Morgunblaðið - 24.09.1983, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 24.09.1983, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. SRPTEMBRR 1983 Kaupmenn — Kaupfélög Kælitæki fyrir verslanir. Vantar ykkur djúpfrystir, veggkælir, afgreiösluborö eöa önnur kælitæki fyrir verslanir. Sölustjóri Craig — Nicol Ltd., Englandi veröur staddur hjá okkur dagana 27.—29. sept. Vinsamlegast hafiö samband við okkur sem fyrst, vanti yöur upplýsingar eöa tilboö. Kæling hf. Langholtsvegi 109, Reykjavík. Símar 32150 — 33838. Á Akranesi Laugardagskvöld, 24. sept. kl. 21.00. Almenn kvöldvaka í Sjálfstæöishusinu. Sýnt verðyr leikritiö Jóðlif eftir Odd Björnáson, upplestpr, tónlist, veitingar. Aðgangur ókeypis. Allir velkomnnir. Landskennslunefnd Bahá'ía. BAHÁ’Í TRÚIN Pepsi Áskorun! 52% völdu Pepsi af þeim sem tóku afstödu 4719 Coke 4429 Jafn gott 165 Alls 9313 Láttu bragÓiÓ ráÓa AF ERLENDUM VETTVANGI eftir ÁGÚST ÁSGEIRSSON Paul SchKiter Anker Jörgensen • • TVISYNA I DONSK- UM STJÓRNMÁLUM Niels Helveg Petersen Hingað til hefur stjórn borgaraflokkanna fjögurra, sem er í minni- hluta í þinginu, getað komið málum í gegnum þingið með tilstyrk RV og Framfaraflokksins, en nú hafa hendur þingmanna RV verið bundn- ar og þeim gert að styðja fyrirhugaða tillögu Sósíalíska þjóðarflokksins (SF) í upphafi þings, þar sem lagst verður gegn áætlunum NATO, nákvæmlega sömu tillögu og þeir stóðu fyrir að vísað var frá við þinglok. Alandsfundi RV um síðustu helgi, þar sem Niels Hel- veg Petersen, flokksformaður setti að vissu leyti ofan, bar mjög á gagnrýni á samstarfið við stjórn Schlíiters og á endan- um samþykkt tillaga, sem bind- ur hendur þingmanna flokks- ins, þegar þingið tekur afstöðu til áætlana NATO. Og þar sem að fstaða þingmanna RV hefur til þessa ráðið úrslitum fyrir stjórnina, er ljóst að Schluter verður að róa á ný mið til að halda velli. Vangaveltur um að Paul Schluter boði til kosninga síðla í október eða nóvember urðu æ háværari í vikunni, eftir að varaforsætisráðherra, Henning Christophersen fjármálaráð- herra, bauð jafnaðarmönnum til fundar „til að reyna að skapa að nýju borgarafrið í utanríkismálum". Talið er að þar sé átt við samþykkt tillögu í þinginu i vor, þar sem stjórnin lenti í minnihluta, um stefnu i afvopnunarmálum. Schlúter sagði við það tækifæri að sam- þykkt tillögunnar neyddi stjórnina til að taka upp stefnu er gerði Dani að undanvilling- um i Atlantshafsbandalaginu og annars flokks aðildarríki. Anker Jörgensen, leiðtogi jafnaðarmanna, sagði óljóst hvað stjórnin vildi nú, og gerði aö umtalsefni að það væri ekki forsætisráðherra sjálfur, sem boðar hann til fundar við stjórnina. „Það er ekki um neinn annan valkost að velja en NATO, og við komumst ekki af án varna. Ágreiningurinn er aðeins um hvernig tekið skuli á kjarnorkuflaugamálinu," sagði Jörgensen, en jafnaðarmenn eru andvígir staðsetningu flauga NATO í Evrópu, auk þess sem þeir vilja að meðal- drægar kjarnorkuflaugar Breta og Frakka verði taldar með í viðræðum um fækkun kjarn- orkuvopna í Genf. Einnig vilja jafnaðarmenn að viðræðum stórveldanna verði haldið áfram eftir nk. áramót, en gert hefur verið ráð fyrir að þeim lyki þá. Loks styðja þeir hug- myndir um kjarnorkuvopna- laust svæði á Norðurlöndum. En það hefur aukið á tvístr- unina í dönskum stjórnmálum um þessar mundir, að Jörgen- sen hefur boðið fulltrúum Rót- tæka vinstri flokksins til við- ræðna í framhaldi af lands- fundi þeirra, þar sem samþykkt var stefna i félags- og skatta- málum, sem er Jafnaðar- mannaflokknum að skapi. Jörg- ensen og Jafnaðarmannaflokk- urinn urðu að skotspæni á landsfundinum, en engu að sið- ur er samstarfsgrundvöllur flokkanna fyrir hendi, þar sem jafnaðarmenn eru sammála RV um að hætt skuli sparnaði í fé- lagslegri þjónustu og tekin upp ný stefna í skattamálum. Reyndar hvatti Róttæki vinstri flokkurinn jafnaðar- menn til samstarfs á sviði efna- hagsmála til að afstýra kosn- ingum, sem þeir telja ónauð- synlegar. Og Jörgensen sagði í vikunni, að lítið vit væri að leggja út í kosningar vegna sundurlyndis i utanríkismálum, og er það tekin sem vísbending um að jafnaðarmenn kunni að snúast með stjórninni á því sviði, „en við erum að sjálf- sögðu tilbúnir í slaginn, ef af kosningum verður," sagði Jörg- ensen. Þá hefur Anker Jörgensen þekkst boð Sósíalíska þjóðar- flokksins (SF), sem bauð jafn- aðarmönnum og fulltrúum danska alþýðusambandsins (LO) til viðræðna „um sameig- inlega neyðaráætlun" út úr örð- ugleikum, sem borgaralegu flokkarnir séu ekki færir að ráða fram úr, eins og sagði i bréfi Gert Petersen, formanns SF. Jörgensen sagðist þekkjast boð um fund með SF, þar sem kannaður yrði samstarfs- mannagrundvöllur flokkanna út frá efnahagsstefnu Jafnað- armannaflokksins. Ummæli Jörgensens gera hins vegar það að verkum, að stjórn Schlúters mun ugglaust eiga í miklum erfiðleikum með að ná samkomulagi um mála- miðlun í utanríkismálum við Jafnaðarmannaflokkinn. Því verður óljóst enn um sinn hvort stjórnin neyðist áfram til að framfylgja stefnu í utanríkis- málum, sem henni sjálfri er ekki að skapi. Schlúter, forsætisráðherra, segir stjórnina reyndar hafa meiri áhuga á að halda áfram að vinna að endurreisn dansks efnahagslífs en að ganga til kosninga og stefna þannig efnahags- og atvinnulífinu í tvísýnu á ný. Hins vegar gremst Schlúter að þurfa að beygja sig fyrir vinstri stefnu í utanríkis- og varnarmálum og ef ekki verður breyting þar á, á fyrstu dögum þingsins, er nánast öruggt talið að hann boði til nýrra kosn- inga. Skoðanakannanir benda til að stjórnarflokkarnir myndu fremur bæta við sig fylgi ef kosið verður í haust og kunna þær einnig að hafa áhrif á gjörðir Schlúters. Ileimildír: BerlinKske Tidende, Aktu- elt, BT, Politiken, fréttir Mbl. Ágúsi Ásgeirsson er blaðamaður í erlendri fréttadeild Morguablaðs-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.