Morgunblaðið - 22.09.1983, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 22.09.1983, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1983 „ Sijo er ab sjá cá> qamla. krórVXn sé enn d m<5arleÚ5 Ást er... ... að lána henni skyrtuna sína. TM US Pal Off — all rights reserved c 1983 los Angeles Times Syndicate Þakkaðu Guði Tyrir að ég 1 skuli vera jurtaæta. Með morgunkaffinu tayloi* soa l>að eru ekki fleiri rafmagns- öryggi. Við notuðum þau í teygjubyssurnar! HOGNI HREKKVISI „EKKI TIL SÓLU, FKÚ ■" Vona að Alþingi beri gæfu til að fella þessa tillögu Rögnvaldur Steinsson, Hrauni, skrifar 15. september: „Ágæti Velvakandi. I blaðinu Feyki 7. þ.m. er birt viðtal við einhvern Kristófer Kristjánsson, sem er fulltrúi þeirra Húnvetninga á þingi Stétt- arsambands bænda. Mér finnst mega lesa milli lín- anna í viðtali þessu, að hann telji það mikinn búhnykk fyrir bænda- stéttina að losna við alla óbú- menntaða bændur. Og til þess skal óhikað nota bolabrögð, svo sem að neita þeim um alla fyrirgreiðslu, lán og annað slíkt. Af þessum hugsunarhætti finnst mér hálfgerður rússaþefur, og af honum erum við margir lítið hrifnir. Að vísu tekur Kristófer þessi það fram, að þeir sem þegar séu við búskap megi nú fá að hokra áfram, og þakka ég það ekkert. Hann segir, að stór hluti bænda sé ekki menntaður til búskapar. Þetta er satt og ég hygg að svo sé um meirihluta þeirra. En eru það ekki einmitt þessir ómenntuðu menn, foreldrar okkar og við sem komnir erum á efri ár, sem höfum lyft grettistaki í bú- skap sem öðrum greinum? Með þessu er ég ekki að segja, að unga kynslóðin sé ónýt og að menntun sé óþörf. Nei, það er síður en svo. Við eigum marga góða bændur sem eru búlærðir, en við eigum líka marga góða bændur, og engu lakari, sem aldrei hafa farið í bún- aðarskóla. Ég held að skussi verði alltaf skussi, hvort sem hann lær- ir eða ekki. Þó eru nú kannski ein- hverjar undantekningar frá því. Ég tel að búskapur sé ekki svo vandasamur, að ekki geti flestir með fullu viti stundað hann, hafi þeir áhuga á því. Til hvers er verið að gefa út búnaðarrit og hand- bækur um búvísindi, ef það er að- eins fyrir þá, sem búnir eru að læra þetta allt saman í skólum? Og þar að auki eru ráðunautar á öðrum hverjum fingri. Þetta má sjálfsagt allt hverfa, þegar bú- fræðingur er kominn á hvern bæ. Hvað um það. Mér finnst þetta vera skerðing á frelsi manna og því alls ekki lýðræðislegt. Ég tel þá Stéttarsambandsþingmenn að minni, sem bera fram þvílíkar til- lögur, og vona að Alþingi beri gæfu til að fella þessa, þegar hún kemur til afgreiðslu þar. Margur bóndasonurinn hefur farið til sjós án þess að hafa kom- ið þar áður við sögu eða nokkuð lært í sjómennsku, en hafa þó orð- ið góðir sjómenn og jafnvel eftir- sóttir. Þætti okkur ekki dálítið stúrið, ef sonum okkar væri neitað um skiprúm eða vinnu í frystihúsi eða sláturhúsi eða annars staðar, af því að þeir hefðu ekki bréf upp á að vera „fagmenn"? Ég er smeykur um, að þá fengi margur unglingurinn lítið að gera. Svo sem fyrr segir, er ég alls ekki á móti menntun á neinn hátt. Hún er nauðsynlegt. En það eru heldur ekki allt hálfvitar, sem ekki eru í bréfaruslinu. Svo segi ég eins og skessan í Drangey: Ein- hvers staðar verða vondir að vera. Gott væri ef kannað yrði, hvorir stæðu sig að jafnaði betur í starfi, búlærðir bændur eða hinir sem ekki hafa lært til búskapar." Skríf Þjóðviljans um húsgagnakaup SÁÁ: Liggja hvatir Kinar Jóhannsson skrifar: „Það hefur vakið athygli á hvern hátt dagblaðið Þjóðviljinn hefur meðhöndlað húsgagnakaup SÁÁ í nýja sjúkrastöð samtak- anna. Reynt er að gefa í skyn á allan hátt að I þessu sambandi sé eitthvað óeðlilegt á ferðinni og dylgjað um að nefnd sú sem vann að þessu máli á vegum SÁÁ eigi sjálf einhverra hagsmuna að gæta. Stríðsfyrirsögn á forsíðu Þjóð- viljans nú nýlega ásamt flenni- stórri mynd af trúnaðarmönnum SÁÁ ýtir undir þá skoðun að ein- kennilegar hvatir liggi að baki meðhöndlun blaðsins á öllu þessu máli. Vitað er að starfsmaður á skrifstofu Félags húsgagnasmiða hefur verið ólatur að upplýsa Þjóðviljann um hin smæstu atriði þessa máls, en sá aðili er dyggur flokksmaður í Alþýðubandalag- inu. Nú má auðvitað alltaf um það deila hvort kaupa eigi erlend hús- gögn í íslenskar stofnanir og auð- einkennilegar þar að baki? vitað væri það best ef þess þyrfti alls ekki. SÁÁ-menn halda því fram að bæði að því er lýtur að verði og gæðum hafi verið hag- kvæmast að kaupa dönsku hús- gögnin. Og það er ástæðulaust að vantreysta þeim fullyrðingum því hvaða aðili vill borga meira en hann nauðsynlega þarf og hver kaupir ekki vöru sem hentar hon- um best? Ég minnist þess ekki að Þjóð- viljinn hafi gert kaup ýmissa aðila á dönskum húsgögnum að sér- stöku umtalsefni, t.d. kaup stjórn- ar verkamannabústaða á dönskum húsgögnum í menningarmiðstöð- ina í Gerðubergi, kaup á dönskum húsbúnaði í Hjúkrunarheimilið I Kópavogi, kaup rikisstjórnarinnar á dönskum stólum og borðum i móttökusal og veislusal ríkis- stjórnarinnar í Borgartúni, kaup á erlendum húsgögnum i húsnæði Sölustofnunar lagmetis, kaup á erlendum innréttingum eða hús- búnaði í nýtt útibú Landsbankans í Mjóddinni, svo að einhver dæmi séu nefnd af handahófi. Væri fróðlegt að Þjóðviljinn gerði grein fyrir þessu, svo og ein- staka forsvarsmenn í íslenskum húsgagnaiðnaði. Jafnframt væri það ágætt rannsóknarefni fyrir Þjóðviljann og önnur blöð að at- huga á hvern hátt var staðið að þessum málum, t.d. hvort almenn útboð hafi farið fram, hvort ein- hver eigi hagsmuna að gæta af ofangreindum kaupum o.s.frv." GÆTUM TUNGUNNAR Dönsku orðin „at advare" eru á íslensku að vara við, og „advarsel" er því á íslensku viðvörun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.