Morgunblaðið - 24.09.1983, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 1983
33
fyrir lóð Kjötmiðstöðvarinnar er
gert ráð fyrir innkeyrslu úr hægri
beygju frá Sundlaugavegi en aðal
inn- og útkeyrslu á svæðið frá
Laugalæk. Þeir sem aka um þessi
gatnamót komast fljótt að raun
um þá erfiðleika sem eru því sam-
fara að komast þar í gegn. Út-
keyrslan af Laugalæk er mjög
þröng og afkastageta mjög tak-
mörkuð. Umferðarljósin eru rétt
vestan við gatnamót Laugalækjar
en þar fyrir vestan er stoppistöð
strætisvagna Reykjavíkur og því
lítið athafnasvæði til breytinga.
Hinn akandi vegfarandi mun því
leita að öðrum leiðum. Næsti
möguleiki til að komast til austurs
fyrir hugsanlega viðskiptavini er
að fara upp Bugðulækinn eða
Rauðalækinn. Hver sá sem hefur
keyrt þessar götur getur verið mér
sammála um að ekki má beina
umferðinni þangað. Slysatíðni
hefur aukist þar á undanförnum
árum. Ástæðan fyrir því umferð-
aröngþveiti sem þegar er fyrir
hendi er meðal annars að leyfð var
meiri landnýting á þessum lóðum
en gert var ráð fyrir í skipulagi.
Húsin urðu einni hæð hærri og því
íbúðirnar fleiri og ekkert pláss
fyrir bílastæði á lóðinni. Sam-
þykkt hefur verið að loka Laug-
arnesveginum við Kleppsveg og er
þá bara um eina leið að velja,
þ.e.a.s. útkeyrsluna út á Sætúnið
en það er mjög stór krókur.
Við Leirulækinn er dagvistar-
heimili og innkeyrsla að arnageð-
deild við Dalbraut. Þar eru u.þ.b.
130 börn í vistun. Það er því óráð-
legt að opna Leirulækinn upp að
Dalbraut. Til vesturs eru sömu
erfiðleikar nema farið verði út á
Sætúnið.
Núverandi stað-
setning Kjötmidstöðv-
arinnar við Laugalæk
Ef athuguð er nánar núverandi
staðsetning Kjötmiðstöðvarinnar
kemur í ljós að hún er staðsett svo
vestarlega og nálægt Sætúninu og
Laugarnesvegi að umferðin nær
ekki að fara mikið inn í hverfið.
Skólarnir og stækkun-
armöguleikar þeirra
í aðalskipulaginu frá 1962—’83
er skólalóðin sýnd út að Laugalæk.
Ef byggt verður á þessum stað er
þar með búið að hefta alla stækk-
unarmöguleika skólanna á svæð-
inu, sér í lagi ef samþykkt verður
breyting á landnotkun vegna
Greiningarstöðvar ríkisins við
austurmörk skólalóðarinnar. Sú
breyting var samþykkt f skipu-
lagsnefnd 21. sept. 1981 en nú
fyrst er beðið um staðfestingu á
þeirri tillögu hjá skipulagsstjórn
ríkisins.
Eru skólayfir-
völd samþykk þess-
um breytingum?
Af ofangreindu má sjá að ef
Kjötmiðstöðin verður byggð á
þessum stað getur það haft af-
drifaríkar afleiðingar fyrir alla
íbúa hverfisins. í reglugerð um
gerð skipulagsáætlana er kveðið á
um endurskoðun aðalskipulags
eigi sjaldnar en á fimm ára fresti.
En þá á að áætla þarfir að nýju,
miðað við næstu tuttugu ár frá
þeim tíma, og einnig að meta
hvort aðrar forsendur aðalskipu-
lagsins hafa breyst.
Allar verulegar skipulagsbreyt-
ingar á landnotkun sem eiga sér
stað á milli þessara fimm ára
endurskoðunar geta hinsvegar
orðið afdrifaríkar, sérstaklega ef
þær virðast gerðar án nokkurra
tengsla við heildarskipulag borg-
arinnar eða hinna ýmsu borgar-
hverfa. Það er mjög mikilvægt að
íbúar fylgist vel með þeim breyt-
ingum sem ætlaðar eru á hverjum
stað og geri sér fulla grein fyrir
rétti sínum til athugasemda.
Þannig geta íbúar haldið vörð um
velferð síns nánasta umhverfis.
Það er ljóst að leysa þarf mál
Kjötmiðstöðvarinnar, en það á
ekki að gerast með því að skapa
önnur vandamál sem ekki verða
leyst í náinni framtíð.
18. sept. 1983,
esK.
Aflakóngar á E1
Grillo-miðum
Hér má sjá þá heiðursmenn Ólaf M. ólafsson, útgerðarmann á
Seyðisfirði, og Sigurð Magnússon frá Þórarinsstöðum, Seyðis-
firði, fyrrverandi vélgæzlumann í Vestmannaeyjum, nýkomna úr
róðri á svokölluð E1 Grillo-mið í Seyðisfirði, en eins og nafnið
bendir til, eru miðin yfir hinu sokkna olíuskipi í firðinum. Þeir
félagar fengu hálft tonn af þeim gula á skömmum tíma. Á
annarri myndinni sýnir Sigurður hluta aflans hróðugur á svip.
Morgunblaðið/ ólafur Már
MEIRIHÁTTAR
VERÐLÆKKUN
Um helgina seljum við síðustu Chrysler bifreiðarnar af árg. 1982.
Að sjálfsögðu þarf ekki að taka fram að þetta eru allt amerískir lúxusbílar,
með deluxe innréttingu, sjálfskiptingu, aflstýri, aflhemlum o.fl., o.fl.
Bílasýning laugardag og sunnudag kl. 1—5.
JÖFUR HF.
m
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600