Morgunblaðið - 16.11.1983, Síða 29

Morgunblaðið - 16.11.1983, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1983 29 Punktar úr bæjarstjórn Akureyrar Akureyri, 15. nóvember. 8 konur í bæjarstjórn Átakalitill og stuttur fundur var haldinn í bæjarstjórn Akur- eyrar í dag. Helst má til tíðinda telja að hann sátu að þessu sinni 8 konur en aöeins 3 karlmenn, auk bæjarritara, Valgarðs Bald- vinssonar, sem sat fundinn í fjar- veru Helga Bergs, bæjarstjóra. Frá Alþýðubandalaginu sat fundinn Sigríður Stefánsdóttir, sem er varafulltrúi Helga Guð- mundssonar, en hann mun vera í þann mund að flytja til höfuð- borgarsvæðisins. Frá Framsókn- arflokknum voru Úlfhildur Rögnvaldsdóttir og Þóra Hjalta- dóttir, sem sat fundinn í forföll- um Sigurðar Jóhannessonar. Frá Kvennaframboðinu sátu fundinn að venju Sigfríður Þorsteinsdótt- ir og Valgerður Bjarnadóttir, frá Alþýðuflokki situr nú alla fundi Jórunn Sæmundsdóttir vegna fjarveru Freys Ófeigssonar og frá Sjálfstæðisflokki sátu fund- inn Margrét Kristinsdóttir og Bergljót Rafnar, sem þar var í forföllum Jóns G. Sólnes. Sigurður J. Sigurðsson, Gunn- ar Ragnars og Jón Sigurðsson voru fulltrúar „sterkara kynsins" á þessum fundi bæjarstjórnar Akureyrar og mun það kyn aldrei áður hafa haft svo fáa fulltrúa á bæjarstjórnarfundi. Atvinnuleysi eykst í október voru skráðir atvinnu- leysisdagar á Akureyri 1745, sem svarar til þess að 83 hafi verið atvinnulausir allan mánuðinn. Er þar um talsverða aukningu á skráðu atvinnuleysi að ræða. KA vill fá leyfi til athafna á göngugötu Knattspyrnufélag Akureyrar hefur leitað eftir því við bæjar- stjórn að félaginu verði heimil- aðar uppákomur í Hafnarstræti. Hyggjast KA-menn afla fjár til rekstrar knattspyrnudeildar með þeim hætti að efna til sýninga- og kynningarstarfsemi fyrir fyrirtæki í göngugötunni, þegar til þess viðrar. Lélegir gluggar á sjúkrahúsinu f fundargerð heilbrigðisnefnd- ar frá 3. nóvember sl. kemur fram að gluggar fjórðungs- sjúkrahússins halda hvorki vatni né vindi og veldur það vatnselg innandyra í hlýindum og kulda í frostvindum. Telur heilbrigðis- nefnd að mikið vanti á að hús- næði sjúkrahússins uppfylli skil- yrði heilbrigðisreglugerðar og beinir þeim tilmælum til stjórn- ar FSA að úr þessu verði bætt hið fyrsta og sjúklingum boðin sómasamleg aðstaða. Lóð undir gistihús veitt Bygginganefnd hefur sam- þykkt að veita Bernharði Stein- grímssyni 2.854 fermetra lóð undir gistihús. Lóðin er við Þór- unnarstræti, sunnan lögreglu- stöðvarinnar og er byggingar- frestur ákveðinn eitt ár. 26 sóttu um akstur hjá SVA Stjórn Strætisvagna Akureyr- ar auglýsti nýlega eftir einum bifreiðastjóra til starfa. Alls bár- ust 26 umsóknir um starf þetta og þykir það lýsa nokkuð at- vinnuástandi í bænum. Stjórnin hefur samþykkt að ráða Hauk ívarsson, Seljahlíð 9G, til starf- ans - G.Berg. Leiðrétting í FRÉTT Mbl. í fyrri viku um þann atburð er skipverja tók út af mb. Akurey á síldarmiðunum jndan Suðurlandi voru missagn- ir, sem nauðsynlegt er að leið- rétta. Skipverjinn fór ekki útbyrðis með netunum eins og stóð, því bú- ið var að leggja netin. Hins vegar festist hann í útgjöf sem kallað er, kaðli, og losnaði um leið og hann kom í sjóinn. Hann hvarf í myrkr- ið en bátnum var bakkað í þá átt sem skipverjar töldu að manninn væri að finna. Eftir 6—7 mínútna leit sást hann í kastljósum bátsins og náðist fljótlega upp en var þá orðinn örmagna. Ognað með hnífi til að skrifa undir afsal Tveir menn ógnuðu sjómanni með hnífi í heimahúsi í Reykjavík um helgina og kröfðust þess að hann skrifaði undir afsal fyrir bif- reið sinni, en þeir komu saman af veitingahúsi, þar sem þeir mættust í fyrsta sinn. Maðurinn skrifaði undir afsal- ið til þess að losna úr prísundinni en kærði síðan málið til lögregl- unnar. Mennirnir voru handtekn- ir og neita þeir að hafa ógnað manninum og mun afsalið ófund- ið. Fjórði maðurinn ber að saga sjómannsins sé rétt. Aðalfundur FEF á fimmtudag AÐALFUNDUR Félags einstæðra for- eldra verður í Skeljahelli, Skeljanesi 6, fimmtudaginn 17. nóvember og hefst kl. 21 e.h. Jóhanna Kristjónsdóttir, formaður FEF, flytur skýrslu fráfarandi stjórnar og endurskoðaðir reikningar munu liggja frammi. Síðan fer fram stjórnarkjör og að loknum aðalfund- arstörfum verður drifið upp skemmtiatriði. Þess má geta að jólakort FEF verða afhent á fundinum og einnig geta félagsmenn fengið framfærslu- könnun þá sem gerð var nýlega og miklum umræðum hefur komið af stað. f fréttatilkynningu frá FEF eru fé- lagar hvattir til að fjölmenna og kaffi og meðlæti verður á boðstólum. Samhygð með skammdegis- brennu í Vatnsmýrinni SAMHYGÐ hefur sagt skamm- deginu stríð á hendur, ef marka má fréttatilkynningu frá samtök- unum. f dag, miðvikudag, verður opið hús á eftirtöldum stöðum: Bergþórugata 21, Djúpið, Hafnarstræti 15, Freyjugata 27, Fríkirkjuvegur 11, Norræna húsið, Hamraborg 5 og Suður- landsbraut 32, 4.h. Þá verður í kvöld kl. 23.30 brenna í Vatnsmýrinni, þar sem skammdegið verður á táknræn- an hátt brennt burt, eins og seg- ir í tilkynningunni. ...IEINUM MOGGAMÁNUÐI! Þú getur bókað 1500 síðna skammt af geysi- fjölbreyttu lesefni í einum Moggamánuði. Það samsvarar um 20—30 bókakiljum. Hefurðu áhuga á áskrift? Hringdu þá í síma 83033 og við komum blaðinu til þín hvar sem þú ert. Lesefni í stórum skömmtum!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.