Morgunblaðið - 16.11.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1983
5
Sandeyjarslysið:
Sjóprófum fram
haldið eftir helgi
SJÓPRÓF vegna Sandeyj-
arslyssins fóru fram í borgar-
dómi Reykjavíkur sl. mánu-
dag og samkvæmt upplýsing-
um sem Mbl. fékk hjá Stein-
grími Gauti Kristjánssyni
borgardómara var málinu
frestað og verður sjóprófun-
um framhaldiö í næstu viku.
Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins kom það m.a.
fram við sjóprófin að tæki það
sem notað er við dælingu sands
hafi stíflast eða festst í botni.
Einnig kom fram að skipið hefði
hugsanlega verið ofhlaðið.
Þá kom það fram við sjóprófin
að hleri sem stjórnar vatns-
rennsli úr lestinni hefði verið
festur vikuna áður en slysið varð,
en skipið hafi farið ferðir eftir að
það varð. Vegna þessa er talið að
skipið hafi getað tekið meira í
lestina en venjulegt var.
INNLENT
Sfldarfrysting:
Möguleikar á sölu
20.000 lesta upp
úr sjó af stórri síld
— segir Olafur Jónsson, aöstoöarfram-
kvæmdastjóri sjávarafurðadeildar SÍS
„ÞAÐ má segja að söluhorfur á frystri
sfld séu alla vega. Þær eru bæði góðar,
sæmilegar og ómögulegar. Söluhorfur
á smásfld og millisfld, hvort sem hún
er flökuð eða heilfryst, eru mjög slæm-
ar. Allir markaðir í Evrópu eru fullir af
slíkri sfld. Hins vegar bindum við vonir
við að hafa nokkra sölumöguleika á
stóru síldinni. Mögulegt ætti að vera
að selja allt að 20.000 lestir af stórri
síld upp úr sjó,“ sagði Ólafur Jónsson,
aðstoðarframkvæmdastjóri sjávar-
afurðadeildar SÍS, í samtali við blm.
Morgunblaðsins.
Ólafur sagði ennfremur, að mark-
aður fyrir heilfrysta stóra síld væri
takmarkaður, en þó nokkur. Mestur
væri markaðurinn fyrir fryst flök,
flök af stórri síld væru allvel seljan-
leg vara. Þegar menn væru að tala
um síld til frystingar, væri einungis
um að ræða stóra síld. Helztu mark-
aðslöndin væru Bretland, Þýzkaland,
Frakkland, Tékkóslóvakía, Holland,
Belgía og loks Japan.
Ólafur sagði ennfremur, að hann
hefði ekki upplýsingar um það hve
mikið af frystri síld hefði verið selt
úr landi vegna síðustu vertíðar.
Hann ætti því erfitt með að tjá sig
um það, hve mikið magn væri hægt
að selja, en ef um veiði á stórri síU?
yrði að ræða, væru markaðsmögu-
leikarnir verulegir. Ef hins vegar
yrði áframhaldandi veiði á smásíld
og millisíld, mætti búast við að
frysting á þeirri síld yrði stöðvuð.
Miðað við reynslu fyrri ára ætti að
vera möguleiki á að selja 15.000 til
20.000 lestir af síld upp úr sjó, legði
hún sig í rétta stærðarflokka.
Háskólatón-
leikar í dag
AÐRIK háskólatónleikar á þessu
misseri verða haldnir í Norræna hús-
inu, miðvikudaginn 16. nóvember kl.
12.30.
Á efnisskránni er Divertimento í
Es-dúr fyrir horn, fiðlu og selló eft-
ir Franz Joseph Haydn og Kvartett
í F-dúr fyrir horn, fiðlu, víólu og
selló eftir Johann Andreas Amon.
Flytjendur eru: Joseph Ognibene
horn, Júlíana E. Kjartansdóttir
fiðla, Helga Þórarinsdóttir víóla og
Nora Kornblueh selló.
VERÐHRUN
Á
KULDASKÓM
í síðustu viku seldust 700 pör
Eigum ennþá 350 pör eftir
Verö áöur 1.095.-
Verd nú 895.-
Stæröir 36—45
Sendum í
póstkröfu
Verö áöur 990.-
Verö nú 790.-
Stæröir 36—45
Leifur Þórarinsson
Frumflutningur á verki
eftir Leif Þórarinsson
Manuela Wiesler leikur einleik á tónleikunum
Austurstræti
: 27211
NÆSTU áskriftartónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar íslands verða í Iláskóla-
bíói á morgun, flmmtudaginn 17. nóv-
ember, og hefjast þeir að venju kl.
20.30. Efnisskrá tónleikanna verður
sem hér segir:
Leifur Þórarinsson: Haustspil
(frumflutningur). Jacques Ibert:
Flautukonsert. Mendelssohn: Sin-
fónía nr. 5 í d-moll op. 107 (re-
formation).
Stjórnandi tónleikanna verður
Páll P. Pálsson. Hann er óþarfi að
kynna íslenskum tónleikagestum
eftir rúmlega þrjátíu ára starf
hans hér á landi, sem hljóðfæra-
leikari, kórstjóri, tónskáld og ekki
síst hljómsveitarstjóri.
Manuela Wiesler fluttist til ís-
Talsverð
sfldveiði
TALSVERÐ sfldveiði hefur verið síð-
ustu daga og er sfldin fryst til útflutn-
ings í Vestmannaeyjum og Suðurnesj-
um að mestu.
Að sögn Veiðieftirlits sjávarút-
vegsráðuneytisins er frystigeta
mest í Vestmannaeyjum og á Suð-
urnesjum, en mjög takmörkuð á
Austfjörðum. Síldin veiðist enn út
af sunnanverðum Austfjörðum
þannig að talsverð sigling er með
hana suður og vestur um. Síldin,
sem nú veiðist, er nokkru stærri en
verið hefur og hæfir því betur til
frystingar en áður. Ekki er talið
ráðlegt að frysta minni síld en 30
sentimetra og þar yfir til útflutn-
ings en nokkuð af smærri síldinni
er fryst í beitu.
lands 1973 og var búsett hér um
nærri 10 ára skeið. Hún hefur verið
mikill aflvaki í íslensku tónlistar-
lífi, frábær einleikari á ótal tón-
leikum og fyrir hana hafa íslenskir
höfundar samið mikinn fjölda tón-
verka, sem hún hefur kynnt með
hinum mestu ágætum innan lands
og utan. Erlendis hefur hróður
hennar farið sívaxandi. Hún hefur
unnið til verðlauna fyrir íslands
hönd, m.a. í keppni norrænna ein-
leikara í Kaupmannahöfn haustið
1980, en þar var hún, eins og oft
endranær, talin „í sérflokki". Þá
um leið hlaut hún dönsku Sonn-
ing-verðlaunin sem veitt eru ung-
um hljóðfæraleikurum. Manuela er
nú búsett í Svíþjóð og er mjög eft-
irsóttur einleikari víða um lönd.
Leifur Þórarinsson á að baki
langan og litríkan feril sem tón-
skáld. Um það verk sem hér er
frumflutt hefur hann þetta að
segja m.a.: „Haustspil 83 var byrj-
að í Verona á Ítalíu sl. sumar og
lokið hér heima í haustnepjunni
um daginn. Þetta er „sinfonískur"
þáttur fyrir allstóra hljómsveit
með einu „aðalstefi" (í fiðlum
fyrst) sem á til að skipta sér í
nokkur undirstef af misjöfnum
karakter og tekur þannig ýmsum
myndbreytingum. Verkið er til-
einkað minningu Valdimars Páls-
sonar, vinar míns að norðan ...“
Mendelssohn hefur gert kristn-
inni og trúarbrögðum mótmælenda
sérstaklega ærinn greiða með því
að grafa úr gleymsku Mattheusar-
passíu Bachs. Um sama leyti og
hann stóð fyrir flutningi „passí-
unnar" hefst hann handa um að
semja „Siðbótarsinfóníu" sína (hún
var samin í tilefni af því að 300 ár
voru liðin frá „Augsburg-játning-
unni svokölluðu) og lauk henni á
næsta ári (1830). Er hún því í raun
eldri en báðar kunnustu sinfóníur
Mendelssohns, hin „skoska" talin
nr. 3, op. 56 (lokið 1842) og hin
„ítalska", talin nr. 4, op. 90 (lokið
1833). Tölusetning og aldursröð er
hér allt í ruglingi.
(Frétt frá Sinfóníuhljóm.sveit íslnnds)
Páll P. Pálsson Manuela Wiesler
Sinfóníutónleikar annað kvöld: