Morgunblaðið - 01.11.1983, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1983
Eiður Guðnason (A) mclti í gær
fyrir frumvarpi til laga, sem hann
flytur ásamt Karli Steinari Guðna-
syni (A), þess efnis, að bflafríðindi
ráðherra falli niður. Eiður minnti á,
að stjórnarfrumvarp hafi verið flutt
um þetta efni 1979, sem samþykkt
hafl verið í annarri þingdeildinni
— en dagað uppi í þeirri síðari.
Eiður sagði efnislega að bíla-
hlunnindi ráðherra stangist á við
réttarvitund almennings. Sá rök-
stuðningur, sem með frumvarp-
inu 1979 fylgdi, eigi enn við, en
þar segi m.a. „að ríkisstjórnin
telji óeðlilegt að ráðherrar fái
bifreiðir, er verða einkaeign
þeirra, með öðrum kjörum en al-
mennt gilda í landinu". Hann
Eiður Guðnason
Bflafríðindi ráðherra rædd í efri deild:
„Stangast á við réttar-
vitund almennings“
— sagði Eidur Guðnason (A)
innti fjármálaráðherra sérstak-
lega eftir því, hver vaeri afstaða
hans til þessa máls, en nú stæði
yfir sparnaðarherferð í ríkis-
búskapnum.
Albert Guðmundsson, fjármála-
ráðherra, minnti á, að vinnu-
skylda ráðherra væri mikil, á Al-
þingi, í ráðuneytum og stjórnar-
ráði, og ekki óeðlilegt, að tillit
væri til hennar tekið að þessu
leyti, enda hefði þessum „félags-
málapakka" ekki verið breytt af
fyrrverandi ríkisstjórnum, sem
allir hinir eldri stjórnmálaflokk-
ar hefðu átt aðild að. Þau eru
mörg fríðindin, sagði ráðherra
efnislega, sem viðgangast í þjóð-
félaginu, samkvæmt samningum
og reglugerðum, og e.t.v. er tíma-
bært að taka þau öll til endur-
skoðunar.
Steingrímur Hermannsson, for-
sætisráðherra, rakti forsögu
þessara mála, hvern veg þau hafi
þróast í meðferð margra ríkis-
stjórna. Hann sagði og, að eftir
að hann hefði kynnt sér rekstur
ráðherrabíla, sem ríkið eigi, og
kostnaðarþátt þess fyrirkomu-
lags, efist hann stórlega um að
rétt sé að afnema þessi meintu
réttindi. Það kom og fram f máli
forsætisráðherra, að ríkisstjórn-
in hefur ákveðið að setja á laggir
nefnd sem taki bflamálin f heild
til endurskoðunar.
Auglýst skv. „lögum“ sem
eftir er að semja frumvarp að
Guðmundur Einarsson:
Auglýsing frá Veðdeild Búnaðar-
banka rædd utan dagskrár á Alþingi
Guömundur Einarsson
(BJ) kvaddi sér hljóðs utan
dagskrár í neðri deild Al-
þingis í gær og gerði að um-
talsefni útvarpsauglýsingu,
þar sem bændur eru hvattir
til að senda umsóknir til
Veðdeildar Búnaðarbanka
íslands með tilvísun til frum-
varps að lögum, sem ríkis-
stjórnin hyggist flytja, til að
breyta lausaskuldum bænda
í föst lán.
Ekki skal ég leggja dóm á
lausafjárstöðu bænda, sagði
Guðmundur efnislega, en mér
finnst einum og langt gengið að
auglýsa eftir umsóknum áður en
dregið hefur verið til stafs um
sjálft frumvarpið, hvað þá Al-
þingi fengið það til umfjöllunar
og ákvörðunar.
• Guðmundur Einarsson (BÍ)
spurði, hvort þingflokkar stjórn-
arliða hefðu hér um fjallað og
hvort landbúnaðarráðherra teldi
eðlilegt að auglýst væri eftir um-
sóknum um lán, sem eiga að
byggjast á frumvarpi, sem enn
hefur ekki verið samið, lagt fram
eða rætt á hinu háa Alþingi.
• Jón Helgason, landbúnaðar-
ráðherra, vitnaði til stefnuræðu
forsætisráðherra, hvar þing-
heimi hafi verið kunngjört, að
unnið væri í þá veru, sem nú væri
um spurt. Hann minnti á að fyrr-
verandi ríkisstjórn hefði skipað
nefnd til þess að athuga fjár-
Guðmundur Einarsson
hagsstöðu bænda og þörf skuld-
breytinga vegna lausaskulda.
Þessi nefnd lauk ekki störfum
fyrr en í næstliðnum mánuði.
Ríkisstjórnarflokkar komu sér
saman um að standa svo að mál-
um, sem nú hefur verið gert, við
myndun stjórnarinnar, og hefur
nefnd frá viðkomandi ráðuneyt-
um unnið að framkvæmdinni.
Auglýsingin, sem birt var með
vitund ríkisstjórnarinnar, er til
þess eins fram sett, að afla nauð-
synlegra upplýsinga um umfang
málsins.
• Halldór Blöndal (S) minnti á
ákvæði í Ólafslögum, þess efnis,
að hverju frumvarpi, sem hefði
kostnað í för með sér, eigi að
fylgja yfirlit um kostnað, sem af
samþykkt þess gæti leitt. Hér
væri um hliðstæðu að ræða.
• Jón Baldvin Hannibalsson (A)
sagði þessa framkvæmd meira en
lítið ámælisverða. Hvar sem
Framsóknarflokkur kæmi fæti
milli stafs og hurðar I fyrir-
greiðslupólitíkinni væri grunnt á
vafasömum vinnubrögðum.
Fleiri tóku til máls i umræð-
unni, þó ekki verði frekar rakið.
Bandag
Islandsmotið i handknattleik:
Toppslagurinn heldur áfram
Laugardalshöll í kvöld
kl. 20.00.
Tekst KR-ingum að stöðva
sigurgöngu FH-inga?
ATH. Heimaleikur KR í Evrópukeppni bikarhafa gegn HC Benchem
verður laugardaginn 12. nóvember kl. 15.00.