Morgunblaðið - 12.11.1983, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1983
27
Úr hinu nýja þýska safni.
Nýtt þýzkt bókasafn opnar
í GÆR opnaði Goethe-Institut,
menningarstofnun Sambandslýð-
veldisins Þýskalands með aðalaðset-
ur í Miinchen, nýtt útibú á íslandi
undir nafninu „Þýska bókasafnið —
Goethe-Institut“, sem verður til
húsa í Tryggvagötu 26. Aðalritari
stofnunarinnar, dr. Horst Harnisch-
feger, mun vera viðstaddur opnun-
ina.
Forstöðumaður Þýska-bóka-
safnsins verður dr. Coletta Burl-
ing, en henni til aðstoðar er Lotte
Gestsson. I safninu eru u.þ.b. 6000
bækur, og auk þess eru þar tíma-
rit, blöð, plötur, segul- og mynd-
bönd og allskonar kennslugögn
fyrir þýskukennara. Safnið verður
áfram miðstöð fyrir þýskudeild
Háskóla íslands, og sendikennar-
inn Jurgen von Heymann mun
hafa þar aðsetur.
Ýmislegt er á döfinni hjá safn-
inu og má nefna að á dagskrá
bókasafnsins verða á næstunni
annarsvegar lestrarkvöld með
Jóni Laxdal, þar sem hann les
bæði úr verkum sínum og þýðing-
um á íslenskum bókmenntum, og
hinsvegar frumflutningur leikrits
eftir Rainer Werner Fassbinder,
sem Sigrún Valbergsdóttir þýddi
og hópur íslenskra leikara undir
stjórn hennar hefur sett á svið.
Bíóbær efnir til
ritgerðasam-
keppni um myndina
Línu Langsokk
BÍÓBÆR hefur um þessar mundir
helgarsýningar á kvikmyndinni
Lína langsokkur og hefur ákveðið
að efna til ritgerðarsamkeppni
fyrir gesti bíósins um efni mynd-
arinnar. Verða veitt verðlaun fyrir
tíu bestu ritgerðirnar, en skila-
frestur er 15. desember.
Eitt verka Guðrúnar Elísabetar á sýningunni.
Guörún Elísabet Halldórsdóttir
sýnir í Gallerí Lækjartorgi
LAUGARDAGINN 12. nóvember opnar Guðrún Elísabet Halldórsdóttir,
málverkasýningu í Gallerý Lækjartorg, Hafnarstræti 20—22.
Guðrún Elísabet lærði teikn-
ingu, meðferð vatnslita og pastel-
lita hjá Unni Briem í 6 ár. Hefur
síðan sótt ýmis námskeið t.d. í
teikningu hjá Handíða- og mynd-
listaskólanum og Lasalle Extens-
ion University í Bandaríkjunum
1974. Auk þess dvalið mánuðum
saman erlendis og farið í fjöl-
margar kynnisferðir á myndlista-
söfn og sýningar bæði í Evrópu og
Bandaríkjunum. Hefur aðallega
málað olíumálverk síðan 1972, en
einnig málað bæði á tré og postul-
ín.
Guðrún Elísabet var með einka-
sýningu í Hamragörðum 1977, tók
þátt í sýningunni Listiðn íslenskra
kvenna að Kjarvalsstöðum í
febrúar 1980 og var með einkasýn-
ingu í Norræna húsinu í júní 1980.
Sýning Guðrúnar Elísabetar í
Gallerý Lækjartorgi verður opin
dagana 12.—20. nóvember, mánu-
dag, þriðjudag og miðvikudag frá
kl. 4—7. Fimmtudag til sunnudags
frá kl. 4-10.
Myndlistar-
sýning í
Asmundarsal
BJÖRGVIN Björgvinsson opnar
myndlistarsýningu í Ásmundarsal,
laugardaginn 12. nóvember klukkan
14.
f Björgvin stundaði nám í Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands
1975—79 og Byam Show School of
Art í London 1980—81 og í Uni-
versity of Arts of Belgrade
1981-82.
Á sýningunni eru 6 collage-
myndir og 14 myndir gerðar með
blandaðri tækni. Sýningin verður
opin frá 12. til 20. nóvember frá
klukkan 16 til 22 virka daga, en
frá klukkan 14 til 22 um helgar.
Opiö á laugardögum
Bifreiðaeigendur
Höfum opið á laugardögum frá kl. 8—18.40.
Bón og þvottastöðin,
Sigtúni 3.
Basar
Okkar árlegi basar er
aö Hallveigarstöðum í
dag kl. 14.00. Úrval
muna til jólagjafa —
kökur, lukkupakkar og
happdrætti.
Kvenfélag Fríkirkjunnar í Reykjavík.
Skeljungsbúðin
30 LTR. VATNS- OG RYKSUGA Á
EINSTÖKU VERÐI AÐEINS KR. 4.746.00
EINHELL „SOGMEISTARINN”
SÝGUR FLEST SEM FYRIR ER
SíÖumúla33
símar 81722 og 38125
/
Happdrætti
Sjálfstæðisflokksins
Afgreiðsla í Valhöll, Háaleitisbraut 1,
er opin í dag kl. 9—19. Sími 82900.
Sækjum greiðslu
heim ef óskað er.
Vinsamlega gerið skil
sem allra fyrst.