Morgunblaðið - 24.09.1983, Síða 15
Kjarvalsstaðir:
Sýning á
verkum
fimm
finnskra
vefnað-
arlista-
manna
í DAG klukkan 15 verður opnuð á
Kjarvalsstöðum listsýning, þar sem
fimm listakonur frá Finnlandi sýna
vefnað. Textfllistakonurnar eru
þær Kristi Rantanen, Irma Kukk-
asjárvi, Lea Eskola, Eeva Renvall
og Airi Snellman-Hánninen, allar í
röð fremstu listamanna Finna.
Þóra Kristjánsdóttir, listráðunaut-
ur Kjarvalsstaða, sagði í samtali
við blaðamann Morgunblaðsins, að
þcr hefðu sýnt verk sín víða um
heim, í Skandinavíu, Suður-Amer-
íku og víðar, og hefði sýning þeirra
hvarvetna vakið feikna athygli.
Á sýningunni á Kjarvalsstöð-
um nú eru 34 verk, mörg þeirra
mjög stór og nýstárleg. Sýningin
var upphaflega sett saman af
Norrænu menningarmiðstöðinni
í Sveaborg, og hefur síðan verið
sett upp á öllum Norðurlöndun-
um. Tvær finnsku listkvennanna,
þær Airi Snellman-Hánninen og
Kristi Rantanen, eru nú staddar
hér á landi og verða við opnun
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 1983
15
Airi Snellman-Hánninen við eitt verka sinna, sem hún var að hengja upp er
Morgunblaðsmenn voru á ferðinni.
MorgunblaJii Emilia Björnsdóttir
Kristi Rantanen við eitt verka sinna á sýningunni á Kjarvalsstöðum, sem
verður opnuð í dag, laugardag.
sýningarinnar, og þær hafa
stjórnað uppsetningu hennar. öll
verkin á sýningunni eru til sölu.
Þær Rantanen og Snellman-
Hánninen sögðu í stuttu spjalli
við blaðamann Morgunblaðsins,
að þær litu öðrum þræði á sig
sem brautryðjendur í listgrein-
inni, þótt vefjarlist stæði á göml-
um merg í Finnlandi. Fólki væri
ekki ljóst hve miklir möguleikar
byggju í þessari listgrein, og eins
teldu þær mikilvægt að sýna
arkitektum fram á þá möguleika,
sem textíllist gefur, til dæmis í
skreytingu opinberra bygginga.
Verkin væru ekki síst gerð með
slíkar byggingar í huga, þau
væru stærri en svo að þau færu
inn á venjuleg heimili.