Morgunblaðið - 12.11.1983, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1983
23
Frá útfór Galmans. Til vinstri er móðir hans yfirbuguð at sorg.
Meintur morðingi Aquinos jarðaður:
Sem hetja væri
til moldar borin
Manila, FilipNeyjum. II. nóvember. AP.
ROLANDO Galman, sá er stjórn-
völd á Filipseyjum segja hafa ráðið
stjórnarandstöðuleiðtogann Benigno
Aquino af dögum, var til moldar bor-
inn í gær og fylgdi slíkt fjölmenni
honum að ætla hefði mátt að hetja
væri borinn til grafar.
Opin kista Galmans var borin
með viðhöfn um götur Manila áður
en haldið var út í kirkjugarðinn,
hinn sama og Aquino hvílir nú í.
Þúsundir manna fylgdust með og
nokkur hundruð fylgdu honum til
grafar. Utan á byggingar höfðu
verið hengdir borðar og á þá ritað
að Gaiman væri saklaus, hann
hefði ekki verið morðinginn, held-
ur fórnarlamb annarra sem hefðu
í raun myrt stjórnarandstöðuleið-
togann.
Reynaldo, tíu ára gamall einka-
sonur Galmans, fylgdi föður sín-
um með ömmu sinni, móður Gal-
mans. Voru þau ákaft hyllt. Sner-
ist útförin upp í að vera mótmæla-
aðgerðir gegn stjórn Ferdinands
Marcosar. Lupino Lazaro, lögfræð-
ingur Galman-fjölskyldunar
sagði, að viðbrögð fólksins hefðu
verið með þessum hætti, því það
vissi að Galman var saklaus. Hann
sagði jafnframt, að‘ eiginkona
Galmans væri í felum þar eð hún
óttaðist um iíf sitt.
Treysta ekki
stjórnarhernum
Banjrkok, Thailandi. 11. nóvember. AP.
Utvarpsstöö kambódísku
rauðu khmcranna greindi frá
því í gær, að síðan í septem-
ber, hefðu hermenn Víetn-
ama handtekið 400 kambód-
íska stjórnarhermenn, þar á
meöal offursta, í héraði
nokkru í suðausturhluta
Kambódíu.
Víetnamar komu á fót núver-
andi stjórn Kambódíu, undir for-
saeti Hengs Samrins. Umrædd-
um hermönnum er gefið að sök
að hafa átt vinsamleg samskipti
við kambódíska skæruliða og að
sögn útvarpsstöðvarinnar, van-
treysta Víetnamar í vaxandi
mæli kambódíska stjórnarhern-
um.
Að sögn rauðu khmeranna,
hafa vandræðin staðið síðan í
maí og í allt hafi hundruð her-
og embættismanna ýmist gerst
liðhlaupar eða verið handteknir
fyrir að leika tveimur skjöldum.
í sömu útvarpsfregn rauðu
khmeranna var þess getið, að
Sovétmenn væru að hefja bygg-
ingu fjarskiptastöðvar í Phnom
Phen, höfuðborg Kambódíu og
20 hópar sovéskra „ráðgjafa og
sérfræðinga" væru í landinu að
vinna að uppbyggingu efnahags-
lífsins.
Afganistan:
Eldflauga-
árás gerð
á sendiráð
og ráðuneyti
Nýja Delhi, 11. nóvember. AP.
ÞÆR FREGNIR hafa borist frá
ferðamönnum sem komið hafa frá
Afganistan, að frelsissveitir hafi
gengist fyrir mikilli eldflaugaárás á
afganska varnarmálaráðuneytið,
sovéska sendiráðið og íbúðarhverfi
sovéskra herforingja og ráðgjafa í
höfuðborginni Kabúl fyrir skömmu.
Saed Mohammad Maiwad útlaga-
leiðtogi hafði fregnina eftir umrædd-
um ferðamönnum.
Fregnirnar herma, að fjórir afg-
anskir ráðuneytisstarfsmenn hafi
látið lífið i árásinni, en um
manntjón í sovéska sendiráðinu og
íbúðarhverfinu var minna vitað,
en all nokkrir munu hafa særst.
Einu dauðsföllin voru í ráðuneyt-
isbyggingunni. Fregnir af þessum
atburði voru að öðru leyti mjög
ónákvæmar.
Samþykkt að
borga verka-
menn úr landi
Bonn, 11. nóvember. AP.
V-ÞÝSKA þingið samþykkti í
gærkvöld umdeilt frumvarp, þar
sem erlendum verkamönnum eru
boðin 10.500 mörk (um 111.000
ísl. krónur) fyrir að flytja heim á
ný. Fyrir hvern barn, sem verka-
mennirnir taka með sér heim, fá
þeir 1500 marka aukagreiðslu.
Frumvarpi þessu er einkum ætl-
að að draga úr atvinnuleysi í land-
inu. Meira en 2,7 milljónir manna
eru nú án vinnu og svarar það til
þess að tæp 9% atvinnufærra
manna séu atvinnulaus. Tíundi
hluti atvinnulausra er útlend-
ingar.
Að sögn atvinnumálaráðherra
landsins, Norbert Blúm, er gert
ráð fyrir að um 20.000 erlendir
verkamenn muni taka þessi tilboði
stjórnarinnar strax á næstu vik-
um og mánuðum. Þetta boð um
10.500 mörk mun standa til 30.
september 1984.
2000 ára keisara-
grafhýsi fundið
Peking, 11. nóvember. AP.
HÚSASMIÐIR nokkrir í kín-
versku borginni Canton, hafa
fundið rúmlega 2.000 ára gamla
gröf keisara í húsagrunni í borg-
inni. Kínverska fréttastofan
Xinhua greindi frá fundinum og
sagði líkamsleifarnar hvfla í jaðe-
kistu með sex sverð sér við hlið.
Nær væri að segja um smá-
grafhýsi væri að ræða, því um
sex hólfa jaðekistu er að ræða.
Tvær kistur virðast hafa verið
inni í aðalkistunni, en eru nú
ekkert annað en duftið. Gull-
innsigli með drekalöguðu hand-
fangi staðfestir að um grafkistu
Wen II, keisara af Nanyue er að
ræða, en hann ríkti um það bil
200 árum fyrir Krist. Var Nany-
ue keisaradæmi í 93 ár.
Auk sverðanna sex fannst í
gröfinni heilleg stálbrynja,
rúmlega 500 smáhlutir úr bronsi,
200 úr jaðe, auk fjölda hluta úr
silfri, fílabeini, viði og bambus.
Diskar, pottar, drykkjarföng,
leifar af silkifötum, auk beina af
hænsnum, svínum, fiskum, naut-
um og skjaldbökum mátti einnig
sjá meðal grafarmunanna. Einn-
ig má geta döðlusteina og skelja.
Nokkuð er síðan að gröf Wens
keisara fannst og hafa kínversk-
ir fornleifafræðingar verið að
rannsaka gögnin og flokka þau.
Þykir fundurinn með hinum
merkilegri á síðari árum.
■■■ ■
Nú kemur
Kalmar
r
,l”"” ftjwÁsí*
Nú geta allir eignast Kalmar-innréttingu á viðráðanlegu
verði og fengið hana afgreidda og uppsetta á stuttum tíma.
OG ÞAÐ SEM MEIRA ER.
Meö því aö panta
FYRIR 15. NÓV. SPARAR ÞÚ 10%
/ nýju Kalmar-innréttingunum sameinast nútíma þægindi,
skemmtileg hönnun og síðast en ekki síst hagstætt verð.
Ekki missa af því. Þú getur sparað 10%.
BAÐSKÁPAR - ELDHÚSINNRÉTTINGAR
Kalmar
SKEIFAN 8 - 108 REYKJAVlK - SlMI 82011
1 1 1 - ----
- FATASKÁPAR