Morgunblaðið - 24.09.1983, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 24.09.1983, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 1983 VIÐSKIPTI VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF Umsjón: Sighvatur Blöndahl Svíþjóð: Efnahagsbat- inn hraðari en búist var við EFNAHAGSÁSTANDIÐ í Svíþjóð hefur batnad mun meira síðan gengi sænsku krónunnar var fellt í október sl. en efnahagssérfræðingar stjórn- valda höfðu spáð. Janúar-ágúst: Um 1.200 manns á atvinnuleysisskrá Atvinnuleysi hefur nær tvöfaldast í öllum mánuðum SKRÁÐIR ATVINNULEYSISDAGAR í ágústmánuði sl. voru 14.744 á öllu landinu, sem er því sem næst jafnmargir dagar og í júlí. Þetta svarar til þess að 680 manns hafi verið á atvinnuleysisskrá allan ágústmánuð, sem jafngild- ir um 0,6% af mannafla samkvæmt áætlun Þjóðhagsstofnunar. Þetta kemur m.a. fram í síaukn- um útflutningi iðnaðarvara, batn- andi viðskipta- og vöruskiptajöfn- uði auk þess sem verðbólga hefur farið lækkandi. Gert er ráð fyrir, að útflutning- ur Svía muni í heild aukast um liðlega 11% á þessu ári, en sam- kvæmt nýjustu tölum fyrir sjö fyrstu mánuðina var aukningin um 12%. Efnahagssérfræðingar stjórnvalda spáðu því sl. haust, að útflutningur myndi ekki aukast nema í'kringum 6% á árinu. Sölustofnun lagmetis hefur á undanrórnum mánuðum lagt á það áherslu að auka markaðsáhrif sín á hinum ýmsu svæðum. Eftir nokkra markaðskönnun er Ijóst, að mati stofnunarinnar, að auknir sölumöguleikar eru fyrir hendi, ekki síst í Norður-Ameríku, m.a. vegna styrkleika dollarans gagn- vart Evrópugjaldmiðlum. M.a. af þeirri ástæðu hefur stofnunin ákveðið að sérstakur Nýjustu spár gera ráð fyrir því, að vöruskiptajöfnuður Svía verði jákvæður um liðlega 5.500 milljón- ir sænskra króna, en spár efna- hagssérfræðinga sl. haust gerðu ráð fyrir, að hann yrði jákvæður um liðlega 3.500 milljónir króna. Loks má geta þess, að fram- færslukostnaður hækkaði um 6,0% frá ársbyrjun þar til um miðjan ágúst sl. Til samanburðar hækkaði framfærslukostnaður um 7,5% á sama tíma í fyrra. markaðsfulltrúi SL starfi í Bandaríkjunum og Kanada til að vinna að sölumálum og hefur sölustjóri SL, Eyþór ólafsson, tekið við því starfi og þegar haf- ið störf vestanhafs í sambandi við umboðsfyrirtæki SL í Banda- ríkjunum og Kanada. Frá þeim sama tíma hefur Kristinn Blöndal tekið við störf- um markaðsstjóra hjá Sölu- stofnuninni. I ágústmánuði 1982 voru skráðir atvinnuleysisdagar 6.720 talsins á öllu landinu. Aukningin milli ára er því tæplega 120%. Meðaltal skráðra atvinnuleysisdaga í ág- ústmánuði á árabilinu 1975—1982, að báðum árunum meðtöldum, er um 5.200 dagar. Fyrstu átta mánuði ársins voru skráðir atvinnuleysisdagar í heild 207 þúsund, en til samanburðar voru atvinnuleysisdagar um 200 þúsund á öllu síðasta ári. Aukn- ingin hefur átt sér stað alla mán- uði ársins og hefur hver mánuður fyrir sig komið út með sem næst helmingi fleiri skráða atvinnu- leysisdaga en í sömu mánuðum á sl. ári. Aukning atvinnuleysis hefur verið mjög mismunandi eftir landsvæðum og sker höfuðborg- arsvæðið sig úr. Fyrstu átta mán- uði þessa árs hafa um 42% af skráðu atvinnuleysi fallið til á höfuðborgarsvæðinu en hlutdeild þess var rösklega 21% í sömu mánuðum í fyrra. í ágústmánuði féll um 56% af skráðu atvinnuleysi til á höfuð- borgarsvæðinu. Svipaðrar þróun- ar virðist gæta á Norðurlandi. Hlutdeild þess í skráðu atvinnu- leysi fyrstu átta mánuði ársins hefur aukizt úr um 20% 1982 í tæplega 30% nú. Á tveimur svæð- um, Vesturlandi og Vestfjörðum, hefur skráð atvinnuleysi verið minna fyrstu átta mánuði þessa árs en á sama tímabili í fyrra. I heild svarar skráð atvinnu- leysi fyrstu átta mánuði ársins til þess að um 1.200 manns hafi verið á atvinnuleysisskrá, eða 1,1% af mannafla. Svört atvinnu- starfsemi fer vaxandi í Vest- ur-Þýzkalandi Á fyrri helmingi ársins 1982 voru í Vestur-Þýskalandi dæmdar sektir samtals að fjárhæó 2,3 milljónir DM, tæplega 25 milljónir ísl. króna, vegna svartrar atvinnustarfsemi þar í landi. Er þetta hæsta sektarfjárhæó á einum árshelmingi, er dæmd hefur verið í Vestur-Þýskalandi vegna brota, sem rekja má til svartrar atvinnustarfsemi. Þessar upplýsingar er að finna í nýjasta fréttabréfi Landssambands iðnaðarmanna. Samsvarandi upphæð vegna fyrri árshelmings 1981 var 1,7 millj. DM. Þessar upplýsingar er að finna í skýrslu frá Þýska handverkssam- bandinu (Zentralverbandes des Deutschen Handwerks, skammstaf- að ZDH). I skýrslunni er og fullyrt, að svört atvinnustarfsemi hafi auk- ist verulega á árinu 1982, þrátt fyrir viðleitni af hálfu stjórnvalda að takmarka hana, m.a. með strangari iagaákvæðum. Verst er ástandið í ýmsum greinum byggingariðnaðar, en þar næst koma bílaviðgerðir. Ráðinn rekstrarráð- gjafi hjá Hagvangi Friðrik Friðriksson hefur verið ráð- inn rekstrarráðgjafi hjá Hagvangi hf., en hann mun einnig sinna hagrænum verkefnum fyrir Fjárfestingarfélag ís- lands hf. Friðrik lauk stúdentsprófi frá Verslunarskóla íslands 1977 og cand. oecon.-prófi frá viðskiptadeild Háskóla íslands 1981. Hann hélt síðan til framhaldsnáms i Banda- ríkjunum og lauk tveimur fram- haldsprófum — M.A.-prófi í hag- fræði 1982 og M.B.A.-prófi í rekstr- arhagfræði, með markaðsfræði sem sérsvið, 1983, báðum frá Virginia Polytechnic Institute & State Uni- versity. Sölustofnun lagmetis: Markaðsstarfsemi auk- in í Bandaríkjunum Eyþór Ólafsson ráðinn markaðsfulltrúi Janúar-júlí: Útflutningur hefúr aukizt að raungildi Útflutningur iðnaðarvara hefur aukizt um 49% Álútflutningur hefur aukizt um 88% Kísiljárnsútflutningur hefur aukizt um 16% Heildarútflutningur íslendinga jók.st um 1% fyrstu sjö mánuði árs- ins, þegar samtals voru (lutt út 338.814.8 tonn, borið saman við 335.963.9 tonn á sama tíma í fyrra. Verðmætaaukningin milli ára er um 113%, eða 9.160,2 milljónir króna, borið saman við 4.302,3 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Þessar upplýsingar koma fram í samantekt Útflutningsmiðstöðvar iðnaöarins. Meðalgengi dollarans á tímabil- inu janúar til júlí sl. var 22,66 krónur, en var hins vegar 10,54 krónur á sama tímabili í fyrra. Því er ljóst, að til þess að afla sama gjaldeyris í dollurum þarf útflutn- ingur að aukast í námunda við 100% milli ára í íslenzkum krón- um. Því er ljóst, að um er að ræða raunaukningu, bæði í magni talið og krónum. IÐNAÐARVÖRU- ÚTFLUTNINGUR Á umræddu sjö mánaða tíma- bili jókst iðnaðarvöruútflutningur um 49%, þegar samtals voru flutt út 135.362,2 tonn, borið saman við 90.932,4 tonn á sama tíma í fyrra. Verðmætaaukning iðnaðarvöru- útflutnings var um 195%, eða 2.733,6 milljónir króna, borið sam- an við liðlega 925,7 milljónir króna á sama tíma í fyrra. ÁL OG ÁLMELMI Ál og álmelmi vegur þyngst í iðnaðarvöruútflutningi, en sá út- flutningur jókst um 88% á um- ræddu tímabili, þegar út voru flutt samtals 64.360,4 tonn, borið saman við 34.184,0 tonn á sama tíma í fyrra. Verðmætaaukningin milli ára er um 299%, eða 1.655,7 milljónir króna, borið saman við 415,4 milljónir króna á sama tíma í fyrra. KÍSIUÁRN Útflutningur á kísiljárni jókst um 16% á umræddu tímabili, þeg- ar út voru flutt samtals 29.318,4 tonn, borið saman við um 25.217,6 tonn á sama tíma í fyrra. Verð- mætaaukningin milli ára var um 148%, eða tæplega 326,7 milljónir króna á móti liðlega 131,9 milljón- um króna á sama tíma í fyrra. ULLARVÖRUR Um 10% samdráttur varð í ull- arvöruútflutningi fyrstu sjö mán- uði ársins, þegar samtals voru flutt út 732,0 tonn, borið saman við 809,8 tonn á sama tímabili árið á undan. Verðmætaaukningin milli ára var um 89%, eða um 322,5 milljónir króna, borið saman við liðlega 170,7 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Samdrátt- urinn í ullarvörunum kom allur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.