Morgunblaðið - 16.11.1983, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1983
Frá hinum fjölmenna fundi Verzlunarmannafélags Keykjavikur á Hótel Sogu, þar sem samþykktur var oreyttur
afgreiðslutími verzlana.
Verslunarmenn samþykktu breytingu á afgreiðslutíma:
„Skársti kosturinn
af mörgum vondum“
Þrír menn handteknir:
Hugðust svfkja
milljónir króna
út úr bönkunum
FÉLAGAR í Verslunarmannafélagi
Reykjavíkur staðfestu í fyrrakvöld á
félagsfundi samkomulag um breytta
tilhögun vinnutíma afgreiðslufólks í
verslunum. Samkomulag þetta er í
burðarliðnum á milli VR og vinnuveit-
enda og er samhljóða tillögu, sem
væntanlega verður afgreidd frá borgar-
stjórn Reykjavfkur á morgun, fimmtu-
dag. Félagsfundurinn samþykkti til-
lögu stjórnar VR um breyttan vinnu-
tíma með 178 atkvæðum gegn 78, en
72 skiluðu auðum og/eða ógildum seðl-
Rjúpnaskytta
fannst látin
Sauöárkróki, 15. nóvember.
UNGUR maður, Sæmundur Jónsson,
Fosshóli f Sæmundarhlíð, sem fór að
heiman klukkan 11.30 í gærmorgun til
rjúpnaveiða. Fannst hann látinn um
klukkan 7 í morgun, um 3 kílómetra
frá bænum Dæli í sömu sveit.
Þegar Sæmundur kom ekki heim
síðari hluta dags var farið að
grennslast fyrir um hann. Björgun-
arsveit Slysavarnafélagsins á Sauð-
árkróki var kölluð út til leitar um
klukkan 22.00, og síðar björgunar-
sveitirnar í Varmahlíð, Hofsósi og
Blönduósi. Auk þess leitaði fjöldi
fólks úr sveitinni. Stóð leitin yfir í
alla nótt og sem fyrr segir fannst
Sæmundur látinn um klukkan 7 í
morgun. Talið er að hann hafi hras-
að í brattlendi.
Sæmundur var fæddur 2. júní árið
1962 og var ókvæntur og barnlaus.
um, skv. upplýsingum, sem blm. Morg-
unblaðsins fékk hjá Pétri A. Maack,
stjórnarmanni í VR.
„Þessi atkvæðagreiðsla snerist í
raun og veru um breytingar á vinnu-
tímaákvæði kjarasamnings VR,“
sagði Pétur. „Nú gerir samningurinn
ráð fyrir, að á mánudögum til
fimmtudags megi hafa verslanir
opnar á tímanum frá kl. 8 til 20, á
föstudógum kl. 8—22 og á laugardög-
um kl. 8—16. Innan þessa ramma má
þó aðeins nýta fimmtán stundir, þ.e.
kaupmenn ráða í samráði við sitt
starfsfólk hvernig þessar fimmtán
stundir eru nýttar. Og það er tekið
fram, að starfsfólki sé ekki skylt að
vinna þessa aukavinnu og að það
skuli ekki gjalda þess ef það hafni
viðbótarvinnu umfram hinn hefð-
bundna vinnutíma. Það mun vera
einsdæmi, að slík ákvæði séu í samn-
ingum."
Pétur sagði engan fundarmanna
hafa verið ánægðan með þessa
niðurstöðu — „en eins og staðan er
þá töldum við þennan kost skárstan
af mörgum vondum. Þetta hefur I
för með sér meiri vinnu fyrir versl-
unarfólk og meginástæðan fyrir því
að á þetta var fallist er sú, að þetta
mun fjölga aukavinnustundum, og
þar af leiðandi færa björg í bú. Af
því veitir ekki eins og ástandið er í
landinu," sagði Pétur Maack.
„Það er vitað að í borgarstjórn er
viss vilji fyrir því, að afnema reglu-
gerðina um afgreiðslutíma verslana
með öllu. Þar með værum við komin
aftur á sama stig og við vorum fyrir
1917, þegar fyrstu reglur um tak-
markanir á vinnutíma verslunar-
manna voru settar í lögreglu-
samþykkt. Við værum komin aftur
fyrir setningu vökulaganna! Vinnu-
tími verslunarmanna, einkum af-
greiðslufólks, er þegar of langur, en
þennan kost töldum við skárstan,
eins og ég sagði, en við eigum von á,
að í stað þess að borgarstjórn af-
nemi reglugerðina með öllu, þá verði
henni breytt til samræmis við þetta
samkomulag VR og vinnuveitenda
og niðurstöðu félagsfundarins,"
sagði Pétur A. Maack að síðustu.
MIKII. óánægja er rfkjandi meðal
kaupfélagsstjóra, sérstaklega á Suð-
ur- og Vesturlandi, vegna opnunar
Miklagarðs, stórverzlunar sam-
vinnuhreyfingarinnar á morgun, en
menn telja sig missa stóran spón úr
aski sínum.
Eignaraðilar Miklagarðs eru
Kaupfélag Reykjavíkur og ná-
grennis, KRON, sem er meirhluta
aðili með 52% hlutafjár, Samband
íslenzkra samvinnufélaga, sem á
TVEIR menn hafa verið úrskurðaðir
í gæzluvarðhald og sá þriðji hand-
tekinn í gærkvöldi, en gæsluvarð-
haldskrafa hafði ekki verið sett fram
þegar Mbl. fór í prentun, vegna
rannsóknar Rannsóknarlögreglu
ríkisins á umfangsmiklu fjársvika-
máli. Mennirnir eru grunaðir um að
hafa ætlað að svíkja stórfé — millj-
ónir króna út úr bankakerfinu, ann-
ars vegar með því að falsa vöru-
reikninga á erlend fyrirtæki og
þannig komast yfir gjaldeyri, sem
greitt var fyrir með innistæðulausum
ávísunum, og hins vegar með því að
leggja stórar upphæðir inn á hand-
hafa sparisjóðsbækur, en féð var
greitt með innistæðulausum ávísun-
um.
Allar voru ávísanirnar gefnar
út af einum mannanna og leikur
grunur á að hann hafi haft í
hyggju komast úr landi með hluta
fjárins áður en svikin kæmust upp
og hefur hann viðurkennt sinn
hluta í fjársvikunum.
Samkvæmt heimildum Mbl. þá
hefur undirbúningur að gjaldeyr-
issvikunum staðið um nokkurt
skeið. Skjöl voru fölsuð og þannig
fékk maðurihn gjaldeyrisyfir-
færslur, sem hann greiddi fyrir
með innistæðulausum ávísunum.
Með þessum hætti hafði maðurinn
komist yfir um 35 þúsund pund,
sem nema um 1,3 milljónum
króna, og auk þess 5 þúsund pund
í ferðatékkum, sem hann hafði
fengið vegna fyrirhugaðrar utan-
ferðar.
um fjórðung hlutafjár, og síðan
Kaupfélag Suðurnesja, Kaupfélag
Hafnarfjarðar og Kaupfélag Kjal-
arness, sem eiga minni hluti.
Fyrir liggur að verðlag verði
lægra í Miklagarði en kaupfélögin
geta boðið. Því óttast kaupfélags-
menn, sérstaklega í Hafnarfirði,
Suðurnesjum, Mosfellssveit, Vík,
Hvolsvelli, Borgarnesi og síðan á
Selfossi, að þeir missi viðskipti í
verulegum mæli yfir til Mikla-
Síðan hafði maðurinn, í samráði
við hina tvo, að talið er, greitt há-
ar upphæðir inn á handhafa spari-
sjóðsreikninga í fjölmörgum
bönkum og útibúum þeirra á höf-
uðborgarsvæðinu. Allar voru
greiðslurnar inntar af hendi með
innistæðulausum ávísunum.
En svikin komust upp og málið
kært til Rannsóknarlögreglu
ríkisins skömmu fyrir helgi.
Enn slys á
Miklubraut
TÆPLEGA sjötug kona varö fyrir bif-
reið á Miklubraut í gær, gegnt versl-
uninni Hagkaup. Konan var á leið
noröur yfir götuna þegar hún varð
fyrir bifreið, sem ekið var vestur
Miklubraut. Konan viðbeinsbrotnaði.
Undanfarin misseri hafa orðið
mörg alvarleg slys á Miklubraut.
Konan fór yfir götuna þar sem
gangstétt liggur niður að henni, en
síðan er engin gangbraut yfir sjálfa
umferðaræðina. Sama er uppi á ten-
ingnum á Miklubraut gengt Rauða-
gerði, Stigahlíð og Reykjahlíð.
Gangstéttir á þessum stöðum liggja
allar að Miklubrautinni, en síðan
engar merktar gangbrautir yfir um-
ferðaræðina. Á öllum þessum stöð-
um hafa orðið alvarleg umferðaslys
á undanförnum misserum, þeirra á
meðal nokkur banaslys.
garðs. Telja viðmælendur Mbl., að
með rekstri Miklagarðs sé sam-
vinnuhreyfingin í raun farin að
vinna gegn eigin hagsmunum.
Mikillar óánægju hefur og gætt
innan Sambandsins með þá þróun
mála, að Sambandið hefur útvegað
nær allt fjármagn til uppbygg-
ingar Miklagarðs, bæði innanlands
og utan. Sambandið mun hins veg-
ar þegar til lengri tíma er litið
hagnast mjög lítið á starfseminni,
ekki sízt með hliðsjón af því, að
Miklagarðsmenn hyggjast sjálfir
sjá um innflutning vara þeirra er á
boðstólum verða í framtíðinni. Til
að byrja með mun Mikligarður
hins vegar eiga mikil viðskipti við
Innflutningsdeild SÍS, eða kaupa
allt að þriðjungi þess er á boðstól-
um verður.
Þá mun risin upp deila með
Miklagarðsmönnum og SÍS-
mönnum um réttmæti þess, að
koma Sambandsmerkinu fyrir á
Miklagarði. Miklagarðsmenn segja
verzlunina ekki vera Sambands-
verzlun, en Sambandsmenn halda
hinu gagnstæða fram.
Ennfremur hefur það vakið at-
hygli félaga í KRON, sem er meiri-
hluta eignaraðili Miklagarðs, að
8% aðildarafsláttur þeirra gildir
ekki í Miklagarði, eins og í öðrum
verzlunum kaupfélagsins.
Myndasögur Moggans fylgja
blaðinu í dag, miðvikudag.
Ég kannast ekki við varafor-
mannsframboð hvað mig varðar
— segir Grétar
Þorsteinsson
„ÉG kannast nú ekki við það hvað
mína persónu varðar. Ég hef rætt
við menn um þetta, en það hefur
verið spjall fyrst og fremst, án þess
að það lægi svona gífurlega mikið á
bak við það,“ sagði Grétar Þor-
steinsson, formaður Trésmíðafélags
Reykjavíkur, er Mbl. spurði hann
hvort hann ætlaði að gefa kost á sér
til kjörs varaformanns á landsfundi
Alþýðubandalagsins um helgina.
Grétar sagði einnig, að hann
hefði mest orðið var við umræðu
um mál þetta í blöðunum, en
sagði síðar að hann teldi ekki
óeðlilegt að fulltrúi verkalýðs-
arms flokksins ætti frambjóð-
anda til varaformanns á lands-
fundinum. Eins og Mbl. hefur
skýrt frá hafa Alþýðubanda-
lagskonur komið sér saman um
að standa sem einn maður að
kjöri Vilborgar Harðardóttur.
Steingrímur Sigfússon er einnig
talinn líklegur til að gefa kost á
sér.
Þá hefur einn Alþýðubanda-
lagsmaður lýst opinberlega yfir
framboði sínu til gjaldkeraemb-
ættisins. Það er Hilmar Ingólfs-
son, skólastjóri og bæjarfulltrúi
Alþýðubandalagsins í Garðabæ.
Hann sagði í samtali við Mbl. í
gær, að ákvörðun sín byggðist á
niðurstöðu undirbúningsfundar
flokksins í Garðabæ. „Það er ver-
ið að skipta mönnum í einhverja
arma, og hefur m.a. örlað á því í
fréttaskýringum í Þjóðviljanum.
Við hér í Garðabæ könnumst að-
eins við einn arm, arm Alþýðu-
bandalagsins. Við viljum fá fram-
boð í öll embættin og að fólk fái
að velja úr og ræða málin áður en
til landsfundar kemur. Framboð
mitt er til að hvetja til sem
flestra framboða," sagði hann.
Varðandi kosningarnar sagði
Hilmar, að það fyrirkomulag
væri viðhaft hjá Alþýðubanda-
laginu, að kosin væri kjörnefnd
sem kæmi síðan með tillögur á
fundinn um frambjóðendur. Yfir-
leitt væri það svo, að kjörnefnd
næði samkomulagi um að bjóða
fram jafnmarga og kjósa ætti, en
hann sagðist telja nauðsynlegt að
gefa fólki tækifæri á að átta sig á
hverjir væru í boði, áður en kjör-
nefnd hæfi störf. Því teldu
Garðbæingar að framboð ættu að
koma fram fyrir landsfund.
Vegna yfirlýsinga Guðmundar
J. Guðmundssonar í Mbl. um að
hann ætli ekki að mæta á lands-
fundinn um helgina og að hann sé
kominn í „pólitískt veikindafrí",
hafði Mbl. samband við Svavar
Gestsson, formann flokksins, og
spurði hann hvað hann vildi segja
um málið. Hann svaraði: „Það eru
mál sem ég ræði við Guðmund og
ég veit hvernig á stendur. Ég ætla
ekki að ræða það neitt í Morgun-
blaðinu."
Óánægja kaupfélags-
stjóra með Miklagarð
Telja samvinnuhreyfinguna vinna gegn eigin hagsmunum