Morgunblaðið - 12.11.1983, Blaðsíða 48
Bítlaæðið
BEOADNíÍ
á
HOUJWOOD
Opiö
öll Rvöld
LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1983
VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR.
Rækjuveiðar f Isafjarðardjúpi stöðvaðar:
Atvinnuleysi
vofir yfir tvö
hundruð manns
ATVINNULEYSI vofir nú yfir um tvö hundruð mann.s í landi vegna stöðvunar
rækjuveiða í ísafjarðardjúpi auk þess, sem bið verður á því, að sjómenn geti sótt
aflamark sitt. Veiðarnar voru stöðvarar vegna seiðagengdar á miðunum og
síldar og loðnu í aflanum. Líkur eru taldar á því, að veiðar verði ekki heimilaðar
að nýju fyrr en um áramót. Til þessa hafa nálægt 300 lestum af rækju borizt á
land úr Djúpinu, en veiðar hófust 28. október.
Halldór Ásprímsson, sjávarút-
vegsráðherra, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að þetta ástand væri
mjög alvarlegt, sérstaklega fyrir
fólkið í landi, en það gætu verið um
200 manns, sem atvinnu hefðu við
rækjuvinnsluna. Þetta gerði minna
til fyrir bátana, þar sem þeir héldu
Sex ára barn
la í ongviti
eftir að sniffa
„Ég varð fyrir miklu áfalli í sumar.
Fagurt sumarkvöld vann ég fram-
eftir í versluninni og á bak við
verslunina kom ég að sex strákum
í öngviti, froðufellandi — sá yngsti
6 ára. Ég hélt að sá yngsti væri að
deyja og hringdi umsvifalaust í
sjúkrabifreið og lögreglu," segir
Jón Sveinsson, eigandi málninga-
verslunarinnar Lækjarkot í sam-
tali við Mbl.
Daglega komu ungmenni, pilt-
ar og stúlkur til þess að kaupa
þynni og upplausnarefni. Hann
hefur hætt að selja ungmennum
þessi efni, því þau notuðu þau til
þess að komast í vímuástand
með því að hella til að mynda
þynni í plastpoka og lúta höfði í
pokann. Viðbrögðin við banninu
voru þau, að bíll hans var
skemmdur og krotað á veggi
verslunar hans.
Sjá miðopnu: Sex strákar lágu í
öngvjtj, froðufellandi — sá yngstí
sex ára.“
aflamarki sínu þrátt fyrir þetta, að-
eins yrði dráttur á, að þeir næðu
því. Þegar svona mikið af seiðum
gengi á miðin væri ekki hægt að
horfa upp á það, að þau væru öll
drepin og þannig gengið á framtíð-
ar forðabúr þjóðarinnar. Ákvörðun,
sem þessi væri erfið, en óhjákvæmi-
leg. Mikilvægt væri að allur al-
menningur gerði sér grein fyrir
þessu.
Pétur Bjarnason, veiðieftirlits-
maður, sagði að í ljós hefði komið
að seiðamagn væri ofan þeirra
marka, sem Hafrannsóknastofnun
setti. I framhaldi þess hefði sjávar-
útvegsráðuneytið tekið þá ákvörðun
í gær að stöðva veiðarnar. Mikið
væri af þorsk- og ýsuseiðum í aflan-
um, en einnig talsvert um síld og
loðnu. Gætti þessa um ailt veiði-
svæðið og því yrði að loka því öllu.
Fylgzt yrði með veiðunum og þegar
seiðamagnið yrði komið niður fyrir
viðmiðunarmörk yrðu veiðarnar
leyfðar aftur, en ólíklegt væri að
það yrði fyrr en um áramót.
Neóansjávarmyndavélin, sem notuð var til að koma taug á aðra hjólafestingu
þyrlunnar á hafsbotni. Önnur vél var flutt á staðinn í gærkvöldi og átti að
freista þess að koma taug á hitt hjólið einnig. Morgunblaðið/ Fríðþjófur
Borgardómur:
Kröfu um
ógildingu
hjónabands
vísað frá
BORGARDÓMUR vísaði í gær
frá kröfu 28 ára gamallar konu og
tæplcga fertugs sjómanns þess
efnis að hjónaband, sem þau
gengu í undir minnnisvarða Jóns
Sigurðssonar á Austurvelli í nóv-
ember á síðastliðnu ári, verði lýst
ógilt, þar sem ekki var stofnað til
hjúskaparins með lögformlegum
hætti að þeirra áliti.
Forstöðumaður Ásatrúar-
safnaðarins gaf fólkið saman
eftir að þau færðu hjónavígslu í
tal við allsherjargoðann, sem
þau hittu í Óðali. Konan taldi
að um glens hefði verið að ræða
og ekki hefði hvarflað að henni
að vígslan yrði marktæk.
Þau undirrituðu þó plögg til
staðfestingar vígslunni og voru
skráð hjón í bókum Hagstofu
íslands. Konunni varð ekki um
sel þegar hún komst að þessu.
Hún vili ekki lögskilnað þar
sem hún telur að ekki hafi verið
stofnað til hjúskaparins með
lögformlegum hætti.
Að sögn verjanda konunnar
verður málinu áfryjað til
Hæstaréttar, en það á sér ekki
fordæmi.
Taugum komið í flakið af TF-RÁN á hafsbotni:
Sjö tíma tók að koma
taug í hjólafestinguna
í NÓTT átti að reyna að koma ann-
arri taug í flak Landhelgisgæsluþyrl-
unnar TF-RÁN, þar sem hún liggur á
um 85 metra dýpi í Jökulfjörðum. í
gær tókst að koma taug í aðra hjóla-
festingu þyrlunnar. Akvörðun um
framhald aðgerða verður tekin þegar
björgunarmenn eru öruggir um að
allar festingar séu í lagi „og að okkur
sé alveg Ijóst hvað við erum að gera“,
eins og Gunnar Bergsteinsson, for-
stjóri Landhelgisgæslunnar, orðaði
það í samtali við blm. Morgunblaðs-
ins f gærkvöldi.
Varðskipið Óðinn og rækjubátur-
inn Siggi Sveins héldu á slysstað-
inn frá ísafirði um áttaleytið í
gærkvöld. Fulltrúar Gæslunnar,
Loftferðaeftirlitsins, Sikorsky-
verksmiðjanna og fleiri héldu fund
um borð í Óðni síðdegis í gær og
skoðuðu m.a. fundið brak og mynd-
band, sem tekið hafði verið af flak-
inu neðansjávar. í gærkvöld var
farið út með aðra neðansjáv-
armyndavél, sem fengin var frá
Reykjavík, og á hún að geta gefið
betri mynd af flakinu og aðstæðum
á sjávarbotni. „Vonandi fáum við
betri myndir með þessari nýju vél,
en hún tekur upp myndir í litum.
Fyrri vélin var svarthvít en hún er
í eigu netáverkstæðis á ísafirði,
sem lánaði okkur hana góðfúslega
og menn með henni,“ sagði Gunnar
Bergsteinsson. „Flakið sýnist heil-
legt en það er skiljanlega mjög erf-
itt að hemja myndavélina á þessu
mikla dýpi frá báti, sem hreyfist í
straumi og fyrir vindi. Þetta hefur
því verið ákaflega tímafrekt, eins
og sést á því, að það tók þá sjö tíma
75 milljóna króna vaxta-
skuld Herjólfe felld niður
Pennastriksaðferðin í verki, segir Albert
FJÁRMÁLARÁÐHERRA hefur notfært sér hcimild í fjárlögum yfirstand-
andi árs til að fella niður vexti og dráttarvexti af skuldum Vestmannaeyja-
ferjunnar Herjólfs. Heimildin var til að fella niður allt að 75% af áföllnum
vöxtum og dráttarvöxtum. Heildarupphæðin er 74—75 milljónir króna, að
því er Albert Guðmundsson, fjármálaráðherra, sagði í samtali við blm.
Morgunblaðsins í gærkvöldi.
„Eftir eru erlend lán og ég vona
að þeir Herjólfsmenn geti staðið
undir þeim með rekstri ferjunn-
ar,“ sagði Albert. „Hér er ein-
faldlega verið að koma rekstr-
argrundvelli fyrirtækisins í lag.
Skuldir þess vegna vaxta og drátt-
arvaxta voru að ná vátryggingar-
upphæð skipsins. Þá getur hver
maður séð í hvert óefni stefnir —
slíkar kvaðir á fyrirtæki, sem ætti
að geta borið sig, eru ósanngjarn-
ar, svo ekki sé meira sagt. Herj-
ólfur er þjóðbraut til Vestmanna-
eyja og þangað er ekki hægt að
leggja annan veg. Mín skoðun er
raunar sú, að það ætti að reka
skipið á vegum Vegagerðarinnar.
Þetta er allt annað mál er til
dæmis Akranessferjur Skalla-
gríms hf. — það eru alitaf að
batna vegir á milli Akraness og
t.d. Reykjavíkur en til Eyja er
enginn vegur.
Fjármálaráðherra tók undir
það, að niðurfelling vaxta Herj-
ólfs væri „pennastriksaðferðin" í
verki. „Hér tökum við uppsafnað-
an kostnað, sem hefur fallið á
upphafiega fjárfestingu, og setj-
um fyrirtækið í rekstrarhæft
form. Með þessu er komist að rót
meinsins — og það á að gera með
pennastriki en ekki með því að
gefa stöðugt aspirín,“ sagði Al-
bert Guðmundsson,
að koma tauginni á hjólafesting-
una. Þegar tekist hefur að koma
festingu á hitt hjólið verður tekin
ákvörðun um framhaldið," sagði
hann.
Fyrir hádegi í dag eru væntan-
legir til landsins tveir sérfræðingar
frá björgunardeild bandaríska flot-
ans (US Navy Salvage Corps). í
gærkvöld var ekki vitað hvort eða
hvernig útbúnað þeir hefðu með-
ferðis en strax eftir komu þeirra
átti að setjast á rökstóla með þeim.
Gunnar Bergsteinsson gat þess,
að það hefði fyrst og fremst verið
að þakka bandarísku sérfræðing-
unum af Keflavíkurflugvelli og
hlustunartæki þeirra, að flakið
fannst svo fljótt sem raun varð á.
„Án þeirra hefði leitin tekið mun
lengri tíma. Þeir hafa svo unnið
ötullega með okkar mönnum þarna
fyrir vestan," sagði Gunnar. „Við
stöndum líka í þakkarskuld við sjó-
menn og björgunarsveitamenn frá
ísafirði, Bolungarvík og Hnífsdal,
sem hafa aðstoðað okkur mjög
dyggilega. Þeirra þáttur er jafn
mikill ef ekki meiri en okkar eigin
manna."
Athugun á brakinu, sem fundist
hefur, og myndanna, sem teknar
voru á hafsbotni, hefur ekki leitt í
ljós hvað olli því að TF-RÁN fórst.
Þyrlan liggur á hvolfi og hefur ekki
tekist að greina hvort áhöfn þyrl-
unnar er enn í henni, að því er
kemur fram í fréttatilkynningu frá
Landhelgisgæslunni, Flugslysa-
nefnd og Flugmálastjórn.