Morgunblaðið - 24.09.1983, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 1983
MorgunblsAió/FriAþjórur Helgnfion.
Hrafn Kachmann, eigandi Kjötmiðstöðvarinnar við Laugalæk. Hann hefur sótt um leyfi til að byggja verslunarhús á
lóðinni vestan við Laugalækjarskóla.
Fyrirhugaðri byggingu verslunarhúss við Laugalækjarskóla mótmælt:
Mótmælin eiga ekki
við rök að styðjast
- segir Hrafn Bachmann, en hann hefur sótt um byggingarleyfi
í UPPHAFI ágústmánaðar aug-
lýsti Borgarskipulag Reykjavík-
ur í blöðum tillögu um breytingu
á staðfestu aðalskipulagi
Reykjavíkur frá 1967. „Breyt-
ingin er í því fólgin,“ segir í
auglýsingunni, „að tiltekið
svæði, sem afmarkast af Sund-
laugavegi, Laugalæk, Leirulæk
og lóð Laugalækjarskóla verði
nýtt fyrir miðbæjarstarfsemi í
stað hverfisstofnana.“
Á bak við þessa tillögu ligg-
ur umsókn eiganda Kjötmið-
stöðvarinnar við Laugalæk,
Hrafns Bachmann, þess efnis
að hann fái leyfi til að byggja
verslunarhúsnæði á umræddu
svæði. Hrafn lagði þessa
beiðni sína fyrir skipulags-
nefnd og borgarráð í vor og
var hún samþykkt, en skipulag
ríkisins gerði það að skilyrði
að auglýsa þyrfti þessa breyt-
ingu á aðalskipulagi og gefa
fólki kost á mótmælum og at-
hugasemdum.
Nú hefur það gerst að sjö
kaupmenn í hverfinu og for-
eldrafélög skóla og dagheimila
í nágrenni fyrirhugaðrar
byggingar hafa borið upp mót-
mæli. Kaupmennirnir á þeim
forsendum að starfsöryggi og
eignum þeirra sé stefnt í
hættu, þar sem þeir telja að
ekki sé þörf á stórfelldri aukn-
ingu verslunarrýmis í hverf-
inu. Mótmæli foreldrafélag-
anna byggjast hins vegar fyrst
og fremst á hræðslu við að til-
koma verslunarinnar mundi
þýða stóraukna umferð og þar
með meiri slysahættu.
Ekki um stór-
markað að ræða
Morgunblaðið átti nýlega
samtal við Hrafn um þessi
mál, en hann telur að hvorug
mótmælin eigi við rök að
styðjast. „Það er búið að koma
því inn hjá fólki," sagði Hrafn,
„að ég hafi í hyggju að reisa á
þessari lóð stórmarkað svipað-
an og Hagkaup eða Holta-
garða Sambandsins. Það er al-
rangt. Húsið allt er tæplega
sautján hundruð fermetrar, en
þar af verða einungis sjö
hundruð fermetrar nýttir und-
ir verslunina. Hitt verður not-
að undir lager, skrifstofur,
íbúð, aðstöðu fyrir starfsfólk
og fleira. Með öðrum orðum,
sjálf verslunin verður aðeins
um fjórum sinnum stærri en
Kjötmiðstöðin, sem ég mun þá
hafa undir aðra starfsemi. Og
þessir sjö hundruð fermetrar
eru tíundi hluti af húsnæði
Hagkaups og einn fjórtándi af
húsnæði Holtagarða. Hér
verður því alls ekki um neinn
stórmarkað að ræða.
Þörf á stærri verslun
Það er sagt að ekki sé þörf á
nýrri verslun í hverfinu af
þessari stærðargráðu. Ég er
ósammála því. Aðstæður í
þjóðfélaginu eru að breytast.
Á síðastliðnu tíu ára tímabili
hafa nítján verslanir hætt
starfsemi á svæðinu frá Nóa-
túni að horni Langholtsvegar
og Gnoðarvogs, en aðeins tvær
komið í staðinn, Glæsibær og
Kjörbúð Laugaráss við Norð-
urbrún. Níu þeirra verslana
sem hafa lagt upp laupana eru
í innan við þúsund metra radí-
us frá verslunum þeirra kaup-
manna sem nú mótmæla bygg-
ingu nýrrar verslunar.
Aðalmálið er það að ég
stefni að því að geta boðið upp
á meira vöruúrval og ódýrari
vöru, og kann ótti þeirra að
stafa af því.
Slysahætta þarf
ekki að aukast
Hvað varðar möguleikann á
því að umferð og slysahætta
aukist með tilkomu verslunar
á þessum stað, held ég að svo
þurfi alls ekki að vera. Ég mun
ganga frá þessu eins vel og
kostur er á. Meðal annars þess
vegna fékk ég Gísla Halldórs-
son arkitekt til að teikna hús-
ið, en hann teiknaði sem kunn-
ugt er Laugardalshöllina og
sundlaugina í Laugardal. Það
hefði auðvitað verið mörgum
sinnum ódýrara fyrir mig að
kaupa stálhús frá Finnlandi,
sem hefði getað komið að full-
um notum. En ég vil gera
þetta sem best úr garði og í
fullu samráði við íbúa hverfis-
ins. Og eitt skulum við hafa í
huga. Það var alltaf gert ráð
fyrir því að byggja á þessu
svæði, og þá hugsanlega
stærra hús en það sem ég hef á
prjónunum. Umferð hefði auk-
ist við það.
Annars held ég að umferð-
arþunginn í hverfinu komi
ekki til með að vaxa. ÁTVR á
Laugarásvegi hyggst flytja sig
um set vegna skorts á bíla-
stæðum og þá dregur mikið úr
umferð. Auk þess þýðir versl-
un eins og ég hef í huga það að
fólk þarf ekki eins mikið að
leita í stórmarkaði í önnur
hverfi og þá minnkar bílaum-
ferð út úr hverfinu. Og ég vil
taka það fram, að sjálfur á ég
sjö og níu ára gamlar telpur,
sem koma til með að sækja
skóla í hverfinu, svo það er
mér ekki síður en öðrum
íbúum hverfisins mikið
kappsmál að ganga svo frá
málum að börnin komist
hættulaust í skólann."
Forsaga málsins
Það á sér nokkra sögu að
Hrafn sótti um byggingarleyfi
á þessari lóð. Hann hóf versl-
unarferil sinn hjá Ragnari
Ólafssyni í Matvörumiðstöð-
inni við Laugalæk fyrir 23 ár-
um, en þá voru í húsinu bæði
kjötbúð og matvöruverslun.
Árið 1967 keypti Hrafn
Kjötmiðstöðina og rak hann
hana í tíu ár, en þá leigði hann
matvörubúð Ragnars og sam-
einaði búðirnar tvær. Sagði
Hrafn að sameiningin hefði
mælst vel fyrir hjá viðskipta-
vinum og viðskiptin stöðugt
aukist og þar með þörfin fyrir
rýmra húsnæði.
„Ég vildi ekki leita út fyrir
hverfið eftir stærra húsi,“
sagði Hrafn, „og hef verið að
þreifa fyrir mér eftir hentugu
húsnæði í hverfinu síðustu ár-
in. Það var síðan úr í fyrra að
ég tók við húsi sem var í bygg-
Rithöfimdurinn Willi
Fáhrmann á íslandi
í DAG er va-ntanlegur til landsins
þýski rithöfundurinn Willi Fáhr-
mann. Hann er fæddur 1929 í Duis-
burg í Vestur-Pýskalandi, og hefur
lengi starfað sem kennari og skóla-
málafulltrúi. Willi Fáhrmann skrifar
einkum fyrir unglinga og er talinn
einn fremsti höfundur í V-Þýska-
landi á þessu sviði nú á dögum.
Hann hefur hlotið margskonar bók-
menntaverðlaun.
Hingað er Willi Fáhrmanr
kominn til að fara í nokkra fram-
haldsskóla og lesa fyrir nemendui
þar. Auk þess mun hann halda héi
einn opinberan fyrirlestur. Bei
hann heitið: „Listin að kenna
krökkum að njóta þess að lesa
bókmenntir“. Fyrirlestur þessi
verður mánudaginn 26. sept., kl
20.30, í húsakynnum Þýska bóka-
safnsins (Goethe-Institut),
Tryggvagötu 26, og er hann sér-
staklega ætlaður foreldrum, kenn-
urum og bókasafnsfræðingum.
Evrópuþing samtaka ungra lækna
FÉLAG ungra lækna heldur þing
Evrópusamtaka ungra lækna í
Reykjavík dagana 23. og 24. sept-
ember. Þingið sitja fulltrúar frá
flestum Evrópuríkjum.
Markmið félags ungra lækna er
að vinna að sérhagsmunamálum
ungra lækna, en á undanförnum
árum hefur í vaxandi mæli borið á
atvinnuleysi meðal lækna í mörg-
um Evrópulöndum, m.a. vegna til-
tölulega mikillar fjölgunar í stétt-
inni.
Annað meginmál þessa fundai
er framhaldsmenntun lækna, er
íslenskir læknar þurfa að mestt
að sækja sína sérmenntun til út-
landa. Gott samstarf við erlend
samtök er nauðsynlegt til þess að
tryggja að svo verði áfram, segir í
fréttatilkynningu frá FUL.
Hið nýja skip Eimskipafélags tslands, ms. Lagarfoss, kom í fyrsta sinn til landsins um síðustu helgi. Skipið hefur um
4 þúsund tonna burðargetu og er 93ja metra langt. Það mun aðallega verða í stórflutningum. Skipstjóri er Haukur
Dan Þórhallsson. Morgunblaðii/ ól.K.Mag.