Morgunblaðið - 16.11.1983, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 16.11.1983, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1983 Studio Hamburg tekur íslenskar kvikmyndir í umboðssölu: „Hafa skapað sinn eigin stíl“ — segir Reinhard Casper um íslenska kvikmyndagerðarmenn STUDIO Hamburg nefnist fyrirtæki í Þýskalandi, sem hefur í hyggju að selja íslenskar kvikmyndir á alþjóð- legan markað. Fyrirtækið hefur hingað til ein- ungis selt kvikmyndir frá v-þýsk- um sjónvarpsstöðvum og er þetta í fyrsta sinn, sem það hyggst selja kvikmyndir sem í fyrsta lagi eru ekki þýskar og í öðru lagi fram- leiddar af einkaaðilum, en ekki sjónvarpsstöðvum. Reinhard Casper, starfsmaður Studio Ham- burg, er nú staddur hér á landi, til viðræðna og samningagerða við ís- lenska kvikmyndaframleiðendur. Blaðamaður Morgunblaðsins ræddi við Reinhard nú á dögunum. „Þetta byrjaði nú þannig," segir hann, „að Jón Laxdal sendi til okkar spólur með íslenskum kvikmyndum. Þær vöktu strax áhuga okkar, því íslensk kvik- myndagerð er frábrugðin þeirri, sem tíðkast annars staðar í heim- inum. íslenskir kvikmyndagerð- armenn virðast hafa skapað sér sinn eigin stíl og sín eigin vinnu- brögð. Það er mjög athyglisverður hlutur og fólk vill athyglisverða hluti og þá sem eru öðruvísi en þeir, sem það á að venjast. Studio Hamburg mun verða um- boðsaðili þeirra íslensku kvik- myndagerðarmanna, sem undir- rita samning við fyrirtækið. Ég á við að við kaupum ekki höfundar- réttinn, heldur reynum við sem umboðsaðilar að koma myndunum á markað erlendis." Þú segir að kvikmyndagerð hér sé frábnigðin, því sem gengur og gerist annars staðar. Hver er þín skoðun á þeim íslensku myndum sem þú hef- ur séð? „Mér fannst þær mjög góðar. Það hlýtur að vera augljóst, ann- ars færum við ekki út í að reyna sölu á þeim. Þetta er í fyrsta skipti, sem við tökum myndir sem ekki eru þýskar. Hingað til höfum við einungis fengist við sölu á þýskum myndum frá sjónvarps- stöðvum, en nú er ekki nóg með að myndirnar séu erlendar, heldur eru þær einnig framleiddar af einkaaðilum. Út frá þessum við- bropðum getur hver og einn nátt- úrulega dæmt um hver skoðun okkar sé á íslenskum kvikmynd- um, ekki satt? Frábært land til kvikmyndatöku Þetta er í þriðja skipti sem ég kem til íslands. Eg var hérna síð- ast í sumar og ferðaðist þá tölu- vert um landið ásamt þýskum samferðamönnum mínum. Við vorum öll dolfallin yfir náttúru- fegurð iandsins. Þetta stórbrotna landslag er frábærlega gott til kvikmyndatöku. Alveg hreint frábært," segir hann og leggur mikla áherslu á orð sín. „Eins og ég sagði áðan er þetta mjög sér- stakt að við skulum taka íslenskar kvikmyndir til umboðssölu og ég er nú eiginlega staddur hérna núna til að geta átt persónuleg samskipti við þessa íslensku aðila. Ég kann ekki eins vel við að eiga viðskipti í gegnum bréf og síma og ég trúi því staðfastlega að per- sónuleg samskipti komi báðum að- ilum til góða.“ Hvernig hafið þið í hyggju að Keinhard Casper. „Við vorum öll dolfallin yfir nátturufegurð landsins, þetta stórbrotna landslag er frábæriega gott til kvikmyndatöku. i.jnsm, Mbi. köe kynna íslensku myndirnar á erlend- um vettvangi? Við erum nú með góða umboðs- aðila hvarvetna í heiminum, ekki eingöngu í Evrópu, heldur í Bandaríkjunum, Suður-Afríku og einnig í nokkrum löndum austan við Járntjaldið". Við höfum sam- band við þessa aðila og athugum hver áhugi þeirra er. Einnig mun- um við bjóða íslensku myndirnar í 1 svonefndum pökkum, þ.e. þá eru 10 myndir seldar saman og í hverjum pakka verður ein íslensk mynd. Það er mjög gott til að kynna nýja kvikmyndagerð og áð- ur óþekkta aðila. Síðan ætlum við að sýna myndirnar á kvikmynda- hátíð, sem haldin verður í lok nóv- ember. Mig langar til að geta þess í leiðinni að fyrir skömmu voru tvær íslenskar myndir, „Eldsmið- urinn" og „Húsið“, sýndar á kvikmyndahátíð í Lúbick og var þeim mjög vel tekið. Á kvik- myndahátíðinni, sem ég nefndi áð- an, má vænta þess að um 300 aðil- ar komi og því er mikils virði að íslensku myndirnar verði þar á dagskrá." Gísli Jón Hermannsson, framkvæmdastjóri Ögurvíkur: Skipafélögin blómstra á kostnað útgerðarinnar — hefur ekki þurft stórátakamenn til þess aÖ selja bezta fiskinn „ÉG NÆ nú ekki því, sem þessir menn hjá Hafskip eru að segja og ennþá síður, sem þessi Pétur Kjartansson er að skrifa. Hann segir að hann eigi að fá kúfinn af bezta fiskinum og senda hann út með farskipum. Hitt eigi svo einhverjir aðrir að taka hér heima, allt, sem er eldra en tveggja daga gamalt. Það hefur nú ekki hingað til þurft neina stórátakamenn til þess að selja bezta fiskinn, hvorki á íslandi né í öðrum löndum, það hefur bara tekizt ágætlega,“ sagði Gísli Jón Hermannsson hjá Ögurvík, er bim. Morgunblaðs- ins innti hann álits á því hvernig hagkvæmast væri að flytja ferskan fisk úr landi. „Það, sem hann sagði á lands- fundinum, þessi stjórnarformaður Hafskips, Ragnar Kjartansson, að hann ætti að flytja allan fiskinn, þá held ég nú, að ég nái því ekki heldur. Ég veit ekki á hverju þeir hafa lifað eða byggt sig upp nema á því að flytja fiskinn frá okkur. Þeir geta endurnýjað skipaflota sinn þegar þeim sýnist. Þeir geta keypt fyrirtæki úti í löndum af því þeir hafa getað flutt frá okkur fiskinn, eins dýrt og sést á upp- byggingunni og umsvifunum á sama tíma og við erum að drepast. Það, sem þá langar til að gera er að drepa okkur fiskimennina al- gjörlega með því að taka af okkur flutningana. Við höfum þó stund- um bjargað okkur með því að sigla með aflann sjálfir. Þá höfum við verið að sigla með lakari fiskinn, ekki valinn fisk. Ég ætlaði einu sinni að kaupa rafsuðuvír í Belgíu. Ég náði sam- bandi við mann þar og allt var í lagi, við gátum fengið það, sem við báðum um. Ég bað hann síðan að senda mér þetta heim með eins ódýrri fragt og hann gæti. Nokkru seinna hringir hann í mig og segir að illa líti út með ódýra fragt til íslands. Hann hefði komizt að því, að það væri ódýrara að senda vír- inn til Ríó í Brasilíu en til Islands. Það er sem sagt ódýrara að senda fragtina þvert yfir Altlantshafið frá Belgíu en til íslands vegna þess, að innlendu fragtskipin leggja svona rosalega á flutninga hingað. Hvernig á það líka að vera að öll þessi súpa geti lifað hönd í hönd og skipin siglt tóm aftur og fram, eins og fram hefur komið, nema af því að þeir svindla svona rosaiega á okkur í fragtinni. Það er alveg yfirgengilegt hvernig þessi óskabörn þjóðarinnar hafa fengið að fara með okkur. Það er ískyggilegt, að á sama tíma og all- ur sjávarútvegur er að drepast, skuli skipafélögin blómstra við að flytja frá okkur og fyrir gjaldeyri, sem við öflum. Síðan komi þeir upp úr kafinu og segi að við skul- um beita flotanum af enn meiri þunga á fiskistofna, sem eru of- veiddir. Það eina, sem gæti bjarg- að okkur væri að vera með helm- inginn af flotanum í siglingum til þess að létta af okkur fragtinni. Mér hefur ofboðið þetta í mörg ár, en hef ekki séð ástæðu til að minn- ast á það fyrr en þeir ætla að fara að höggva svona nálægt mér. Pétur Kjartansson er að tala um það, að hafa selt 200 til 300 lestir af fiski síðan í júní. Við út- gerðarmenn löndum að meðaltali allt öðrum fiski en gæðafiskinum hans, 600 til 900 lestum í viku í Þýzkalandi og fáum ekki að landa meiru. Það er allt saman karfi, blálanga, dót og drasl, það er eng- inn valinn koli eða ýsa. Það er ekki tveggja daga gamait, það hálfs- mánaðar gamalt og jafnvel eldra, en það er samt sem áður hag- kvæmara fyrir alla aðila og við höfum bjargað okkur á þessu. Það er búið að stunda þetta öldum saman, að togarar flytji fisk út sjálfir og það er stór hagnaður að því að nota ekki þessi dýru fragtskip, sem eru dýrasti flutn- ingsmáti, sem þú getur til að flytja notað til og frá íslandi. Það er fulllangt gengið þegar þessir menn eru komnir með áróð- ur inn á landsfund Sjálfstæðis- flokksins og víðar, um það að þeir geti reddað íslenzkri útgerð með því að flytja frá okkur ferska fiskinn til þess að hirða allan gróðann. Við höfum grætt á fragt- mni og þeir hafa stórgrætt á fragtinni, annars væru hvorki við né þeir að þessu. Maður er logandi hræddur við það, að misheppnaðir pólitíkusar taki þetta upp til þess sýna að þeir séu að gera eitthvað. Við erum með allt of stóran kaup- skipaflota og eitt það skásta, sem við gætum gert, væri að leggja honum. Það er svo miklu miklu ódýrara að láta útlendinga flytja þetta fyrir okkur. Okkur fiski- mönnunum gengi þá kannski bet- ur að skila arði ef við fengjum út- lendinga til að flytja þetta fyrir okkur. Ég tala nú ekki um frystu afurðirnar, þar kastar nú fyrst tólfunum. Er það ekki á útgerð- inni, sem þeir græða svona mikið, útgerðinni, sem skapar gjaldeyri til þess að menn geti verzlað. Ekki geri ég ráð fyrir því, að kaup- mennirnir skapi mikinn gjaldeyri og svo hafa þeir ekki vit á því að láta okkur í friði," sagði Gísli Jón Hermannsson. Steinar J. Lúðvíksson Árbók íslands 1982 BÓKAÚTGÁFAN Örn og Örlygur hf. hefur sent frá sér bókina Hvað gerðist á íslandi 1982 — Árbók fs- lands eftir Steinar J. Lúðvíksson og er þetta fjóröa bindið í þessum ár- bókaflokki. í frétt frá útgefanda segir m.a.: „Hvaö geröist á íslandi 1982 er samtímasaga innlendra atburða rakin í máli og myndum. Myndir skipa verulegan sess i bókinni enda eiga fle^stir kunnustu frétta- ljósmyndarar landsins ljósmyndir í bókinni, en myndaritstjóri bók- arinnar er Gunnar V. Andrésson. Þá eru í bókinni myndskreytingar eftir Gísla J. Ástþórsson sem túlk- ar með þeim skoplegu hliðina á ýmsum atburðum sem fjallað er um í bókinni. f bókinni er efninu skipt niður í flokka eftir eðli atburða og gangur mála rakin í yfirlitsgreinum, þannig að lesendur eiga að fá JNNLEN-T glögga yfirsýn yfir hvernig mál hófust, hvernig þau þróuðust og hver málalok urðu, svo fremi að þau hafi þá legið fyrir." Aðalflokkar bókarinnar eru eft- irtaldir: „Alþingi — stjórnmál; Atvinnuvegirnir: Bjarganir — slysfarir; Bókmenntir — listir; Dóms- og sakamál; Efnahags- og viðskiptamál; Eldsvoðar; Fjöl- miðlar; íþróttir; Kjara- og at- vinnumál; Menn og málefni; Nátt- úra landsins og veðurfar; Orku- mál; Skák og bridge; Skóla- og menntamál; Úr ýmsum áttum. Flestir kaflarnir bera síðan undir- fyrirsagnir eða eru enn frekar flokkaðir. Bókin Hvaö geröist á íslandi 1982 er í stóru broti um 340 blað- síður. Á bókarkápu er vitnað í um- mæli Erlends Jónssonar ritdóm- ara um þennan bókaflokk, þar sem hann segir að bókin sé þjóðaral- búm sem fólk vilji geyma við hlið- ina á fjölskyldualbúminu til minn- ingar um gömlu góðu dagana. Bókin Hvaö geröist á íslandi 1982 er sett, umbrotin, filmuunnin og prentuð hjá Prentstofu Guð- mundar Benediktssonar, en bund- in hjá Arnarfelli. Kápuhönnun annaðist Sigurþór Jakobsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.