Morgunblaðið - 12.11.1983, Side 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK
260. tbl. 70. árg. LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1983 Prentsmiðja Morgunbiaðsins
Forsætisráðherrar Bretlands og Kanada, Margaret Thatcher og Pierre Elliott Trudeau, heilsast við upphaf fundar
síns að Downingstræti 10 í London í gær. Trudeau hélt að fundinum loknum til Ottawa, en hann hefur þá lokið ferð
sinni til sex Evrópuríkja. AP/sím»myDd.
Trudeau ánægður með
viðtökurnar í Evrópu
I^tnHon II nnvpmhor AP
L«ndoii. II. nóvember. AP.
PIEKKE Elliott Trudeau, forsætisráð-
herra, Kanada sagði við lok ferðar
sinnar til sex Evrópuríkja að hann
hefði fengiö góðar undirtektir við til-
lögur sínar um að draga úr spennu
milli austurs og vesturs.
Trudeau sagði almennt fylgi við
tillögurnar, sem ekki hafa verið
birtar opinberlega. Boðaði hann
meiriháttar ræðu á sunnudag, þar
sem hann kveðst skýra frá tillögum
sínum og undirtektum ráðamanna í
París, Haag, Brussel, Róm, Bonn og
London.
Kvað Trudeau of snemmt að
segja á þessari stundu hvort hann
tækist á hendur ferð til Washing-
ton og Moskvu. Á fundum sínum
með Evrópuleiðtogum ræddi
Trudeau einnig við þá um ástandið í
Mið-Austurlöndum, Mið-Ameríku
og innrásina á Grenada.
Arafat harðneitar
Trípólí
Að sögn líbýsku fréttastofunnar
Jana er verið að undirbúa flótta
Arafats frá Líbanon til Líbýu.
Segir fréttastofan Arafat hafa
þegið boð Khadafys og viðræður
eigi sér stað er miði að því að
tryggja öryggi hans.
Bandarískar orrustuþotur, sem
staðsettar eru á flugmóðurskipinu
Eisenhower, flugu lágt eftirlits-
flug yfir Beirút og hæðirnar í
kring í morgun og skutu sýrlenzk-
ir hermenn að þeim, en hæfðu
ekki, að sögn útvarpsstöðvarinnar
“Rödd Líbanon".
Nefnd allra deiluaðila í Líban-
on, sem ræðst hefur við í Genf í
vikunni, hefur samið drög að til-
lögum um umbætur í Líbanon.
Eru þær í 25 liðum í 20 síðna
skjali og segja nefndarmenn veru-
lega hafa dregið saman með deilu-
aðilum og að lausn deilunnar væri
möguleg. Hefur fundum nefndar-
innar verið frestað fram í næstu
viku.
Oflugur vörður
bíður Reagans
Tókíó. 11. nóvember. AP.
RÚMLEGA eitthundrað þúsund ör-
yggisverðir eru tilbúnir að gæta ör-
yggis Ronald Reagan Bandaríkjafor-
seta þegar hann kemur til Seoul frá
Tókíó í fyrramálið. Yfirvöld í Suður-
Kóreu, minnug sprengingarinnar í
Rangoon, eru staðráðin í að koma í
veg fyrir hugsanleg hryðjuverk
vegna heimsóknar Reagans.
Til mótmæla kom á lóðum
þriggja háskóla í Seoul í dag, en
lögregla braut aðgerðirnar nær
samstundis á bak aftur.
Heimsókn Reagans til Suður-
Kóreu hefur fengið á sig aukna
þýðingu í framhaldi af árás Rússa
á kóresku farþegaþotuna í haust
og sprengjutilræðinu í Burma þar
sem 17 háttsettir Suður-Kóreu-
menn týndu lífi. Mun Reagan fara
til vopnlausa beltisins á landa-
mærum Suður- og Norður-Kóreu.
George P. Shultz, utanríkisráð-
herra, hvatti í dag til aukinnar
samstöðu með Suður-Kóreu-
mönnum vegna þeirrar hættu sem
þeim stafaði af kommúnistum.
Kvað Shultz varnarsamstarf
Bandaríkjanna og S-Kóreu afar
mikilvægt, en búist er við að það
samstarf verði meðal helztu um-
ræðuefna í heimsókn forsetans og
fylgdarliðs hans.
Norður-Kóreumenn gagnrýndu
Reagan harðlega í dag vegna heim-
sóknar hans til Suður-Kóreu, þar
sem þeir sögðu hann ætla efna til
„stríðsveizlu" í Seoul.
Reagan ávarpaði japanska þing-
ið í dag og sagði við það tækifæri
að Bandaríkjamenn vildu allt gera
til að samkomulag næðist við
Rússa um fækkun kjarnorku-
vopna, en takmarkið væri að eyði-
leggja þau öll. Kjarnorkustríð
mundi enginn vinná, því slík styrj-
öld mundi enda með eyðingu alls
lífs.
frá
að fara
TúnLs, Beirút, 11. nóvember. AP.
YASSER Arafat, leiðtogi PLO, lætur
í Ijós mikinn ugg með ástandið í
Trípólí í viötali við blað í Túnis í dag,
og segir bardagana þá mestu í sögu
Palestínumanna. Jafnframt neitaði
hann að yfirgefa borgina þrátt fyrir
aukinn þrýsting þar að lútandi.
Bardagar héldu áfram í dag milli
stuðningsmanna Arafats og and-
stæðinga hans innan PLO, sem Sýr-
lendingar aðstoða.
í viðtalinu var Arafat mjög
harðorður í garð Sýrlendinga, sem
hann segir vilja sig feigan. Arafat
sagði Sýrlendinga hafa með fram-
ferði sínu komið Rússum í hin
mestu vandræði vegna góðra
vensla þeirra, bæði við PLO og yf-
irvöld í Damaskus. Af hálfu
Kremlar var hvatt til „samstöðu"
allra Palestínumanna í dag og
Sýrlendingum veitt ofanígjöf fyrir
að kynda undir sundrungu meðal
skæruliða PLO.
Arafat neitaði í dag að verða við
áskorun Frashid Karami, fyrrum
forsætisráðherra, um að hverfa
frá Trípólí með menn sína til þess
að forða næststærstu borg Líban-
on frá blóðbaði. Hafa leiðtogar
Palestínuskæruliðanna, sem berj-
ast gegn Arafat, veitt honum frest
til sunnudagskvölds til að koma
Skæruliði PLO, sem fylgir Arafat að málum, með hjálm og höfuðklút, í sér frá borginni, ella ráðist þeir
Trípólí í gær. AP/Sfm»mynd. jnn j borgina.
Njósn-
arans
bíður
líflát
Boston, 11. nóvember. AP.
AUSTUR-þýzkur vísindamaður
hefur verið sakaður um njósnir
og er ákæruskjalið í átta liðum.
Reynist hann sekur á hann yfir
höfði sér dauðadóm.
Vísindamaðurinn, Alfred
Zehe, sem er 44 ára, var
hnepptur í varðhald í gær, þar
sem hann sótti ráðstefnu
bandarískra vísindamanna. Er
hann sakaður um að hafa
borgað starfsmanni banda-
ríska sjóhersins 16 þúsund
dollara fyrir upplýsingar um
rafeindastjórnkerfi sjóhersins.
Starfsmaður sjóhersins fór
11 sinnum til Washington,
Mexíkóborgar og Austur-
Berlínar til að afhenda Zehe
skjöl og ljósmyndir. f A-Berlín
átti hann einnig fundi með
starfsmönnum a-þýzku leyni-
þjónustunnar.
Sami starfsmaður hlaut
5.500 dollara frá þremur
starfsmönnum austur-þýzka
sendiráðsins í Washington og
Mexíkóborg. Gerði hann FBI
og leyniþjónustu sjóhersins
viðvart um starfsemi Zehe.
Ráðherra
rekinn
Búdapesl, 11. nóvember. AP.
ADAM Bonifert aðstoðar-
dómsmálaráðherra Ung-
verjalands hefur verið vik-
ið úr starfi fyrir að misnota
völd sín, að sögn ríkis-
fréttastofunnar, MTI.
Fréttastofan skýrði ekki
nánari ástæður brottvikn-
ingarinnar, en sagði einung-
is að hann hefði misnotað
embættisvöld sín.