Morgunblaðið - 24.09.1983, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 1983
5
Háholt í Hafnarfirði:
Frímerkjasýning um helgina
Fiskiskip I’róunarsamvinnustofnunarinnar, sem er í smíðum í Slippstöðinni
i Akureyri.
Fiskiskip Þróunarsamvinnustofnunarinnar:
FRÍMERKI 83, heitir sýning sem
nú stendur yfir í sýningarsalnum
Háholti við Dalsbraut 9B í Hafnar-
firði. Á sýningunni eru innlend og
erlend frímerki í eigu 23 safnara.
Sigurður R. Pétursson, formaður
sýningarnefndar, sagði í spjalli við
blm. Morgunblaðsins, að mikið
væri af samkeppnissöfnum i sýn-
ingunni og meðal annars erlend
söfn sem hafa hlotið verðlaun. Alls
eru 130 rammar til sýnis.
Sigurður sagði að það væri
venjan að halda sýningu á
hverju ári í tengsium við þing
Landssambands íslenskra frí-
merkjasafnara og væri eitt af
markmiðum slíkra sýninga að
meta innlend söfn og dæma um
það hvort þau séu tæk á alþjóð-
legar sýningar. Meðal dómara
núna er kunnur norskur frí-
merkjasafnari, Eyvind Evensen
að nafni.
Að sögn Sigurðar er útilokað
að gera sér nokkra grein fyrir
því hversu margir safna frí-
merkjum hér á landi, en í lands-
sambandinu eru á milli 4 og 5
hundruð manns. Þess má geta að
á næsta ári verður haldin í
Laugardalshöll stór norræn sýn-
ing og verða þá væntanlega um 7
hundruð rammar til sýnis.
Sýningin í Háholti er opin í
dag og á morgun frá 14 til 20, en
sýningunni lýkur á sunnu-
dagskvöld. Það er frítt inn á sýn-
inguna, en hún er fjármögnuð
með sölu á sérstökum umslögum
og minningarblokkum og hluta-
veltu sem fram fer á staðnum.
Dótnararnir rýna í stimplana, einbeittir i svip.
Engin vanskil
— segir Höskuldur Jónsson, ráðu-
neytisstjóri fjármálaráðuneytisins
„ÉG GET einungis endurtekið að
mér vitanlega hafa greiðslur farið
fram samkvæmt samningi um skipa-
smíðina og ég veit ekki annað en að
fé sé fyrirliggjandi til að Ijúka þeirri
smíði," sagði Höskuldur Jónsson,
riðuneytisstjóri í fjirmilariðuneyt-
inu, vegna fréttar í Morgunblaðinu í
gær um að smíði fiskiskips í Slipp-
stöðinni i Akureyri i vegum Þróun-
arsamvinnustofnunar íslands væri
hætt vegna vanskila ríkisins.
Varðandi það atriði að ekki
hefði verið tryggt fjármagn til að
senda skipið til Grænhöfðaeyja,
en þar er fyrirhugað að fyrsta
verkefni þess verði, sagði hann að
rétt væri að það mál væri óleyst,
en viðræður hefðu farið fram milli
fjármála- og utanríkisráðuneytis-
ins um það hvernig búa ætti skipið
til suðurferðar og fjárhagsleg at-
riði eru tengdust þeirri ferð væru
ekki útrædd. Inni á fjárlögum
væri ákveðin upphæð til Þróunar-
samvinnustofnunarinnar, en það
mætti deila um það hvort það fé
ætti að fara til að búa skipið til
suðurferðar eða til annarra verk-
efna, sem Þróunarsamvinnustofn-
unin hefði áhuga á.
Skákmótið í Sviss:
Jón L. í
2. sæti
SKÁK Jóns L. Árnasonar og Frakk-
ans Roor á alþjóðlega skákmótinu í
Sviss fór í bið í þriðja sinn í gær og
taldi Jón síðdegis í gær að líklega
endaði viðureign þeirra með jafn-
tefli. Síðasta umferð mótsins var
tefid í gær og gerði Jón þá jafntefli
við Þjóðverjann Kindermann.
Allar líkur eru því á að Zuger
frá Sviss beri sigur úr býtum, en
hann hlaut 9 vinninga á mótinu.
Jón L. var í 2. sæti með 8 vinninga
og biðskák. í 3.-4. sæti eru Bis-
choff, V—Þýskalandi, og King,
Englandi, með 8 vinninga.
„Ég mun nú halda til Júgóslavíu
og taka þar þátt í öflugu skákmóti.
Meðal skákmanna verða Adorjan,
Velimirovic, Rajkovic, Ivkov,
DeFirmian og hugsanlega Tal.
Mér skilst að styrkleiki mótsins
verði milli 8 og 9,“ sagði Jón L. í
samtali við Mbl. Hann mun því
ekki geta tekið þátt i 8-landa-
keppninni í Noregi í október.
Blaðberi tapaði
13.700 krónum
BLAÐBERI á vegum Morgun-
blaðsins tapaði veski, sem í voru
13.700 krónur um klukkan 19 á
miðvikudag. Hann kveðst hafa
tapað veskinu í Drápuhlíð, hafði
verið að innheimta áskriftargjsld.
Veskið er rauðbrúnt, fremur stórt
með smellu. Skilvís finnandi vin-
samlega hafi samband við Morg-
unblaðið, síminn er 10100.
Samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið fékk hjá Gunnari
Ragnars er verið að undirbúa að
hefja vinnu við skipið að nýju. f
raun hefði vinna aldrei fallið alveg
niður og þeir myndu leggja
áherslu á að ljúka smíði skipsins.
Allar gömlu góöu minningarnar veröa rifjaöar upp allt frá Krossinum
í Glaumbæ eins og:
ÞEGAR Engilbert söng um bláu augun.
ÞEGAR Hljómar troöfylltu Háskólabíó.
ÞEGAR slagsmálin brutust út i Sandgeröi.
ÞEGAR Hljómar þurftu lögreglufylgd á Laugavatn.
ÞEGAR Rúnar gekk á boröum og fór í heljarstökk í Glaumbæ.
ÞEGAR frúrnar sögöu aö Hljómar væru lúsugir.
Þaö er 12 manna hljómsveit Gunnars Þórðarsonar sem leikur undir
á þessum mestu tónleikum sem sviösettir hafa veriö hérlendis.
Heiöursgestir kvöldsins
veröa allir gömlu góöu félagar Hljóma, þeir Erlingur Björnsson, Karl
Hermannsson, Eggert Kristinsson og Einar Júlíusson en auk þeirra
veröa aö sjálfsögöu á sviöinu þeir Gunnar, Rúnar og Engibert ásamt
15 toppsöngvurum þessa tímabils.
í þá gömlu góðu daga þá
var ekkert kreditkort að
hafa en nú tökum viö hiö
vinsæla Eurocard.
Boröapantanir í sima 77500 frá
kl. 9 í dag. Pantiö miöa strax.
Aögangseyrir kr. 300.
TÖKUM ÞÁTT í HLJÓMAKVÖLDI ÞAR SEM
ALLIR AÐDÁENDUR HLJÓMA HLJÓMA NÚ
SAMANí
MatseöilL'
SkelfiskkokteiU a la Fyrsti koss-
inn í drottningarsósu með
affúrkusalati og hvítlauksbrauði.
Grillsteiktur lambavöðvi a la
Hljómar í sinnepsbráð ásamt
ffrœnmeti, kúmensteiktum jarð-
eplum og rauðvínssósu.
Verö aöeins kr. 450.-
1963—1983 — 20 ára
AFMÆLISHATIÐ HLJOMA I
I KVOLD KL. 19
STUNDVÍSLEGA