Morgunblaðið - 12.11.1983, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1983
Ljósm.: JG
Sungið í „rigningu“
llnnur Steinson, ungfrú ísland 1983, tekur um þessar mundir þátt í keppn-
inni Ungfrú heimur í London. Myndin var tekin á Trafalgar-torgi þegar allir
þátttakendur í keppninni sungu lagið „Singing in the Rain“. Þar eð besta
veður var meðan upptakan fór fram, varð að framkalla rigningu með allmörg-
um slökkvibifreiðum. Úrslit keppninnar verða tilkynnt 17. nóvember.
Mýrdælingar kjósa
nýja hreppsnefnd
MYRDÆLINGAR ganga í dag til kosningar sameiginlegrar hreppsnefndar
hins nýja Mýrdalshrepps. í síðustu hreppsnefndarkosningum samþykktu
íbúar Hvammshrepps og Dyrhólahrepps að sameina hreppina og tekur sam-
einingin gildi um næstkomandi áramót.
Þrír listar eru í kjöri, B-Iisti
Framsóknarflokks, D-listi Sjálf-
staeðisflokks og Z-listi Umbóta-
sinna. Hina nýju hreppsnefnd
munu 7 menn skipa. Kosið verður
á tveimur stöðum. íbúar Dyrhóla-
hrepps kjósa í Barnaskólanum á
Ketilsstöðum, en íbúar Hvamms-
hrepps kjósa í Grunnskólanum í
Vík. Kjörfundur hefst klukkan
9.00 í Vík, en 13.00 á Ketilsstöðum.
Á kjörskrá eru 435.
Af hálfu B-listans skipa Eyjólf-
ur Sigurjónsson, Pétursey, Símon
Gunnarsson, Vík, og Málfríður
Eggertsdóttir, Vík, þrjú efstu sæt-
in til hreppsnefndar, en Birgir
Hinriksson, skipar efsta sæti list-
ans til sýslunefndar. Af hálfu
D-listans skipa Finnur Bjarnason,
Vík, Sigríður Tómasdóttir, Álfta-
gróf, og Tómas Pálsson, Litlu-
Heiði, þrjú efstu sætin til hrepps-
nefndar, en Einar Kjartansson,
Þórisholti, skipar efsta sæti list-
ans til sýslunefndar. Af hálfu
Z-listans skipa Vigfús Þ. Guð-
mundsson, Vík, Sigríður Magn-
úsdóttir, Stóru-Heiði, og Einar
Hjörleifur Ólafsson, Vík, þrjú
efstu sætin til hreppsnefndar en
Þórir Kjartansson, Vík, skipar
efsta sæti listans til sýslunefndar.
Ekki skíðaveður um helgina
SÆMILEGASTA veður ætti að
verða um allt land um helgina og
allar líkur á að það verði frost-
laust, skv. upplýsingum Veðurstof-
unnar.
Sunnan- og vestanlands mun
sennilega rigna í dag í sunnan-
áttinni en norðanlands og aust-
an vérður úrkomulaust. Á morg-
un snýst í allhvassa vesta'nátt
með skúrum eða slydduéljum á
Suðurlandi, Vesturlandi og vest-
anverðu Norðurlandi. Þá verður
veður ágætt í öðrum landshlut-
um.
Víðast hvar um landið er
greiðfært, skv. upplýsingum
Vegaeftirlitsins. Mosfellsheiði er
þó aðeins fær jeppum og Krýsu-
víkurleið gæti verið erfið fólks-
bílum. Hlýindi og rigning und-
anfarinna daga hafa orðið til
þess, að afar hæpið er að nokkur
maður komist á skíði nærri
byggðum um helgina.
NEW YORK
Ný ljóðabók eftir Kristján Karlsson komin út
MORGUNBLAÐINU hefur borist
svofelld fréttatilkynning frá Al-
menna bókafélaginu.
„Ut er komin hjá Almenna
bókafélaginu ný ljóðabók eftir
Kristján Karlsson. Er þetta þriðja
ljóðabók skáldsins.
Þessi nýja bók er kynnt þannig
á bókarkápunni:
„Um skáldskap Kristjáns Karls-
sonar má segja með sanni að
þannig hafi ekki áður verið ort á
íslensku og eiga slík ummæli ekki
hvað síst við um hina nýju bók
hans, New York. Þarf engum að
blandast hugur um að þarna er á
ferðinni mikill skáldskapur og
gleðilegt vitni um frumleg efnis-
tök og grósku í íslenskri ljóðagerð.
New York er eins konar ljóða-
flokkur, en samband kvæðanna
óþvingað með öllu og form þeirra
margvísleg. Þau eru sjaldnast ein-
föld við fyrstu sýn, jafnvel ekki
þau sem eru annars ljóðrænust. Ef
til vill má hér minna á athuga-
semd höfundarins sjálfs í öðru
sambandi:
„Merking kvæðanna er að finna
í yfirborði þess; það á að vera hús,
sem lesandinn getur gengið um
fram og aftur eða tekið sér bústað
í. Hann kann að reka sig á ókunn-
ugleg húsgögn, en hann þarf ekki
að varast ósýnilega innanstokks-
muni ef hann tekúr fullt tillit til
þess sem kvæði segir berum orð-
um.“
Enginn vafi er á því að útkoma
þessarar sérstæðu ljóðabókar er
viðburður í íslenskri ljóðagerð.
Ljóðin í New York eru 50 að tölu
og bókin er 72 bls. að stærð."
Morgunblaðið sneri sér til
Kristjáns Karlssonar og lagði
fyrir hann nokkrar spurningar í
tilefni af útkomu ljóðabókar hans.
Hann kaus að svara þeim í einu
lagi og fer svar hans hér á eftir:
„Ég veit ekki hvort hægt er að
kalla bókina ljóðaflokk og geri það
ekki. Kvæðin eru með ýmsu móti
og eiga að hafa fulla merkingu
hvert í sínu lagi. Milli nokkurra
persónanna í kvæðunum er sam-
band og þær koma sumar fyrir
aftur og aftur. Jú, það er samræmi
í myndríki kvæðanna, að ég held.
Landsfundi Alþýðubandalagsins:
Guðmundur J. kominn
í pólitískt veikindafrf
— vill fá Þröst Ólafsson í framboð til varaformanns
ÞAÐ var þröngt setinn bekkurinn í kringum sjúkrarúm Guðmundar J.
Guðmundssonar á Landspítalanum sl. miðvikudag, en þar voru saman-
komnir nokkrir forustumenn Alþýðubandalagsins, formaður flokksins og
helztu verkalýðsleiðtogar, m.a. Ásmundur Stefánsson. Samkvæmt heimild-
um Mbl. mun Guðmundur þar hafa ítrekað við gesti sína, að hann vildi fá
Þröst Ólafsson, framkvæmdastjóra Dagsbrúnar, í framboð til varafor-
manns flokksins, en Ásmundur Stefánsson hefur stungið upp á að fulltrúi
verkalýðsins í framboði til þess embættis verði Grétar Þorsteinsson. Guð-
mundur J. mun ákveðinn í að mæta ekki á landsfundi flokks síns um aðra
helgi, nema e.t.v. ef Þröstur fær fylgi í varaformannsframboð og mun
verkalýðsleiðtoginn hafa orðað það svo, að hann eigi lítið erindi á lands-
fund flokks síns „á hlutkesti".
Guðmundur hefur legið á
Landspítalanum í læknisrann-
sókn frá í fyrri viku, en fór heim
í gær. Ekki bað hann þó um að
varamaður hans tæki sæti á með-
an, en það er Ólafur Ragnar
Grímsson. í samtali við blm. Mbl.
í gær, sagðist Guðmundur sam-
kvæmt læknisráði verða að taka
sér hvíld nú frá þingstörfum,
þannig að varamaður tæki sæti
hans, Iiklega nk. þriðjudag. Guð-
mundur sagðist ekki vilja tjá sig
efnislega um deilur hans og
flokksforústunnar. Hann var
spurður, hvort hann ætlaði að
sitja landsfund flokks síns. „Við
skulum segja að ég sé kominn í
pólitiskt veikindafrí," svaraði
hann.
Samkvæmt heimildum Mbl.
mun Guðmund J. óa við þeirri
breytingu sem orðin er á Alþýðu-
bandalaginu í þá átt að fjarlægj-
ast uppruna sinn, eins og hann er
sagður orða það. Á síðustu stóru
samkomu flokksins gekk hann á
dyr og skellti hurðum, eftir að
margir af helstu frammá-
mönnum úr verkalýðsstétt voru
ýmist felldir eða rétt náðu kjöri í
miðstjórn. Þá fengu þessir aðilar
sömu meðferð, er kosnir voru
fulltrúar á komandi landsfund í
Reykjavíkurdeild flokksins ný-
verið og náði Guðmundur J. sjálf-
ur kjöri á hlutkesti eins og Mbl.
hefur skýrt frá. Guðmundur mun
treysta Þresti Ólafssyni bezt
allra manna til að rétta hlut
verkalýðsarms flokksins.
Guðmundur mun m.a. hafa
sagt, að flokkur hans sé orðinn
„kjaftaklúbbur herstöðvaand-
stæðinga og gamalla rauðsokku-
kerlinga", athygli flokksins sé
engin hvað varðar verkalýðs-
hreyfinguna, enda ítök hans þar
ört þverrandi. í framhaldi af því
hefur Guðmundur sagt, að færi
skoðanakönnun nú fram innan
Verkamannasambandsins kæmi í
ljós að Alþýðubandalagið ætti
þar mjög fáa talsmenn.
Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, um komandi samningaviöræður:
Höfuðáhersla lögð á að
lyfta þeim tekjulægstu
Ekki efni til hefðbundinna kauphækkanna, segja vinnuveitendur
EKKI ER búist við því að samninga-
viðræður Alþýðusambands íslands
og Vinnuveitendasambands íslands
hefjist allra næstu daga, að því er
fram kom í samtölum Mbl. við for-
ystumenn þessara samtaka í gær.
Hins vegar kom það fram hjá Ás-
mundi Stefánssyni, forseta ASÍ að í
komandi kröfugerð yrði megin-
áhersla lögð á að bæta kjör þeirra
tekjulægstu, en Magnús Gunnars-
son, framkvæmdastjóri VSÍ, sagði
að ekki væru efni til hefðbundinna
kauphækkana.
Magnús sagði í gær að vinnu-
veitendur myndu ganga til við-
ræðna þegar óskað væri, en ekki
kvaðst hann viss um að viðræður
myndu hefjast í næstu viku.
Ásmundur sagði að ekkert væri
því til fyrirstöðu að hefja samn-
Kristján Karlsson
En fyrir mér sjálfum eru kvæðin
óslitin heild af því, að þau snúast
um tíma og stað og fólk, sem hefir
einangrast í huga mínum. Ég get
ekki giskað á, hvort það samhengi
kemst til skila eða skiptir lesand-
ann máli; hver og einn hefir sína
reynslu af því, hvernig endur-
minningar taka að fara sínu fram
með tímanum, skýrast, renna
saman eða jafnvel búa sig til, án
þess að spyrja leyfis."
ingaviðræður fljótlega, en menn
vildu væntanlega sjá til með
hvernig framvinda mála yrði á Al-
þingi. Hins vegar myndu menn
jafnframt kanna hver viðbrögð
vinnuveitenda kæmu til með að
verða. Hins vegar minnti Ás-
mundur á að vinnuveitendur hefðu
sagt að engin kauphækkun kæmi
til, nema í skiptum fyrir félagsleg
réttindi, en þau réttindi skiptu
það fólk, sem við verst kjörin býr,
miklu máli, þannig að slíkar
lausnir væru ekki raunhæfar.
„Það er ljóst að við munum í okkar
kröfugerð leggja höfuðáherslu á
að lyfta þeim sem tekjulægstir
eru, því að við höfum ótvíræðar
kröfur um það frá okkar fólki,"
sagði Ásmundur Stefánsson.
— Sjá miðopnu.
Albert Guðmimdsson fjármálaráðherra:
Söluskattur af bókum
ekki felldur niður
Gef engar vonir um ad hann falli niður á næsta ári
„SVAR MITT er nei. Þetta er stór tekjuliður á fjárlögum og ég hef ekki
fundið neina leið til sparnaðar á móti. Þá þykir mér ekki líklegt að það
finnist leið til þess að fella þetta niður á næsta ári,“ sagði Albert Guð-
mundsson fjármálaráðherra, er hann var spurður í gær, hvort hann ætlaði að
verða við óskum bókaútgefenda um að fella niður söluskatt af bókum.
Albert sagðist hafa kannað mál- þetta niður verður að finna leið til
ið til hlítar og niðurstaðan væri,
að engin smuga væri til að fella
niður söluskattinn. „Þetta er stór
tekjuliður í núverandi fjárlögum,
eitthvað um 56 millj. kr. Ef fella á
sparnaðar upp á sömu upphæð, en
hún hefur ekki fundist, og ég gef
engar vonir um að hún finnist á
næsta ári,“ sagði fjármálaráð-
herra.
Félagsmálaráðuneytið:
Ekki lagaheimild til að úr-
skurða í máli
Félagsmálaráðuneytið úrskurðaði
í máli Bjarnfríðar Leósdóttur í gær,
og er úrskurðurinn þess efnis að
ráðuneytið telur sig ekki hafa laga-
heimild til þess að skera úr um það
hvort Bjarnfríður sé rétt kjörin í
framkvæmdastjórn Verkamanna-
sambands íslands. Þessar upplýs-
ingar fékk Mbl. hjá Hallgrími Dal-
berg, ráðuneytisstjóra.
Félagsmálaráðuneytinu barst
sl. miðvikudag bréf frá Bjarnfríði
þar sem þess var óskað að ráðu-
Bjarnfríðar
neytið skeri úr um það hvort hún
væri rétt kjörin í framkvæmda-
stjórn Verkamannasambands ís-
lands, en kosning fór fram á þingi
Verkamannasambandsins í Vest-
mannaeyjum nýlega.
Bjarnfríður Leósdóttir, sem er
kennari og jafnframt varaformað-
ur kvennadeildar Verkalýðs- og
sjómannafélags Akraness, sagði í
samtali við Mbl. í gær, að hún
vildi ekki tjá sig um málið fyrr en
hún hefði fengið úrskurð ráðu-
neytisins í hendur.