Morgunblaðið - 16.11.1983, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1983
>VE\HS
Þyrlan komin um borft í Öskju. Vélbáturinn Siggi Sveins, sem híffti þyrluna af rúmlega 80 metra dýpi upp á 10 raetra dýpi, til hliðar.
Samvinna allra að-
ila varð til þess að
þyrlunni var bjargað
TF-RÁN, þyrla Landhelgisgæsl-
unnar, sem hrapaði í sunnan-
verðum Jökulfjörðum, aðfara-
nótt miðvikudagsins fyrir viku,
var komin í heilu lagi á þyrlu-
þilfar varðskipsins Oðins um
hálf tvö leytið í gærdag og virtist
við fyrstu sýn fremur heilleg.
Þyrlan hafði þá verið hífð upp af
rúmlega 80 metra dýpi í áföng-
um og að lokum var það Askja,
strandferðaskip Ríkisskips, sem
hífði þyrluna um borð til sín og
sigldi síðan að síðunni á Óðni og
hífði hana yfir á þilfar hans.
Ekkert hægt að segja um
ástand þvrlunnar að svo
komnu máli
„Ég get ekkert sagt um ástand
þyrlunnar að svo komnu máli.
Björgunaraðgerðum er nú lokið og
rannsókn getur hafist," sagði
Skúli Jón Sigurðarson í samtali
við Morgunblaðið eftir að þyrlan
var komin á þilfar óðins. Skúli
Jón sagði að von væri á manni frá
NTSB (National Tourist Safety
Board) í Bandaríkjunum til ís-
lands til að aðstoða við rannsókn-
ina á orsökum þyrluslyssins.
Aðstoðar íslensk yfirvöld
„Ég er hér til að aðstoða íslensk
yfirvöld við rannsóknina á þyrlu-
slysinu," var það eina sem Matth-
ew Ellis, öryggisráðgjafi og sér-
fræðingur frá Sikorsky-verk-
smiðjunum, vildi láta hafa eftir
sér, eftir að þyrlan var komin um
borð í óðin.
Þegar blm. Morgunblaðsins kom
á staðinn um klukkan hálf tólf í
gærdag var strandferðaskipið
Áskja þar fyrir. Talsvert bil var á
milli hennar annars vegar og
Óðins og vélbátsins Sigga Sveins
hins vegar, sem voru norðan undir
rauðu, sem reyndist þegar til kom
vera nef þyrlunnar. Þyrlan kom þó
á réttum kili úr sjó og sást þegar
hún var komin upp úr að taugarn-
ar voru festar í aðalþyrlublað
hennar, en þar er þyrlan sterkust.
Gert var hlé á hífingum öðru
hverju, en annars gekk mjög fljótt
og vel að hífa hana um borð í
Öskju og um eitt leytið var þyrlan
komin um borð í hana heilu og
höldnu. Askja hélt þegar til móts
við óðinn, sem fjarlægst hafði
meðan á þessu stóð, vegna þess að
skipin hafði rekið talsvert á með-
an á hífingum stóð. Askja lagði að
síðu Óðins og mjög vel gekk að
hífa hana á milli skipanna og
þangað var hún komin um hálf tvö
leytið.
Björgun þyrlunnar engum
einum að þakka fremur
en öörum
Björgunaraðgerðir gengu mjög
fljótt og fumlaust fyrir sig, og
aldrei var að sjá að neitt varhuga-
vert ástand skapaðist meðan á híf-
ingunum stóð.
Skúli Jón sagði að björgun þyrl-
unnar væri engum einum að
þakka fremur en öðrum, allir
hefðu lagst á eitt við björgunina
og ekki væri hægt að taka neinn
einn út úr fremur en annan. Það
hefði verið samvinna allra aðila
sem hefði gert útslagið að það
hefði tekist að bjarga þyrlunni.
Þetta hefði verið mikil og erfið
vinna og allir lagt nótt við dag til
þess að björgun þyrlunnar gæti
tekist.
„Hér hafa allir staðið sig svo
ótrúlega vel og nánast enginn sof-
ið nema hænublund, sem unnið
hefur við björgunaraðgerðirnar,
frá því í síðustu viku,“ sagði Karl
Eiríksson, formaður flugslysa-
nefndar, sem eftirlit hefur með
rannsókn slyssins. HJ
Þyrlan hífft úr strandferðaskipinu Öskju yfír á þyrlupall varðskipsins Óftins.
Skúli Jón Sigurðarson, hjá rannsóknanefnd flugslysa, athugar mæla þyrlunn-
ar eftir aft hún var komin um borð í Óftin.
Höfðaströndinni að leggja síðustu
hönd á undirbúninginn að því að
hífa þyrluna upp á yfirborðið. Tíu
‘mínútum fyrir tólf lagði Askja af
stað og lagði að vélbátnum Sigga
Sveins, en í toggálga hans hékk
þyrlan á u.þ.b. 10 metra dýpi.
Löndunarkrana Óskju átti að nota
til þess að hífa þyrluna upp á yfir-
borðið.
Þokkalegt veður
Sjór var tiltölulega sléttur og
suðvestan eða vestan kaldi, þegar
björgunaraðgerðir hófust. Eftir að
Askja hafði lagt að fiskibátnum,
var hafist handa um að tengja
taugarnar, sem tengdar höfðu ver-
ið þyrlunni, við krana Öskju. Ekki
færri en þrír gúmmíbátar voru
viðstaddir og fór vinnan við að
tengja kranann fram í þeim.
Nef þyrlunnar sást fyrst
Það var upp úr klukkan hálfeitt
sem fyrst sást örla á einhverju
Þyrlan. Fyrir framan sést aftari
þyrluspaftinn en hann kom upp með
þyrlunni, en var tekinn og látinn í
tunnuna um borft í Öskju.