Morgunblaðið - 16.11.1983, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1983
Styrktarsjóður ekkna og
munaðarlausra barna
íslenskra lækna
Umsóknir um styrk úr sjóðnum óskast sendar til
Kjartans Jóhannssonar, Þinghólsbraut 27, Kópavogi,
Lárusar Helgasonar, Hvassaleiti 143, Reykjavík eöa
Björns Þóröarsonar, Sörlaskjóli 78, Reykjavík.
11. leikvika — leikir 5. nóv. 1983
Vinningsröð: 111 — XXX — 1 1 X — 211
1. vinningur: 12 réttir — kr. 115.300,-
35312(4/11) 36871(4/11) 160980 87095(6/11K'
* Or 11. viku.
2. vinningur: 11 réttir — kr. 2.783,-
1010 35304 54892+ 86826+ 95510 87093+
3024 39226+ 54911+ 89318 95523 87094+
8870 40098 57649+ 90124 37644+ 87098+
9464 42717 59601 90620 56732+* 87104+
12100 43749+ 61256+ 92238 Úr 11. viku: 87198+
13711 44868+ 85087 92269 42711
35323 47259+ 86144+ 94056 86437+
36373 48651 86403* 94804 87068+
40522+ 52643+ 86433+ 95076+ 87086+
35301 53430+ 86445+ 95080+ 87092+
* =2/11
Kærufrestur er til 5. desember kl. 12 á hádegi. Kærur skulu
vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboösmönnum og á
skrifstofunni i Reykjavík. Vinningsupphæöir geta lækkaö, ef
kærur veröa teknar til greina.
Handhafar nafnlausra seöla (+) veröa aö framvísa stofni eöa
senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til
Getrauna fyrir lok kærufrests.
GETRAUNIR — íþróttamiöstööinni — REYKJAVÍK
Samnlngatækni á
erlendum mörkuðum
MARKMIÐ:
Tilgangur námskeiðsins er að auka hæfni þeirra sem í starfi sínu eiga í
samningaviðræðum við erlenda viðskiptaaðila. Eftir námskeiðið eiga
þátttakendur að ná betri árangri í samningaviðræðum og geta beitt
skipulegum vinnubrögðum við samningaborðið.
EFNI:
A námskeiðinu verður stuðst við noktun myndbanda, og munu þátttak-
endur fá tækifæri til að sjá sjálfan sig við samningaborðið.
ÞÁTTTAKENDUR:
Námskeið þetta er einkum ætlað sölu- og innkaupastjórum og þeim
aðilum sem ábyrgð bera á framkvæmd markaðsmála í fyrirtækjum. Allir
sem þurfa að ná árangri við samningaborðið á erlendum vettvangi eiga
erindi á námskeiðið.
LEIÐBEINANDI:
Charles H. Haukatsala, en
hann starfar sem markaðsráð-
gjafi í Finnlandi fyrir fyrir-
tækið A/B Förhandlingskon-
sult. Hann hefur stjórnað
jjessu námskeiði bæði í Finn-
landi og Bretlandi og hefur
haldið þetta námskeið einu
sinni hér á landi áður. Nám-
skeiðið fer fram á ensku.
TÍMI OG STAÐUR:
21.-22. nóvember 1983. Hótel Esja.
TILKYNNIÐ ÞÁTTTÖKU
í SÍMA 82930
STJÓRNUNARFÉLAG
ÍSLANDS í!mij£gsoo23
m ml H jj
n £ 1 Í á hverjum degi!
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir ALY MAHMOUD
Arafat nýtur enn mikils
stuðnings á meðal Araba
í ÖLLUM ríkjum Araba við Persaflóa eins og svo víða annars staðar í
löndum múhameðstrúarmanna hefur stjórnmálamönnum jafnt sem
stjórnmálaskýrendum orðið tíðrstt um áskorun Samstarfsbandalags Ar-
abaríkjanna við Persaflóa til Frelsisfylkingar Palestínumanna (PLO) um
að binda enda á innbyrðis deilur sínar en setjast í þess stað á rökstóla og
taka ákvörðun um framtíð Yasser Arafats, leiðtoga PLO.
að er ljóst, að Sýrlend-
ingar hyggjast ekki draga
áf sér fyrr en þeir eru búnir að
bola Arafat frá,“ var haft eftir
einum Jieirra sendimanna, sem
sátu ráðstefnuna í Qatar. „Sú
skoðun er líka orðin mjög al-
menn i Arabaríkjunum, að tími
sé kominn til þess fyrir PLO að
losa sig við Arafat. Deilur hans
við Sýrlendinga og andstæðinga
sína innan PLO gætu falið í sér
mikla hættu fyrir einingu Ar-
abaríkjanna."
Þannig stendur þessi bústni,
órakaði leiðtogi frammi fyrir
óvissri framtíð, fyrst og fremst
vegna deilna sinna við Sýrlend-
inga. Þar hefur stjórn Hafez
Assads forseta tilkynnt, að hún
muni virða að vettugi fyrirhug-
aða ráðstefnu 13 Arabaríkja um
samvinnu sín í milli, sem miklu
máli hefur þótt skipta að nái
fram að ganga, ef Arafat heldur
áfram að vera leiðtogi PLO.
Arafat mátti fyrir skemmstu
þola sit versta áfall, er klofning-
urinn kom upp innan herstjórn-
arinnar í E1 Fatha, lang öflug-
ustu skæruliðasamtökunum í
PLO. Sýnilegt er hins vegar, að
ríkin við Persaflóa leggja mesta
áherzlu á eininguna innan PLO,
hvort sem hún næst með eða án
atbeina Arafats.
Við upphaf ráðstefnu Araba-
ríkjanna við Persaflóa í síðasta
mánuði sendi Arafat fulltrúa
slnn til jiess að fara þess á leit
við þjóðhöfðingja þessara ríkja,
hvort heldur konunga eða emíra,
að þeir létu málið til sín taka
gagnvart Sýrlendingum og
reyndu að bjarga Arafat úr
ógöngunum.
Tveir af utanríkisráðherrum
þessara ríkja, þeir Sabah Al-
Ahmed frá Kuwait og Ahmed
Bin Seif frá Qatar, gripu til
sinna ráða og fengu utan-
ríkisráðherra Alsír og Túnis til
þess að ganga i lið með sér um
aðgerðir til að koma á vopnahléi
milli hinna stríðandi aðila innan
PLO.
Ahmed Bin Seif sagði sfðan á
fundi með fréttamönnum, að
vopnahléð ætti að gera deiluaðil-
um kleift að hefja viðræður um
að kalla saman skyndiráðstefnu
í Þjóðarráði (útlagaþingi) Pal-
estínumanna. f Þjóðarráðinu og
hvergi annars staðar væri hinn
rétti vettvangur fyrir PLO til
þess að leysa úr innri vandamál-
um sínum og það ætti að gera án
afskipta utan að komandi aðila.
Samstarfsbandalag Araba-
ríkjanna við Persaflóa er svæð-
isbundið efnahags- og varnar-
bandalag og eiga Saudi-Arabía ,
Kuwait, Oman, Bahrain, Qatar
og Sameinuðu furstadæmin að-
ild að því. Leiðtogar þessara
ríkja stofnuðu þessi samtök sitt í
maí 1981 fyrst og fremst í því
skyni að komast hjá því að sog-
ast inn í deilur Arababandalags-
ins. Þeir hafa reynt að fara
vandrataða leið með því að
freista þess að miðla málum í
deilum Arabaríkjanna án þess
þó að flækjast í þær. Þeir hafa
lagt sig fram við að fá Sýrlands-
stjórn til þess að taka upp mild-
ari afstöðu, en hún hefur veitt
andstæðingum Arafats innan
PLO mjög virkan stuðning í árás
þeirra nú á þann síðarnefnda og
stuðningsmenn hans 1 borginni
Tripoli f norðurhluta Líbanons.
A nýloknum fundi þessara
leiðtoga kom sú skoðun skýrt
fram, að jieir kysu helzt að sjá
PLO sameinaða undir forystu
Arafats, sem yrði að fá að njóta
þess sannmælis, að hann væri
hófsamur leiðtogi i innbyrðis
samskiptum Araba. Þetta
breytti þó engu um þá afstöðu
þeirra, að Palestínumenn ættu
sjálfir að ákveða, hvort þeir
vildu hafa Arafat áfram fyrir
leiðtoga sinn eða einhvern
annan.
Sá ótti er útbreiddur á meðal
Araba, að eigi Arafat eftir sæta
þeim örlögum að hrekjast frá
völdum við illan leik, þá kunni
það jafnframt að skapa mikla
sundrungu á meðal þeirra
600.000 palestínskra verka-
manna, sem nú eru starfandi í
ríkjunum við Persaflóa með
ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Svo gæti vel farið, að upp kæmu
á meðal þeirra einstakir hópar,
sem ekki yrði unnt að hafa hemil
á með nokkrum viðunandi hætti.
Leiðtogar Arabaríkjanna við
Persaflóa geta ekki tekið afstöðu
með Arafat opinberlega, án þess
að eiga á hættu fjandskap Sýr-
landsstjórnar. Þá geta þeir ekki
heldur snúið baki við Arafat, því
að slíkt gæti hæglega leitt til
harkalegra árekstra við þá hópa
palestínskra flóttamanna, sem
búa á við og dreif í ríkjunum við
Persaflóa.
Sökum olíuauðsins hafa ríkin
við Persaflóa mikil áhrif á meðal
Arabaþjóðanna. Leiðtogar
þeirra geta j>ó vart gert annað að
sinni en að bíða átekta og sjá
hvort Arafat tekst að komast
burt úr herkvínni við Tripoli.
Hann hefur verið réttilega kjör-
inn leiðtogi Palestínumanna frá
árinu 1969. Hann þekkir þjóð
sína betur en nokkur annar og
ítök hans í hugum Palestínu-
manna eru meiri og varanlegri
en svo, að þau verði afmáð í
einni svipan. Hann hefur verið
leiðtogi skæruliðahreyfingar
PLO í þrengingum, sem hefðu
brotið á bak aftur hvaða leiðtoga
annan, er ekki hefði verið gædd-
ur þeirri þolgæði og einurð, sem
Arafat hefur sýnt, að hann býr
yfir.
Arafat — Abu Ammar, eins og
hann er kallaður af stuðnings-
mönnum sínum — stofnaði E1
Fatah 1959 og hefur æ síðan not-
ið stuðnings þeirra 3 millj. Pal-
estínumanna, sem ýmist búa á
jieim svæðum Araba, er ísra-
elsmenn hafa hertekið eða
dreifzt um önnur lönd. „Vesal-
ings Abu Ammar. Hann er á
milli tveggja elda — milli óvina
sinna (Israelsmanna) annars
vegar og vina sinna (Araba) hins
vegar," sagði einn palestínskur
flóttamaður fyrir skömmu, sem
starfar í þágu stjórnarinnar í
Qatar. „En takið eftir. Þau sár,
sem Arafat svíða sárast, eru
þau, sem Arabar hafa veitt hon-
um. Þau svíða miklu sárar en
þau sár, sem hann hefur hlotið
af völdum ísaraelsmanna."
Aly Mahmoud er frétíaskýrandi
rið fréttastofuna Associated Press.