Morgunblaðið - 01.11.1983, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1983
1970, í verkalýðsráði Sjálfstæðis-
flokksins 1970—1976, og gegndi
störfum í ýmsum nefndum og
stjórnum á vegum borgarstjórnar.
M.a. var hann endurskoðandi
Sparisjóðs Reykjavíkur og ná-
grennis frá 1967 til dauðadags. í
stjórn Iðnþróunarstofnunar var
hann 1974—1978. Síðast en ekki
síst skal þess getið, að hann var
kosinn í trúnaðarráð Iðju 1962 og í
stjórn Iðju, félags verksmiðjufólks
í Reykjavík, frá 1963 til 1976 og
þar af var hann formaður félags-
ins frá 1970 til 1976. öllum þeim
störfum, sem honum voru falin í
félaginu, gegndi hann með prýði
og aldrei var nein lognmolla í
kringum hann. Þessi ár, sem við
Runólfur unnum saman hjá Iðju,
verða mér alltaf minnisstæð, m.a.
vegna þess hve skeleggur hann var
í baráttunni fyrir bættum kjörum
iðnverkafólks, bæði á vinnustað og
í samningum. Á þessum árum
náðust fram í samningum ýmis
mikilvæg hlunnindi, svo sem líf-
eyrissjóður, sjúkrasjóður,
orlofssjóður o.fl. og á þessum ár-
um eignaðist Iðja Svignaskarð og
Fróðhús og stóran hluta í Skóla-
vörðustíg 16. Runólfur sá að miklu
leyti um framkvæmd vatnsveitu-
lagnar fyrir orlofshúsin í Svigna-
skarði og þegar hann varð formað-
ur félagsins var hafist handa um
byggingu orlofshúsa, sem nú
standa sem óbrotgjarn minnis-
varði um framtak og dugnað for-
ystumanna félagsins.
Það gerir enginn einn maður
alla hluti í stéttarfélagi, allra síst
í félagi eins og Iðju. Þar verður
hin samvirka forysta að leggjast á
eitt með þunga til að koma málum
fram. Slíka samvirkni gat hann
beislað með eldmóði og áhuga,
enda var hann áhiaupamaður til
allra verka.
Runólfur var glaðvær og hnitt-
inn í svörum, en gat verið mein-
hæðinn, ef því var að skipta, eins
og svo margir í Mýrarholtsætt-
inni. í orðaskiptum á félagsfund-
um og annars staðar varð honum
aldrei orða vant; það sproksetti
hann enginn. Við pólitíska and-
stæðinga var hann óvæginn og
hreinskilinn, en alltaf sáttfús.
Þegar ég að leiðarlokum kveð
minn látna vin er mér efst í huga
þakklæti fyrir að hafa mátt ganga
með honum nokkurn spöl á vegi
lífsins. Ég vil þakka vináttu hans
og tryggð og margar glaðar stund-
ir. Ég vil þakka drengskap hans,
kjark og baráttuþrek hans til
hinstu stundar. Farðu vel vinur og
frændi og hafðu þökk fyrir sam-
fylgdina.
Ruth, börnum hennar og systk-
inum hins látna votta ég innilega
samúð.
Guðjón Sigurðsson
Vinur minn og félagi, Runólfur
Pétursson, lést laugardagskvöldið
22. október sl. Hann hafði þjáðst
mikið og lengi, svo það var Guðs
vilji að hann fékk að kveðja þessa
jarðvist. Runólfur verður jarðsett-
ur frá Dómkirkjunni í dag. kl.
13.30.
Runni var „Sólvallagötumaður"
fæddur hér í Reykjavík, sonur
Péturs Runólfssonar, sem lengi
vann hjá toilstjóra, og Guðfinnu
Ármannsdóttur. Þau voru sóma-
fólk og hafði ég af þeim góð kynni.
Runni var einn sex systkina, en
hin eru Ásgeir, búsettur í Dan-
mörku, Ármann, Pétur og syst-
urnar Ólöf og Helga.
Við vorum ekki háir í loftinu
þegar með okkur tókst góð vin-
átta, sem hélst alla tíð. Eftir að
við höfðum báðir stofnað heimili
og eignast börn, voru oft rifjuð
upp atvik frá þeim gömlu góðu
dögum þegar allur Vesturbærinn
var okkar vettvangur, óbyggður að
mestu vestan Hringbrautar. Þar
voru m.a hermanna„kampar“ og
mikið um að vera ekki síst eftir að
þeir voru yfirgefnir. Runni var
mjög duglegur og fylginn sér sem
polli, yfirleitt sá harðasti í hópn-
um, já, þetta myndi kallast hörku-
lið á nútímamáli.
Runni giftist ungur æskuvin-
konu sinni, Rut Sörensen, og áttu
þau þrjú börn, Garðar, Kristfnu og
Ásdísi. Á yngri árum vann Runni
hjá SÍS, bæði til sjós og lands.
Seinna meir sinnti hann félags-
málum og var formaður Iðju, fé-
lags verksmiðjufólks, árin
1970—76, einnig varaborgarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins í borg-
arstjón. Síðustu árin vann hann
hjá Skorra hf. heildverslun, þar
sem honum mun hafa líkað vel.
Runni, vinur minn, deyr aðeins
fjörutíu og sjö ára. Það er svo
margt sem við skiljum ekki sem
betur fer. Hið eina sem er öruggt í
þessu lífi er að við deyjum. Hvern-
ig ætli standi á því að dauðinn er
eins skelfilegur í hugum fólks eins
og raun ber vitni? Æskilegt væri
að hugarfarsbreyting ætti sér
stað. Það myndi gera margan að-
skilnaðinn léttbærari. Þó vera
kunni hlið milli heimanna er fyrir
því þung hurð sem ekki bifast
nema sterklega sé knúið á.
Það er erfitt að velja orð í fá-
tæklega minningu, enda kannski
innantómt hjal. Minninguna um
góðan vin geymum við innra með
okkur. Ég er sannfærður um að
Runni er í góðum höndum. Ég
vona að algóður Guð varðveiti og
styrki Rut og fjölskylduna alla.
Magnús Th. Magnússon
Runólfur Pétursson lézt í
Landakotsspítala 22. október sl.
eftir langa legu, aðeins 47 ára að
aldri. Við höfðum ekki þekkst
lengi, aðeins síðan í júní 1981, er
hann réðst til starfa hjá Skorra
hf. Vantaði okkur þá röskan mann
sem gæti gengið í öll störf. Á þess-
um stutta tíma sem hann var
vinnufær, tæplega tveim árum,
kom greinilega í ljós að þar var
fyrir fyrirtækið réttur maður á
réttum stað. Með störfum sínum
sýndi hann vel hvern mann hann
hafði að geyma, er hann oft undir
miklu vinnuálagi þurfti að stjórna
framleiðslu fyrirtækisins. Alltaf
nægði aðeins að segja að þetta og
hitt þyrfti að vera tilbúið á
ákveðnum tíma og ekki brást það,
allt tilbúið og viðskiptavinirnir
ánægðir. Slík nákvæmni starfs-
manna er ómetenleg fyrir öll
fyrirtæki. Þótt störf Runólfs væru
oft líkamlega mjög erfið, og okkur
grunaði að hann gengi ekki eins
heill til skógar og hann vildi vera
láta, máttum við aldrei aðstoða
hann á nokkurn hátt. Virðing
fyrir vinnunni var honum í blóð
borin. Hann mætti langfyrstur á
morgnana og var búinn að hita
kaffið og tekinn til við sína vinnu
þegar aðrir mættu.
Runólfur var hlýr í öllu viðmóti
og glaður. Ef sá gállinn var á hon-
um, kunni hann óteljandi sögur úr
borgarlífinu og urðu það úr hans
munni allt gamansögur. Ekki tafði
hann sig við slíkar sögur í vinnu-
tímanum heldur biðu þær þar til
búið var að loka. Þá fyrst var tími
til að taka upp léttara tal. Við
vinnufélagarnir kveðjum Runólf
með söknuði en sárastur er sökn-
uður eiginkonunnar, Ruthar Sör-
ensen, og þriggja barna þeirra
sem hafa í allt sumar séð að
hverju stefndi. Við vottum þeim
okkar dýpstu samúð.
Örn Johnson
37
Tilboð
10 Ijósatimar kr. 390,- til 1. des.
Veriö velkomin.
Sólbaðsstofan Ströndin,
Nóatúni 17, s. 21116.
/J»
Fjarstýrðu 20 tommu
Orion gæða litsjón-
varpstækin kosta aðeins
23.355 kr.
Stflhrein og ódýr sófasett
Áklæði í 5 litum. Verð kr. 14.100. Kjör sem allir
ráða við. Sendum í póstkröfu.
Valhúsgögn hf.,
Ármúla 4, sími 82275.
ClasgowvcrslunaiferJ
Nú getur þú aftur farið í verslunarferð til
Glasgow og fengið fullt verð fyrir krónuna. i
Og ekki má gleyma óperunni, leikhúsunum, j
pöbbunum og öllum veitingahúsunum. Þér
mun sko áreiðanlega ekki leiðast, „Skotinn"
FERDA
Ferðaskrifstofa
Hverfisgötu 105
Sími;
19296
tekur nefninlega vel á móti sínum.
Kynningarrit og
upplýsingar á skrifstofunni.
HELGARFERÐIR OG VIKUFERÐIR
VERÐ FRÁ KR. 8.202.-