Morgunblaðið - 16.11.1983, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 16.11.1983, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1983 47 Þrír leikir íslands og Banda- ríkjanna í handbolta kvenna: Sá fyrsti annað kvökl „BANDARÍSKU stúlkurnar hafa æft gífurlega mikiö síöan í ágúst; reyndar gert lítiö annað en aö æfa og leika handknattleik. Þær hafa ferðast mikið um Evrópu og þaö síöasta sem viö vitum um árangur þeirra er aö þær unnu Norömenn og Dani, og gerðu jafntefli við Svía,“ sagöi Arnþrúö- ur Karlsdóttir, formaóur lands- liðsnefndar kvenna í handknatt- leik, á blaöamannafundi í gær vegna komu bandaríska lands- liðsins hingaó til lands. Bandaríska landsliðið leikur þrjá leiki viö íslenska landsliðiö, og einn æfingaleik viö FH. Sá leikur veröur i kvöld kl. 18.00 í Hafnar- firði. Á morgun veröur svo fyrsti landsleikurinn í iþróttahúsi Selja- skóla kl. 21.00, á föstudagskvöld mætast landsliðin aö nýju í Laug- ardalshöll á undan leik FH og Maccabi, kl. 19.15, og þriöji og síöasti landsleikurinn veröur á Selfossi á laugardag kl. 15.00. Viöar Símonarson, landsliös- þjálfari, tilkynnti liö þaö sem leika mun fyrsta landsleikinn. I því eru eftirtaldar: Markveröir: Kolbrún Jóhannsdóttir, Fram Jóhanna Páldsdóttir, Val. Aðrir leikmenn: Erla Rafnsdóttir, ÍR Ingunn Bernódusdóttir, IR Guöríöur Guöjónsdóttir, Fram Oddný Sigsteinsdóttir, Fram Margrét Theódórsdóttir, FH Kristín Pétursdóttir, FH Sigurborg Eyjólfsdóttir, FH Valdís Hallgrimsdóttir, KR Eva Baldursdóttir, Fylki Erna Lúðvíksdóttir, Val Fimm til viöbótar hafa æft meö hópnum aö undanförnu og fá þær tækifæri í síöari leikjunum. Þær eru Málfríöur Sigurhansdóttir, KR, Eiríka Ásgrímsdóttir, Víkingi, Þor- geröur Gunnarsóttir, ÍR, Rut Bald- ursdóttir, Fylki og Karen Guöna- dóttir, Val. Aö sögn Viðars Símonarsonar, landsliösþjálfara, hefur liöiö æft vikulega í vetur, og síöustu þrjár vikurnar hefur liöiö æft vel saman, þar sem niðurrööun íslandsmóts- ins hefur boðið upp á þaö. Viöar sagöi þaö hafa háö handknatt- leikskonum hér á landi aö ekki heföi verið lagt nógu hart aö þeim viö æfingar, en þaö væri sem bet- ur fer aö skána nú. „Kvenfólkiö á að æfa jafn mikiö og karlarnir og þaö þarf aö leggja jafn hart aö þeim. Öðruvísi er ekki hægt aö bú- ast viö góöum árangri," sagði Við- ar. „Langflestar æfingar kvenfólks- ins fara fram á minni völlum en leikiö er á, og þess vegna eru atriöi eins og varnarleikur og hraöaupp- hlaup ekki nógu góö í leikjum. “ island og Bandaríkin hafa leikiö sex kvennalandsleiki, island hefur sigraö í fjórum, en tvívegis hefur orðiö jafntefli. Þess má geta aö um þriöjungur íslensku stúlknanna hefur litla eöa enga reynslu meö landsliðinu. Oddný Sigsteinsdóttir er leikjahæst, hefur leikiö rúmlega 30 landsleiki, en fjórar a banda- rísku stúlkunum hafa leikiö yfir 50 landsleiki. — SH. nmir Karlsson • Gunnar Gíslason • Sigurður Grétarsson • Hafþór Sveinjónsson • H« Góð laun og fríðindi: Áhugamanna- lic \ boi ga v el FJÓRIR íslenskir knattspyrnu- menn hafa í haust fariö til V-Þýskalands til þess aö reyna þar fyrir sér í íþrótt sinni. Þetta eru þeir Gunnar Gíslason, Sig- urður Grétarsson, Hafþór Sveinjónsson og Heimir Karls- son, allt þekktir knattspyrnu- menn. Gunnar er sá eini sem leikur meö atvinnumannaliöi, hinir leika meö áhugamannaliö- um í vestur-þýsku knattspyrn- unni. Þaö hefur vakiö nokkra at- hygli aö leikmenn skuli fara utan til að spila meö áhuga- mannaliöum og gárungarnir hafa haft orö á því að ekki myndi líöa á löngu þar til ís- lenskir knattspyrnumenn færu til útlanda til þess aö leika meö firmaliðum. Samkvæmt öruggum heimild- um Morgunblaösins þá hafa allir þessir leikmenn góöa samninga og góð laun. Þeir munu hafa á bilinu 45 til 50 þúsund krónur í mánaóarlaun og sumir fria íbúö og afnot af bifreiö. Þetta fá þeir eingöngu fyrir aö leika knatt- spyrnu. þetta sýnir betur en margt annað hversu aöstööumunurinn er mikill hjá knattspyrnumönnum sem leika hér heima sem áhuga- menn og svo þeim sem leika meö erlendum liöum, jafnvel þó aö um áhugamannaliö sé aö ræöa. Þaö skildi því enginn gera grín aö þeim knattspyrnumönnum sem fara utan til þess aö leika meö áhugamannaliöum. Þau bjóöa allflest upp á svo miklu betri aó- stæöur og kjör heldur en nokk- urn tima er hægt aö fá hér heima. Og fyrir marga þá eru 50 þúsund krónur góö mánaöarlaun og margur hefur nú minni fríöindi en frían bíl og íbúö. — ÞR Stjórn Handknattleikssambandsins: Samþykkti vítur á báða landsliósmarkverðina — SÍS íhugaði að hætta við að greiða útgáfu mótabókarinnar „SAMBANDS-menn bentu okkur á aö þeir væru aö styrkja okkur og væru því ekki ánægöir meö þaö aö landsliösmenn lékju í búningum meö auglýsingu frá einum stærsta samkeppnisaöila þeirra,“ sagöi Friörik Guö- mundsson, formaöur Handknatt- leikssambands íslands, í samtali viö blm. Morgunblaösins í gær. Þannig er mál meö vexti aö í öör- um landsleiknum viö Tékka á dögunum lék Einar Þorvaröarson í Vals-peysu meö auglýsingu frá fyrirtækinu Innkaup. Þaö fyrir- • Brynjar Kvaran • Einar Þorvarðarson tæki er samkeppnisaöili inn- kaupadeildar SÍS, en sú deild Sambandsins greiöir alfariö gerö mótabókar HSI, en kostnaöur viö hana er tæplega 200 þúsund krónur. Bókin er reyndar ekki komin út ennþá — en sjö umferö- um er lokið af íslandsmótinu. SÍS var mjög óánægt meö aö Einar skyldi leika í greindri peysu, og þaö kom jafnvel til greina af hálfu þess að greiöa ekki gerö mótabókarinnar. SiS féll þó frá þeirri hugmynd og bókin sú arna lítur vonandi dagsins Ijós áöur en langt um líður. Friörik sagöi aö stjórn HSÍ heföi þegar fundaö um mál Einars áöur en forráöamenn SÍS bentu þeim á það — og í stjórn HSÍ heföu veriö samþykktar vítur á báöa markmenn landslið- sins, Einar Þorvaröarson og Brynj- ar Kvaran. Á Einar vegna „auglýs- ingamálsins“ og á Brynjar vegna þess aö hann lék í Adidas-buxum. Handknattleikssambandiö er meö samning við Hummel-fyrirt- ækið, „mjög góöan samning“, svo notuö séu orö Friðriks, og „þaö væri mjög slæmt ef viö misstum þann samning. Markmönnunum þykir Hummel-búningarnir óþægi- legir, en nú hafa veriö gerðar ráöstafanir til að þeir fái nýja og betri búninga frá því fyrirtæki." Friörik sagöi aö leikmenn væru búnir aö gera sér Ijóst aö samning- ar sem þessir væru HSÍ mjög mik- ilvægir og á fundi meö hagsmuna- nefnd landsliösins, sem í eru fimm leikmenn, heföu þeir lýst áhuga sínum á því aö hjálpa stjórn HSÍ aö leysa þetta mál og koma í veg fyrir að þetta ætti sér staö i framtíöinni. „Ef leikmenn vilja ekki spila í þeim búningum sem viö útvegum þeim munu þeir einfaldlega ekki spila meö landsliðinu," sagöi Friðrik Guömundsson. -SH. Þjálfari Grikkja: „Danir eru betri en Englendingar“ Frá Bob Hennessy, tréttemenni Morg- unbleðsint i Englendi. ÞAO KEMUR í Ijós í kvöld hvort Danir komast í úrslitakeppni Evrópukeppni landslióa í knatt- spyrnu næsta sumar. Þeir leika vió Grikki í Aþenu og þaó hefur valdió Dönum áhyggjum hve mikiö er um meiðsli í liði þeirra. Þjálfari Grikkja sagöi í gær aö Danir væru meö betra liö en Eng- lendingar. og liö hans geröi allt sem það gæti til aö sigra Danina. „Eng- lendingar vona auövitaö aö viö vinnum, en ekki okkar vegna, held- ur sjálfs sin. En ég vil ekki aö menn haldi aö við höfum veriö keyptir til að tapa fyrir Dönum — ég vil ekki aö neitt leiöinlegt gerist eins og varöandi leik Austurríkis og V-Þjóö- verja í HM á Spáni.“ í sama riöli leika Englendingar gegn Luxem- borg á utivelli. Englendingar veröa aö vinna — en til aö þeir komist áfram veröa Danir aö tapa i Aþenu. Þegar í gær voru áhangendur enska liösins farnir aö valda vandræöum í Luxemborg — farnir aö brjóta rúö- ur verslana og fleira í þeim dúr, eins og þeir eru þekktir fyrir hvar sem þeir koma. Enska liöið veröur þannig skipaö i Lux- emborg: Ray Clemence, Mike Duxbury, Kenny Sansom, Alvin Martin, Terry Butcher, Sammy Lee, Bryan Robson, Glenn Hoddle, Alan Devonshire. Paul Mariner og Tony Woodock. Duxbury leik- ur sinn fyrsta A-landsleik. Átta leikir eru á dagskra i Evrópukeppni landsliöa i kvötd. Stjarnan — Víkingur: Leikið í Kópavogi EINN leikur verður í 1. deild karla í handbolta í kvöld, Stjarnan og Víkingur leika. Stjarnan leikur nú sinn fyrsta heimaleik í hinu nýja íþróttahúsi í Kópavogi, en þar munu leikir liðs- ins fara fram héöan í frá. Liðið hef- ur verið á hrakhólum vegna þess aö salurinn í Ásgaröi, íþróttahús- inu í Garöabæ, er of lítill, og leikir liösins hafa ýmist fariö fram í Hafn- arfirði eöa á Selfossi. Meö tilkomu íþróttahússins í Kópavogi er þetta vandamál Stjörnumanna nú leyst, og fyrsti „heimaleikur“ þeirra í Kópavogi verður sem fyrr sagöi í kvöld. Hann hefst kl. 19.45.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.