Morgunblaðið - 12.11.1983, Side 9

Morgunblaðið - 12.11.1983, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1983 9 itomgOsí máD Umsjónarmaður Gísli Jónsson í beinu framhaldi af síðasta þætti og svo sem til frekari áherslu, tilfæri ég hér úr Bókmenntum Hannesar Pét- urssonar það sem þar segir undir orðinu alþýðuskáldskap- ur: „Alþýðuskáldskapur nefnist í venjulegum skilningi sú vísna- og kvæðagerð almenn- ings í landinu, sem er tækifær- isbundin, óbókleg, einnig þjóð- kvæði og rímur. Stundum eru mörkin dregin þannig, að al- þýðuskáldskapur kallast það, sem ort er af leikum en ekki lærðum, en sú skilgreining er óglögg, því leiðir féllu saman í vísnagerð og rímnakveðskap t.d., þar eð báðir aðilar lögðu stund á þær greinar. Það er ekki fyrr en eftir siðaskipti, að ástæða þykir til að greina á milli lærðra og leikra í íslenskum bókmennt- um. Sjálfsmenntun sumra leikra manna dró þó úr munin- um á þeim og lærðum mönnum og gerði hann stundum, þegar lengra leið, næsta litinn (Bólu-Hjálmar, Stephan G. Stephansson)." Fyrir mér eru Bólu-Hjálmar og Stephan G. bæði alþýðu- skáld og þjóðskáld. Kem ég þá nánar að orðinu þjóðskáld samkvæmt fyrra fyrirheiti. í orðabók Menningarsjóðs er þjóöskáld skýrt: „höfuðskáld, skáld sem (öll) þjóðin ann og metur.“ Blöndalsorðabók: „fremragende Digter, Nation- aldigter." Áður en lengra er haldið, þykir mér rétt að gera grein fyrir þvi, að í orðum, sem sam- sett eru með þjóð að fyrra lið, er tvennt til. Þjóð getur táknað eitthvað gott, sbr. gotnesku þiuþ = góður, þiuþeigs = bless- aður, og þjóð getur táknað heildina, fólkið allt, gotn. þiuda = fólk, þiudan-gardi = (konungs)ríki, lat. totus = all- ur, e. total. Líklega merkir þjóðráð gott ráð, heillaráð, þótt sjálfsagt gæti það táknað ráð sem allri þjóðinni hentaði. Þjóðsaga og þjóðerni eru vafalaust mynduð af þjóð í síðargreindu merking- unni. Eftir skilgreiningum orða- bóka ætti þjóðskáld þá að vera þjóðarskáld, þótt auðvitað sé það gott skáld líka. Svo segja skilríkir menn, svo sem sr. Sigurður Stefánsson, að dr. Magnús Stephensen há- yfirdómari m.m. hafi fyrstur manna gefið fyrsta manni sæmdarheitið þjóðskáld. Það var sr. Jón Þorláksson á Bæg- isá. Á titilblaði Paradísarmissis stóð og: Á íslensku snúinn af þjóðskáldi Islendinga, Jóni Þorlákssyni. Sr. Pétur Pétursson á Víði- völlum í Skagafirði, kvað eftir Jón: Scraí lægsti sig má vara, söngva þegar kemur í skara þjóðakáldið Jón l'orláksson. Ef hann hafdi engils tungu yfír kleddur dufti þungu: Hvers mun sídar vera von? Jónas Hallgrímsson hefur augljóslega skilið orðið þjóð- skáld í merkingunni þjóðar- skáld, höfuðskáld, þegar hann minntist Bjarna Thoraren- sens: Kættir þú margan að mörgu, svo minnst verður lengi, þýðmennið, þrekmennið glaða og þjóðskáldið góða. Skal svo ekki fjölyrt um þjóðskáld að sinni. * í bréfi Eggerts Ásgeirsson- ar, sem fyrr hefur verið til vitnað, var þessi eftirskrift, og er ég honum öldungis sam- mála: „Ég hef þá skoðun að venjan að skrifa dagsetningar t.d. 06. 09. 83 sé þannig til komin að það lítur betur út í uppsetn- ingu bréfa með mörgum dag- setningum að tölurnar stand- ist á í dálkum." Smekkur minn er hins vegar slíkur að hann býður mér að hafa ekki núllið þarna samræmisins vegna. * Við auglýsinga- og fréttamál höfum við Þórir Áskelsson á Akureyri þetta að athuga nú um sinn: 1. Okkur þykir böngulegt að kjósa undirbúningsnefnd til að undirbúa mál. Nægilegt 217. þáttur ætti að vera að kjósa nefnd til að undirbúa það. 2. Rjúpnabringur þykir okkur betra orð en rjúpubrjóst, þegar sagt er frá veislukosti Grænhöfðingja og annars mikilmennis á Akureyri. Þarfnast það varla skýringa né rökstuðnings. 3. Okkur þykir ekki smekklegt að tala um eða auglýsa jóla- kort í neytendaumbúöum. Erum jafnvel ekki alveg vissir um hvað átt sé við. 4. Okkur þykir það bera vott um sagnfælni að segja í fréttum frá þorski, sem „er í veiði", í staðinn fyrir þorski sem veiðist. Kristjáni frá Djúpalæk þykir að vonum undarlegt að sjá orðið vetrarskammdegi í auglýsingu. Hann heldur, og það halda fleiri, að skammdegið sé býsna háð vetrinum. Þá þykir um- sjónarmanni ástæða til að vekja athygli á nýyrði hans góðsteinn. Þetta orð notaði hann, þegar hann sagði frá steinasafni Ágústs Jónssonar. Orðið er svo eðlilegt, sbr. góðmálmur, góðvilji, góðhestur, að það ber ekki á sér þjalarför eða hamarshögg sumra ný- smíða málsins. * í blöðum fyrir skemmstu át hver eftir öðrum að hrútakjöt væri „nánast óseljanlegt og því myndi sláturhúsið (K.Þ.) ekki greiða fullt verð fyrir slíka dilka“ (leturbreyting hér). Ekki er ljóst hvaðan röng notkun orðsins dilkur í þessu sambandi er upprunnin, en rúmsins vegna bíður frekara dilkatal næsta þáttar. Gefst ykkur þá líka færi á að segja til um hvað þið teljið að dilkur sé í eiginlegri merkingu. P.S. Ekki þarf fullorðna menn til þess að búa til skemmtileg ný- yrði. Meðfram vegum má víða sjá stafi sem lýsir af í myrkri. Slíka stafi nefndi þriggja ára stúlka, Þórhildur Sigurðar- dóttir Briem í Reykjavík, vega- kerti. Fasteignasala — Bankastræti SÍMI 29455 — 4 LÍNUR Opiö í dag 1—4 Stærri eignir Vesturberg Einbýli á góöum staö. Kjallari. hœö og ris. Ca. 250 fm. Sóríbúö í kjallara. Stór lóö sem hægt er aö skipta i tvennt og byggja hus fyrlr nokkrar íbúöir á annarri lóöinni. Miklir möguleikar. Telkn. á skrifstofu Akv. sala. Tjarnarbraut — Hafn. Einbýli ásamt bílskúr á fallegum staö. Húsiö er traust steinhús á 2. hæöum. Gunnflötur ca. 70 fm. Mögulegt aö skapa innréttingar eftir eigin höföi. Ákv. sala. Verö 2,3 millj. Meistaravellir Góö ca. 145 fm íbúö á 4. hæö ásamt 24 fm bílskúr. Stofa, herb. eöa boröstofa, eldhús meö búri og þvottahús ínnaf. Og á sér gangi 3 svefnh. og gott baöherb. Góö eign á góöum staö. Ákv. bein sala. Verö 2,1—2,2 millj. Blómvangur Hf. Glæsileg ca. 150 fm efri sérhæö ásamt 25 fm bílskúr. samliggjandi stofur, 4 herb., búr geymsla og þvottahús innaf eldhúsi, fataherb. innaf hjónaherb. Stórar suöur- og vestursvalir. Mjög góöar innréttingar. Ákv. sala Verö 2,9 millj. Garðabær Ca. 90 fm nýlegt raöhús á 2 hæöum. Níöri er stofa, eldhús og baö. Uppi: stórt herb. og geymsla. Bílskúrsréttur. Verö 1800 þús. Laxakvísl Ca. 210 fm raöhús á tveimur hæöum, ásamt innb. bílskúr. Skilast fokhelt. Niöri er gert ráö fyrir eldhúsi meö búri, stofum og snyrtingu. Uppi 4 herb., þvottahús og baö. Opinn laufskáli, góö staösetning viö Árbæ. Verö 2 millj. Miðvangur — Hf. Endaraöhús á tveim hæöum 166 fm ásamt bílskúr. Niöri eru stofur, eldhús og þvottahús. Uppi 4 svefnherb. og gott baöherb. Teppi á stofum. Parket á hinu. Innangengt í bílskúr. Verö 3—3,1 millj. 4ra—5 herb. íbúðir Melabraut Rúmgóö ca. 110 fm íbúö á jaröhasö í þríbýli. 3 svefnherb. og 2 stofur. Gott eldhús meö parketi á gólfi. Verö 1550 þús. Eskihlíð Ca. 120 fm íbúö á 4. hæö. 2 stórar stofur 2 rúmgóö herb. Gott aukaherb. í risi. Nýtt gler. Danfoss hiti. Verö 1650—1700 þús. Skaftahlíð Ca. 115 fm íbúö á 3. hæö í góöri blokk. Mjög stórar stofur, 3 svernherb. HaBgt aö taka viöbótarherb. af stofu. Mjög góö sameign. Ákv. sala. 3ja herb. íbúðir Laugavegur Ca. 80 (m ibúð á 3. hæð í steinhúsi með timburínnréttingum. 2 góðar stofur, 1 svefnherb. og gott baöherb. ibúðin er uppgerð með viöarklæöningum og parketi. Verð 1200 þús. Engjasel Mjög góö ca. 96 fm ibúö á 1. haBÖ. Góöar innréttingar. Rúmgóö íbúö. Verö 1450 þús. Nýbýlavegur Ca. 90 fm íbúö á 1. hæö í 5 íbúöa steinhúsi. 3 herb., stofa, eldhús, sér- geymsla eöa þvottahús. Sérinngangur. Góöar innréttingar. Ákv. sala. Verö 1300—1350 þús. Hverfisgata Ca. 85 fm góö íb. á 3. hæö í steinhúsi. Ekkert áhvílandi. Laus fljótlega. Ákv. sala. Verö 1100 þús. Hörpugata Ca. 90 fm miðhæð í þríbýli. Sér inng., tvær stofur og stórt svefnherb. Ákv. sala. Verð 1300—1350 þús. 2ja herb. íbúðir | Hamrahlið Ca. 50 fm mjög góö ibúð á jarðhæð i blokk beint á móti skólanum. 1 herb., stofukrókur. Stórt og gott baöherb. Geymsla inní íbúðinni. Sérinng. ibúöin er öll sem ný. Ákv. sala. Verð 1200 þús. Gaukshólar Ca. 65 fm góð ibúö á 1. hæð í lyftu- blokk. Góöar innréttingar. Parket á gólfi, góð sameign. Verð 1150—1200 þús. Möguleg skipti á 3ja herb. í Bökk- unum eða Háaleiti. Blikahólar Ca. 60 fm íbúö á 6. hæð i lyftublokk. Góðar innréttingar. Suöursvalir. Akv. sala. Verö 1150 þús. Friðrik Stefánsson viöskiptafræðingur. iEgir Breiöfjörð sölustj. .1 Opið í dag kl. 13—16 Setjendur: Á fyrstu 6 mánuöunum eru eftirfarandi greiöslur mögulegar í þá eign sem viö óskum eftir: Viö samning . kr. 500.000 I janúar....kr. 200.000 I mars......kr. 350.000 í maí.......kr. 300.000 Þaö sem viöskiptavinur okkar óskar eftir er: 1. Sérhæð í austurbæ. 2 Raöhús í Breiöholti. 3. Fokhelt sérbýli. Hringiö í dag á milli kl. 13—16 og fáiö nánari upplýsingar. EFT1RFARANDI EIGNIR ERU í SÖLU HJÁ OKKUR: Hraunbær — 2ja herb. ibúöin er í kjallara en björt. Hún er ósamþ. af því að þaö vantar geymslu. Verð 850 þús. Vesturbraut í Hafnarfiröi 2ja herb. samþ. íbúð á 1. hæð. íbúöin er nýuppgerð. Verö 950 þús. Laugavegur Litil falleg íbúð í bakhúsi við Laugaveg. Verð 1 millj. Seljavegur — stúdíóíbúð Nýuppgerð rísibúö vestast í vesturbænum. Verð 1.050 þús. Veghúsastígur tilb. undir tréverk 120 tm íbúö á tveim hæöum í steinhúsi. Lyklar á skrifst. 3ja herb. íbúö í Kópavogi Góö íbúð á 1. hæð í blokk við Ásbraut. Verð 1,4 millj. 3ja herfo. sérhæð í Bústaöahverfi ibúöin er á 1. hæð við Hæöargarð. Garður. Verð 1,5 millj. Leirubakki — 4ra herb. Ibúöin er 110 tm. Tómstundaherb. í kjallara. Búr og þvottahús innaf eldhusi. Verð 1,7 millj. Melabraut — 4ra herb. 110 fm sérhæö á jarðhæð. Verð 1.550 þús. Sérhæð í Kópavogi ibúðin er á 1. hæð og fyigir góður bilskur. Verð 2,5 millj. Sólvallagata — parhús Sórbýii, 2 hæðir og kjallari með bílskúr. Góðir greiðsluskilmálar. Verö 2,9 millj. Nýtt í miðbæ — steinhús ibúöin-er þakhæö um 80 fm og veröur skilað tilb. undir tréverk. Verð 1,4 millj. VERÐMETUM Olafur Geirsson, viöskiptafræöingur. SAMDÆGURS Guðni Stefánsson, heimasími 12639. 29766 HVERFISGÖTU 49

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.