Morgunblaðið - 01.11.1983, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1983
Læknahúsið hf. við Síðumúla:
JÚL 1983
Tvær skurðstofur fyrir aðgerðir þar sem
sjúklingar geta farið heim samdægurs
LÆKNAHÚSIÐ hf. nefnist ný
læknamiðstöð við Síðumúla í
Reykjavík, sem taka mun til starfa í
næsta mánuði. Hlutafélagið var
stofnað í vor, og var þá keypt hús-
næði við Síðumúla 29 í Reykjavík,
þar sem unnið hefur verið að inn-
réttingum síðan. Það eru þrettán
læknar sem að Læknahúsinu hf.
standa, flestir skurðlæknar, og einn-
ig verða þar starfandi svæfingar-
læknar og stundaðar rannsóknir af
ýmsu tagi.
Þórarinn Ólafsson svæfinga- og
deyfingarlæknir er einn læknanna
þrettán. Hann sagði i samtali við
biaðamann Morgunblaðsins, að
hér væri um það að ræða að hópur
lækna, sem hefðu starfrækt
læknastofur víða um borgina,
væri að taka sig saman til að geta
Aðsókn að leikhúsunum:
Meira en 25% aukning
hjá Þjóðleikhúsinu
— Samdráttur hjá LR
„VIÐ HÉR getum ekki verið ann-
að en ánægð með aðsóknina í
haust, því hún er meira en 25%
meiri en á sama tíma í fyrra,“
sagði Gísli Alfreðsson Þjóðleikhús-
stjóri í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins í gær, er spurst
var fyrir um aðsókn að leikhúsinu.
„Fyrr í vikunni tók ég saman tölur
um aðsóknina," sagði Gísli enn-
fremur, „og þá höfðu komið um
10.500 manns, en á sama tíma í
fyrra voru gestir um 8.300 talsins.
Aukningin er því 26,5% nákvæm-
lega, og rétt er að taka fram að
árið í fyrra var meðalár hvað að-
sókn snerti.
Eina breytingin, sem ég get
sagt að við finnum á aðsókninni
hér að öðru leyti er sú, að fólk
kemur meira um helgar en í
miðri viku, en hvað veldur þess-
ari auknu aðsókn er ekki gott að
segja um. Ég vona bara að fólk
haldi áfram að koma, við erum
með skemmtileg verk, og það er
allt uppselt nú um helgina,"
sagði Þjóðleikhússtjóri að lok-
Stefán Baldursson leikhús-
stjóri hjá Leikfélagi Reykjavík-
ur sagði á hinn bóginn í samtali
við Morgunblaðið í gær, að þar
hefði orðið vart samdráttar í
haust. Ekki hefði hann þó tölur
um aösóknina, og sagði of
snemmt að tala um nokkra
„katastrófu" í þessu sambandi.
Enn væri aðeins búið að frum-
sýna eitt verk í haust, Hart í
bak, og það gengi vel, og eins
gengi vel með sýningar í Austur-
bæjarbíói. „En aðsókn er minni
en í fyrra, það er ljóst," sagði
Stefán að lokum.
veitt betri þjónustu. Þarna yrðu
framkvæmdar hvers kyns rann-
sóknir og framkvæmdar minni-
háttar aðgerðir, þar sem sjúkling-
urinn getur farið heim samdæg-
urs. Tvær skurðstofur verða í hús-
inu. „Það er að mínum dómi mikil
þörf fyrir skurðstofur eins og
þessar, utan sjúkrahúsanna,"
sagði Þórarinn. „Þessari þörf hef-
ur ekki verið sinnt hér á landi, og
í nýlegu tölublaði bandaríska
vikublaðsins Time má sjá að þessi
sama þróun á sér stað hvarvetna i
heiminum. Það er verið að ná
niður kostnaði við sjúkrahúsrekst-
ur, og um leið er því fólki veitt
lausn, sem ekki kemst að á sjúkra-
húsum, vegna þess að þar ganga
alvarlegri sjúkdómar eins og
krabbamein fyrir smáaðgerðum.
En með þessu er fólki gefinn kost-
ur á að komast fyrr að, en eftir-
meðferðinni og umönnuninni að
sjálfsögðu velt yfir á heimilin um
leið.
Það er raunar oft mjög vel
þegið, að fóik fái að fara heim þeg-
ar að lokinni aðgerð, svo sem börn
eða fullorðið fólk þar sem heimil-
isaðstæður eru góðar." Þórarinn
sagði að þeir læknar í Læknahús-
inu hf., sem starfað hafa í sjúkra-
húsum undanfarið, yrðu þar
áfram, enda væri ekki ætlunin að
yfirtaka starfssvið sjúkrahús-
anna, heldur aðeins að fram-
kvæma ýmsar þær rannsóknir og
aðgerðir, sem gera má utan spítal-
ÍSLAND
Jólafrímerki
Thorvaldsensfélagsins:
Komið út í
69. sinn
JÓLAMERKI Barnauppeldissjóðs
Thorvaldsensfélagsins 1983 er komið á
markaðinn. Að þessu sinni er merkið
teiknað af Guðnýju Harðardóttur.
Á þessu ári eru liðin 70 ár síðan
fyrsta jólamerki Barnauppeldis-
sjóðsins var gefið út, eða árið 1913,
til fjáröflunar sjóðnum, sem stofn-
aður var árið 1906 innan Thorvald-
sensfélagsins. Þó leið eitt ár, það er
árið 1917, án þess að merkið væri
gefið út, vegna óviðráðanlegra
orsaka, og er merkið 1983 því það 69.
í röðinni.
Markmið sjóðsins var i upphafi
stofnunar hans, og hefir ætíð síðan
verið, að leggja lið aðallega börnum,
sem vegna veikinda eða einhverra
annarra ástæðna hafa þurft aðstoð-
ar við, svo og öðrum liknarmálum.
Jólamerkið er til sölu á Thorvald-
sensbazar, Austurstræti 4, hjá fé-
lagskonum Thorvaldsensfélagsins,
og einnig hefir frímerkjavarsla
Pósts og síma verið svo vinsamleg að
dreifa merkinu á pósthúsin í Reykja-
vík og úti um land.
nú er nýtt líf að fæðast
síðast seldist allt upp
Ford Cargo
Eigum fyrirliggjandi FORD CARGO 1013
vörubíla á hagstæöu veröi og greiöslu-
kjörum.
Leitiö frekari upplýsinga hjá sölumönnum
okkar.
FORD CARGO — Vörubíll árs-
ins í Evrópu 1982.
Sveinn Egilsson
Skeifunni 17, sími 85100.
við komum á 150 km hraöa með
blaðið rétt strax.
nr
TÍZKUBLAÐ — FASHION MAGAZINE
ARMULA 18
105 REYKJAVÍK SiMI 82300