Morgunblaðið - 16.11.1983, Qupperneq 1
56 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI
STOFNAÐ 1913
263. tbl. 70. árg.
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Morgunblaöiö/ Friðþjófur/ RAX.
Þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF-RÁN, var bjargað um borð í varðskipið óðin um miðjan dag í gær. Varðskipið er nú á leið með þyrluna til
Reykjavíkur. Sjá frásagnir og myndir frá björguninni á baksíðu, miðsíðu og bls. 36 og 37 í dag.
Tyrkir viðurkenna
nýja ríkið á Kýpur
Bandaríkjamenn íhuga refsiaðgerðir
Ankara, Nikósíu og Washington 15. nóvember. AP.
TILLAGA var lögð fram á Bandaríkja-
þingi í kvöld um að Bandaríkin hætti
þegar í stað aðstoð við öll þau ríki,
sem lysa stuðningi sínum við stofnun
sjálfstæðs ríkis Tyrkja á Kýpur. Til
þessa hafa aðeins Tyrkir viðurkennt
hið nýja ríki, en nafn Tyrklands var
STUÐNINGSMENN Yasser Arafats
vörðust enn seint í kvöld, en áttu und-
ir högg að sækja eftir linnulausa stór-
skotahríð andstæðinga leiðtogans á
Baddawi-búðirnar, síðasta vfgi þeirra,
skammt utan við Trípólí.
Að sögn talsmanns Arafats var
sótt að búðunum úr þremur áttum
strax snemma í morgun, en rimm-
unni lauk um hádegisbilið. Voru
ekki nefnt í tillögunni. Engum bland-
ast þó hugur um að tillögunni er beint
gegn þarlendum stjórnvöldum.
Herforingjastjórnin í Tyrklandi
lýsti því yfir síðdegis, að hún hefði
viðurkennt stofnun hins nýja ríkis
tyrkneska minnihlutans á norður-
búðirnar þá enn á valdi manna
Arafats, en skemmdir eru gífurleg-
ar. Þótt mönnum Arafats hafi tek-
ist að hrinda þessari síðustu árás
telja fréttaskýrendur aðeins tíma-
spursmál hvenær búðirnar falla í
hendur andstæðinga Arafats.
Sjá nánar um stöðu Arafats og PLO
í erlendum vettvangi á bls. 20.
hluta Kýpur. Viðurkenning stjórn-
arinnar kom á óvart, ekki síður en
sú tilkynning Rauf Denktash, leið-
toga Tyrkja á Kýpur, í morgun, að
þeir hefðu stofnað sjálfstætt ríki á
eynni. Hinu nýja ríki hefur verið
gefið nafnið „Tyrkneska lýðveldið á
norðurhluta Kýpur“.
Þótt Tyrkir á eynni hafi haft það
í flimtingum að lýsa yfir sjálfstæði
allt frá því Grikkir leituðu til Sam-
einuðu þjóðanna fyrr á þessu ári
vegna erjanna á eynni bjuggust fáir
við að þeir gerðu alvöru úr hótunum
sínum, ekki síst vegna fyrri afstöðu
stjórnvalda í Tyrklandi.
Stjórnvöld á Kýpur, gríska
stjórnin, jafnt sem sú breska og
bandaríska, fordæmdu sjálfstæðis-
yfirlýsinguna og hvöttu jafnframt
aðrar þjóðir til að gera slíkt hið
sama. Breska stjórnin sendi strax í
morgun skeyti til Kenan Evren, for-
sætisráðherra Tyrkja, og bað hann
að viðurkenna ekki hið nýja ríki, en
sú bón kom að litlu haldi.
Sjá nánar á bls. 22: „Grikkir og
Tyrkir hafa löngum eldað saman
grátt silfur á Kýpur“.
Menn Arafats í
kröppum dansi
Trípólí, 15. nóvember. AP.
Símamynd AP.
Spyros Kyprianou, forseti Kýpur, ávarpar gríska Kýpurbúa í Nikósíu í gær, er
þeir efndu til mótmæla vegna stofnunar sjálfstæðs ríkis Tyrkja á evnni.
Rauöri málningu
úðað á ráðherra
Lundúnum. 15. nóvember. AP.
MK'HAEL Heseltine, varnarmálaráð-
herra Bretlans, varð í dag fórnarlamb
reiðra kjarnorkuandstæðinga í
Manchester-hásknla þegar hann kom
þangað til þess að halda fyrirlestur.
Rauðri málningu var úðað yfir ráð-
herrann, sem átti fótum sínum fjör að
launa.
Þessar aðgerðir voru aðeins einn
liður í róttækum aðgerðum kjarn-
orkuvopnaandstæðinga, sem létu
mikið að sér kveða í Bretlandi í dag.
Lögregla handtók 200 manns fyrir
utan neðri málstofu breska þings-
ins í kvöld og margir úr röðum mót-
mælenda hlekkjuðu sig við hlið
bandarísku herstöðvarinnar í
Greenham Common. Þá sundruðu
lögreglumenn á hestum hópi 150
kvenna, sem lét ófriðlega utan
stöðvarinnar. Lögreglan kvað alls
tæplega 400 manns hafa verið
handtekin í mótmælaaðgerðum í
dag.
Sjá nánar á bls 23: „Osk Grikkja
um frestun harðlega gangrýnd".