíldshöfða 3, sími: 91-85833 og hjá Iðnverk h/f Nóatúni 17, 105 Rvk. Símar: 91-25930 og 91-25945 p - 4fgEi i’ fl vrn * ** Íðbíib Mctsöhihhu) á hverjwn íiegi!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.