Morgunblaðið - 16.11.1983, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 16.11.1983, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1983 Togara- saga Magn- úsar Run- ólfssonar Örn og Örlygur hafa gefið út bók- ina Togara.saga Magnúsar Runólfs- sonar skráða af Guðjóni Friðrikssyni hlaðamanni. í frétt frá útgefanda segir: „Magnús Runólfsson var alinn upp í litlum steinbæ við Bræðra- borgarstíginn, fór til sjós á togara aðeins 15 ára gamall, tók stýri- mannspróf og vann sig upp í að verða togaraskipstjóri án þess að hafa nokkuð á bak við sig annað en eigin dugnað og harðfylgni. Hann varð síðan skipstjóri á breskum og íslenskum togurum og lenti í mörgum sjávarháska og ævintýrum. A stríðsárunum sigldi hann 70 ferðir til Englands og bjargaði þá mörg hundruð manns af sökkvandi skipum og úr sjó. Síðast var hann hafnsögumaður í •< *•«* **t*"*t>» 09 09 tJKja (iimKi tHMxwxn* Reykjavík og vann þá ótrúleg björgunarafrek. Saga Magnúsar Runólfssonar er jafnframt saga gömlu síðutogar- anna um meira en þiggja áratuga skeið." Bókin er unnin að öllu leyti í Prentsmiðjunni Eddu. Kápuhönn- un annaðist Sigurþór Jakobsson. Karlmannaföt kr. 1.995 til 2.975. Stakir jakkar kr. 1.775. Tere- lynebuxur kr. 575. Flauelsbuxur kr. 490, karlm. og kvenm.sniö. Gallabuxur kr. 555. Gallabuxur Kvenm.sniö kr. 490. Skyrtur og fl. ódýrt. Andrés Skólavörðustíg 22, sími 18250. Einbýlishús viö Bugðutanga r Þetta glæsiiega hús er falt í beinni sölu eöa i skiptum fyrir minni eign í Reykjavík. Húsiö er aö gr.fl. 190 fm og jaröhæö ca. 85 fm. Á efri hæö eru m.a. 4 svefnherb., húsbóndaherb., 2 stofur, sjónvarpsskáli, stórt eldhús, þvottahús innaf eldhúsi. Á jaröhæö er m.a. rúmgóöur bílskúr, föndurherb. FASTEICNA HÖLUN FASTEIGNAVIÐSKIPTI MIOBÆR HÁALEITISBRAUT 58-60 SÍMAR 35300 & 35301 Bladburdarfólk óskast! h li Austurbær Bergstaöastræti Ingólfsstræti og Þingholtsstræti Uppboðið á stóðhestastöðinni: Dýrasti folinn fór á 40 þúsund krónur ALLS voru tíu hestar boðnir upp á stóðhestastöðinni í Gunnarsholti síðastliðinn laugardag. Af þeim voru fjórir af stöðinni en hinir frá einstaklingum úr nágrenninu. Vel var mætt á uppboðið þó að veður væri leiðinlegt, í það minnsta vest- an Hellisheiðar, enda var óvenju fátt fólk úr Reykjavík og ná- grenni. Boðin gengu greiðlega fyrir sig og fór sá dýrasti á 40.000 krónur en það var Torfi frá Torfastöðum, fimm vetra foli, töluvert taminn. Þó má telja verðið á Létti frá Djúpadal betra, þar er Léttir er aðeins tveggja vetra, en hann fór á tuttugu og fimm þúsund. Sigurður í Kirkjubæ kom með tvo fola og fór annar þeirra á þrjátíu þúsund. Var það þriggja vetra foii undan Hóla-Blesa sem einmitt var seldur á uppboðinu í fyrra. Eins og í fyrra stjórnaði Jón Eg- ilsson, hreppstjóri á Selalæk, upp- boðinu eins og honum einum er lagið og var hann óspar á að láta menn heyra það ef honum fannst lítið boðið. Eins og kom fram í fréttum Morgunblaðsins í gær drapst einn af stöðvarfolunum úti í haga með- an á uppboðinu stóð. Var það mik- ill skaði, því þetta var einn af efni- legri folum á stöðinni. Búið er að ráða menn til tamn- inga á stöðina í vetur. Er annar Páll B. Pálsson, sem hefur unnið undanfarin ár á stöðinni, og með honum verður Sigvaldi Ægisson úr Reykjavík. Munu þeir hefja tamningar fljótlega upp úr ára- mótum. Starfshópur kannar áhrif nýrrar tækni á atvinnulíf NÝLEGA skipaði félagsmálaráð- herra starfshóp, sem ætlað er það verkefni að framkvæma könnun á áhrifum nýrrar tækni á íslenska at- vinnuvegi í næstu framtíð. Með könnun þessari er stefnt að því að leiða í Ijós, eftir því sem unnt er, líkleg áhrif þeirrar nýju tækni sem nú ryður sér til rúms, á mannafla- þróun á vinnumarkaði, framleiðni og samkeppnishæfni núverandi at- vinnuvega svo og á stofnun og við- gang nýrra atvinnugreina. Starfshópinn skipa: Ingvar Ásmundsson skólastjóri, formað- ur. Haukur Helgason og Hilmar Jónasson, tilnefndir af launþega- samtökum, Magnús Gústafsson og Þorsteinn Geirsson, tilnefndir af Saumakassar þrjár stærðir . STOFNAO 1903 ÁRMÚLA 42 • HAFNARSTRÆTI 21 HITAMÆLAR SöiiíiföaKyigjyií1 Vesturgötu 16, sími 13280. samtökum atvinnurekenda, Gylfi Kristinsson, fulltrúi í félagsmála- ráðuneytinu, er ritari starfshóps- ins. Aðdragandi að skipun starfs- hópsins er sá að ýmsir aðilar hafa látið í ljós áhuga á að ríkisstjórnin hefði frumkvæði að því að fram færi könnun á hugsanlegum áhrif- um aukningu tölvuvæðingar og sjálfvirkni á íslenskt atvinnulíf. Ríkisstjórnin fól félagsmálaráð- herra að kanna undirtektir helstu samtaka launafólks og atvinnu- rekenda og boðaði hann til fundar með aðilum 5. september sl. Und- irtektir samtakanna voru jákvæð- ar og í framhaldi af því hefur framangreindur starfshópur nú verið skipaður, en i hópnum eru tveir fulltrúar tilnefndir af laun- þegasamtökum og tveir eftir til- nefningu atvinnurekenda, enda er þess vænst að gott samstarf náist um framkvæmd könnunarinnar við aðila vinnumarkaðarins. (Frélt frá félaKsmálaráóuneytinu.) Sól ég sá Síðara bindi sjálfsævisögu Stein- dórs Steindórssonar frá Hlöðum ÚT ER komið hjá Erni og Örlygi síðara bindi sjálfsævisögu Steindórs Steindórssonar, náttúrufræðings og fyrrverandi skólameistara frá Hlöð- um. Nefnist bókin Sól ég sá sem hin fyrri. Þetta bindi fjallar um það sem kalla má tómstundastörf hans og hliðarhopp frá hinni troðnu braut embættismanna, eins og hann kallar það sjálfur. Hér segir Steindór frá afskiptum sínum af pólitík, bæði bæjarpólitíkinni á Akureyri og landsmálapólitík og baráttu fyrir Alþingiskosningarn- ar bæði á Akureyri og Isafirði. Steindór segir einnig frá stuttri setu sinni á Alþingi og segir frá Þrýstimælar Allar stæröir og gerðir SflyiíjfljoaiigjQJF d&xroðSGffii & Vesturgötu 16, sími 13280 hinum umdeildu Laxármálum sem hann hafði töluverð afskipti af á sínum tíma. f bókinni segir Steindór einnig frá ferðalögum sínum, ritstörfum og rannsóknum heima og erlendis. Loks segir Steindór frá því hvern- ig hann hefur eytt síðustu árun- um, eftir að landslög skipuðu hon- um í ruslakompuna þegar náð var eftirlaunaaldri, en þarna í „rusla- kompunni" hefur hann unað sér við skrifborðið í samfélagi við inn- lenda og erlenda fræðimenn og ferðalanga. Eins og í fyrri hluta æviminn- inga sinna fjallar Steindór hisp- urslaust um menn og málefni og dregur ekkert undan þegar hann segir skoðun sína og kynnir við- horf sín. Að bókarlokum lítur hann til baka, áttræður, eftir langa og merkilega vegferð og ger- ir upp reikningana með orðunum „Sól ég sá“ og eru þau kjarninn úr lífsskoðunum hans. Bókin Sól ég sá er sett, umbrot- in, filmuunnin, prentuð og bundin hjá Prentsmiðjunni Eddu hf. Kápu hannaði Sigurþór Jakobs- son.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.