Morgunblaðið - 12.11.1983, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1983
Peninga-
markaðurinn
GENGISSKRÁNING
NR. 213 — 11. NÓVEMBER
1983
Kr. Kr. Toll-
Ein. Kl. 09.15 Kaup Sala geng'
1 Dollar 28,020 28,100 27,940
1 SLpund 41,701 41,820 41,707
1 Kan. dollar 22,673 22,737 22,673
1 bon.sk kr. 2,9213 2,9296 2,9573
1 Norsk kr. 3,7777 3,7885 3,7927
1 Sarnsk kr. 3,5592 3,5694 3,5821
1 Fi. mark 4,9063 4,9203 4,9390
1 Fr. franki 3,4609 3,4707 3,5037
1 Belg. franki 0,5180 04195 0,5245
1 Sv. franki 12,9782 13,0153 13,1513
1 Holl. gyllini 9,4027 9,4295 9,5175
1 V-þ. mark 10,5313 10,5613 10,6825
1 ÍLBra 0,01737 0,01742 0,01754
1 Austurr. sch. 1,4956 1,4999 1,5189
1 Port esrudo 0,2211 0,2217 0,2240
1 Sp. peseti 0,1821 0,1826 0,1840
1 Jap. yen 0,11928 0,11963 0,11998
1 Irskt pund 32,769 32,863 33,183
SDR. (Sérst.
dráttarr.) 10/11 29,5448 29,6292
1 Belg. franki 04131 04146
>
Vextir: (ársvextir)
Frá og með 21. október 1983
INNLÁNSVEXTIR:
1. Sparísjóðsbækur............32,0%
2. Sparisjóðsreikningar, 3 mán.1).34,0%
3. Sparisjóðsreikningar, 12. mán. 1)... 38,0%
4. Verðtryggðir 3 mán. reikningar. 04%
5. Verðtryggðir 6 mán. reikningar. 14%
6. Ávísana- og hlaupareikningar... 19,0%
7. Innlendir gjaldeyrisreikningar:
a. innstæöur í dollurum.... 7,0%
b. innstæður í stertingspundum. 8,0%
c. innstæöur í v-þýzkum mörkum... 4,0%
d. innstæöur í dönskum krónum.... 7,0%
1) Vextir færðir tvisvar á ári.
ÚTLÁNSVEXTIR:
HÁMARKSVEXTIR
(Verðbótaþáttur í sviga)
1. Víxlar, forvextir........ (27,5%) 304%
2. Hlaupareikningar ....... (28,0%) 304%
3. Afuröalán, endurseljanleg (254%) 29,0%
4. Skuldabréf ............... (334%) 37,0%
5. Vísitölubundin skuldabréf:
a. Lánstími minnst 6 mán. 2,0%
b. Lánstími minnst 2'h ár 24%
c. Lánstími minnst 5 ár 3,0%
6. Vanskilavextir á mán..............4,75%
Lífeyrissjóðslán:
Lifeyristjóður ttarftmanna rikitint:
Lánsupphæð er nú 260 þúsund ný-
krónur og er lániö visitölubundiö meö
lánskjaravisitölu, en ársvextir eru 2%.
Lánstimi er allt aö 25 ár, en getur veriö
skemmri, óski lántakandi þess, og eins
ef eign sú, sem veð er í er lítilfjörleg. þá
getur sjóðurinn stytt lánstímann.
Lífeyrittjóður verzlunarmanna:
Lánsupphæð er nú eftir 3ja ára aölld aö
lifeyrissjóönum 120.000 nýkrónur, en
fyrir hvern ársfjóröung umfram 3 ár
bætast viö lániö 10.000 nýkrónur, unz
sjóösfétagi hefur náö 5 ára aöild aö
sjóönum. Á tímablllnu frá 5 til 10 ára
sjóösaöild bætast viö höfuöstól leyfi-
legrar lánsupphæðar 5.000 nýkrónur á
hverjum ársfjóröungl, en eftir 10 ára
sjóösaöild er lánsupphæðin oröin
300.000 nýkrónur. Eftir 10 ára aölld
bætast viö 2.500 nýkrónur fyrlr hvern
ársfjóröung sem líöur. Þvi er i raun ekk-
ert hámarkslán í sjóönum.
Höfuöstóll lánsins er tryggöur meö
byggingavísitölu, en lánsupphæöln ber
2% ársvexti. Lánstímlnn er 10 til 32 ár
aö vali lántakanda.
Lánskjaravítitala fyrir október 1983
er 797 stig og er þá miöaö við vísltöluna
100 1. júní 1979.
Byggingavísitala fyrir október—des-
ember er 149 stig og er þá miöaö viö
100 í desember 1982.
Handhafaskuldabréf í fasteigna-
viöskiptum. Algengustu ársvextir eru nú
18—20%.
Sjónvarp kl. 21.55
Dauðinn á Níl
Margrét og Hjálmtýr taka lagið og
Anna Guðný leikur undir á píanó.
í kvöld verður á dagskrá sjón-
varpsins þáttur sem nefnist „Það
eru komnir gestir“. Steinunn Sigurð-
ardóttir verður gestgjafi í sjón-
varpssal.
Söngelsk fjölskylda, sem flestir
íslendingar ættu að kannast við,
kemur í heimsókn. Það eru þau
Hjálmtýr Hjálmtýsson, kona
hans, Margrét Matthíasdóttir og
dóttir þeirra Sigrún.eða Diddú
eins og hún er yfirleitt kölluð.
Diddú er nú stödd í Englandi, þar
Sigrún Hjálmtýsdóttir verður einnig
gestur í sjónvarpinu í kvöld.
sem hún leggur stund á söngnám,
en Hjálmtýr og Margrét eru hér á
íslandi. Þau hafa ferðast víða um
landið og skemmt landsmönnum
með söng og hafa þá ýmist sungið
einsöng eða tvísöng. Undirleikari
þeirra í kvöld er Anna Guðný
Guðmundsdóttir.
I þættinum í kvöld taka gestirn-
ir lagið og rætt verður við þau um
söng, lífið og tilveruna. „Það eru
komnir gestir", verður á sjón-
varpsdagskránni klukkan 21.05
Bíómynd kvöldsins er cin af þess-
um spennandi, þar sem áhorfendur
sitja stjarfir fyrir framan skerminn
og naga neglur, klípa sessunautinn í
gríð og erg, eða finna sér annað til
dundurs til að losa spennuna úr lík-
amanum. Mynd þessi nefnist Dauð-
inn á Níl og er gerð eftir samnefndri
sakamálasögu Agöthu Christie.
Dóra Hafsteinsdóttir þýðir
myndina og sagði hún þessa vera í
svipuðum flokki og „Austurlanda-
hraðlestina" og „Skífurnar sjö“,
sem sýndar voru hér ekki alls
fyrir löngu. „Þetta er löng mynd
og mjög vönduð," sagði Dóra.
„Leikararnir eru margir stór-
stjörnur í kvikmyndaheiminum
eins og Bette Davis, Mia Farrow
og Peter Ustinov. Það borgar sig
nú ekki að segja of mikið af sögu-
þræðinum, því sú hætta er fyrir
hendi að maður tali af sér ...
Myndin byrjar á því að ung stúlka,
sem er milljónaerfingi fer á
óðalssetur sitt. Vinkona hennar
kemur í heimsókn og tilkynnir
henni að hún sé nýtrúlofuð. Unn-
ustinn er með fátækara móti og
Leikararnir í bíómynd kvöldsins,
eru ekki af lakara taginu. Hér er
Bette Davis.
hún biður vinkonu sína að taka
hann sem ráðsmann á óðalssetrið.
Hún gerir það og meira til, hún
stelur honum frá vinkonu sinni.
Nú, þau gifta sig og ákveða að fara
í brúðkaupsferð til Egyptalands.
Á leiðinni kemur í ljós að hún á
sér marga óvildarmenn, sem öll-
um finnst þeir eiga eitthvað sökótt
við hana. Nú segi ég ekki meira,
bless!"
„Það eru komnir gestir“
Útvarp kl. 11.20
Hrímgrund
„Hrímgrund“ er nafn sem margir
krakkar og unglingar kannast vid.
„Sumarsnældan" er annað nafn
sem enn fleiri krakkar og unglingar
kannast við.
Þannig er nú mál með vexti, að
umsjónarmenn Hrímgrundar eru
hinir sömu og umsjónarmenn
Sumarsnældunnar, að undanskild-
um einum manni, sem ekki verður
með í Hrímgrundinni í vetur.
Dagskráin byggist að mestu leyti
á því sama og Sumarsnældan, þ.e.
efni fyrir börn og unglinga. Nú eru
allir krakkar byrjaðir í skólanum,
þannig að Hrímgrund er kannski
svolítið „skólalegri" eða vetrar-
legri en Sumarsnældan.
Umsjónarmaður Hrímgrundar í
dag er Sigrún Eyþórsdóttir, en
ekki Sólveig Halldórsdóttir, eins
og stendur í dagskrárkynning-
unni. Hvað um það, best að vinda
sér í dagskrána: f Melaskólanum
standa nú yfir námskeið í hinum
ýmsu tómstundaefnum. Nám-
skeiðin eru haldin að kvöldlagi og
eru þátttakendur nemendur skól-
ans og foreldrar þreirra. Rætt
verður við Karl Rafnsson, sem
hefur umsjón með námskeiðunum.
Einnig verður spjallað við þátt-
takendur auk þess sem leiklistar-
hópur úr áðurnefndu námskeiði
leikur hluta úr verkefni, sem hann
er að vinna að.
Kynnir Hrímgrundar í dag er
Páll Óskar Hjálmtýsson. Sigrún
Eyþórsdóttir sagði að krakkar,
sem hefðu áhuga á að kynna í
Frá tómstundanámskeiði í Mela-
skóla.
þættinum væru vinsamlega beðnir
að skrifa til Hrímgrundar og láta
vita af sér. „Við höfum alltaf
símatíma á meðan útsending
stendur yfir,“ sagði Sigrún. „Sím-
tölin eru eini tengiliðurinn við
hlustendur, sem við höfum kost á,
nema bréfin. Annars finnst mér
að krakkarnir mættu alveg vera
duglegri að skrifa okkur bréf. Það
er svo gaman að fá bréf þar sem
krakkarnir segja frá öllu sem
þeim dettur í hug.“ Heyriði það
krakkar! í dag ætlar ung stúlka,
Jóhanna Jafetsdóttir, einmitt að
lesa bréf sem hún sendi þættinum
fyrir skömmu. Sigrún sagðist
reyna að fá krakkana sjálfa til að
koma og lesa bréfin sín, ef þau
væru þess efnis, að hægt væri að
hafa þau sem hluta af dagskránni.
Að lokum verður tónlist í þætt-
inum. Það er Páll óskar sem velur
tónlistina í dag og hann syngur
meira að segja eitt lag sjálfur. Það
er Óskasöngurinn úr leikritinu
Gúmmí-Tarsan, sem hann syngur,
en Páll leikur einmitt Gúmmí-
Tarsan í leikritinu.
Hrímgrund verður útvarpað
klukkan 11.20, þannig að það þýðir
ekkert að vera svefnpurka í dag!.
Útvarp Reykjavík
L4UG4RD4GUR
12. nóvember
MORGUNNINN______________________
7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn.
Tónleikar. Þulur velur og kynn-
ir. 7.25 Leikfimi. Tónleikar.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veð-
urfregnir. Morgunorð — Jón
Helgi Þórarinsson talar.
8.30 Forystugr. dagbl. (útdr.)
Tónleikar.
9.00 Fréttir, tilkynningar, tón-
leikar.
9.30 Óskalög sjúklinga. Helga Þ.
Stephensen kynnir.
(10.10 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir).
Óskalög sjúklinga, frh.
11.20 Hrímgrund
Stjórnandi: Sólveig Halldórs-
dóttir.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.50 Listalíf
llmsjón: Sigmar B. Hauksson.
SÍODEGID_________________________
15.00 Evrópukeppni bikarhafa í
handknattleik. Hermann Gunn-
arsson lýsir síðari hálfleik KR
og Berchem frá Luxemburg í
Laugardalshöll.
15.50 Tónleikar
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veð-
urfregnir.
16.20 íslenskt mál
Ásgeir Blöndal Magnússon sér
um þáttinn.
16.30 Nýjustu fréttir af Njálu
Umsjón: Einar Karl Haralds-
son.
17.00 Síðdegistónleikar:
Sinfóníuhljómsveit útvarpsins í
Miinchen leikur „Leónóru",
forleik nr. 2 eftir Ludwig van
Beethoven. Eugen Jochum
stj./Benny Goodman og Sin-
fóníuhljómsveitin í Chicago
leika Klarínettukonsert nr. 1 í
f-moll op. 73 eftir Carl Maria
von Weber. Jean Martinon
stj./Sinfóníuhljómsveitin í Bost-
on leikur Sinfóníu nr. 8 í h-moll
SKJANUM
LAUGARDAGIJR
12. nóvember
16.15 Fólk á förnum vegi.
(People You Meet).
2. Málverkið.
Enskunámskeió í 26 þáttum.
16.30 íþróttir.
Umsjónarmaður lngólfur Hann-
esson.
18.30 Innsiglað með ástarkossi.
Annar þáttur.
Breskur unglingamyndaflokkur
í sex þáttum.
Þýðandi Ragna Ragnars.
18.55 Enska knattspyrnan.
Umsjónarmaður Bjarni Felix-
son.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Ættaróðalið.
Annar þáttur.
Breskur gamanmyndaflokkur í
sex þáttum.
Þýðandi Guðni Kolbeinsson.
21.05 Það eru komnir gestir.
Steinunn Sigurðardóttir tekur á
móti gestum í sjónvarpssal. Þeir
eru hjónin Margrét Matthías-
dóttir og Hjálmtýr Hjálmtýsson
og dóttir þeirra Sigrún Hjálm-
týsdóttir.
Steinunn ræðir við gestina milli
þess sem þeir syngja innlend og
erlend lög. Við píanóið er Anna
Guðný Guðmundsdóttir.
Upptöku stjórnaði Tage Amm-
endrup.
21.55 Dauðinn á Níl.
(Death on the Nile).
Bresk bíómynd frá 1978 gerð
eftir sakamálasögu eftir Agöthu
Christie. Leikstjóri John Guill-
ermin. Aðalhlutvcrk: l’eter Ust-
inov, Bette Davis, David Niven,
Mia Farrow og Angela Lans-
bury.
Leynilögreglumaðurinn víð-
kunni, Hercule Poirot er á ferð
í Egyptalandi og tekur sér far
með Djótabáti í skoðunarferð á
Níl. En ekki líður á löngu áður
en dularfullir atburðir gerast og
í Ijós kemur að morðingi leynist
í farþegahópnum.
Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir.
00.15 Dagskrárlok.
eftir Franz Schubert; Eugen
Jochum stj.
18.00 Af hundasúrum vallarins
— Einar Kárason.
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
KVÖLDID_________________________
19.35 Enn á tali
Umsjón: Edda Björgvinsdóttir
og Helga Thorberg.
20.00 Ungir pennar. Stjórnandi:
Dómhildur Sigurðardóttir
(RÚVAK).
20.10 Útvarpssaga barnanna:
„Peyi“ eftir Hans Hansen
Vernharður Linnet lýkur lestri
þýðingar sinnar (7).
20.40 í leit að sumri
Jónas Guömundsson rithöfund-
ur rabbar við hlustendur.
21.15 Á sveitalínunni
Þáttur Hildu Torfadóttur, Laug-
um í Reykjadal (RÚVAK).
22.00 Úr bókinni „36 ljóð“ eftir
Hannes Pétursson
Hjalti Rögnvaldsson les.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.35 Harmonikuþáttur
Umsjón: Högni Jónsson.
23.00 Kvartett Garry Burtons
á tónleikum í Gamla Bíói í maí í
vor. Vernharður Linnet kynnir
síðari hluta.
24.00 Listapopp
— Þáttur Gunnars Salvarsson-
ar.
00.50 Fréttir. Dagskrárlok.