Morgunblaðið - 16.11.1983, Síða 3
r
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1983
3
MorgunblaðiA/ Heimir Stigsson.
Sveinn Sæmundsson ásamt Gertrud Hary og ættingjum hennar á Keflavík-
urflugvelli í gærdag.
25 sinnum yfir Atlants-
hafið með Flugieiðum
„ÞAÐ er auðvitað ánægjulegt til
þess að vita, að farþegar sýni félag-
inu trygglyndi af þessu tagi,“ sagði
Sveinn Sæmundsson, forstöðumaður
kynningardeildar Flugleiða, í tilefni
af því að þýzk kona, Gertrud Hary,
lenti hér á landi í sinni 25. ferð yfir
Atlandshafið með Flugleiðum.
Sveinn tók á móti frúnni, en í fylgd
með henni voru tveir fjölskyldumeð-
limir.
„Okkur þótti vel við hæfi að
bjóða frúnni í hádegisverð á Hótel
Aerogolf í Luxemborg, áður en
hún lagði upp í þessa för. Síðan
færðum við henni blómvönd við
komuna hingað til lands," sagði
Sveinn ennfremur.
Það kom fram hjá Sveini, að
Gertrud Hary bý í landamærahér-
aði Þýzkalands við Luxemborg, en
ættmenni hennar búa flest í
Bandaríkjunum. „Hún býr hjá
ættingjum sínum í Bandaríkjun-
um yfir vetrartímann, en mun síð-
an fljúga með okkur til baka til
Luxemborgar í maí nk.“
Frumvörp um sölu átján
ríkisfyrirtækja lögð fram
FJÁRMÁLARÁÐHERRA lagði fram á
ríkisstjómarfundi í gærmorgun átján
frumvörp um sölu jafnmargra ríkisfyr-
irtækja og stofnana. Frumvörpin af-
henti hann ráðherrum þeim er fara
með yfirstjórn hvers fyrirtækisins fyrir
sig og sagði fjármálaráðherra í samtali
við Mbl. í gær, að hann hefði afhent
þeim frumvörpin með ósk um að þeir
flyttu frumvörpin hver og einn varð-
andi sín fyrirtæki, þar sem ekki hefði
náðst samkomulag um að fjármála-
ráðuneytið sæi um söluna. Þá sagði
fjármálaráðherra að auk þessa væri
gert ráð fyrir sölu hlutabréfa í ríkis-
eigu í allmörgum fyrirtækjum.
— í ríkisstjórn
í gærmorgun
Flest fyrirtækin falla undir land-
búnaðarráðuneytið, eða fimm. Þau
eru: Grænmetisverslun landbúnað-
arins, Laxeldisstöðin í Kollafirði,
Áburðarverksmiðja ríkisins, Græn-
fóðurverksmiðja ríkisins og Til-
raunastöðvar Rannsóknastofnunar
landbúnaðarins. Samgönguráðu-
neytið: Skipaútgerð ríkisins, Ferða-
skrifstofa ríkisins og Umferðarmið-
stöðin í Reykjavík. Utanríkisráðu-
neytið: Fríhöfnin á Keflavíkurflug-
velli, Sala varnarliðseigna og ls-
lenskir aðalverktakar sf. Mennta-
málaráðuneytið: Bókaútgáfa Menn-
ingarsjóðs og Söludeild Námsgagna-
stofnunar. Iðnaðarráðuneytið:
Landssmiðjan og Lagmetisiðja ríkis-
ins á Siglufirði. Heilbrigðis- og
tryggingaráðuneytið: Lyfjaverslun
rikisins og íslensk endurtrygging.
Sjávarútvegsráðuneytið: Síldar-
verksmiðja ríkisins.
í fréttatilkynningu frá fjármála-
ráðuneytinu segir að frumvörp þessi
séu nú til athugunar í vikomandi
ráðuneytum og að framvinda mála
raðist af undirtektum þeirra.
Helgi Hálfdanarson:
Kynhvarfar
Að undanförnu hefur orðið þó
nokkur umræða um kynhvörf. En
svo nefnist í orðasafni kennara-
háskólans úr uppeldis- og sálar-
fræði það fyrirbæri, sem á er-
lendu máli (ensku) kallast homo-
sexuality og telst einkum vera til-
hneiging til að leita kynnautnar
með persónu sama kyns. Sá mað-
ur, karl eða kona, sem svo er eðli
farinn, er þar kallaður kynhvarfi
(nafnorð), og sagt að hann sé
kynhvarfur (lýsingarorð). Um
hvort kynjanna hafa nú um
skeið mjög heyrzt orðin
„hommi" og „lesbía", og hafa
raunar kynhvarfar sjálfir notað
um sig þessi orð.
Þegar orðanefnd Kennara-
háskóla íslands hafði þessi at-
riði til meðferðar, þóttu orðin
„hommi“ og „lesbía" með öllu
ótæk, þar eð þau hefðu á sér
niðrandi blæ. Voru þar tekin upp
tökuorðin hómi og lespa, sem
bæði þóttu kurteisari í viðmóti
og miklu íslenzkari á svip. Orðið
„hommi" er ekki sem bezt mynd-
að tökuorð af erlendum uppruna
sínum. Það er myndað líkt og
meinlaus uppnefni (kommi,
sjalli) eða kunningja-gælunöfn
(Simmi, Tommi) sem ókunnugir
nota naumast nema í hálfkær-
ingi. Orðið hómi er hins vegar
klárt og kvitt af öllum óhreinum
grunsemdum, og þó nær upp-
runa sínum. Orðið „lesbía" er
býsna óheppilegt tökuorð; því
enda þótt hið góða eyland Lesbos
eigi að sjást í hillingum á bak við
það, verða hugmyndatengsl frá
hljómi þess (-bía, -spía) allt önn-
ur og ógeðfelldari en svo, að þau
liggi til Saffóar skáldkonu hinn-
ar grísku, sem orti þar ódauðleg
ástaljóð til stallmeyja sinna, svo
að fátt hefur verið kveðið af feg-
urri innileik um göfugar ástir á
þeim árþúsundum sem síðan eru
liðin.
Illa trúi ég því, að kynhvörfu
fólki á íslandi sé mjög annt um
orðin „hommi" og „lesbía" og vil
því ráðleggja bæði þeim og öðr-
um að taka upp í þeirra stað orð-
myndir orðanefndar kennarahá-
skólans: hómi um kynhvarfan
karlmann og lespa um kynhvarfa
konu.
AÁlKUGflRÐUR
Við bendum a
paðferekkiá
Komdu á staðmn, skoðaðu
stærstu verslun lands>ns
kynntu þér voruval okkar
. ■
A1IKLIG4RDUR
MARKAÐUR VIÐ SUND