Morgunblaðið - 24.09.1983, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 24.09.1983, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 1983 Erlingur Vigfússon óperu- söngvari heldur tónleika ERLINGUR Vigfusson óperusöngv- ari heldur tónleika í Norræna húsinu miðvikudaginn 28. september og í menningarmiðstöðinni í Gerðubergi fimmtudaginn 29. september og hefj- ast báðir tónleikarnir klukkan 20.30. Undirleikari á tónleikunum verður Jónas Ingimundarson píanóleikari, segir í fréttatilkynningu sem Mbl. hefur borist. Erlingur er staddur hér á landi þessa dagana vegna upptöku á óperunni Cavalleria Rusticana, en óperan var flutt í Þjóðleikhúsinu síðastliðið vor. Söng Erlingur þrjár síðustu sýningar fyrir fullu húsi. Stefnt er að því að óperan Cavalliera Rusticana komi út á plötu fyrir næstu jól, en þetta er í fyrsta skipti sem ópera með ís- lenskum texta er tekin upp á plötu hér á landi. Erlingur Vigfússon er fastráð- inn óperusöngvari við óperuna í Köln i Vestur-Þýskalandi, en þar hefur hann starfað frá árinu 1970. Erlingur hóf söngnám hjá Sigurði. Dementz Franzsyni, en hjá honum nam Erlingur í þrjú ár. Að því loknu stundaði hann framhalds- nám í Mílanó á Ítalíu, en síðan við músíkakademíuna í Köln. Þá hóf Erlingur nám við óperuskóla Kölnaróperunnar og naut við það styrks frá ríkisútvarpinu í Vestur-Þýskalandi, en samhliða náminu söng hann við óperuna. Erlingur varð fastráðinn við óper- una í Köln árið 1970. Ásamt því að syngja í óperunni, hefur Erlingur sungið víða um Evrópu, í Sovétríkjunum, ísrael, Suður-Afríku og víðar í konsertsöl- um og óperuhúsum. Einnig hefur hann komið fram í vestur-þýsku sjónvarpi og útvarpi. Á tónleikunum í Norræna hús- inu og í menningarmiðstöðinni í Erlingur Vigfússon Gerðubergi mun Erlingur syngja ljóðaflokkinn Dichter Liebe eftir Schumann, auk íslenskra og ít- alskra laga. Bindindisfélag ökumanna: Ráðstefna um umferðar- öryggismál Úr fréttatilkynningu frá Bindind- isfélagi ökumanna: Bindindisfélag ökumanna var stofnað 29. september 1953 og verð- ur því 30 ára síðar í þessum mánuði. Markmið með starfí BFÖ er að vinna að bættri umferðarmenningu og stuðla að bindindi meðal almenn- ings. I tilefni af 30 ára afmæli BFÖ verður haldin í Reykjavík ráð- stefna um umferðaröryggismál á vegum hins norræna sambands BFÖ-félaganna, ungmennadeildar (NUAT-Ungdom), en BFÖ-félög eru starfandi á öllum Norðurlönd- unum og hafa innan sinna vé- banda um 200.000 félagsmenn. Ráðstefnan fer fram dagana 23.-25. september og ber yfir- skriftina „Unga fólkið í umferð- inni“. Fjöldi fyrirlestra verður hald- inn á ráðstefnunni um umferð- armál almennt, ökukennslu og ökupróf, umferðarlög, slys í um- ferðinni, úrbætur í umferðarör- yggismálum o.fl. Fyrirlesarar á ráðstefnunni verða: Elver Jonsson, formaður hins norræna sambands BFÖ-félag- anna, Bertil Fredriksson, fulltrúi sænsku lögreglunnar, Leif N. Olsen, fulltrúi norsku lögreglunn- ar, Hjalti Zóphóníasson, deildar- stjóri í dómsmálaráðuneytinu, Óli H. Þórðarson, framkvæmdastjóri Umferðarráðs, Árni Einarsson, fulltrúi hjá Áfengisvarnaráði. (Úr fréttatilkynningu.) SYMRE í Félags- miðstöðinni Arseli NORSKI söng- og leikhópurinn „Symre“ verður með skemmtidag- skrá í félagsmiðstöðinni Árseli v/Rofabæ næstkomandi mánudag kl. 20.30. Hópurinn hefur spilað og leikið að undanförnu í Reykjavík og nágrenni. Tónlistarflutningur hópsins spannar fremur vítt svið, allt frá þjóðlegum vísnasöng til rokk- söngva með jassívafi. Hljóðfæra- skipan er: Gítarar, kontrabassi, saxófónn, munnharpa, þverflauta, og nokkur ásláttarhljóðfæri, auk söngs. Guðrún Olafs- dðttir í Listamanna- skála Eden í listamannaskálanum í Eden í Hveragerði stendur nú yfir sýning Guðrúnar Ólafsdóttur, myndlist- armanns. Þar sýnir hún 38 verk, unnin í olíu og vatnsliti. Sýningu Guðrúnar lýkur 27. september, en hún er opin frá kl. 8.00—23.00 alla daga. Eftir rysjótt sumar «1 •'•= *>v .. •<„ .. • * ;•>. .. v . *•*» * 5 *' .v.« V-5- er þá húsið undirbúið fyrir veturinn? Ef ekki, þá er þaö ekki seinna til þess. Þess vegna þarf að vænna. velja fúavarnarefni sem er Það er nauðsynlegt að vernda fljótlegt og auðvelt að vinna með húsið fyrir vetrarveðrunum. Því ogslettist eftir slagveður sumarsins, er h vorki né j O /"'v QI líklest að húsið barfnast eóðs drýpur. 'U' v3vJril líklegt að húsið þarfnast góðs viðhalds. Vií er síðasta tækifærið fúavarnarefni - I Önnur fúavarnarefni slettast og drjúpa öQRl 88 i*. Það slettist hvorki né drýpur með GORI 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.