Morgunblaðið - 16.11.1983, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1983 33
ÖRVERUFRÆÐI eftir dr. Ara Kr. Sæmundsen
Ofiiæmi
Nú eru þekktir fimm flokkar
mótefna (immunoglobulins), þ.e.
IgM, IgG, IgA, IgD og IgE. Þrír
þeir fyrstnefndu eru langalgeng-
astir og gegna mikilvægu hlut-
verki í klassískri ónæmissvörun,
t.d. við bólusetningar. Ekki er vit-
að, hvaða hlutverki IgD gegnir, en
IgE er talið gegna sérstöku hlut-
verki í baráttu við ýmis sníkjudýr.
IgE er þó þekktara vegna hlut-
verks síns í ofnæmi. Reyndar geta
hinir klassísku mótefnaflokkar,
t.d. IgG, einnig átt þátt í vissum
tegundum ofnæmis, en hér er ætl-
unin að fjalla um hlutverk IgE í
þeim ofnæmum, sem flestir kann-
ast við, annaðhvort af afspurn eða
eigin raun.
IgE og Mast—frumur
Öll framandi efni, sem hvetja
myndun mótefna eða á annan hátt
erta ónæmiskerfið, eru nefnd einu
nafni mótefnavakar eða ónæmis-
vakar (antigen). Antigen geta ver-
ið margs konar, en þekktust eru
eflaust alls kyns sýklar, s.s. veirur
og bakteríur. En við getum einnig
brugðist við öðrum antigenum i
umhverfinu, t.d. í fæðu eða and-
rúmslofti. Venjulega bregðast
menn við antigenum, með því að
framleiða einn eða fleiri af al-
gengustu mótefnaflokkunum, þ.e.
IgM, IgG og/eða IgA, en sumir
einstaklingar bregðast þannig við,
að þeir framleiða einnig óeðlilega
mikið af IgE. IgE, sem þannig
myndast, eftir ákveðið áreiti,
tengist síðan yfirborði svokallaðra
mast—fruma (mynd). Ef viðkom-
andi einstaklingur verður síðan
aftur á vegi sama antigens, þá
binst antigenið IgE sameindunum
á yfirborði mast—frumanna og
svokölluð afkornun (degranulat-
ion) á sér stað (mynd), þ.e. inni-
hald kornanna í umfrymi mast—
frumanna er losað út í umhverfi
frumanna. Einstaklingar, sem
þannig bregðast við, eru með
ofnæmi (allergic) gagnvart við-
komandi antigeni.
Hvað gerist?
í kornunum í umfrymi mast—
frumanna er að finna ýmis efna-
sambönd, m.a. histamín og efna-
samband, sem kallast SRS-A
(slow-reacting substance A). Bæði
þessi efni geta valdið tímabundn-
um samdrætti sléttra vöðva, en
histamín veldur jafnframt æðaút-
víkkun, þ.e. æðarnar verða gljúp-
ar. Samspil antigena, IgE og
mast—fruma, og þeirra efnasam-
banda, sem þessar frumur losa,
veldur því þeim sjúkdómseinkenn-
um, sem hrjá þann er ofnæmið
hefur.
Fólk getur haft ofnæmi gegn
mörgum mismunandi antigenum.
Mjög algengt er að menn hafi
ofnæmi gegn frjókornum plantna,
en einnig er algengt að menn hafi
ofnæmi gegn ákveðnum matarteg-
undum, t.d. skelfiski eða jarðar-
berjum. Ljrfjaofnæmi, t.d. gegn
pencillin, er einnig þekkt fyrir-
bæri. Þó fær fólk ekki ofnæmi
gegn lyfinu sem slíku, heldur binst
lyfið eða niðurbrotsefni þess, pró-
teinum í líkamanum. Við það geta
orðið smávægilegar breytingar á
próteinunum, sem gera það að
verkum að ónæmiskerfið telur að
hér sé um framandi prótein að
ræða. Það myndar því mótefni
gegn viðkomandi prótein-lyf
komplex, m.a. IgE, og í vissum til-
vikum getur þetta leitt til lyfja-
ofnæmis.
Ofnæmissjúklingar bregðast við
því antigeni, sem þeir hafa
ofnæmi fyrir, á mismunandi hátt.
Hafi viðkomandi ofnæmi fyrir
einhverju í andrúmsloftinu (t.d.
frjókornum), þá getur antigenið
bundist IgE á yfirborði mast—
fruma í efri hluta öndunarvegar-
ins, t.d. í slímhúð nefs. Losun
histamíns og annarra efna gerir
æðaveggina í slímhúðinni gjlúpa
og vessi úr æðunum flæðir út í
vefina umhverfis. Þar af leiðir hið
hvimleiða nefrennsli. Neðar í
öndunarveginum veldur losun
histamíns og SRS-A samdrætti í
lungnapípum og -berkjum. Þetta
veldur andþrengslum og astma.
Þeir sem hafa ofnæmi gegn
ákveðnum fæðutegundum fá oft
uppköst, ef áhrifanna gætir í efri
hluta meltingarvegarins, en
krampa og niðurgang, ef neðri
hluti meltingarvegarins á í hlut.
Oft sleppa þau antigen, sem við-
komandi hefur ofnæmi fyrir, út í
blóðrásina. Afleiðingin er þá oft
útbrot samfara bólgumyndun.
Þetta stafar af staðbundinni æða-
útvíkkun og flæði vessa út í nær-
liggjandi vefi. Ef menn innbyrða
nægilegt magn af antigeninu, þá
getur afleiðingin verið svokallað
ofnæmislost (anaphylaxis). Al-
hliða samdráttur sléttra vöðva og
útvíkkun háræða getur í vissum
tilvikum dregið til dauða. Slík
ofnæmislost geta verið afleiðing,
t.d. lyfjaofnæmis. Einnig verður
fólk oft illa úti eftir skordýrabit.
Rafeindasmásjármynd af mast-
frumu. Þessar frumur eni dreifðar
um líkamann, en eru algengastar í
stoðvef, í lungum og í kringum æðar.
Einnig er töluvert af þessum frum-
um í lifur, nýrum, milta, hjarta og
öðrum líffærum. Þessar frumur eru
10—15 míkrómetrar í þvermál (1
mfkrómetri = 1/1000 úr milli-
metra). f umfrymi er mikill fjöldi
korna, stundum allt að 500 í frurau.
í þessum kornum er að finna margs
konar efnasambönd, m.a. histamín
og SRS-A. Myndin til vinstri (a) sýn-
ir mast-frumu fulla af kornum í um-
frymi. Kjarninn er í miðri frumunni.
Myndin til hægri (b) sýnir mast-
frumu eftir að afkornun hefur átt
sér stað, þ.e. mast-fruman hefur los-
að innihald kornanna út í umhverf-
ið. (Úr bókinni „Essential Immuno-
íogy“ eftir I. Roitt.)
Það stafar af því að viðkomandi
hefur orðið næmur gegn þeim
eiturefnum, er slík skordýr gefa
frá sér, eftir fyrsta bitið. Sé við-
komandi bitinn aftur, þá getur af-
leiðingin í vissum tilvikum verið
ofnæmislost.
Lokaorð
Þegar vefir verða fyrir hnjaski,
á sér stað losun m.a. histamíns.
Það veldur því að æðarnar verða
gljúpari en venjulega. Þetta gerir
eitilfrumum og mótefnum kleift
að smjúga í gegnum æðaveggina
inn á hið skaddaða svæði til varn-
ar sýklum. Það má ætla að þetta
sé hið eiginlega hlutverk mast—
fruma. ótímabær losun histamíns
og annarra efna frá mast-frumum
getur hins vegar valdið öðrum
óskemmtilegum áhrifum, eins og
allir þeir þekkja, sem þjást af
ofnæmi.
Ileimíldir: J.T. Barrett (1974) „Textbook of
Immunolog)'**. C.V. Mosby ( ompany,
Saint Louis.
LE. Hood o.n. (1978) „Immuno-
logy“. The Benjamin ( ummings Pu-
blishing ( ompany, Inc., Menlo Park,
(alifornia.
I. Roitt (1977) „Essential Immuno-
logy“. Blackwell Scientific Publica-
tions, Oxford.
Neytendafélag
stofnað á
Suðurlandi
Stjórn Neytendafélags Selfoss og nágrennis.
NEYTENDAFÉLAG Selfoss og
nágrennis var stofnað miðviku-
dag 8. nóv. sl. Félagið hefur sótt
um inngöngu í heildarsamtök
neytenda á íslandi, sem eru
Neytendasamtökin.
Tilgangur félagsins er að gæta
hagsmuna neytenda á sem flest-
um sviðum viðskipta. Það er von
stofnfélaga, að Sunnlendingar
sjái sér hag í því að gerast félag-
ar. Þegar eru fjölmargir beinir
aðilar að Neytendasamtökunum
(NS) en það tvímælalaust hag-
ræðing í því, að ráðgjöf til neyt-
enda og upplýsingastarf séu
heima í héraði. Þess vegna
markar stofnun félagsins ákveð-
in tímamót.
Á stofnfundinum í Tryggva-
skála komu formaður Neytenda-
samtakanna og varaformaður
ásamt starfsmanni. Greindu
þeir frá félagsstarfi út um land,
sem er víða öflugt. Nægir að
nefna Borgarnes, en þar hefur
félagið m.a. staðið fyrir verð-
kynningu og framkvæmt verð-
kannanir af myndarskap.
Jón Magnússon, formaður NS,
skýrði frá því, að innan skamms
kæmi út sérstök útgáfa af blaði
samtakanna á 30 ára tímamót-
um, og þá er von á hentugri
möppu til heimilisbókhalds. Er
ekki að efa, að hún verður vel
þegin.
I stjórn Neytendafélags Sel-
foss og nágrennis eru Haukur
Gíslason, Páll Björnsson, Sig-
hvatur Eiríksson, Steingrímur
Ingvarsson og Þorlákur H.
Helgason, formaður.
(Frétutilkynning)
1
YNINGIH
BJLDSHOIIÐANUM
SKRIFSI0FAI
IFRAM1I0AR
LYKUR I KVOLD KL. 21