Morgunblaðið - 24.09.1983, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 24.09.1983, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 1983 Kosningar í Hessen og Bremen: Úrslitin mikilvæg fyrir stjórn Kohls Frankfurt. 23. september. AP. KOSIÐ VERÐL’R til þinganna í Hessen og Bremen á sunnudag, og eru úrslitin talin koma til með að endurspegla vinsældir stjórnar Helmuts Kohl kanzlara. Jafnaðarmenn hafa ráðið meiri- hluta í báðum ríkjunum frá stríðslokum, og eru kosningarnar hinar fyrstu sem fram fara í Vestur-Þýzkalandi frá því sam- steypustjórn Kohls tók við völdum eftir þingkosningar 6. marz sl. Helztu kosningamálin í ríkjun- um báðum eru atvinnuleysi, iðn- þjálfunaráætlanir og útgjöld til félagsmála. Einnig hefur umræða um áætlanir Atlantshafsbanda- lagsins um að koma nýjum meðal- drægum kjarnorkuflaugum fyrir í Evrópu blandast í kosningabarátt- una, og verið heit. Jafnaðarflokkurinn og flokkur græningja, sem eru andvígir flaugunum, eru öflugir í bæði Hessen og Bremen. Og ef flokkur Kohls, Kristilegir demókratar, og samstarfsflokkur hans, Frjálsir demókratar, koma vel út úr kosn- ingunum verður litið á það sem stuðning við stefnu stjórnarinnar, sem er fylgjandi staðsetningu nýrra flauga NATO í Evrópu, sem m.a. verður komið fyrir í V-Þýzka- landi. „Svarti kassinn“ ekki fundinn enn Diana prinsessa heimsótti fyrir nokkrum dögum heimili fyrir andlega fotluð börn í Westoning í Englandi og heilsaði þá m.a. upp á hana Fionu Passmore, sem er 13 ára gömul stúlka. Fiona, sem hafði heyrt orðróm- inn um að Diana væri ólétt, vildi hins vegar sannreyna söguna og strauk þess vegna yfir magann á Diönu við mikla kátínu viðstaddra. AP. Zimbabwe: Allir sem einn gegn rottunum Harare, Zimbabwe, 23. september. AP. MEINDÝRAEYÐUM í Harare, höf- uðborg Zimbabwe, var í dag stefnt öllum sem einum til þjóðþingsins í borginni og þeir beðnir um að stugga á brott óvelkomnum gest- um. Var hér um að ræða rottur, sem þingmennirnir vissu raunar af, en í gær gerðu þær sig full heimakomnar. Fór þá fram áköf umræða um eitthvert viðkvæmt mái en þegar hvað hæst stóð í stönginni stukku þrjár myndarl- egar rottur upp á eitt borðið og létu eins og þær ættu þangað löglegt erindi. Duttu þá deilurnar niður eins og bylur af þaki og voru nú allir með einum huga. Var ákveðið að lýsa yfir allsherj- arstríði á hendur rottunum til að misklíðin mætti áfram hafa sinn gang. Rafhlöðurnar endast fram til 1. október Wakkanai, Japan. 23. september. AP. BANDARÍKJAMENN og Sovét- menn keppast enn um að finna flak kóresku farþegaþotunnar og ekki síst flugskráningartæki hennar, Aukin aðstoð við uppreisnarmenn í Nicaragúa VN ashineton, 23. .september. AP. RONALD Reagan Bandaríkjaforseti hefur hlotið stuðning nefndar öld- ungadeildarinnar, sem fjallar um máiefni leyniþjónustunnar, til þess að halda áfram stuðningi við gagn- byltingarsinna í Nicaragua. Nefndin hvatti forsetann jafn- framt til þess að verða sér út um sérstaka heimild til að styrkja þessa starfsemi án þess að þurfa að hljóta til þess samþykki þings- ins. Þýðir þetta að öldungadeildin er á öndverðum meiði við fulltrúa- deildina, sem samþykkti í júlílok að láta af allri aðstoð við upp- reisnarmenn í Nicaragua. Öldungadeildarnefndin sam- þykkti með 13 atkvæðum gegn tveimur að veita 19 milljón dollara framlag til uppreisnarmanna í Nicaragua, sem talið er að endist þeim frá þremur upp í sex mánuði. svarta kassann svokallaða. Banda- rfkjamenn hafa borið til baka fyrri fréttir um að þeir viti hvar hann er niðurkominn. Veður hefur verið gott á leitar- svæðinu síðustu daga og er leitað jafnt á nóttu sem degi. Talsmaður Bandaríkjahers í Japan hefur hins vegar vísað á bug þeim fréttum, að vitað sé hvar kassinn er niður- kominn á hafsbotni. Sagði hann, að líklega hefði heyrst í senditæki kassans en aðstæður væru mjög erfiðar, botninn grýttur og giljum skorinn. Talið er, að rafhlöðurnar í tækinu endist ekki nema fram til 1. október nk. og ef það verður ekki fundið þá er eins víst að það finnist aldrei. Bandaríkjamenn hafa borið fram formlega kvörtun yfir fram- ferði Sovétmanna á leitarsvæðinu en þeir gera allt sem í þeirra valdi stendur til að trufla leitartæki bandarísku skipanna og stugga þeim á brott. Var kvörtuninni komið á framfæri við nefnd, sem skipuð er fulltrúum beggja þjóða, Sovétmanna og Bandaríkja- manna, og á að sjá um að ekki skerist í odda með þjóðunum á hafi úti. Hefur nefndin unnið gott starf að sögn, en að þessu sinni hafa Sovétmenn ekki látið svo lítið að svara kvörtuninni. Þjóðstjórnarboði Shamirs hafiiað Tel Aviv, 23. sepíember. AP. LEIÐTOGAR Verkamannaflokksins í ísrael, þeir Simon Peres, formaður flokksins, og Yitzhak Rabin, sem næstur honum gengur, hafa hafnað þeirri áskorun Yitzhak Shamirs, væntanlegs forsætisráðherra, að Verkamannaflokkurinn komi til liðs við þá flokka, sem nú hafa náð sam- komulagi um stjórnarmyndun. Eftir Shamir hefur verið haft, að hann hafi hug á að ná lang- tímasamkomulagi við Verka- mannaflokkinn um stjórnarstefn- una og bjóða honum ráðherraemb- ætti í stjórninni, en Simon Peres, formaður Verkamannaflokksins, hefur alltaf verið vantrúaður á að unnt sé að brúa bilið milli Verka- mannaflokksins og Likud-banda- lagsins. Peres segist raunar viðurkenna, að ástandið í Líbanon og gífurlegir efnahagserfiðleikar í ísrael séu ærin ástæða til að allir flokkar taki höndum saman, en hins vegar Siglingakeppnin „Ameríkubikarinn“: Lokadagurinn ræður úrslitum Newport, 23. scptember. AP. SJÖIJNDI (Kí SÍDASTI keppnisdagurinn í siglingakeppninni „Ameríku- bikarinn" ræður úrslitum í keppninni, þar sem áhöfn áströlsku skútunn- ar Ástralía II, undir forystu Johns Bertrand, vann bandarísku skútuna Liberty á sjötta deginum með meiri yfirburðum en áður hefur þekkst í keppninni, eða 3 mínútum og 25 sekúndum. Sjöundi og síðasti keppnisdag- úrslitin og sagði Liberty, þar urinn er á morgun, laugardag, og vinni ástralska skútan þá einnig, er það í fyrsta skipti að útlendur bátur vinnur þessa keppni frá því hún hófst 1851. Bandaríkja- menn hafa borið sigur úr býtum frá upphafi. Keppnin hefur gengið þannig fyrir sig að bandaríska skútan varð fyrst í mark tvo fyrstu keppnisdagana, en sú ástralska þann þriðja. Á fjórða keppnis- deginuin leit út fyrir ástralskan sigur um tíma, en sú bandaríska vann. Kærði áhöfn Ástralíu II sem Dennis Conner er skipstjóri, hafa siglt fyrir sig. Á fimmta degi varð banda- ríska skútan fyrir smábilun, en þá gekk hins vegar allt upp hjá Ástralíumönnum og komu þeir tæpum þremur mínútum á und- an í mark, sem var mesti yfir- burðasigur í keppninni þar til í dag, er þeir bættu um betur og jöfnuðu stöðuna í keppninni, 3:3. Þess er sérstaklega getið að bandaríska skútan Liberty hefur verið fljótari af stað alla dagana nema þann fyrsta, og svo var enn í dag, en ástralska skútan hafði brátt siglt hana uppi og sigið fram úr. Keppnin að þessu sinni er orð- in söguleg, þar sem skúta Banda- ríkjamanna hefur jafnan tryggt sér sigur snemma og því ekki þurft að sigla alla dagana s jö. Tekin var upp sjö daga keppni fyrir aldarfjórðungi, og meðan keppnisdagar voru fimm, þurfti aðeins einu sinni að útkljá keppnina á fimmta degi. Það var árið 1920, þegar bandaríska skútan Resolute vann síðustu þrjá keppnisdagana eftir að Shamrock IV frá Norður-írlandi, sem Sir Thomas Lipton stýrði, hafi náð 2:0 forystu. Þrír dagssigrar Ástralíu- manna að þessu sinni er einnig nýtt met fyrir áskorandaskútu. verði þá líka að gjörbreyta núver- andi stjórnarstefnu. Verkamanna- flokkurinn vill, að herinn verði kallaður frá Líbanon sem fyrst, að skorður verði settar við frekari landnámi gyðinga á Vesturbakk- anum og að gripið verði til ákveð- inna aðgerða í efnahagsmálum. Shamir hefur þrjár vikur til að mynda stjórn, en sex líklegir sam- starfsflokkar hans leggja mjög hart að honum að fá Verkamanna- flokkinn i stjórnina. Tveir aðrir smáflokkar hafa einnig uppi kröf- ur á hendur honum. Eru það Ag- udat-flokkurinn, sem vill helst færa allt þjóðfélagið í viðjar lög- málsins, og Tami-flokkurinn, sem gyðingar frá arabalöndum styðja, en hann berst fyrir auknum trygg- ingabótum til umbjóðenda sinna og aukinni skattheimtu á háar tekjur. Orlögum „horfinna“ í Argentínu mótmælt Buenos Aires, 23. september. AP. ÞÚSUNDIR Argentínumanna luku í dag sólarhringsgöngu til að mótmæla örlögum „horfinna manna“, og skildu þeir eftir sig slóð af myndum er minna á hina horfnu á veggjum bygg- inga í miðborginni. Að göngunni stóðu ýmsir mann- réttindahópar í Argentínu, stærstu verkalýðssamtök Argentínu og stjórnmálaflokkar. Gangan hófst á miðvikudag og var gengið í sólar- hring umhverfis Plaza de Mayo, stærsta torg höfuðborgarinnar, sem er fyrir framan stjórnarráðsbygg- ingarnar. Lögreglumenn reyndu að rífa niður veggspjöld göngufólksins, en varð lítt ágengt, þar sem myndirn- ar skiptu þúsundum. Á þeim voru teiknaðar útlínur andlits og þar inn í prentuð nöfn horfinna manna og kvenna ásamt dagsetningunni þeg- ar þau hurfu. Innlendar og útlendar mannrétt- indahreyfingar halda fram að á milli 6 og 15 þúsund manns hafi „horfið" í ofsóknum stjórnvalda gegn vinstri mönnum á árunum 1975 til 1979. Er því haldið fram að hinum horfnu hafi verið rænt og þeir pyntaðir til uppljóstrana af ýmsu tagi og að svo búnu hafi þeir verið myrtir. Yfirvöld hafa neitað upplýsing- um um örlög hina horfnu, aðeins skýrt frá því að þeir væru fórnar- lömb þess sem herforingjarnir kalla „hið skítuga stríð" gegn und- irróðurstarfsemi. E1 Salvador: Fulltrúar stjórnar og skæruliða ræðast við Mexikóborg, 23. seplember. AP. TALSMADUR skærulióahreyfinganna, sem berjast gegn stjórninni f El Salva- dor, sagði í gær, að fulltrúar skæruliða og stjórnvalda myndu hittast að máli öðru sinni 29. þessa mánaðar og auk þess væri þriðji fundur þeirra á döfinni og jafnframt sá fyrsti, sem fram færi í landinu sjálfu. Talsmaður skæruliðanna og einn leiðtogi þeirra, Hector Oqueli, kvað þá ekki vera andvíga kosningum í E1 Salvador og sagði þær ásamt samn- ingaviðræðum vera lið í því að leysa vandamálin í landinu. Sagði hann, að fjórir leiðtogar skæruliða myndu fara til Bogota til fundar við fulltrúa friðarnefndarinnar, sem stjórnin stofnaði, en þeir hittust þar fyrst 28. ágúst sl. Oqueli kvað skæruliða hafa beðið um þriðja fundinn og að hann færi fram í San Salvador, höfuðborg E1 Salvador. Hefði verið vel tekið í það og sagði Oqueli skæruliða vona, að þetta væri upphafið að friði í El Salvador.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.