Morgunblaðið - 01.11.1983, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1983
47
„Þetta skeður ekki oft“:
Ráðherra mæl-
ir fyrir en gegn
frumvarpi til laga
ÞAÐ gerist ekki á hverjum degi að
ráðherra mæli fyrir en gegn frumvarpi.
Þetta bar þó við í efri deild Alþingis í
gær er Sverrir Hermannsson, orkuráð-
herra, mælti fyrir frumvarpi til stað-
festingar á bráðabirgðalögum Hjörleifs
Guttormssonar frá 8. aprfl 1983, þess
efnis, að „breytingar á verðákvæðum i
gjaldskrám orkufyrirtækja skuli háðar
samþykki ráðherra orkumála".
Orðrétt sagði ráðherrann í fram-
sögu:
„Ég mæli hér fyrir, en ekki með,
frumvarpi til laga um staðfestingu á
bráðabirgðalögum frá 8. apríl sl.
Ekki skal um það dæmt nú, hver
nauðsyn bar til setningar þessara
bráðabirgðalaga á sinum tíma. Hitt
má öllum ljóst vera, að það er ekki
stefna núverandi ríkisstjórnar að
hafa þann hátt á um ákvörðun orku-
verðs sem í þeim lögum segir, og er
þessvegna lagt til að frumvarpið
verði fellt. I stjórnaryfirlýsingu seg-
ir, að sveitarfélög skuli ákveða sjálf
verð á þjónustu sinni og á það auð-
vitað ekki sízt við um sölu á orku,
sem þau hafa vel flest með höndum.
Á hitt ber auðvitað að líta, að alls
ekkert svigrúm er til hækkunar
orkuverðs á þeim svæðum og í þeim
greinum, þar sem það nú er hæst. Á
það sérstaklega við um raforkusölu
til húshitunar og orku nýjustu og
dýrustu hitaveitna. Þvert á moti ber
brýna nauðsyn til lækkunar húshit-
unarkostnaðar þar sem þannig
stendur á.
Á vegum iðnaðarráðuneytisins
fara nú fram ítarlegar kannanir í
þessum efnum, t.d. hvernig bæta
megi einangrun húsa, en þann veg
hyggja sérfróðir menn að spara megi
Sverrir Hermannsson
stórfé. Komi það þeim enda bezt,
sem verst eru settir og þyngstar
byrðarnar bera af hitun húsa sinna.
Á það ber að leggja áherzlu, að
hverfa frá niðurgreiðslum og skatt-
lagningu til þeirra og til orkuspar-
andi aðgerða og lækkunar orkuverðs.
Fast verður knúið á um að skattar
verði felldir niður af orkusölu til
húshitunar svo fljótt sem verða má.
Meiri hluti þjóðarinnar býr nú orðið
sem betur fer við ódýra orku til hús-
hitunar frá hitaveitum, en fimmt-
ungur þjóðarinnar býr enn við
óbærilegar aðstæður í þessum efn-
um, þar sem húshitunarkostnaður-
inn er að sliga heimilin. Allt kapp
ber að leggja á að leysa þann háska-
lega vanda.”
Verðjöfnunarsjóður fiskiðnaðarins:
Greiðslum til skreið-
arframleiðslu hraðað
í GÆR var lagt fram á Alþingi stjórn-
arfrumvarp, svohljóðandi:
Á eftir 12. gr. laganna komi bráða-
birgðaákvæði sem orðist svo:
Stjórn Verðjöfnunarsjóðs fiskiðn-
aðarins er heimilt að inna af hendi
greiðslur upp í verðbætur, sbr. 8. gr.,
vegna ógreidds skreiðarútflutnings
og óseldrar skreiðar af framleiðslu
áranna 1981, 1982 og 1983 sam-
kvæmt reglum, sem sjóðsstjórnin
setur að fengnu samþykki ráðherra.
í greinargerð með frumvarpinu
segir m.a.:
Frumvarp þetta er flutt að tilmæl-
um stjórnar Verðjöfnunarsjóðs
fiskiðnaðarins. Stjórn sjóðsins hefur
rætt þann mikla vanda, sem nú
steðjar að framleiðslu skreiðar
vegna mikilla söluerfiðleika og mjög
tregra greiðslna af hálfu kaupenda.
Samkvæmt fyrirliggjandi upplýs-
ingum, sem sjóðurinn nú hefur frá
framleiðendum ásamt öðrum aðil-
um, sem málið snertir, er gert ráð
fyrir verulegum greiðslum verðbóta
á alla óselda og ógreidda skreið.
Óvissa um söluverð á þeirri skreið,
sem enn liggur óseld í landinu gerir
að svo stöddu erfitt um að áætla
heildarbætur. Inneign skreiðarinnar
er nú um kr. 220.000.000,00.
Sýning Sigurð-
ar framlengd
SÝNING Sigurðar Brynjólfssonar
í Gallerí Langbrók verður fram-
lengd til nk. fimmtudags 4. nóv-
ember, og lýkur henni kl. 18 þann
dag. Á sýningunni eru um 100
smáteikningar. Sýningin hefur
staðið yfir sl. hálfan mánuð og
hefur aðsókn verið mjög góð.
Með tilliti til þessa hefur sjóðs-
stjórnin rætt um það, hvernig hraða
mætti greiðslum upp í væntanlegar
verðbætur, en samkvæmt lögum
sjóðsins er ekki heimilt að inna slík-
ar greiðslur af hendi fyrr en gjald-
eyrisskil liggja fyrir.
Sjóðsstjórn Verðjöfnunarsjóðs
fiskiðnaöarins, deildar fyrir skreið-
arafurðir, var sammála um, að fara
þess á leit við sjávarútvegsráðherra,
að gert yrði mögulegt með fram-
angreindu viðaukaákvæði til bráða-
birgða við lög sjóðsins, að greiöa upp
í væntanlegar verðbætur og að til
framkvæmda geti komið sem fyrst.
Skákmót á Sel-
tjarnarnesi og
í Hafnarfiröi
HAUSTMÓT skákfélags Hafnar-
fjarðar hefst þriðjudaginn 1. nóv-
ember kl. 19.30 í félagsálmu íþrótta-
hússins við Strandgötu.
Teflt verður á þriðjudags- og
fimmtudagskvöldið, samtals 9 um-
ferðir eftir Monrad-kerfi.
Unglingaæfingar verða á sama
stað á þriðjudögum kl. 17 til 19.
(FrétuUlkynning.)
— o —
HAUSTMÓT Taflfélags Seltjarnar-
ness hefst í kvöld kl. 19.30 f
Valhúsaskóla. Teflt verður á þriðju-
dag og fimmtudag kl. 19.30 og á
laugardag kl. 14.
Tefldar verða 9 umferðir eftir
Mondrad-kerfi.
(FrétUtilkjnning.)
M /
Sjafrimyndi er þörf bók fyrir þroskað folk.
Hún fjallar í máli og myndum tun hmýmsu
tilbrigði ástarleikja. Bókin er kjörin fynr
þá sem vilja gera gott
kynlíf enn fjölbreyttara
og unaðsríkara.
'r>Ur ,,
Ftrst hjá bóksölum
urri land allt
á kr. 988. ÖÓ og rpóstkröfu.
r
i VINSAMLEGAST SENDIÐ MÉR EITT EINTAK AF BÓKINNI
SJAFNARYNDI í PÓSTKRÖFU. •
NAFN
HEIMILISFANG
ORN&ORLYGUR PÓSTNÚMER
Siðumúiari.sími 84866 i______________________________________________________i
PREKMIÐSIOÐIN
Æfingar og leikir
viö allra hœfi!
Nú bjóöum við upp á fjölbreyttari dagskrá en áður hefur þekkst,
svo sem:
JANE FONDA-LEIKFIMI. Fyrir byrjendur og lengra komna.
Kennari: Hrefna Geirsdóttir.
ALMENN LEIKFIMI. Konur: Morgun- og kvöldtímar.
Karlar: Kvöldtimar
KARATE. Kvöldtímar fyrir byrjendur. Kennari: Ómar ívarsson.
TENNIS. Upplýstur útivöllur með snjóbræðslu.
VEGGJATENNIS. (Racquet-Ball og Squash)
Námskeið fyrir konur: Morgun- og dagtíroar.
Námskeið fyrir unglinga: Dagtímar.
ÁTAK í MEGRUN. Leikfimi, tæki, matseðill og vigtun.
ÆFINGAKERFI, í tækjasal.
ÍÞRÓTTASALUR, leigður út til hópa, t.d. starfshópa.
GOLFÆFINGAR, í sal, sunnudaga kl. 10 - 13. Komið með
kylfurnar.
Heitur nuddpottur, gufubað, Ijós og margt fleira.
Sjúkraþjálfari og íþróttakennarar eru á staðnum, þér til aðstoðar.
OPIÐ:___________________________
Mánudaga og miðvikudaga kl. 9 - 22
Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 14 - 22
Föstudaga kl. 14 - 19
Laugardaga kl. 10 - 17
Sunnudaga kl. 10 - 15
ATHUGIÐ BREYTTAN
OPNUNARTIMA
ÞREKMIÐSIÖDIN
Dalshrauni 4 Hafnarfirði Sími: 54845j