Morgunblaðið - 24.09.1983, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 1983
l *
Sverrir Hermannsson, iðnaðarráðherra, undirritar samkomulagið í gær. Honum til sitt hvorrar handar sitja dr.
Paul Miiller og dr. Dietrich Ernst, sem undirrituðu samkomulagið fyrir hönd Alusuisse. Stjórnarmenn fsal
standa fyrir aftan.
Símamynd AP.
Bráðabirgðasamkomu-
lagið undirritað í gær
Genf, 23. september. Krá Önnu
Bjarnadóttur, fréttaritara Mbl.
FULLTRÚAR íslands og Alusuisse
undirrituðu í dag í Genf bráða-
birgðasamning, sem þeir gerðu sín
á milli fyrr í þessum mánuði, til
lausnar ýmsum ágreiningsmálum
aðilanna. Sverrir Hermannsson
iðnaðarráðherra undirritaði samn-
inginn fyrir hönd íslensku ríkis-
stjórnarinnar, en dr. Paul Miiller
og dr. Dietrich Ernst fyrir hönd
Alusuis.se. Stjórn ísal hélt einnig
stjórnarfund í Genf í dag og fjall-
aði m.a. um bráðabirgðasamkomu-
lagið. Stjórnarmeðlimir voru síðan
viðstaddir undirskriftina.
Ánægja ríkti meðal manna
með þetta skref í samningsátt.
Samningurinn er til eins árs, en
báðir aðilar hafa rétt til að segja
honum upp, eða þriggja mánaða
fyrirvara frá og með 1. apríl nk.
Skopteikning Sigmunds, sem dr.
Miiller sýndi mönnum í gær og
víða er vísað til í fréttinni.
Þegjandi samkomulag er um að
samningurinn muni gilda þar til
fyrri samningar íslensku ríkis-
stjórnarinnar og Alusuisse hafa
verið endurskoðaðir og mun því
framlengjast að ári liðnu, ef
endanlegir samningar hafa ekki
náðst þá.
Paul Miiller hefur tekið þátt í
samningaviðræðum Alusuisse og
íslendinga frá upphafi. Hann
sagðist feginn því að andrúms-
loftið milli aðilanna væri aftur
orðið gott og hafði ljósrit af
skopmynd Sigmunds í fórum
sínum, til að minna á tíð fyrri
iðnaðarráðherra. Hann sagðist
sannfærður um að samningar
sem báðir aðilar yrðu ánægðir
með myndu nást á endanum, en
sagði mikla vinnu framundan í
því sambandi.
Ellert B. Schram óskar eftir fríi frá þingmennsku:
Engir undirskrifta-
listar á benzínstöðvar
Undirskriftarlistum til mótmæla
efnahagsráöstöfunum ríkisstjórnar-
innar var í gær dreift á benzínstöðv-
ar í Reykjavík af Dagsbrúnar-
mönnum. Forráðamenn olíufélag-
anna neituðu að láta þá liggja
frammi. „Ástæðan er sú, að við höf-
um ekki heimilaö að undirskriftar-
listar — hvorki frá líknarfélögum né
íþróttafélögum, liggi frammi á
benzínstöðvum og gildir það sama
um þessa lista,“ sagði Indriði Páls-
son, forstjóri Skcljungs í samtali við
Mbl.
„Það var ekki farið fram á það
við okkur að listarnir fái að liggja
frammi, heldur var þeim dreift að
okkur forspurðum. Með þessu er-
um við ekki að taka afstöðu með
eða á móti undirskriftalistum
ASÍ. Aðeins að það sama gildir um
þessa undirskriftalista og aðra.
Það er okkur svo algerlega óvið-
komandi hvort okkar starfsmenn
eða aðrir skrifi undir þessa lista
— það verður hver og einn að gera
upp við sig,“ sagði Indriði Pálsson.
Mbl. hafði sambandi við Magn-
ús Einarsson, starfsmann Dags-
brúnar og sagði hann að um mis-
skilning hefði verið að ræða.
Dagsbrún virti afstöðu olíufélag-
anna, — listar hefðu ekki fengið
að liggja frammi af hálfu annarra
aðila og þeir sættu sig við ákvörð-
un oliufélaganna.
Myndin er tekin á ráðstefnunni f Madrid og sýnir þegar Max M. Kampel-
man kynnir þá George Shultz, utanrfkisráðherra Bandaríkjanna (t.h.), og
Niels P. Sigurðsson sendiherra, sem var fulltrúi íslands á öryggisráðstefn-
unni.
SVS og Varðberg:
Hádegisfundur með
Max Kampelman
MAX M. Kampelman, aðalfulltrúi
Bandaríkjanna á öryggismálaráð-
stefnu Evrópu í Madrid, flytur fram-
söguerindi á fundi, sem Samtök um
vestræna samvinnu og Varðberg
halda í hádeginu í dag, laugardag, í
Átthagasal Hótel Sögu, en fundur-
inn er opinn félagsmönnum beggja
félaganna og gestum þeirra.
Kampelman mun skýra frá ný-
afstöðnum fundi í Madrid og svara
fyrirspurnum. Niels P. Sigurðs-
son, sendiherra, fulltrúi Islands á
öryggismálaráðstefnunni, kynnir
ræðumann.
„Ástædurnar bæði per-
sónulegar og pólitískar“
„ÁSTÆÐURNAR eru bæði persónulegar og pólitískar. Ég gaf kost á mér í
prófkjöri hjá Sjálfstæðisflokknum á síðastliðnum vetri í þeirri trú að ég gæti
gert flokknum gagn og haft þar einhver áhrif,“ sagði Ellert B. Schram
þingmaður Sjálfstæðisflokksins, en hann hefur óskað eftir því við forseta
Sameinaðs þings að hann fái frí frá þingstörfum um óákveðinn tíma frá og
með 1. október, að því er kemur fram í frétt frá honum til fjölmiðla, en þar
kemur einnig fram að hann taki við ritstjórastörfum á Dagblaðinu og Vísi að
nýju frá sama tíma.
„Mér var veitt brautargengi í
prófkosningum af sjálfstæðisfólki,
en þar með er sagan öll. Nú eru
5—6 mánuðir liðnir frá því kosn-
ingar fóru fram og ég mæli ennþá
göturnar án þess að hafa fengið
skrifstofu eða síma, hvað þá að
mér hafi verið falin einhver störf
hjá flokknum. Mér sýnist alveg
ljóst að þróunin sé sú að mér er
ætlað að sitja á varamannabekk,"
sagði Ellert ennfremur.
Ellert sagði að hann liti á póli-
tíkina sem starf, þar sem hægt
væri að gera gagn og til þess að
geta gert gagn þá þyrfti maður að
hafa áhrif. Þingmennska væri
ekki vegtylla í hans augum, heldur
aðstaða sem ætti að nota og þyrfti
því að hafa tækifæri til að nota.
Ef mönnum væri skipað út í horn,
væri ljóst að áhrif þeirra væru
mjög takmörkuð. „Ég hef verið
óbreyttur þingmaður í 10 ár og ég
held að það sé ekkert of mikið sagt
þó ég hafi getað búist við að áhrif
mín yrðu meiri heldur en raun ber
vitni," sagði Ellert.
„Ég hef tekið mér frí frá þing-
inu og blaðið gerir sér væntanlega
grein fyrir því að ég hef mínar
pólitísku skoðanir eins og allir
hafa, enda væri til lítils að hafa
menn í ritstjórastólum sem ekki
hafa skoðanir," sagði Ellert að-
spurður um hvort það samrýmdist
ritstjórnarstefnu Dagblaðsins og
Vísis að vera frjálst og óháð að
vera þingmaður fyrir ákveðinn
stjórnmálaflokk. „Blaðið sættir
sig vel við það, enda geri ég ráð
fyrir því að það átti sig vel á þvi
að ég hef sjálfstæða og óháða af-
stöðu og tek ekki við einhverjum
flokkslínum. Ég hef alltaf verið
frjáls og óháður, bæði í mínni
þingmennsku og mínu ritstjóra-
starfi og læt engan segja mér
hvaða skoðanir ég á að hafa og það
er kannski minn Akkilesarhæll,"
sagði Ellert.
Aðspurður um hvort hann teldi
óskina um frí að fullu í samræmi
við þingsköp, sagði Ellert: „Ég
geri ráð fyrir að menn geti óskað
eftir fríi í þessu starfi eins og öll-
um öðrum, enda hef ég óskað eftir
því að vera tekinn af launaskrá
þingsins frá og með 1. október."
Bréf Ellerts til forseta Samein-
aðs þings hljóðar svo: „Hér með
tilkynnist yður, að ég mun af per-
sónulegum ástæðum taka mér frí
frá þingstörfum um óákveðinn
tíma frá og með 1. október nk.
Óska ég þess, að varamaður taki
sæti mitt á alþingi þar til annað
verður ákveðið.
Ég óska þess jafnframt að vera
tekinn af launaskrá Alþingis frá
og með sama tíma.“
1. varamaður Sjálfstæðisflokks-
ins er Geir Hallgrímsson utanrík-
isráðherra, sem skipaði 7. sætið á
framboðslista Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjavík í síðustu kosning-
um, en 8. sætið skipaði Guðmund-
ur H. Garðarsson.
Þing kemur saman 10. október.
„Busar" Menntaskólans í Reykjavík voru boðnir velkomnir af eldri bekking-
um í fyrradag. Athöfnin fór fram á hefðbundinn hátt, hver einasti „nýgræð-
ingur“ var trolleraður og svifu menn hátt í loft upp eins og sjá má á
meðfylgjandi mynd.
MorKunblaðið/ Kristinn Björgvinsson.
„Þingið tekur endanlega ákvörðun“
— segir Friðjón Sigurðsson, skrifstofustjóri alþingis
um ósk Ellerts B. Schram um frí frá þingstörfum
FRIDJÓN Sigurðsson skrifstofu-
stjóri Alþingis sagðist ekki þekkja
fordæmi sem væri nákvæmlega
eins og ósk Ellerts B. Schram um
frí um óákveðinn tíma frá þing-
mennsku, en í raun og veru væri
þetta svipaðs eðlis og áður hefði
gerst, eini munurinn væri, að ef til
vill væri gefið í skyn að um eitt-
hvað lengri tíma gæti verið að
ræða, en það væri þó ekki sagt
berum orðum. Að menn bæðust
undan að gegna þingstörfum af
persónulegum ástæðum, hefði oft
komið fyrir. í slíkum tilfellum ættu
menn ekki rétt á launum.
„Ég get ekki séð annað en það
verði að taka til greina vilja
hans í þessu efni. Það er orðin
föst venja fyrir því, að ef þing-
maður vitnar til sérstakra anna,
þá er tekinn inn varamaður fyrir
hann,“ sagði Friðjón aðspurðui
um hvort þetta samrýmdist
þingsköpum. „Hins vegar verður
þingið að meta þetta þegar þa0
kemur saman, það verður ekki
tekin endanleg ákvörðun um það
fyrr, eins og vant er þegar vara-
menn taka sæti aðalmanna á
þingi," sagði Friðjón að lokum.