Morgunblaðið - 16.11.1983, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1983
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1983
25
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Askrift-
argjald 250 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 20 kr. eintakiö.
Stýriflaugar
í Bretlandi
Tæp fjögur ár eru síðan
utanríkisráðherrar Atl-
antshafsbandalagsríkjanna
ákváðu að bandarískum eld-
flaugum með kjarnaoddum
skyldi komið fyrir í Vestur-
Evrópu ef ekki tækist sam-
komulag við Sovétmenn um að
þeir fjarlægðu meðaldrægar
kjarnorkueldflaugar sínar.
Samningaviðræður við Sovét-
menn hafa ekki borið neinn
árangur og í fyrradag komu
fyrstu bandarísku eldflaugarn-
ar til Bretlands en á næstu
þremur til fimm árum á að
koma 572 eldflaugum fyrir í
fimm Vestur-Evrópuríkjum.
Annars vegar er um 108 Persh-
ing II eldflaugar að ræða, en
þær verða allar settar niður í
Vestur-Þýskalandi og koma í
stað Pershing I flauga þar, hins
vegar eru 464 stýriflaugar en
auk Vestur-Þýskalands verður
þeim komið fyrir í Bretlandi,
Italíu, Belgíu og Holl^ndi.
Með vísan til ákVörðunar
Atlantshafsbandalagsins um
eldflaugarnar hljóp kraftur í
friðarhreyfingar í Vestur-
Evrópu. Þær hafa látið mikið á
sér bera undanfarin misseri en
í kosningum og á þjóðþingum
þeirra landa þar sem hinar
nýju eldflaugar eiga að vera
hefur meirihluti manna stað-
fest ákvörðun utanríkisráð-
herra NATO-landanna. Þeir
stjórnmálaflokkar sem hafa
orðið verst úti vegna Evrópu-
eldflauganna eru jafnaðar-
mannaflokkarnir í Vest-
ur-Þýskalandi, Bretlandi,
Danmörku og Noregi. Er ekki
enn séð fyrir um lyktir eld-
flaugamálsins innan vébanda
þeirra, en allir þessir flokkar
fóru með stjórn landa sinna
þegar ákvörðunin um eldflaug-
arnar var tekin og hafa síðan
skipt um skoðun að meira eða
minna leyti.
Hver sá sem lítur hlutlægt á
samskipti austurs og vesturs í
vígbúnaðarmálum hlýtur að
komast að þeirri niðurstöðu að
Sovétmenn hefðu aldrei fengist
til að ræða við Bandaríkjamenn
um SS-20 kjarnorkueldflaug-
arnar ef ekki hefði verið ákveð-
ið að svara SS-20 með banda-
rískum eldflaugum í Vestur-
Evrópu. Því miður hefur ekki
orðið mikill árangur í þessum
viðræðum. Sovétmenn hafa
hingað til svarað öllum tillög-
um Bandaríkjamanna neitandi.
Þá hafa Sovétmenn sagt að þeir
myndu ganga út af fundunum í
Genf ef hafist yrði handa við að
koma bandarísku eldflaugunum
fyrir.
Koma fyrstu stýriflauganna
til Bretlands markar þáttaskil.
Friðarhreyfingarnar hafa ekki
það afl sem af er látið á fjöl-
mennum fundum. Þar starfa
menn í þeim anda að ákvarðan-
ir á „alþingi götunnar“ eigi að
hafa meira vægi en stefna rétt-
kjörinna fulltrúa á þjóðþingum.
Nú láta talsmenn bresku frið-
arhreyfingarinnar í veðri vaka
að beitt verði líkamlegu ofbeldi
til að ná fram kröfunni um ein-
hliða afvopnun Vesturlanda.
Fámennir „friðarhópar" ætla
sem sé að efna til ofbeldisverka
og ófriðar í löndum sínum.
Vesturlond vilja að samninga-
viðræðum í Genf verði haldið
áfram hvað svo sem hótunum
Sovétmanna um útgöngu líður.
Það yrði í hróplegu ósamræmi
við þá friðarásýnd sem Kreml-
verjar vilja bera þegar þeir
brosa til Vesturlanda ef full-
trúar þeirra færu í fýlu í Genf
og skelltu á eftir sér hurðum.
Stýriflaugar
á Islandi
Skömmu eftir að utanríkis-
ráðherrar NATO-landanna
tóku ákvörðun um Evrópueld-
flaugarnar varð hvellur út af
því í fréttatíma hljóðvarpsins
að á íslandi væru kjarnorku-
vopn. Þær staðhæfingar voru
þá eins og jafnan endranær
rangar. Nú í þann mund sem
eldflaugarnar eru að koma til
Evrópu verður hvellur út af
stýriflaugum á íslandi í frétta-
tíma sjónvarpsins. Stýriflaug-
arnar sem sjónvarpið sagði
fréttir af hafa ekki enn þá verið
smíðaðar og skýrslan sem sjón-
varpið byggði á í frétt sinni
snýst um það, hvort smíða eigi
stýriflaugar til að skjóta á
herskip frá stöðvum í landi.
Greinilegt er af frásögnum
frá umræðum á alþingi um
stýriflaugafrétt sjónvarpsins
að þingmenn hafa skilið hana
þannig að um samskonar flaug-
ar hafi þar verið að ræða og nú
eru að koma til Bretlands.
Ónákvæmni af þessu tagi er
hvorki nýnæmi í fréttamiðlun
íslenskra fjölmiðla um jafn við-
kvæm mál og þetta né umræð-
um íslenskra stjórnmálamanna
um þau. í ræðu sinni í umræð-
unum á þingi ítrekaði Geir
Hallgrímsson, utanríkisráð-
herra, nauðsyn þess að efla
bæri sérþekkingu á þessu sviði
hér á landi. Taka verður af
skarið í þessu máli sem fyrst og
skipuleggja stjórnkerfið þannig
að slík sérþekking nýtist
stjórnmálamönnum sem best.
.
- — -
Björgun TF-RÁN í Jökulfjörðum
Liósrayndir Mbl. Friðbiófw
L)Ó8myndir Mbl. Frióþjófur Helgamn og Ragnar Axelsson.
'