Morgunblaðið - 01.11.1983, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1983
3
Helgi Hálfdanarson:
Nokkuð stórt smámál
The North AtUntic Lnerjy Bank
t mn
Auglýsinga-
hluti um Is-
land í TIME
f nýjasta hefti hins þekkta tímarits
Time er að fínna sérstakan auglýs-
ingahluta um ísland, eins og skýrt
var frá í Mbl. á laugardag. Þetta er
forsíöa íslandshlutans, en það eru
nokkur íslenzk fyrirtæki, samtök og
bankar sem greiða kostnaðinn við
þessa miklu auglýsingu.
Fyrirtækin eru: Coldwater Sea-
food Corp., dótturfyrirtæki Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna í
Bandaríkjunum, Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna, Iceland Sea-
food Corp., dótturfyrirtæki SÍS í
Bandaríkjunum, Samband is-
lenzkra fiskframleiðenda, Álafoss,
Hilda, Iðnaðardeild Sambandsins,
Fríhöfnin á Keflavíkurflugvelli,
Eimskipafélag íslands, Útflutn-
ingsmiðstöð iðnaðarins, Hafskip,
Flugleiðir, ÍSAL, Landsvirkjun,
Rolf Johansen & Co., Skipadeild
SfS, Búnaðarbanki íslands, Seðla-
banki íslands, Útvegsbanki fs-
lands, Landsbanki fslands og Sam-
band íslenzkra samvinnufélaga.
Ef að líkum lætur, kemur senn
til kasta alþingismanna að taka
afstöðu til svo kallaðra bók-
menntaverðlauna, sem hér var
fitjað upp á nýlega.
Á það hefur verið bent, að
hégómlegar verðlaunaveitingar
af almannafé væru ekki aðeins
afar óviðeigandi, þótt smáar
yrðu, einmitt nú þegar brýnar
nauðsynjar, jafnvel til líknar-
mála, eru skornar niður allt
hvað af tekur, heldur hljóti slík
ölmusa að vera annaðhvort
óþörf eða gagnslaus. Þá hefur
verið leitt að því likum, að verð-
laun séu síður en svo til eflingar
góðum bókmenntum, og einnig
sýnt fram á, að sem „viðurkenn-
ing“ séu þau hrein markleysa.
Þegar rætt er um ýmislegt
mat á bókmenntum, þykir sum-
um við hæfi að benda á sænska
dínamít-bóndann Alfred Nóbel
og sjóð hans sem gleggsta dæmið
um gildi verðlauna. Að visu vill
svo til, að einmitt um þessar
mundir hefur veiting Nóbels-
verðlauna fyrir bókmenntir orð-
ið að hneykslismáli, þegar Willi-
Dalvík, 31. oklóber.
FASTRÁÐIÐ starfsfólk í frystihúsi
Kaupfélags Eyfírðinga á Dalvík var
við vinnu í dag, en svo sem fram
am nokkur Golding, Englending-
ur sem ögn er um deilt, varð
fyrir valinu, og þau tíðindi ger-
ast, að Artur Lundkvist, eitt-
hvert bjartasta bókmenntaljós-
duflið á Norðurlöndum, stenzt
ekki lengur mátið, heldur mann-
ar sig upp í að sprengja loksins
þagnarmúrinn kringum sænska
ákademið, þar sem hann sjálfur
situr, og lýsir yfir vanþóknun
sinni á úthlutun til þessa góða
manns, enda löngum hver hönd-
in upp á móti annarri í ákadem-
inu því arna. Má þó mikið vera,
ef Vilhjálmur þessi er lakar að
sæmdinni kominn en hver ann-
ar. En hver skyldi vita það með
vissu?
Margt hefur verið rætt um
ýmisleg verðlaun, sem upp hafa
komið á Islandi og gefizt mis-
jafnlega. Sumt af þeim hefur
góðu heilli lognazt út af og síðan
ekki látið á sér kræla. En verð-
launa-áráttan virðist hafa níu líf
eins og kötturinn. Á því hefur
borið upp á síðkastið, að einstök
bókaforlög hafi boðið fram verð-
laun til að keppa um. Það sem
kom í fréttum var öllu starfsfólki
frystihússins, á milli 70 og 80
manns, sagt upp störfum vegna hrá-
efnisskorts.
forlagi gengur til, er auðvitað
umfram allt að geta auglýst nýja
bók sem verðlaunaverk og argað
upp sem mestri sölu út á það. Og
þó að ýmsum, þar á meðal mér,
hafi þótt vel takast til, það sem
af er, þá er það umfram allt til-
viljun, og uppátækið sama firran
fyrir því. Góður höfundur semur
ekki gott verk vegna þess að
verðlaunaveiting sé í vændum.
Hann semur að öðru jöfnu það
verk, sem hann hefði samið
hvort eð var, hverju sem hann
kann að ljúga til um það síðar
meir fyrir kurteisi sakir. Og
skáldskapur ungra manna á að
fá að sanna gildi sitt af eigin
rammleik í stað þess að vera
sviptur hollustu lífsbaráttunnar
um leið og hann lítur dagsins
ljós. Góður skáldskapur fer
hvort sem er aldrei dult til
lengdar. En sú hætta er augljós,
að forlagið skuldbindi sig fyrir
fram til að verðlauna sem af-
burðaverk hvaða miðlungsplagg
sem skást kann að berast, eða
dubba upp einhvern pornóman-
iskan exkrementalista sem stór-
skáld og bókmenntalegt leiðar-
Bliki kom inn með 10 tonn og
var aflinn unninn. Á morgun er
togarinn Björgvin væntanlegur
með afla og allt starfsfólk frysti-
ljós.
Enn er þess ógetið, sem ekki
skiptir minnstu máli, að yfir öll-
um verðlaunaveitingum eftir
huglægu mati vofir hlutdrægnin
sí og æ, og eru þar einmitt bók-
menntaverðlaun varasömust, og
það í þjóðfélagi þar sem allt mat
er meira og minna litað af
stjórnmálaviðhorfum, vísvitandi
eða óvitandi. Sú hætta er alltaf á
næstu grösum, að verðlaunaveit;-
ingar fyrir bókmenntir miði að
tiltekinni stefnumörkun í opnum
eða duldum áróðri, annaðhvort
til hægri eða vinstri, út eða suð-
ur. Auðvitað er öllum heimilt að
hafa uppi hvaða heiðarlegan
áróður sem vera skal, þó ekki sé
það heiglum hent á sviði bók-
mennta. En að gefa opinberri
stefnumörkun í þeim efnum
beinlínis undir fótinn væri var-
hugavert í meira lagi. Og þeim
mun augljósari yrði hættan sem
verðlaunin kynnu að þykja álit-
legri og veitandinn ábúðarmeiri.
Þetta, ásamt öðru, ættu al-
þingismenn að hafa í huga, þeg-
ar þeir greiða atkvæði um opin-
ber bókmenntaverðlaun.
hússins kemur þá til vinnu, laus-
ráðið sem fastráðið. Björgvin
kemur inn með afla vegna veðurs.
Fréttaritari.
Dalvík:
Ur rættist með vinnu í frystihúsinu
Egiil Vilhjálmsson M.
_________& Smiðiuvegi 4C, Kópavogi. _
1928 ALLT Á SAMA SJAÐ 1983 55 ÁRA ÞJÓNUSTA
Notaöir bflar - Skipti möguleg
AMC EAGLE
2 d., Sedan 1982. Óekinn. Ljós-
brúnn. Kr. 635.000.
FIAT 1600 132 1978
64 þús. km. Eirrauöur. Kr.
150.000.
FIAT PANDA ’82
21 þús. km. Hvítur. Kr. 160.000.
AMC EAGLE 1981 HONDA ACCORD 1979
92 þús. km. Kr. 450.000. 62 þús. km. Silfurgrár. Kr.
195.000.
Sífelld þjónusta — Allt á sama staö hjá Agli í Fíat-húsinu
I
I ( f JZh .
1 _/ .
í ■ »
FIAT RITMO 65 cl. ’82
37 þús. km. Rauöur. Kr. 220.000.
TRABANT STATION 1982
16 þús. km. Grár. Kr. 75.000.
SÍFELLD BÍLASALA
Sími 77200
AMC CONCORD
STATION ’78
6 cyl., sjálfsk. Ljósbrúnn. 69 þús.
km. Kr. 180.000.
MERCEDES BENZ 250
1968
meö þaklúgu. Kr. 50.000.
MAZDA PICK-UP 1979
90 þús. km. Kr. 110.000.
Opið frá 9—7
SÍFELLD ÞJÓNUSTA
Sími 77202
Egill Vilhjálmsson hf.
Smiðjuvegi 4C, Kópavogi.