Morgunblaðið - 16.11.1983, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 16.11.1983, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1983 23 Pólland: Lögregla handtók 40 vestræna fréttamenn Varsjá, 15. nóvember. AP. LÖGREGLA handtók að sögn sjón- arvotta 40 vestræna fréttamenn og pólska aðstoðarmenn þeirra í morg- un er þeir reyndu að fylgjast með yfirheyrslum yfir séra Henryk Jank- owski, vini og skriftaföður Lech Walesa, sem hófust í Gdansk í morgun. Saksóknarinn í Gdansk hafði kallað Jankowski fyrir sig til þess að ræða ásakanir á hendur honum um misnotkun á frelsinu sem er því samfara að starfa fyrir kirkj- una. Presturinn vildi ekkert láta hafa eftir sér um yfirheyrslurnar er til hans náðist símleiðis síðdeg- is. Meira en 100 lögreglumenn og yfir 200 stuðningsmenn Samstöðu voru saman komnir fyrir utan skrifstofu saksóknara þegar Jank- owski og lögfræðingur hans komu þangað í morgun. Þegar þeir gengu inn í húsið hélt lögreglan aftur af borgarahópnum, en hand- tók síðan fréttamennina einn af öðrum. Flestir eru starfsmenn bandarískra, v-þýskra og sænskra sjónvarpsstöðva. Þeim var sleppt að tveimur klukkustundum liðn- um. í sárabætur fengu fréttamenn- irnir leyfi til að mynda sjósetn- ingu skips í Lenín-skipasmíða- stöðinni. Kom það mjög á óvart því sumir þeirra höfðu beðið leyfis til að fara inn í skipasmíðastöðina í meira en tvö ár. Erlendir fréttamenn hafa áður verið handteknir við störf sín í Póllandi, en handtökurnar í morg- un voru þær fjölmennustu til þessa. Bandarískur flotamála- fulltrúi myrtur í Aþenu Wa.shin£ton, A|>enu, 15. nóvember. AP. KONALD REAGAN Bandaríkjaforseti harmaöi morðið á bandaríska flota- málafulltrúanum í Aþenu í morgun og hét grískum yfirvöldum aðstoð við að hafa upp á þeim sem ábyrgð bæru á verknaðinum. Andreas Papandreou forsætisráðherra hefur fordæmt verknaðinn. Maður á vélhjóli myrti George Tasante sjóliðsforingja, aðalflota- fulltrúa bandarísku hermála- nefndarinnar í Grikklandi, og bíl- stjóra hans, þegar bifreið flota- málafulltrúans staðnæmdist á gatnamótum í Aþenu. Lögreglan í Aþenu hóf um- fangsmikla leit að morðingjanum og hugsanlegum vitorðsmönnum. Reistir voru vegatálmar umhverf- is borgina. Fjölmargir urðu vitni að verknaðinum. Vitnin segja að tveir menn á ljósbláu vélhjóli, klæddir dökkum jökkum og með hjálma á höfði, hafi ekið upp að bifreið Tasantes, sem merkt var bandaríska sendiráðinu, er hún staðnæmdist á rauðu ljósi er hann var á leið til vinnu sinnar í sendi- ráðinu klukkan 7.30 að staðar- tíma. Atvikið átti sér stað fimm kílómetra frá sendiráðinu. „Farþeginn á mótorhjólinu skaut að minnsta kosti sjö kúlum úr öflugri .45 kalibera byssu gegn- um eina rúðu bifreiðarinnar," sagði lögregluforingi í Aþenu. Fjórar kúlur hæfðu Tasante, sem var í borgaralegum klæðum. Morðingjarnir óku á brott í ofboði inn í úthverfið Psychico og komust undan. Engin öfgamannasamtök hafa lýst ábyrgð á hendur sér. Flotamálafulltrúinn var 53 ára, kvæntur og þriggja barna faðir. Hann var af grískum ættum. Uppsetning nýrra eldflauga í V-Evrópu: Ósk Grikkja um frest- un harðlega gagnrýnd Stra.sbourg, Moskvu, London, 15. nóvember. AP. HART VAR DEILT á Grikki á þingi Efnahagsbandalagsins (EBE) fyrir tilraunir þeirra til að fá sex mánaða frestun á uppsetningu stýri- og Pershing II eldfiauga í löndum EBE. Voru Grikkir með þessu sakaðir um tilraunir til að sundra ríkjum Atlantshafsbandalagsins (NATO), sem staðið hefðu einarðlega sam- an í afstöðunni til uppsetningar flauganna. Utanríkisráðherra Grikkja, Io- annis Haralambopoulos, neitaði að útskýra eða réttlæta tillögu stjórnar sinnar um frestun á upp- setningu flauganna þar sem það væri ekki í verkahring þings EBE að fjalla um utanríkisstefnur ein- stakra aðildarríkja. Fékk hann harkalega ádrepu þegar hann neitaði að svara ásökunum um að Grikkir reyndu að kljúfa EBE. Bandarískir embættismenn lögðu ríka áherzlu á það í dag að haldið yrði áfram tilraunum til að ná samkomulagi í viðræðum við Rússa í Genf um fækkun meðal- drægra kjarnorkuvopna og að enn væri tækifæri til að semja áður en uppsetning nýrra bandarískra flauga hæfist af fullum krafti. Sovézka viðræðunefndin í Genf gekk af samningafundi í morgun eftir 35 mínútna fund, hinn styzta í næstum tvö ár. Næsti fundur er fvrirhugaður á fimmtudag. Astæður útgöngunnar voru ekki gefnar upp, en talið að Rússar hafi verið að mótmæla komu fyrstu flauganna til Evrópu, sem komu til Englands í gær. Einn helzti fréttaskýrandi Nov- osti-fréttaþjónustunnar, Alexand- er Malyshkin, sagði komu fyrstu bandarísku eldflauganna til Bret- lands staðfesta það að Reagan og NATO-ríkin ætluðu að flýta sér sem mest að koma upp nýju flaug- unum og að Reagan væri staðráð- inn í því að stefna Genfarviðræð- unum í voða. Malyshkin sagði einnig nýjar tillögur Bandaríkja- manna um takmörkun kjarnaodda vera áróðursbragð, og upp á henni bryddað til að rugla vestur-þýzka þingmenn í ríminu rétt fyrir mik- ilvægar umræður í þinginu í Bonn um eldflaugamálið. Veður víða um heim Akureyri Amsterdam Aþena Barcelona Berlín BrUsael Chicago Dublin Feneyjar Frankfurt Genf Helsinki Hong Kong Jerúsalem Kaupmannahöfn Las Palmas Lissabon Lundúnir Los Angeles Malaga Mallorca Miami Montreal Moskva New York Osló París Reykjavík Rio de Janeiro Róm Stokkhólmur Sydney Vancouver Vínarborg Þórshöfn 9 léttskýjað 6 rigning 11 rigning 17 skýjaó 5 skýjaó 3 skýjaó 9 rigning 7 skýjaó 3 léttskýjaó 3 heióskírt 4 skýjaó 3 rignfng 23 skýjaó 15 skýjað 5 rigning 23 skýjaó 16 rigning 7 skýjað 23 heíóskirt 13 rigning 21 skýjaó 25 skýjaó 8 skýjaó 16 skýjaó 9 heióskírt 3 heióskírt 5 heióskirt 5 þokumóóa 39 heióskírt 10 rigning 4 skýjaó 28 heióskírt 10 rignfng 1 hefóskírt 7skýjaó Amnesty International: Mannréttindi fótum troðin í Sýrlandi London, 15. nóvember. AP. AMNESTY International-samtökin halda því fram í skýrslu að öryggissveit- ir í Sýrlandi hafi pyntað, myrt og haldið þúsundum manna í fangelsum án réttarhalda, auk þess sem stjórn Sýrlands beri ábyrgð á öðrum mannrétt- indabrotum. „Enginn getur treyst á vernd laganna í Sýrlandi," segir í skýrslu samtakanna. Þar segir að óbreytt- ir borgarar megi alltaf búast við gjörræðislegum handtökum þar sem öryggissveitirnar hafi frjáls- ar hendur skv. neyðarástandslög- um, sem verið hafa í gildi í 20 ár. Segja samtökin frá 23 pynting- araðferðum, sem öryggissveitirn- ar sýrlenzku hafi beitt menn. Meðal fanga, sem nefndir eru í skýrslu Amnesty, eru Nour Al-din Al-atassi, fyrrum forseti og for- sætisráðherra Sýrlands, sem verið hefur í haldi í 12 ár. Einnig Kamel Hussein, fyrrum sendiherra í Frakklandi, sem verið hefur í haldi frá 1971, og Mijali Nasrawin, háttsettur foringi í Baath-flokkn- um, sem er á 13. ári í fangelsi. Amnesty-samtökin gruna yfir- völd í Sýrlandi um að hafa fyrir- skipað sex fjöldamorð á tímabil- inu marz 1980 til febrúar 1982, þar sem þúsundir manna voru líflátn- ar. Castro ásakar stjórn Reagans Mexíkóborg, 15. nóvember. AP. EIDEL Castro Kúbuforseti var harð- orður í garð Bandaríkjastjórnar í dag vegna innrásarinnar á Grenada, sagði hana ögrun við mannkynið og líkti Keagan við Hitler. Castro hélt ræðu þar sem hann minntist Kúbumanna sem féllu á Grenada. Sagði hann byltinguna á Grenada hafa í raun liðið undir lok með aðförinni gegn Maurice Bishop fyrrum forsætisráðherra, sem myrtur var skömmu fyrir innrásina. Bráðabirgðastjórnin á Grenada tók formlega við völdum við at- höfn í St. Georges að Alistair Mclntyre leiðtoga hennar fjar- stöddum. Stjórnin situr að völdum þar til kosningar fara fram, sem verða að sex mánuðum liðnum. Utanríkisráðuneytið í Wash- ington birti fleiri skjöl í dag, sem hald var lagt á í innrásinni á Grenada, og kemur þar fram að stjórnin hafi verið farin að riðlast vegna innri togstreitu. Einnig kemur þar fram uggur yfirvalda vegna vaxandi óánægju þjóðarinn- ar með landstjórnina. Ennfremur voru birt skjöl sem sýndu að bylt- ingarstjórnin á Grenada hafði farið fram á verulega hernaðar- aðstoð frá Rússum og aðstoð við hernaðaruppbyggingu. John le Mes- urier látinn lA>ndon, 15. nóvember. AP. BREZKI leikarinn John le Mesuri- er, sem á að baki langan feril í kvik- myndum, sjónvarpsþáttum og á leik- sviði, lézt í dag. Hann var 71 árs að aldri. Hann lék í yfir eitt hundrað kvikmyndum og varð þjóðkunnur í heimalandinu fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsflokknum „I)ad’s Army“. Lestunar- áætlun Skip Sambandsins munu ferma til íslands á næstunni sem hér segir: HULL/GOOLE: Jan ............ 28/11 Jan ............ 12/12 Jan ............ 27/12 ROTTERDAM: Jan ............ 15/11 Jan ............ 29/11 Jan ............ 13/12 Jan ............ 28/12 ANTWERPEN: Jan ............ 16/11 Jan ............ 30/11 Jan ............ 14/12 Jan ............ 29/12 HAMBORG: Jan ............ 18/11 Jan ............. 2/12 Jan ............ 16/12 Jan ............ 30/12 HELSINKI: Helgafell ...... 12/12 LARVIK: Hvassafell ..... 21/11 Hvassafell ...... 5/12 Hvassafell ..... 19/12 Hvassafell ... 3/1 84 GAUTABORG: Hvassafell ..... 22/11 Hvassafell ...... 6/12 Hvassafell ..... 20/12 Hvassafell ... 4/1 84 KAUPMANNAHÖFN: Hvassafell ..... 23/11 Hvassafell ...... 7/12 Hvassafell ..... 21/12 Hvassafell ... 5/1 84 SVENDBORG: Helgafell ...... 17/11 Hvassafell ..... 24/11 Hvassafell ...... 8/12 Helgafell ...... 16/12 Hvassafell ..... 22/12 ÁRHUS: Helgafell ...... 17/11 Hvassafell ..... 24/11 Hvassafell ...... 8/12 Helgafell ...... 16/12 Hvassafell ..... 22/12 GLOUCESTER MASS.: Skaftafell ..... 30/11 Jökulfell ...... 16/12 HALIFAX, KANADA: Skaftafell ...... 1/12 Jökulfell ...... 17/12 ^SKIPADEILD SAMBANDSINS Sambandshúsinu Pósth. 180 121 Reykjavík Sími 28200 Telex 2101

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.